Tíminn - 20.11.1983, Qupperneq 26

Tíminn - 20.11.1983, Qupperneq 26
■ Frá íran (t.v.) og frá Thailandi. tekur fram skeggið og bláu gleraugun að nýju Sagt frá aukmim umsvifum leyniþjómistu Bandaríkjanna, CIA, undir stjórn William Casey ■ í fjölda tyrkneskra bæja hafa starfsmenn Central Intelligence Agency (CIA), sem er nafn bandarísku leyniþjónustunnar, haft bækistöðvar til þess að geta annast leynilega aðstoð við íranska útlagahópa, sem berjast gegn Ayatollah Khomeiny. 3000 kílómetrum fjær, í pakistönsku borgunum Peshawar og Islamabad, starfa aðrir sendimenn að því að deila út á laun fjármunum og birgðum til uppreisnarflokka þeirra, sem veita sovéska hernum í Afganistan viðnám. ■ William Casey, forstöðumaður CIA.Hann hefur byggt upp víðtækt njósnanet á örskömmum tíma. Einnig veitir CIA hjálp vinveittum öflum í Tchad, Eþíópíu, Angóla og í Súdan, - og stofnunin hefur komið upp yfirgripsmiklu kerfi njósna, loftárása, áróðurs og fleiri þátta, til þess að auka það „leynilega stríð“ sem nú er raunar alfrægt orðið og er snúið gegn hinni leynilegu sandinistahreyfingu í Nicarag- ua. Það er því lítill vafi á því að þeir hafa tekið fram skeggið .og bláu gleraugun í höfuðstöðvum CIA í Langley í Virginíu. Hvort sem mönnum líkar það betur eða verr, þá er CIA nú farið á stað með leynilegt ráðabrugg rétt eina ferðina. Þetta ráðabrugg er í gangi um heim allan og viðfangsefnin eru stærri en þau nokkru sinni urðu á blómaskeiði stofn- unarinnar fyrir 20 árum. Neðanjarðar Yfirmaður CIA er þannig maður ásýndum að enginn mundi trúa að ó- reyndu að hann væri viðriðinn upplýsingaþjónustuna. Hann heitir William J. Casey. Undir hans stjórn hefur CIA fært út kvíarnar, stjórnar- formið hefur verið betrumbætt og við- námsþrótturinn gegn óvinveittum öflum um heim allan þar með aukinn. Casey hefur mjög látið til sín taka á tveimur sviðum sem varða bandarískan þjóðar- hag og eru mjög til umræðu: Er þar í fyrsta lagi um að ræða baráttu gegn því að fleiri tonn af banvænum eiturlyfjum séu flutt inn í Bandaríkin árlega og í öðru lagi er um að ræða baráttuna gegn því að „ræningjar" komist yfir háþróað- an tæknibúnað, sem síðan er fram- leiddur í samkeppnislöndum eða í óvina- ríkjum. Það hve Casey gengur vel að koma áhugamálum sínum í framkvæmd á hann að þakka nánum og stöðugum tengslum við forsetann, en þeir hittast tvisvar í viku og tala mikið saman í síma. Þá er ekki minna virði samstarf við starfsbræður í ráðuneytunum, en Casey er fyrsti forstöðumaður CIA, sem á sæti í ráðuneyti. Aukning CIA á leynilegum aðgerðum hefur vakið upp umræðu um hve skynsamlegar þær séu, heiðarlegar eða gagnlegar. Þeir innan ríkisstjórnarinnar og utan hennar, sem gagnrýna Casey, segja að hann hagi sér eins og gamall stríðsmaður. Hann lætur hvergi bifast af tilhugsun um það að einhver ráðagerðin fari út um þúfur og hvergi smeykur við þær hættur sem jafnan eru tengdar leynilegum sendiferðum. Loks skilur hann alls ekki hvers vegna þingið ætti að hafa nasasjón af athöfnum stofnunarinn- ar, og það þótt þær snerti hin viðkvæm- ustu svið. „Við erum eins og sveppir,“ segir demokrataþingmaðurinn Norman Mineta, sem sæti á í þeirri nefnd þingsins sem fjallar um upplýsingamál. „Þeir láta okkur vera í myrkri og bera í okkur tóma mykju." Mikið gekk á þegar þessi upplýsinga- nefnd ákvað í sumar sem leið að fella niður alla aukastyrki til þeirra hópa sem berjast gegn sandinistum í Nicaragua. En þetta var þó aðeins táknræn aðgerð, þar sem þingið féllst ekki á ákvörðun nefndarinnar. Umræðan Nú hefur staðið mikil umræða yfir í Bandaríkjunum, vegna undirbúnings þingsins að útgjöldum til hernaðarmála á árinu 1984. Sagt er að þessi útgjaldalið- ur hafi vaxið um 17% á ári í sl. þrjú ár. Það er meira en hermálaráðuneytið hefur áætlað. Horfurnar á því að til einhvers niðurskurðar komi eru þó ekki bjartar. Kemur það til vegna „áreitni- stefnu Sovétríkjanna“, en þegar rætt er um hana eiga menn við það er kóreanska þotan var skotin niður og fjandsamlega afstöðu til síðustu tillagna Bandaríkj- anna um takmörkun kjarnorkuvígbún- aðar. Raddir heyrðust í flokki repúblikana þegar árið 1980, sem bentu til þess að CIA færi af stað með leynilegar aðgerðir að nýju innan skamms: „Við viljum gera ríkisstjórn okkar kleift að hafa áhrif á atburði á alþjóðlegum vettvangi, sem varða öryggi þjóðar okkar. Bandaríkin eru eina stórveldið sem haldið hefur að sér höndum á þessum vettvangi," sagði einn ræðumanna. Andstæðan við árin sem Carter var forseti gæti ekki verið meiri. Á þeim árum var upplýsinganefnd þingsins látin fá vitneskju um eitt eða tvö meiri háttar mál sem leyniþjónustan vann að á ári hverju. Á valdatíma Caseys hefur leyni- þjönustan verið með 12-14 leynileg mál í takinu og þar af sjö eða átta sem kalla má mjög veigamikil, en raunar leggja stjórnvöld nú til að menn noti orðin „sérstakar aðgerðir" f staðinn fyrir „leynilegar aðgerðir.“ Fjöldi leynilegra starfsmanna CIA hefur aukist og er nú yfir þúsund og í þessum flokki má finna fjölda gamalla starfsmanna sem komnir voru á eftirlaun. Þeir hafa nú verið kallaðir inn að nýju, þar sem skortur er á mönnum með verulega reynslu. Casey lá svo mikið á að byggja leyniþjónustukerfið upp, að kunnugir menn segja að ekki hafi liðið nema vika frá því er hann tók við embætti, þar til hann hafði lagt blessun sína yfir áætlanir sem Carter hafði látið gera um stuðning við andstæðinga Khomeiny. Varla mán- uði síðar var svo búið að blessa yfir áætlanir um aðgerðir í Libyu og í Niearagua, þótt aðrir fullyrði að það hafi Frá Afganistan.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.