Tíminn - 20.11.1983, Page 14

Tíminn - 20.11.1983, Page 14
14 SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1983 SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1983 15 „Jesús Kristur talaði og kenndi í dæmi- sögum og iíkingum. Hann segir t.d. Ef hönd þín hneykslar þig þá sníð hana af. Það meinar hann ekki bókstaf- „Að sjálfsögðu kemur maðurinn fyrir dóm, einhvers konar reikningsskil, en hann þarf ekki að kvíða þeim dómi sjái hann að sér og gefi sig á vald þeim Guði sem hann trúir á“ "3: „Heimilið ér sú stærsta gjöf sem Gúð hefur gefið mannfélaginu“ W%'. kirkjunnar í - friðarmálum þarf að heyrast, því að sá friður sem kirkján boðar, hinn innri f riður, sátt við Guð og menn, er einn þess megnug- ur að bjarga heim- inum frá kjarn- orkuvá og tor- tímingu“ „Island getur haft alveg sérstöku hlutverki að gegna í|f riðarm0imf ■ Við erum stödd á skrifstofu biskupsins yfir íslandi hr. Péturs Sigurgeirssonar og ætlunin er að ræða við hann um kirkjuna og trúmálin. Um þessa 2000 ára gömlu arfleifð sem enn lifir göðu lífi þrátt fyrir heim sem alltaf er að breytast. Trúmálin víkja ekki frá manninum, segir Pétur um leið og hann býður til sætis. Þau hafa alltaf fylgt manninum og munu leita á hann meðan mannkyn er til. Skrifstofa biskups er frekar rúmgóð og úr henni sér yfir þök nærliggjandi húsa, en það sem grípur hugann og gefur stofunni sérstak- an andblæ eru málverk af biskupum landsins, allt frá Geir Vídalín, til kennimannsins Sigur- bjarnar Einarssonar. Og eitt málverkið minnir á manninn sem situr bak við skrifborðið. Sigurgeir Sigurðsson faðir Péturs var biskup íslands á árunum 1939-1953. Pétur fræðir mig um forvera sína og eftir dágott spjall um hagi þeirra þá snúum við okkur að efninu og ég spyr biskup að því hvort Kirkjuþing, þessi æðsta samkunda kirkjunnar gefi rétta mynd af viðhorfum kristinna manna? — rætt við biskup Islands hr. Pétur Sigurgeirsson „Það er rétt að segja frá því strax að Kirkjuþing er skipað fulltrúum presta og leikmanna af öllu landinu. Ég álít að nýliðið Kirkjuþing endurspegli viðhorf kristinna manna í þessu landi ekki síður en önnur Kirkjuþing. Við sjáum það best, er við athugum fjölbreytni þeirra mála, sem um var fjallað. Mig langar til að nefna nokkur þessara mála: Frumvarp til laga um starfsmenn kirkjunnar. Þar er gerð heildarendur- skoðun á löggjöf um það efni, og ekki var vanþörf á því. Hér er um samantckt og breytingar að ræða á lögum og tilskipunum allt frá 13. öld. Það er kominn tími til að Alþingi taki þetta mál sem önnur lögggjafaratriði upp því að mikið af þeim lögum sem í gildi eru fyrir kirkjuna voru sniðin fyrir allt aðrar aðstæður en nú er.“ Sérstakt kirkju- máiaráðuneyti „Þá var gerð tillaga um sérstakt kirkjumálaráðuneyti. Það er löngu tíma- bært að sameina öll málefni kirkjunnar í eitt og sama ráðuneyti, en sú tillaga kom áður fram á Kirkjuþingi 1974, flutt af sr. Bjarna Sigurðssyni. Til dæmis er meðferð kirkjujarða í höndum Land- búnaðarráðuneytisins. Þá var fjallað um gagngera endurskoðun á nefndafyrir- komulagi kirkjunnar, samþykktar reglur um notkun safnaðarheimila og endur- skoðuð þingsköp og reglur um kirkju- þing.“ Friðarmálin - mál málanna „Þá vil ég nefna friðarmálin sem nú eru hvarvetna mál málanna. Rödd Biskupshjónin hr. Pétur Sigurgeirsson og frú Sóiveig Asgeirsdóttir á heimiii sínu. kirkjunnar í friðarmálum þarf að heyr- ast, því að sá friður sem kirkjan boðar, hinn innri friður, sátt við Guð og menn, er einn þess megnugur að bjarga heimin- um frá kjamorkuvá og tortímingu. Sá Guðs friður þarf að ná til allra þjóða, þá fyrst stöðvast vígbúnaðarkapphlaupið. Þegar sýnt er, hvert kjarnorkuvígbún- aður og hemaðarbrölt er að leiða heim- inn afvega til glötunar, þá álít ég að ísland hafi stóru hlutverki að gegna í friðarmálum. Það kennir saga íslands. Hér er elsta þjóðþing veraldar. Hér var ekki barist um kristnitökuna, heldur samið friðsamlega, sem og er einstætt í veraldarsögunni. ísland öðlaðist sjálf- stæði sitt á málefnalegum gmndvelli, en ekki með blóðsúthellingum. ísland endurheimti sinn dýrmæta bókmennta- arf með framréttri hönd menntamálar- áðherra Danmerkur. ísland vann þor- skastríðið með varðbátum einum gegn miklu herveldi. Tilvera íslands, menning sem og sigrar hafa byggt á réttlæti, samningum og almenningsáliti. Það bjargar heiminum ekkert annað í dag en breytt hugarfar og leiðin til samkomu- lags. Þetta kennir saga íslands sem má heita ein allra þjóða sem ekki kennir börnum sínum vopnaburð til mannvfga. Guð hefur útvalið íslensku þjóðina til að vera boðberi friðar á jörðu. Kirkjuþingið varaði við hryllings- myndum, ræddi um fíkniefnavandamál- ið, hvatti til aðgæslu og öryggis í umferðarmálum. Rætt var um stofnun umræðu og leshópa um biblíuna, í tilefni af því að á næsta ári eru 400 ár frá því að Guðbrandsbiblía kom út, þá var rætt um hvernig bæri að fallbeygja nafn Jesú. Alls voru 40 mál tekin upp á þinginu.“ „Jú, vissulega komu fram skoðana- skipti og mismunandi sjónarmið. En þingið bar einnig gæfu til að standa saman. Það tel ég mikils virði. Að gefnu tilefni vil ég taka fram að leikmenn á þinginu létu sinn hlut ekki eftir liggja. Þeirra þátt tel ég mikilsverðan“. Gott samkomulag milli leikmanna og presta! Er ekki skoðanamunur milii leikm- anna og presta? „Nei, það er ekki hægt að merkja það á nokkum hátt að leikmenn og prestar hafi sérsjónarmið í þeim málum sem voru til umræðu. - Prestar og leikmenn skiptast ekki í fylkingar í afstöðu til mála. í nýjum þingsköpum Kirkjuþings er gert ráð fyrir því að varaþingforsetar sem em tveir, að annar þeirra verði leikmaður.“ Er hægt að una skeytingaleysi ríkis- valdsins í málefnum kirkju og krístni, sem endurspeglast t.d. í þvi, að ekkert af málum Kirkjuþings frá 1982 hefur veríð tekið upp á Alþingi? „Nei, því er ekki hægt að una. Það verður að segjast eins og er. En ég hef von um að úr þessu rætist. Alþingi fann sjálft að við svo búið mátti ekki standa. Með lögum frá 26. febrúar 1982 var stofnuð samstarfsnefnd Alþingis og Þjóðkirkjunnar. f þeirri nefnd eiga sæti fulltrúar frá hverjum þingflokki, - og Kirkjuráð. Forseti sameinaðs Alþingis og biskup eru sjálfkjörnir og fara með formennsku sitt árið hvor. Tilgangur nefndarinnar er eins og segir í lögunum „að vinna að auknum skilningi í lög- gjafarstarfi á vandamálum ogverkefnum kirkjunnar". Eins og fram hefur komið þá er kirkjulöggjöfin í endurskoðun. Sú endurskoðun er árangurslaus, ef Alþingi vill ekki taka á þeim málum sem koma frá Kirkjuþingi“. í sumum löndum gefst fríkirkjufyrirkomulagið vel Erekki kominn tími til þess að kirkjan segi sig úr lögum við ríkið? „Það yrði allsendis útilokað. Það á við okkur enn í dag, sem Þorgeir Ljósvetn- ingagoði sagði fyrir nærfellt 1000 árum: „Það mun verða satt, er vér slítum í sundur lögin, að vér munum slíta og friðinn". Ég tel að gagnkvæmur stuðn- ingur ríkis og kirkju sé þjóðinni fyrir bestu. Þetta samband þarf að efla. Hitt er svo annað mál að kirkjan þarf að verða miklu sjálfstæðari stofnun en hún er gagnvart ríkinu t.d. í skipulags og fjármálum. Nú gefst fríkirkjufyrírkomulagið víða vel? „Já, í sumum löndum gefst fríkirkjuf- yrirkomulagið afar vel eins og t.d. í Ameríku, en ég fæ ekki séð að hér á landi sé sami grundvöllur fyrir hendi. Þjóðin er nærri öll sömu trúar þannig að eðlilegt er að til komi stuðningur ríkis- ins. Ég held að aðgreining sé ekki æskileg. Kirkjan má ekki aðgreina sig frá þjóðfélaginu. Hún verður að lifa við þau vandamál sem þeir hafa er í landinu búa og þess vegna er óheilbrigt að hún sé að greina sig frá. Þá má ekki gleyma því að í strjálbýli yrði afar erfitt að halda uppi starfi ef til aðskilnaðar kæmi.“ Hvcrnig finnst þér sjálfum sem biskupi að sxkja undir ríkisvaldið með mál? „Ég fæ ævinlega góðar viðtökur og hef gott samstarf bæði við kirkjumálaráð- herra og dóms- og kirkjumálaráðuneyt- ið. En biskupsembættið og kirkjan eru í fjárþröng og það veldur umtalsverðum erfiðleikum. Þetta er ekki nýtilkomið, sem dæmi get ég nefnt ið allt frá 1970 hefur verið heimild í lögum til að ráða sjúkrahúsprest. Hingað til hefur ekki verið hægt að ráða hann vegna þess að fé hefur ekki fengist til þess á fjár- lögum.“ Mótum við Krist, eða mótar Kristur okkur? Mótum við Krist, eða mótar Kristur okkur? „Meðan þrælastríðið stóð yfir í Amer- íku var Abraham Lincoln skrifað á þessa leið: „Ég bið til Guðs að hann sé þín megin í baráttunni". Lincoln svar- aði: „Ég hef engar óskir um það að hafa Guð á mínu bandi - Ósk mín er sú að ég sé Guðs megin í þessari baráttu". Ég hygg að það sé oft tilhneiging hjá okkur, að láta Krist þjóna þeim tilgangi, sem við í eigingirni okkar erum að keppa að, - en tökum það ekki eins alvarlega að þjóna honum, hans vilja. En um það hugsaði séra Matthías líkt og Abraham: „Ég vil ó ég vil, að minn vilji sé þinn, og verða þér líkur, ó frelsari minn“. Þegar þú lítur út um gluggann og skoðar mannlífið, finnst þér sem streymi hjá Ixrisveinar Krists? „Við erum nú langt frá því að geta fylgt honum, heyrum honum til, erum í hjörð hans eigið að síður. Við erum á veginum á leiðinni, sem hann hefur lagt. Annað mál er svo hversu langt eða skammt við erum komin að helga honum líf okkar. Það er ekki gott að verða sjálfumglaður í trú sinni. Þá er oft stutt í trúarhrokann. Stutt í Faríseann. Er maður ekki orðinn hreinræktaður Farís- ei ef maður telur trú sína fullkomna?" Farísear nútímans Eru prestar okkar og biskupar kannski Farisear nútímans? „Guð forði okkur frá því. Ég held að það sé okkar sameiginlega sjónarmið að við teljum okkur þjóna, en þó ónýta þjóna. Ef við þjónum eins og vera ber, þá erum við aðeins að gera það eitt sem við erum skyldugir að gera. íslensk prestastétt er mjög mikilvæg fyrir land okkar og þjóð. Ég hef hugsað til þess undanfarna daga - þegar öll þessi hræði- legu slys hafa dunið yfir - þar veit ég að prestarnir hafa unnið ómetanlegt hugg- unar- og sálgæslustarf. Þetta starf er unnið í kyrrþey. Um það er ekki eitt orð í blöðum eða fjölmiðlum." Hvernig f relsaði Kristur oss? Með hvaða móti frelsaði Kristur okkur? „Með því að hjálpaokkur að sigra illt með góðu. í Faðir-vorinu kenndi hann okkur að biðja: Frelsa oss frá illu. f bæninni felst og bænheyrslan, Kristur sjálfur. Hann gaf okkur kærleika Guðs, og gerði það á þann eina hátt, sem hægt er að tjá kærleikann, - með fórn. Við' vitum ekkert um kærleikann fyrr en hann fórnar. Þá kemur hann fyrst í Ijós. Það er ekki hægt að sýna hann með öðru móti. Með fórn Krists varð ást Guðs á mönnum þekkjanleg og í trúnni öðlast menn þessa ást Guðs. Baráttan við synd er manninunL ásköpuð, en það skiptir sköpum hvort sú barátta er jákvæð eða neikvæð. Með kærleika Krists í hjarta er Viðtal Baldur Kristjánsson Tímamyndir: Róbert

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.