Tíminn - 20.11.1983, Side 7
SUNNIJDAGIIR 20. NÓVFMRFR 19M
bækur
„Vala og Dóra“,
fimmta Dórubókin komin út
IÐUNN hefur gefið út í annarri úgáfu
unglingasöguna Völu og Dóru eftir Ragn-
heiði Jónsdóttur. Þetta er fimmta bókin í
sagnaflokki Ragnheiðar um þessar stallsyst-
ur, en sögurnar gerast í Reykjavík á stríðsár-
unum og þar á eftir. Vala og Dóra kom fyrst
út árið 1956. Hún er beint framhald sögunnar
Völu sem kom í nýrri útgáfu í fyrra. Efni
sögunnar er kynnt svo á kápubaki. „Hér segir
frá skólagöngu þeirra vinstúlkna, striti þeirra
og áhyggjum og líka ánægjuefnum oggleði-
stundum."
Vala og Dóra er prýdd teikningum eftir
Ragnheiði Gestsdóttur og gerði hún einnig
kápumynd. Hún er 129 blaðsíður. Oddi
prentaði.
Saga Hafnarf jarðar
1908-1983
Út er komið fyrsta bindi af þremur af Sögu
Hafnarfjarðar 1908-1983, sem Ásgeir Guð-
mundsson sagnfræðingur hefur skráð af til-
efni 75 ára kaupstaðarafmælis Hafnarfjarðar.
Öll þrjú bindin verða milli 1200 og 1300
blaðsíður, í stóru broti, og í ritinu verða yfir
1000 ljósmyndir auk korta og uppdrátta.
Saga Hafnarfjarðar er hér rakin frá upphafi
og fram til afmælis bæjarins, sem var hinn 1.
júní s.l.
1 fyrsta bindi ritsins, því sem út er komið,
er eftirfarandi efni: Formáli höfundarins.
Inngangur, sem fjallar um sögu bæjarins
fram til 1908. Hafnarfjörður verður kaup-
staður. BæjarStjórn í Hafnarfirði 1908-1983.
Hafnarfjarðarkjördæmi. Lögsagnarumdæmi
Hafnarfjarðar. Bæjarlandið. Krýsuvík.
Skipulagsmál. Fjármál. Hafnarfjarðarhöfn.
Atvinnumál.
í öðru bindi ritsins er fjallað um: Raf-
magnsmál. Hitaveitu. Vatnsveitu Hafnar-
fjarðar. Slökkvilið Hafnarfjarðar. Löggæzlu.
Skólamál. íþróttir. Heilbrigðismál. Kirkju-
mál. - Annað bindi ritsins kemur út síðast í
þessum mánuði.
í þriðja bindi, sem kemur út í aprílmán-
uði á næsta ári, verður fjallað um: Stéttarfé-
lög. Verzlun og viðskipti. Tónlistarmál.
Menningar- og félagsstarfsemi. Samgöngu-
og vegamál. Prentsmiðjur og útgáfustarf-
sémi. Félagsmálastofnun og æskulýðsstarf-
semi. Æviágrip bæjarstjóra og bæjarfulltrúa.
Myndaskrá. Nafnaskrá. Heildarefnisyfirlit.
Saga Háfnarfjarðar 1908-1983 verður, þeg-
ar öll þrjú bindin eru komin út, eitt mesta rit
sinnar tegundar, sem út hefur verið gefið
hérlendis. Fyrir utan hinn óhemju mikla
fróðleik um Hafnarfjörð, sem texti ritsins
hefur að geyma, segir hið mikla magn
ljósmynda, korta og uppdrátta sína sögu.
Myndjrnar í Sögu Hafnarfjarðar 1908-1983
sýna vel þá miklu breytingu, sem á bænum
hefur orðið þann tíma, sem sagan spannar
yfir. Og margar þessara ljósmynda hafa
aldrei fyrr birst á prenti.
Saga Hafnarfjarðar 1908-1983 er sett,
prentuð og bundin í Prentsmiðju Hafnar-
fjarðar hf. Káputeikningu gerði Dóra Dal.
Útgefandi er Skuggsjá.