Tíminn - 18.11.1983, Side 4
FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1983
wm
Verslanir -
Fyrirtæki
Póstkröfu-
handbók
kemur út með
Tímanum
1. desember n.k.
Þeir sem hafa hug á að
minna á vörur vegna póst-
kröfusendinga, vinsamlega
hafi samband í
síma 72250 kl. 9-20
eða 18300 kl. 9-17.
fÍMÍM
Eftirsóttu „Cabína“
rúmsamstæðurnar
komnar aftur
Verð óbreytt kr. 11.900.-
Húsgögn og
innréttingar
Suðurlandsbraut 18
Sími 86-900
Loðdýra-
bændur ath.
Tökum aö okkur verkun á refaskinnum.
Verkunarkostnaður á skinn kr. 150.-
Upplýsíngar í sima 95-5318. Me|rakki h.f.
Sauðárkróki.
Kjararannsóknanefnd og
ríkisskattstjóri leita að
láglaunahópunum:
HVERJIR ERU í
RAUN 0G VERU
LÁGLAUNAFÓLK!
■ „Ég er að undirbúa viðræður við
forystumenn í launþegahreyfmgunni,“
sagði Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra í samtali við Tímann í gær,
„og ég ætla að stefna að því að taka upp
þráðinn þar sem frá var horfið, að fá
fram viðræður um ástandið í efnahags-
málum og horfur."
Forsætisráðherra sagði að í undirbún-
ingi væri allvíðtæk athugun á því hverjir
væru í raun og veru láglaunafólk. í því
sambandi hefði verið samið við Kjara-
rannsóknarnefnd um að hún tæki að sér
þá rannsókn. Jafnframt hefur forsætis-
ráðherra haft samráð við ríkisskattstjóra
um að úttekt væri gerð á skattafram-
tölum, með það fyrir augum að einangra
þann hóp sem við lökust kjör byggi.
Aðspurður um hvað ríkisstjórnin teldi
vera láglaunafólk, sagði forsætisráð-
herra: „Við vitum að lægstu launin eru
um 11 þúsund, og sá hópur sem hefur
þau laun, er tvímælalaust láglaunahóp-
ur. Sömuleiðis verður því ekki neitað að
öryrkjar með um 9 þúsund á mánuði og
aldrað fólk með tekjutryggingu, tilheyrir
tvímælalaust láglaunafólki. Spurningin
er sú, hve langt upp er hægt að teygja
sig, án þess að sprengja upp allan
■ „Þetta eru bæði teikningar, unnar með
krít og blýanti, og olíumyndir, líkt og ég hef
mest unnið með áður,“ sagði Þorbjörg
Höskuldsdóttir myndlistarmaður í samtali
við blaðið í gær en hún opnar sýningu á
verkum sínum í Listmunahúsinu við Lækjar-
götu á laugarþag kl. 14:00.“ Þetta er mjög í
svipuðum anda og fyrri sýningar mínar, ýmis
konar náttúrustemningar."
Ég sýndi síðast í haust á samsýningunni
Vetrarmynd í Listasafni ASÍ, og nokkrar
skalann. Ég fagna því mjög að bæði
B.S.R.B. Verkamannasambandið og
A.S.Í. hafa mjög tekið undir það, að
áherslu þurfi að leggja á, að bæta kjör
láglaunahópa og þess vegna erum við að
reyna að aðstoða við það með því að
skoða þetta á breiðum grundvelli."
Steingrímur sagði að kjarasamning-
arnir yrðu vitanlega í höndum aðilja
vinnumarkaðarins, en það væri ekkert
ólíklegt að ríkisvaldið kæmi þar inn, „til
dæmis með einhverri skattahagræðingu
fyrir láglaunahópana," sagði forsætis-
ráðherra.
Aðspurður álits á þeim orðum
Magnúsar Gunnarssonar, framkvæmda-
stjóra V.S.Í. um að ekkert svigrúm væri
til kauphækkana, sagði forsætisráð-
herra. „Ég skal ekki meta það, en ég tel
að þeir sem lægstu launin hafa verði að
fá kjarabót, en svo er það spumingin
með hvaða hætti það getur gerst og hvað
fær ríkisvaldið mikið fjármagn til þess að
veita svigrúm til að svo megi verða.“ Það
er því ekki eingöngu spurning um það
hvað mikið svigrúm vinnuveitendur
hafa. Það er hins vegar ekki hægt að
segja neitt til um fjárþörfina, fyrr en við
sjáum um hvað stórt dæmi er að ræða.“
myndanna sem ég sýni þar eru með hér en
flestar þeirra eru nýjar. hafa aldrei verið
sýndar áður. Þetta eru alls um 30
titlar sem ég sýni hér og sumar myndanna eru
samsettar, svo að segja má að þetta séu um
40 myndir.“
Sýning Þorbjargar er sölusýning og verður
opin virka daga nema mánudaga kl. 10.00-
18.00 og laugardaga og sunnudaga kl. 14.00-
18.00. Henni lýkur 4. desember.
-JGK
Lést af völd-
um fallsins
— en ekki af
voðaskoti
■ Við krufningu á líki unga mannsins
sem lést af slysförum í Sæmundarhlfð
á þriðjudag, kom í Ijós að hann lést
ekki af völdum voðaskots eins og sagt
var frá hér í blaðinu, heldur af völdum
falls. Hann mun hafa runnið til í hlíð
og ient á steinnibbu og hlotið af því sár
sem dró hann til dauða.
Það skal tekið fram að Tíminn hafði
sínar upplýsingar frá Slysavamarfélagi
íslands og birti þær í góðri trú. Blaðið
biðst hér með afsökunar á þeim óþæg-
indum sem þessi frétt kann að hafa
valdið aðstandendum og vottar þeim
samúð sína.
- GSH
Utanferð skólafulltrúa
í Kópavogi:
Ekki nóg
að senda
borðfána
— segir formaður
skólanefndar
■ „Það sem að baki liggur er að
skólanefndin samþykkti einróma að
mæla með því við bæjarráð að skóla-
fulltrúinn færi í þessa ferð. Við töldum
þctta mjög mikilvægt, þetta er
kennslugagnasýning og aðaltemað er
tölvan og notkun tölva við kennslu.
Þetta er það sem koma skal og við
verðum að vera viðbúin að mæta,“
sagði Hákon Sigurgrímsson formaður
skólanefndar í Kópavogi, en eins og
fram hefur komið í Tímanum þá gerðu
tveir bæjarráðsmenn athugasemdir og
voru mótfallnir því að skólafulltrúi
færi á sýningu og ráðstefnu í Svíþjóð
fyrr í þessum mánuði. „Þó að sparnað-
ur sé góður og sjálfsagður þá verða
menn að sjá lengra en rétt fram fyrir
tærnar á sér þegar um svona hluti er að
ræða“, sagð Hákon ennfremur.
- BK
Gódir gestir
til hjálpræðis-
hersins
■ Nú dveljast hér á vegum hjálp-
ræðishersins majorarnir Svend og Sól-
veig Björndal, en þau veita forstöðu
æskulýðsstarfi Hjálpræðishersins í
Noregi, Færeyjum og íslandi. Þau
koma nú til íslands í fyrsta sinn. Næstu
samkomur þeirra verða á Akureyri í
kvöld, á iaugardag og á sunnudag,
síðan verða samkomur í Reykjavík og
samkoma t' Hveragerðiskirkju 23ja
nóvember.
Majorarnir hafa í rúm 20 ár starfað
sem trúboðar í Afríku, auk þess sem
þau störfuðu um skeið í Suður-Ame-
ríku. Efnt verður til kristniboðskvölda
með þeim þar sem þau segja frá starfi
sínu í Afríku í máli og myndum. Þau
Sólveig og Svend Bjömdal eru norsk.
Þau dveljast hér til 27. nóvember.
- BK/DÓ
AB
■ Þorbjörg Höskuldsdóttir með eitt verlta sinna. Tímamynd GE
Þorbjörg sýnir í Listmunahúsinu
Snjóruðningstæki:
Framleiðum snjóruðnings-
tennur fyrir vörubíla og
dráttarvélar. Pantanir þurfa að
berast sem fyrst svo hægt
verði að afgreiða
þær fyrri part vetrar.
Staliækni sf.
Síðumúla 27, sími 30662