Tíminn - 12.10.1983, Síða 1

Tíminn - 12.10.1983, Síða 1
íslendingaþættir fylgja blaðinu í dag FJÖLBREYTTflRfl OG BETRA BLAD! Miðvikudagur 12. október 1983 236. tölublað - 67. árgangur Siðumula 15—Posthotf 370 Reykjavik—Rrtstjorn86300—Augiysingar 18300— Afgreidsla og áskrift 86300 — Kvóidsimar 86387 og 86306 Formannaslagurinn hefst fyrir alvöru í Sjálfstæðisflokknum: BREYTTflR REpUIR UM FOR- MANNSKJÖR AIANDSFUNN? — Krafan um að formannsefni fái meirihluta atkvæða gæti orðið til þess að sá þremenninganna sem undir verður ráði því hvor hinna verður kjörinn við aðra umferð ■ „Það er vitað mál að tillögur munu koma fram á landsfundi Sjálfstæðisflokksins um breyttar reglur um kjör formanns," sagði Kjartan Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokks- ins í samtali við Tímann í gær- kveldi að loknum miðstjómar- fundi flokksins, þar sem m.a. breytt tilhögun á kjöri formanns var rædd, en Samband ungra sjálfstæðismanna hefur gert til- lögu um að frambjóðandi verði að hljóta hreinan meirihluta at- kvæða til þess að vera kjörinn formaður flokksins. Ef nýjar reglur um kjör for- manns \'erða samþykktar á landsfundinum sem verður haldinn í byrjun október, þá verður næsti formaður kjörinn með þeirri tilhögun, og eru heim- ildarmenn Tímans á þeirri skoðun að þessi nýja tilhögun verði samþykkt. Það hefði það hugsanlega í för með sér að kjósa þyrfti tvisvar á landsfundi ef enginn frambjóðenda fengi hreinan meirihluta í fyrstu umferð. Hér er það haft í huga að þeir þrír, sem helst hafa verið orðaðir við formannsframboð Birgir ísleifur Gunnarsson, Friðrik Sóphusson og Þorsteinn Pálsson, verði allir í framboði og atkvæðin dreifist það mikið að enginn nái meirihluta. Þá myndi atkvæðafjöldi þess sem fæst at- kvæðin fengi og dreifing þeirra á hina tvo frambjóðendurna í seinni umferðinni, geta ráðið úrslitum um það hver yrði næsti formaður Sjálfstæðisflokksins. Tíminn reyndi ítrckað að ná sambandi við þessa þrjá menn í gærkveldi, en án árangurs, og sögðu heimildarmenn blaðsins að það hefði orðið að samkomu- lagi kandídatanna þriggja á miðstjórnarfundinum í gær að gefa engar yfirlýsingar um fram- boðsmál á sama degi og formað- ur flokksins, Geir Hallgrímsson lýsti því yfir að hann yrði ekki aftur í kjöri til formanns. -AB ■ Við upphaf miðstjórnarfundar Sjálfstæðisflokksins í gær, þar sem Geir Hallgrímsson lýsti því yfir að hann gæfi ekki kost á sér til endurkjörs. Honum á hægri hönd er Friðrik Sóphusson varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Tímamynd - Róbert Fjárlög næsta árs: T ryggingakerfið spari 300 milljónir króna ■ Fjárlagafrumvarpið fyrir I heilbrigðis- og tryggingaráðu- I herra upplýsti blaðamenn um á I heilbrigðis- og tryggingaráð- I sparnaðar í tryggingakerfinu. árið 1984 gerir ráð fyrir því að neytið finna leiðir til þess sparn- fundi í gær. herra hefðu orðið ásáttir um -AB sparaðar verði 300 milljónir aðar, samkvæmt því sem Albert Sagði fjármálaráðherra að þessa upphæð, en það kæmi í I, króna í tryggingakerfmu og mun | Guðmundsson, fjármálaráð- | hann og Matthías Bjarnason | hlut Matthíasar að finna leiðir til | Sjá bakSIOU Og blS. 3 Geir Hall- grfmsson: HÆTTIR EFTIR 10 ARÍ ■ „Ég ætlaði mér aldrei að gegna formannsstarfi lengur en 10 ár,“ sagði Geir Hallgrímsson for- maður Sjálfstæðisflokksins í samtali við Tímann, eftir miðstjórnarfund Sjálf- stæðisflokksins þar sem hann lýsti þeirri ákvörðun sinni að vera ekki í fram- boði til formannsembættis Sjálfstæðisflokksins á næsta landsfundi. Geir sagðist engan veg- inn vera hættur afskiptum af stjórnmálum, hann myndi halda áfram að . reyna að gera veg sjálf- stæðisstefnunnar sem mestan. Aðspurður hvort hann væri sáttur við að hætta formennsku nú, sagði hann: „Mjög svo,“ og er Tíminn spurði hann hvort hann hlakkaði ef til vill til þess að láta af formennsk- unni, svaraði hann: „Já, það er ekjri laust við það!“ - AB Gleyptu 160grömm af amfeta- míni! Handtekn- ir við komu hingað til lands og úrskurdaðir í viku gæslu- varðhald ■ Fíkniefnalögreglan handtók tvo menn á Keflavíkurflugvelli á Iaugardag við komu frá Luxem- burg, vegna gruns um að þeir væru að smygla fíkniefnum til landsins. Við rannsókn kom í ljós að mennirnir höfðu gleypt gúmmípoka og eftir að pokarnir höfðu skilað sér rétta boðleið reyndust þeir innihalda samtals 160 grömm af amfetamíni og tálsvert magn af kókaíni. Mennirnir voru úrskurðaðir í viku gæsluvarðhald á sunnudag og sitja þeir enn inni. Að sögn fíkniefnalögreglunn- ar er málið enn í rannsókn en mennirnir munu hafa farið í þessa ferð á eigin vegum og fjármagnað hana sjálfir. Þess má geta að í viðtali við Gísla Björnsson lögreglufulltrúa, sem birtist í Tímanum fyrir skömmu, kom fram að verðið á amfeta- míngramminu hérlendis er um 4000 krónur. GSH

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.