Tíminn - 18.11.1983, Qupperneq 11
Karatemót
í Ásgarði
á morgun hjá Stjörnunni
og Gerplu
■ Á morgun verður háð hörkukeppni
í KARATE í íþróttahúsinu Ásgarði í
Garðabæ. Eru þar karatemenn Stjörn-
unnar f Garðabæ og Jerplu í Kópavogi
' samankomnir, og refnist mótið Karate-
mót KTS og KTG. Keppt verður batði í
KATA og KUMITE, en það er frjáls
bardagi, þó undir mjög ströngum
reglum. Mótið hefst klukkan 14.00 f
Ásgarði, og stendur eitthvað fram eftir
degi. -SÖE
Selfosshlaup
Fjórða víðavangshlaup
vetrarins:
■ Fjóða vfðavangshlaup vetrarins
verður á morgun, 19. nóvember. Hlaup-
ið hefst klukkan 14 á íþróttavellinum.
Keppt vcrður í tveimur flokkum, karla
hlaupa 10 km. og konur hlaupa 4 km.
Ailir hlauparar, skokkarar og trimmarar
eru velkomnir í hlaupið.
Umsjón með hlaupinu hefur Gísli
Magnússon, og er heimasfmi hans 99-
1819. -SÖE.
Aðalfundur
-Handknattleiksdeildar
Þróttar
■ Aðalfundur handknattleiksdeilar
Knattspyrnufélagsins Þróttar verður
haldinn f Þróttheimum fimmtudaginn
JA. þessa mánaðar. Fundurinn hefst
kiukkan 20.
Á fundinum fara fram venjuleg aðal-
fundarstörf. Ný stjórn vcrður kosin.
Állir flokkar mæta. Framtíðaráform
verða til umræðu. Gamlir og nýir Þrótt-
arar og velunnarar velkomnir.
Aðalstjórn 1‘róttar boðar til þessa
fundar.
íþróttablaðið
komið út
■ íþróttablaðið er komið út. Þetta er
5. tölublað blaðsins 1983. í blaðinu er
margt af fróðlegu efni eins og endranær,
greinar, viðtöl og stuttar fréttir.
í blaðinu er, fróðleg viðtöl við Grím
Sæmundsen, knattspyrnumann og lækni
um íþróttir, íþróttamciðsl og það að hann
stefnir á sérnám í lækningum íþrótta-
meiðsla. Þá er í blaðinu viðtal við Jónas.
Tryggvason fímleikamann og verðandi
íþróttafræðing, scm stundar erfitt nám í
Moskvu, og gerð er úttckt á íslandsmót-
inu í knattspyrnu 1983. Að auki eru
viðtöl við Einar Bollason þjálfara Háuka
í körfuknattleik, og besta leikmann
Hauka, Pálinar Sigurðsson. Auk þcssa
erfjallað um maraþonhlaup, handknatt-
lcik og margt annað í blaðinu.
íþróttablaðið, íþróttir og útilíf er
* málgagn íþróttasambands íslands og er
gefið út af Frjálsu framtaki hf. Ritstjóri
er Stcinar J Lúðvíksson.
-SÖE.
MGGVI, KRISTÍN
OG RAGNHEIÐUR
KOMA HEIM!
í Bikarkeppnina í sundi sem verður um helgina
■ Um helgina verður keppt í 1. deild
Bikarkeppni Sundsambands íslands.
Mótið verður haldið í sundlauginni í
Hafnarfirði, og búast sundmenn við
hörkuspennandi keppn-þeirra 5 liða sem
eru í 1. deild og er talið að allt geti gerst,
flestir unnið og flestir fallið í aðra deild.
Sundfólk Islands, sem æfir og keppir
erlendis kemur heim til að taka þátt í
hörkuspennandi keppni þeirra 5 liða sem
keppninni, Tryggvi Helgason HSK frá
Svíþjóð, Ragnheiður Runólfsdóttir ÍA
einnig frá Sviþjóð og Kristín Guðmunds-
dóttir Ægi frá Danmörku.
il presi
Áeús
Femu Ágústsdóttur Ægi, sem hefur
verið sterkust í sínum greinum undanfar-
in ár, sérstaklega er talið að keppni verði
hörð hjá Guðrúnu í 100 metra bringu-
sundi og 100 metra skriðsundi. Guðrún
Fema á íslandsmetið í báðum greinum,
en Ragnheiður Runólfsdóttir hefur náð
að synda undir bringusundsmetinu á
æfingum. Þá hefur Bryndís Ólafsdóttir,
sundstúlkan efnilega úr Þorlákshöfn,
dóttir Hrafnhildar Guðmundsdóttur
sunddrottningar á árum áður, höggvið
■ Tryggvi Helgason: kemur heim í
Bikarkeppnina.
mjög nærri íslandsmeti Guðrúnar Femu
í 100 metra skriðsundi.
Mjög er taldið óvíst hvaða lið fer með
sigur af hólmi í keppninni, en fimm lið
eru í fyrstu deild, HSK, Ægir, ÍA SH og
UMFN. Fari svo að Guðrún Fema verji
met sín, og boðsundsgreinar syndist eftir
áætlun er Ægisfólk talið hafa mikla
sigurmöguleika, en um leið og eitthvað
gerist óvænt getur allt gerst. Vitað er að
HSK fólk stendur sterkt, hefur æft stíft.
Stór hópur frá félaginu fór í æfingabúðir
til Þýskalands sl. sumar, og þar hefur
mikið verið æft. ÍA og Njarðvík eru
einnig sterk lið, og SH vaxandi, kom upp
sl. ár.
- SÖE
Unglingameistar-
ar frá Danmörku
með á AfnwHtmóti Víkktgt í bwbnhitM
■ Badmintondeild Víkings heldur um
nxstu helgi Afmælismót í badminton í
Laugardalshöllinni í tilcfni 75 ára afmxlis
Knattspyrnufélagsins Vtkings og 10 ára
afmxlis Blakdeildarinnar. Mótið hefst á
morgun, og hefur badmintondeild Vik-
ings fengið tvo sérstaka gestaleikmenn til
að taka þátt, Morten Sandal og Henrik
Olsen, unglingameistarana dönsku, en
eins og kunnugt er eru Danlr meðal
fremstu þjóða heims í badminton.
Reiknað er með mildlli þátttöku i
mótinu, og að badmintonleikarar alls
staðar að af landinu lomi og keppi.
Keppt verður í öllum flokkum unglinga á
mótinu. Keppnin hefst klukkan 13.00 á
morgun og verða síðan leildn undanúrslit
og órslit á sunnudag. - SÓE.
Hvert einasta
skúmaskot
þaulkannað
Öryggisgæsla vegna leiksins
við Maccaby í hámarki
■ Mikil öryggisgæsla fylgir liðið
Israelsmannanna, sem keppa við FH
i kvöld. Samkvæmt heimildum Tím-
ans hefur hvcrt einasta skumaskot i
bæði I.augardalshöllinni og íþrótta-
húsinu í Hafnarfirði verið kannað til
hlýtar, og önnur slík nákvæm könnun
mun eiga sér stað áður en lið Macc-
aby kemur á leikstað.
Vopnaöir veröir munu fylgja lið-
inu, og mikil óryggisgæsla vera með-
an leikirnir tveir fara fram. Engum
verður t.d. leyft að vera á gólfinu
fyrir framan áhorfendabekkina, í
hvorugu húsinu. þareðaöryggisgæsl-
an krefst þesS'og mun framfylgja því
ef á þarf að halda.
Það er því fuil ástæða til að vara
alla við því að vera með einhver
fíflalæti viö öryggisgæsluna, eða
trufla starfsmenn hennar á einhvern
hátt. Israelsmenn eru orðnir vanir
hinum ótrúlegustu árásum og hermd-
arverkum, og í þeirra hug er ekki
hægt aðgera grín aðslíkum hlutum.
. - SÖE
GLÆSILEGIIR SKUR
IStfÚSKIM VMJIYRH
— sigrudu Bandaríska landsliðið í handknattleik 23:22
■ íslenska kvennalandsliðið í hand-
knattleik sigraði það bandaríska í lands-
leik í íþróttahúsi Seljaskóla 23-22 í
hörkuleik. Sigurinn var sanngjarn, eftir
að Bandaríkjastúlkurnar höfðu komist í
2-0 tóku þær íslensku forystuna, og
höfðu alltaf frumkvæðið eftir það. ísland
sigraði eftir æsispennandi lokamínútur,
þar sem bandarísku stúlkurnar náðu
nærri' að vinna upp þriggja marka
forskot. Staðan í hálfleik var 11-9 íslandi
í hag.
íslenska liðið byrjaði af krafti, en
sökum dálítils óstyrks í sókninni komust
Bandaríkjastúlkumar í 2-0. En með
marki frá Margréti Theódórsdóttur og
tveimur gullfallegum línumörkum Erlu
Rafnsdóttur komst ísland í 3-2, og 4-2
með fallegu marki Emu Lúðvíksdóttur
úr vinstra horninu. Þær bandarísku
fylgdu eftir, en ísland hélt eins til tveggja
marka forskoti og 11-9 í hálfleik.
Eftir fyrri hálfleik, sem var mjög
kryddaður með frábærri frammistöðu
Erlu Rafnsdóttur á línunni, blómstraði
Guðríður Guðjónsdóttir. Hún gaf falleg-
ar línusendingar, skoraði með gegnum-
brotum, og úr vítaköstum. Hraðaupp-
hlaupin voru vel unnin af Ernu Lúðvíks-
dóttur, Erlu Rafnsdóttur og Kristínu
Pétursdóttur sem lék mjög vel. Eftir að
jafnt var 12-12, 13-13, 14-14 komst
ísland í 16-14, en þær bandarísku jöfn-
uðu 16-16. ísland komst í 18-16, 19-17,
og síðan náðist fyrst þriggja marka
forskot, 21-18. Eftir að Bandaríkjastúlk-
urnar höfðu minnkað muninn í 21-20,
komst ísland í 23-20, og Bandaríkin
náðu 22-23. íslendingar misstu svo bolt-
ann á lokasekúndunum, en héldu sínu.
Erla Rafnsdóttir, Guðríður Guðjóns-
dóttir, Erna Lúðvíksdóttir og Kristín
Pétursdóttir voru .bestar í góðu íslensku
liði. Það skyggði þó á frammistöðuna,
að markvarsla var léleg, alls varin 5-6
skot í leiknum. Best af Bandaríkjastúlk-
unum var Jones, geysisterk vinstrihand-
arskytta sem varla tók feilskot, og Sherry
Winn, hörð í gegnumbrotum, línu og
hornamennsku.
Mörkin: ísland: Guðríður 8/4, Erla 6,
Erna 4, Kristín 2, Ingunn Bernódusdótt-
ir 2 og Margrét Theódórsdóttir 1. USA:
Jónes 9, Wynn 4, Stinger 3, Dwight 3,
Hale 2 og Stone 1.
Dómarar voru Stefán Amaldsson og
Rögnvaldur Erlingsson og dæmdu þeir
jafnt og vel. _sÖE
■ Eitt marka íslands að verða stað-
reynd, Ingunn Bemódusdóttir gefur
stórgóða sendingu ó Erlu Rafnsdóttur á
línunni, Eria náði boltanum og skoraði.
Þannig urðu til mörg falleg mörk, ís-
lensku skytturnar gáfu fallegar linusend-
ingar, og Eria tók vart feilskot.
-SÖE/Tímamynd Róbert.
Island Bandaríkin íkvöld:
Forleikur ad
Evrópuleiknum
ætti að verda góð kynning
á kvennahandknattleik
OLLU SEM VIÐ EIGUM
77
segir Geir Hallsteinsson þjálfari FH sem leikur við Maccaby
Tel Avib Aviv í kvöld í Laugardalshöll
■ „Ég er alveg sannfræður um að þetta
er mjög gott lið, þrátt fyrir að við höfum
ekki fengið miklar upplýsingar um lið
Maccaby. Það er alveg víst að við
þurfum að taka á öllu sem við eigum til
að komast áfram í keppninni", sagði
Geir Hallsteinsson þjálfari handknatt-
leiksliða FH í samtali við Tímann í gær.
„Ég hef fengið upplýsingar frá Björgúlfi
Gunnarssyni sem býr í Tel Aviv um
liðið, og einnig skoðað myndbönd af leik
Israelsmanna í Heimsmeistarakeppninni
í fyrra, t.d. gegn Hollandi. Þar voru þrír
leikmenn Maccaby. Þá hcfur Bogdan
gefið þær upplýsingar sem hann hefur í
SUÐURNESJASLAGUR
— í körfuboltanum í Njarðvík í kvöld
gegnum sinn feril, marga þessa leikmenn
kannast hann við. Ut frá þessu held ég
að óhætt sé að segja að liðið sé sterkt,
auk þess sem ég ber virðingu fyrir
Israelsmönnum, þeir eru miklir keppnis-
menn“. sagði Geir.
Geir sagðist halda að liðið yrði sterk-
ara en menn halda. „ísraelsmenn eru
miklir keppnismenn, bardagakarlar og
þeir gefa hvergi eftir.“ sagði hann. „Það
eru reyndar miklar breytingar á þessu
liðið frá ári til árs“, sagði Geir. Margir
leikmanna eru útlendingar, Þjóðverjar,
Sovétmenn o.s.frv., sem eru í gæslu-
sveitum á svæðinu. Maccaby lék gegn
Grikkjum í undankeppninni, og burstaði
■ í kvöld er aldeilis framundan Suður-
nesjaslagur í körfuboltanum, Keflvík-
ingar bregða undir sig betri fætinum og
fara til Njarðvíkur og eiga við nágrann-
ana í úrvalsdeildinni. Ekki hefur Kefl-
víkingum enn tekist að sigra Njarðvík-
inga í vetur, en það má gjarnan fylgja
sögunni að Njarðvíkingar höfðu ekki gert
mikið af að sigra Keflvíkinga í opinber-
um mótum fyrir veturinn í vetur. Bæði
þessi lið leika sífellt leiki sína á heima-
velli á föstudagskvöldum fyrir fullu húsi,
svo ekki er ólíklegt að troðfullt verði í
Njarðvík.
í síðasta leik liðanna sigruðu Njarð-
víkingar með nokkrum stigum, en á
óvart kom hversu mótstaða Keflvíkinga
var öfluggegn þeim. Þá var Njarðvíking-
um fyrirfram bókaður sigur, enda þeir
taplausir í deildinni og höfðu unnið í
Reykjanesmótinu örugglega. Nú aftur á
móti hafa Njaðvíkingar sýnt á sér veikan
punkt, töpuðu fyrir botnliði ÍR, en
reyndar sigrað Vai síðan. Keflvíkingar
hafa á meðan tapað tveimur heima-
leikjum í eymd og volæði, en iíklegt
þykir þó að þeir rífi sig upp í kvöld, enda
þyrstir þá í stig, og hvers vegna ekki að
taka þau frá erkióvininum...?
Leikurinn er í íþróttahúsinu í Njarð-
vík og hefst klukkan 20.00.
Tveir leikir eru aðrir í körfunni í
kvöld, Grindavík og UMFL mætast í
íþróttahúsinu í Keflavík klukkan 20.00,
í fyrstu deild karla, og í fyrstu deild
kvenna keppa Snæfell og Njarðvík, í
Borgarnesi klukkan 19.00. -SÖE
Geir Hallsteinsson, þjálfari FH.
þá. - En ég ber mikla virðingu fyrir
Israelsmönnum, þeir geta hvergi hallað
höfði sínu vegna hættu á hryðjuverka-
mönnum,og það þykir þeim illt að búa
við. Ég man alltaf eftir því að þegar ég
var fánaberi fyrir íslenska Ólympíuliðið
árið 1972 í Múnchen, ræddi ég töluvert
við ísraelsmanninn sem var fánaberi
þeirra á generalprufu fyrir skrúðgöng-
una. Við ræddum um land hvors annars
og þjóð, og hann minntist á það, hve
leiðinlegt væri að geta ekki verið í sömu
álmu og við, því öllu var raðað í
stafrófsröð. En vegna öryggisástæðna
urðu ísraelsmennirnir að vera annars
staðar. Síðan var það þessi maður, sem
var keppandi í lyftingum, sem reyndi að
stöðva hryðjuverkamennina er þeir
ruddust inn í búðir ísraelsmannanna, og
þeir skutu hann gegnum hurð sem hann
reyndi að læsa. Þetta sló mann þá, og
sýnir hve mikla hörku þessir menn þurfa
að búa við. Þeir verða áreiðanlega
erfiðir í leikjunum.“
Geir sagði að allir leikmenn FH væru
við góða heilsu, Atli Hilmarsson og
Guðmundur Magnússon hefðu átt við
smávægileg meiðsli að stríða, en þeir
væru í meðhöndlun og mundu mæta
galvaskir í leikinn í kvöid.
„Við lofum áhorfendum því að sýna
góðan og skemmtilegan bolta, vera
hressir og kátir og sýna bolta sem ekki
er sýndur á hverjum degi. Við erum í
góðu formi, og okkur hefur gengið vel
að undanfömu. Við höfum skoðað okk-
ar mistök það sem af er, þökk sé
myndbandatækninni, og reynum að gera
enn betur en við höfum gert.“ _ §ÖE
■ Annar landsleikur íslands og Banda-
ríkjanna í kvennahandknattleik verður
forleikur að Evrópuleik FH og Maccaby
í Laugardalshöll í kvöld. Leikurinn mun
hefjast Idukkan 19.05, en leikur FH og
Maccaby hefst síðan klukkan 20.30.
Á blaðamannafundi sem haldinn var í
tilefni landsleikjanna við Bandaríkin
sögðu forráðamenn kvennalandsliðsins
það vera tómt mál að tala um, að fá
áhorfendur að einhverju marki á leikinn,
meðan EvrópUleikur FH og Maccaby
stæði, svo tekið hefði verið það ráð að
kynna kvennahandboltann með þessu.
Tímasetning leiksins er í fullu samráði
við stjórn FH, og leikurinn því forleikur
að Evrópuleiknum.
Ekki er vafi á að þetta úrræði getur
orðið kvennahandknattleik til fram-
dráttar, því helsti vandi kvennahand-
knattleiksins hefur hingað tii verið sá að
áhorfendur sem koma á leikina eru fáir,
ef miðað er við karlaboltann, og með
því að sýna góðan handbolta í kvöld
sýna stúlkurnar fólki að þeirra bolti sé
þess virði að sjá hann.
-SÖE
Ókeypis að
borðum...
ekki borgað inn
á billjardstofur
■ Það snerist örlítið í höndum blaðamanns
penninn í vikunni, er fjallað var um nýbreytni
Gylfa Snædahls Guðmundssonar í billjard-
stofunni Ballskák, þar sem hann býður upp
á ókeypis kennslu og aðgang að billjardborð-
um. Sagt var í fréttinni aðum ókeypis aðgang
að billjardstofu væri að ræða, og því er hægt
að misskilja fréttina. Fólk borgar sig ekki inn
á billjardstofur, heldur aðgang að borðum.
Gylfi Snædahl og aðrir billjardspilarar og
stofustjórar eru beðnir fdrláts á þessu.
-SÖE
■ Lið FH sem leikur gegn Maccaby i kvöld og á sunnudagskvöld. Á myndinni eru: Efsta röð frá vinstri: Guðjón Ámason,
Guðmundur Ó. Óskarsson, Hans Guðmundsson, Kristján Arason, Atli Hilmarsson, EgiU Bjaraason, form. handknattleiks-
deiidar. Miö röð frá vinstri: Guðmundur „Muggur“ Jónsson, Óskar Ármannsson, Sveinn Bragason, Eggert ísdal, Theodór
Sigurösson, Jón E. Ragnarsson, Magnús Áraason, Geir HaUsteinsson, þjálfari og Helgi Ragnarsson, Uðsstjóri. Fremsta
röð frá vinstri: Þorgils Ó. Mathiesen, Valgarður Valgarðsson, Haraldur Ragnarsson, Guðmundur Magnússon, Sverrir
Kristinsson, Páimi Jónsson og Finnnr Áraason.
Ríkharður
skoraði 40
slig
Snæfeli vann tvo leiki í
2. deild um helgina
■ Ríkharður Hrafnkelsson ætlar að
reynast félögum sínum í Snæfelli frá
Stykkishólmi drjúgur, en þessi hittni
stigaskorari flutti síðastliðið vor heim til
Stykkishólms, og varð því að hætta að
leika með Vaí. Hann ieikur nú með
Snæfelli í annarri deildinni í körfuknatt-
leik, og skoraði um helgina 40 stig í leik
gegn Tindastóli. Þá skoraði Rikki 20 stig
gegn Breiðabliki, en þann Ieik vann
Snæfell með einu stigi. Kári Marísson sá
gamalreyndi kappi skoraði 13 stig fyrir
Tmdastól gegn Snæfclli.
Úrslit í annarri deiid karla í körfu-
knattleik urðu þessi um helgina:
Snæfell-llndastóU ......1A-VÍ
SnæfeU-Breiðablik ... '..56-55
ÍA-Tindastóll............82-49
I ieik Snæfells og Breiðabliks hitti
skrattinn ömmu sína, ef svo má segja,
því stór hluti Breiðabliksmanna eru
fyrrum Stykkishólmsbúar.í liði Breiða-
bliks varð Ragnar Bjartmarz stigahæstur
með 17 stig, cn auk hans leika í
Breiðabliki Lárus Svanlaugsson, Sigurð-
ur Hjörleifsson og fleiri Hólmarar.
Stykkishólmur hefur alið margan góðan
körfuknattleiksmanninn, og nægir að
nefna þá Ríkharð ogKrístján Ágústsson .
körfutröll í Val því máli til stuðnings.
-SÖE
Landsmót UMFÍ
í Keflavík 1984:
Forkeppnií .
knattspyrnu
að mestu lokið
■ Forkeppni i knattspyrnu fyrir 18.
landsmót U.M.F.Í., sem haldiðAerður i
Keflavík og Njarðvík dagana 13.-15. júlí
1984, er nú aö mestu lokið.
Sex lið hafa unnið sér rétt til þátttöku
á Landsmótinu en óvíst er hvaða tvö lið
fylgja þeim þar sem þurft hefur að fresta
tveimur leikjum fram á næsta vor.
í tveimur riðlum er keppni lokið, í B
riðli sigraði UMSS, hlaut 8 stig, UÍÓ
varð í öðru sæti -\ > 6 stig, USAH hlaut
4 stig, HSS 2 si.g.og USVH ekkert stig.
UMSS og UÍÓ fara því afram í úrslit. -
í D-riöli sigraði UMF Grindavíkur í
þriðja sæti með 4 stig og HSK hiaut
ekkert stig. UMF Keflavíkur og UMF
Njarðvíkur komast því áfram.
í tveimur riðlum cr keppni ólokið, í
A-riðli hefur UMSK 6 stig, HSH 2,
UMSB 2og UDN ekkért. UMSK kemst
áfram, ogannaðhvort HSHeð., UMSB.
í C-riðli er HSÞ efst með 4 stig, UÍA og
UMSE hafa ekkert stig, en USVS hætti
kcppni. HSÞ fer áfram, og annað hvort
UÍAeða UMSE.
Oftast hafa lið UMSK eða UMFK
sigrað á landsmótum, enda leikmenn
þeirra liða að mestu leyti leikmenn
Breiðabliks annars vegar og ÍBK hins
vegar. - SÖE.
Aðal-
fundur
- körfuknatt-
leiksdeildar KR.
■ Aðalfundur körfuknattleiksdeildár
KR. verður haldinn i félagsheimili KR.
við Frostaskjól, fimmtudaginn 24. nóv-
ember 1983 kl. 20:30. Dagskrá: Vénju-
leg aðalfundarstörf. Stjórn Körfuknatts-
leiksdeildar KR boðar til fundarins.
-SÖE.
■ . 3 ■ -
■m