Tíminn - 20.11.1983, Page 9

Tíminn - 20.11.1983, Page 9
SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1983 9 Sveitarfélögin mega ekki þyng|a byrði heimilanna ■ Jón Sigurðsson forstjóri Þjóðhagsstofnunar. Kaupmáttur tekna ■ Eins og áður hefur verið getið hér í blaðinu, flutti Jón Sigurðsson for- stjóri Þjóðhagsstofnunar erindi á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga, sem haldin var í Reykjavík 10. þ.m. Þar sem Jón Sigurðsson hreyfði þar hug- mynd um skatta sveitarfélaganna á næsta ári, sem mjög hlýtur að verða til umræðu í náinni framtíð, þykir rétt að segja hér nokkru nánara frá efni þess. í erindi sínu ræddi Jón um líklegan kaupmátt tekna á næsta ári. Kaupmátt- ur þeirra hefur lækkað verulega á þessu ári, einkum á síðustu mánuðum þess. Ekki þykir líklegt, að kaupmátt- urinn geti aukizt á næsta ári, en hins vegar er gert ráð fyrir, að hann haldist svipaður og á síðustu mánuðum þessa árs. Samkvæmt þessari áætlun yrði kaupmáttur tekna fyrir skatt um 4-5% minni á árinu 1984 en á árinu 1983, þegar miðað er við allt árið. Eins og fram kemur í fjárlagafrum- varpi er að því stefnt, að álagðir beinir skattar til ríkissjóðs hækki um sama hlutfall og tekjur heimilanna, þ.e. að skattbyrði vegna ríkissjóðs þyngist ekki í þessum skilningi. 1 fjárlagafrum- varpinu er ekki gerð tillaga um það í nánari atriðum, hvernig þessi álagning verður framkvæmd. Tillaga um fram- kvæmd þessara skattabreytinga verður þáttur í almennri tiilögugerð um skattamál, sem í vændum er. Sveitarfélögin geta hins vegar haft úrslitaáhrif á skattbyrði beinna skatta á næsta ári. Með öllu er ljóst, að eins og nú horfir í efnahagsmálum er þyng- ing skatta á almenning ekki ráðleg, en samtímis er einnig mikilvægt, að fjár- hagur sveitarfélaga sem annarra opin- berra aðila standi sæmilega traustum fótum og ekki sé stofnað til skulda- söfnunar, sem á endanum getur grafið undan árangri hagstjórnar á öðrum sviðum. Þessi tvö sjónarmið togast óhjákvæmilega á við gerð fjárhagsáætl- ana fyrir næsta ár. Fjárhagur sveitarfélaga Jón Sigurðsson vék þessu næst í erindi sínu að fjárhagsstöðu sveitarfé- laga. Hann sagði: „Meira en fjórir fimmtu hlutar skatt- tekna sveitarfélaganna eru af sköttum, sem lagðir eru á skattstofna frá fyrra ári. Þessi tímatöf í skattstofninum veldur vandkvæðum, þegar tekjur og verðlag breytast mjög mismikið frá einu ári til annars, einkum séu þessar breytingar óvæntar. Þegar verðbólga fer vaxandi ár frá ári er hætt við, að tekjur sveitarfélag- anna dragist aftur úr gjöldum, enda langstærsti hluti teknanna skatttekjur, sem miðast við breytingar fyrra árs (útsvör, aðstöðugjöld og fasteigna- skattar). Gjöldin fylgja hins vegar kostnaðarbreytingum á líðandi ári að mestu leyti. Áætlanir fyrir árið 1982 og spár fyrir 1983, sem Þjóðhagsstofnun hefur gert m.a. á grundvelli upplýsinga frá stærstu sveitarfélögum, sýna að fjár- hagur sveitarfélaganna hefur veikst á síðustu tveimur árum. Mikilvægur mælikvarði á hag sveitarsjóða er það fjármagn, sem fá má úr rekstrinum til framkvæmda og eignabreytinga. Sem hlutfall af heildartekjum sveitarsjóða hefur þetta fé rýrnað verulega. Þetta hlutfall var talið 30,7% árið 1981, en í áætlun fyrir 1982 er það komið niður í 29% og samkvæmt spá fyrir 1983 lækkar það enn, eða niður í 25-26%. Þetta eru mun lægri hlutföll en árin næst á undan. Meginskýringin er auð- vitað sú, að tekjubreytingar hafa verið minni en breytingar rekstrargjalda. Áætlað er, að heildartekjur sveitar- félaganna (að meðtöldum gatnagerð- argjöldum og vaxtatekjum) hafi aukizt 1982 um nálægt 65% frá fyrra ári, en rekstrargjöld (fyrir afskriftir) um 68%. Þessi munur á hækkun tekna og gjalda virðist fara vaxandi á þessu ári. Á grundvelli fyrirliggj andi upplýsinga um útsvarsálagningu og greiðslu fasteigna- gjalda, svo og með hliðsjón af þróun annarra þátta, sem snerta rekstursveit- arfélaganna, er því spáð, að tekjur þeirra aukist á árinu um 58-59% en rekstrargjöld (án afskrifta) um 66- 67%. Þær áætlanir og spár, sem hér hafa verið raktar, benda því til þess, að fjárhagsstaða sveitarfélaganna sé um þessar mundir óvenjulega erfið. Vegna tekjusamdráttar kunna framkvæmda- áform að raskast, nema til komi önnur fjármögnun, og raunar hefur þegar verið dregið úr áformuðum fram- kvæmdum margra sveitarfélaga. Ann- að atriði, sem kynni að breyta fjárhags- horfum og þar með framkvæmda- áformum enn frekar, felst í óvissu um innheimtu tekna á síðustu mánuðum ársins, sem er óvenju mikil nú, þegar saman fer rýrnandi kaupmáttur launa og afturkippur í þjóðarbúskapnum. Vísbendingar, sem fengnar eru frá 12 sveitarfélögum, sem saman leggja á 70% af útsvörum, aðstöðugjöldum og fasteignasköttum, benda til þess, að heildarskuldir sveitarsjóða í hlutfalli við tekjur hafi hækkað til muna á árinu 1982. Á sama tíma hafa útistandandi sveitarsjóðsgjöld einnig hækkað, þ.e. innheimta hefur slaknað. Þetta er viðsjárverð þróun, því á sama hátt og sveitarfélögin eru grunneining stjóm- arfarsins, er það grundvallaratriði í heilbrigðum efnahag landsins, að fjár- hagur þeirra sé í sæmilegu jafnvægi. Líkur benda til, að lausaskuldir sveit- arsjóða vaxi til muna á þessu ári. Erfitt er að festa þessa þróun nákvæmlega í tölur, en hér gæti verið um að tefla 200 til 300 milljón króna greiðsluhalla á árinu í heild, sem þó mun ákaflega misskipt milli sveitarfélaga, og ráða víða sérstakar ástæður. Þessa stöðu þarf að laga á næsta ári. Þar með er ég kominn að fjárhagshorfum fyrir sveit- arfélögin 1984.“ Fjárhagshorfur sveitarfélaga 1984 >,Að gefnum þeim forsendum um breytingar gengis, launa og verðlags, sem á er byggt í efnahagsáætlunum ríkisstjórnarinnar fyrir árið 1984 og efnahagsstefna hennar miðast við, em nú horfur á, að við óbreytta skattálagn- ingu, hækki tekjur sveitarfélaga mun meira en svarar verðbreytingum út- gjalda þeirra á árinu 1984. Slík þróun væri vafalaust kærkomin í mörgum sveitarfélaganna eftir erfitt fjárhagsár. Á hinn bóginn fæli hún í sér, að skattbyrði einstaklinga af völdum skatta til sveitarfélaga þyngdist vem- lega. Þjóðhagsstofnun hefur gert athugun á því, hversu mikil hækkun skatttekna sveitarfélaga yrði að óbreyttum álagn- ingarreglum að öllu leyti. Niðurstaðan er sú, að útsvör myndu hækka um 55%, aðstöðugjöld um 56%, en fram- lög úr Jöfnunarsjóði munu hækka um 27% samkvæmt forsendum fjárlaga- frumvarps. Verðhækkun fasteigna- mats hefur nú verið ákveðin 57% á höfuðborgarsvæðinu en 47% utan þess. Að meðtöldum áhrifum endur- mats og aukningar gæti þetta falið í sér um eða yfir 55% hækkun fasteigna- matsins í heild, þótt hækkunin sé vitaskuld mismunandi eftir stöðum. í heild fengist út úr þessu dæmi rösklega 50% hækkun þessara helztu sveitar- sjóðsgjalda milli áranna 1983 og 1984, að meðtalinni fjölgun gjaldenda um 1%. Þessi hækkun fer langt fram úr áætlaðri hækkun tekna almennings á næsta ári og langt fram úr áætlaðri hækkun verðlags rekstrargjalda sveit- arsjóða, sem hvort tveggja er talið hækka um 20 til 21% í áætlunum ríkisstjórnarinnar. Þessi mismunur er svo mikill, að í honum felst aukin skattbyrði einstaklinga af útsvari og fasteignagjöldum, sem næmi hvorki meira né minna en 2% af tekjum heimilanna. Erfitt er að sjá almenn rök fyrir slíkri skattahækkun við ríkjandi aðstæður. Þvert á móti virðist nú sérstök ástæða til þess, að á það reyni, hvort sveitarfélögin geti ekki veitt þá þjónustu, sem þeim ber án hækkunar á sköttum umfram hækkun tekna heimilanna." Lækkun útgjalda nauðsynleg Jón Sigurðsson vék síðan að mögu- leikum sveitarfélaga til að draga úr útgjöldum á næsta ári og gera þannig mögulegt, að skattabyrðin á heimilun- um yrði ekki aukin. Hann sagði: „Samneysluútgjöld á vegum sveitar- félaganna hafa farið vaxandi um langt skeið. Síðastliðinn áratug hafa þau reyndar vaxið hraðar en þjóðartekjur og einkaútgjöld. Við þær erfiðu efna- hagsaðstæður, sem nú blasa við, verð- ur ekki hjá því komizt að halda aftur af vexti þessara útgjalda. Samband íslenzkra sveitarfélaga hefur nýlega átt frumkvæði að samstarfi við fjármála- ráðuneytið um hagræðingu í opinber- um rekstri, þetta er sérstaklega tíma- bært og vel til fundið. Framkvæmdir á vegum sveitarfélaga einna - þegar fyrirtæki sveitarfélaga eins og hitaveitur eru frátaldar - hafa vaxið ójafnar og ekki nærri eins ört og samneyziuútgjöldin, en hafa þó haldið sæmilega sínum 'nlut. ( fjárfestingar- og lánsfjáráætlun er með því reiknað, að almennar framkvæmdir sveitarfé- laga verði nokkru minni að raungildi 1984 en 1983, eða um 5-6% minni. Sé reiknað með lítt breyttum samneyzlu- Þórarinn Þórarinsson, ritstjóri, skrifar gjöldum og 5-6% minni framkvæmd- um má setja upp dæmi'um fjárhag sveitarfélaganna í heild með forsend- um fjárlagafrumvarps um verðlag, kaupgjald og gengi. Niðurstaðan er á þann veg að einsætt virðist, að ekki sé þörf á því að beita hækkunarheimild útsvarslaga á næsta ári, og reyndar virðist mega draga nokkuð úr nýtingu annarra gjaldstofna, en ná þó því marki, sem nauðsynlegt er að rétta við greiðslustöðu þeirra sveitarsjóða, sem átt hafa í erfiðleikum að undanförnu. Hér getur auðvitað verið mikill mun- ur milli staða eftir aðstæðum. Ég tek það einnig fram, að ég tala hér auðvit- að einungis fyrir sjálfan mig. Ég kann engu að spá um það, hvernig félags- málaráðherra muni veita álagsheimild- ir, ef eftir verður leitað. Hins vegar sé ég ekki, að almenn þörf ætti að vera fyrir hærra útsvaren 11% á árinu 1984, fremur hið gagnstæða, ef efnahags- stefna stjórnvalda nær fram að ganga. Hins vegar er nauðsynlegt að líta til nokkurra ára í senn, þegar álagning- arhlutföll eru ákveðin." Mikilvægt hlut- verk sveitarfélaga Jón Sigurðsson sagði að lokum: „Horfur um þjóðarhag eru ekki bjartar um þessar mundir. Tillögur Hafrannsóknastofnunar um 200 þús- und tonna þorskafla á næsta ári í stað 300 þúsund tonna í fyrri ráðgjöf, hljóta að raska áætlunum fyrir næsta ár. Þverrandi þorskafli er mikið áfall fyrir þjóðarbúið. Hið efnahagslega um- hverfi okkar er einnig á annan hátt ótryggt. Óvissa ríkir um markaðsverð á mikilvægum útflutningsafurðum, gengi Bandaríkjadoilars, sem verið hefur hátt og íslendingum hagstætt, er talið standa tæpt og gæti farið lækk- andi, og óvissa ríkir um olíuverð á næstu misserum. Þessi óvissuatriði eru ekki ný, og ekki er ástæða til að ætla að allt fari á verri veg, en þjóðin verður að horfast í augu viö þennan blákalda veruleika og haga sínum búskap í samræmi við hann. Taka verður til óspilltra málanna bæði við það að bæta úr, þar sem okkur hafa verið mislagðar hendur, í stjórn okkar innri mála og að bregðast við öndverðum ytri aðstæðum á raun- sæjan og fjárhagslega ábyrgan hátt. f þessu felst meðal annars, að nú sé enn meiri þörf en fyrr að sigrast á verðbólg- unni. Það tjá og tundur, sem henni fylgir, hefur of lengi villt mönnum sýn í viðureigninni við raunverulegan vanda efnahagsmálanna. í þessu efni gegna sveitarfélögin mikilvægu hlut- verki, og á miklu ríður, að fjárhags- áætlanir þeirra fyrir næsta ár verði við það miðaðar að auka hvorki skatta né skuldir, og að útgjöldum sveitarfélaga verði stillt í það hóf, sem samrýmzt getur viðunandi jafnvægi í viðskiptum við önnur lönd og hjöðnun verðbólgu á næsta ári.“ Þessi viðvörunarorð Jóns Sigurðs- sonar eru tvímælalaust fullkomlega réttmæt og tímabær. Það er ekki minna hagsmunamál sveitarfélaga en annarra aðila að taumhald náist á verðbólgunni. Þess vegna verða þau að leggja fram sinn skerf, þótt það dragi eitthvað úr þjónustu þeirra og framkvæmdum í bili. Hækkun á skatt- byrði heimilanna, undir núverandi kringumstæðum, myndi kippa fótum undan viðnámi gegn verðbólgunni. Hér verða ríkið og sveitarfélögin að hjálpast að í baráttunni gegn verðbólg-' unni.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.