Tíminn - 20.11.1983, Qupperneq 27

Tíminn - 20.11.1983, Qupperneq 27
SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1983 27 V/ASUM67t)d /fs/eo tha/laa/p AF6HAf//SrA// t/rcAXÁOUA /h/j/rd//en TCHAD ■ CIA menn eru önnum kafnir viða um heim um þessar mundir. verið Alexander Haig og næstráðandi hans, Thomas O. Enders, sem hafi átt frumkvæðið. Aðgerðir Hér á eftir verður drepið á nokkrar þær aðgerðir sem hafa verið fram- kvæmdar í valdatíð Caseys: Miðameríka: Parna er um að ræða þær leynilegar aðgerðir CIA sem mest hefur verið deilt á og sem mesta athygli vekja. Til þeirra hefur verið kostað um 80 milljónum dollara og fer þetta fé í að skipuleggja víðtækt stríð gegn stjórn Nicaragua. Það er notað til að halda úti tíu þúsund mönnum á vígvelli, til loft- árása og njósnastarfsemi í Nicaragua. Þá er það notað til þess að fjármagna hvers kyns áróðursherferðir gegn stjórn sandinista sem grafa eiga undan völdum þeirra. Þessu er öllu stjórnað frá bandarískum stöðum í Honduras, Costa Rica og E1 Salvador. Vopn, lyf og aðrar nauðsynjar eru fluttar flugleiðis til uppreisnarmanna frá E1 Salvador í C-47 flutningavélum. Menn frá E1 Salvador hafa nú tekið við stjórn flugvélanna af Bandaríkja- mönnum. Amerískir embættismenn segja að markmiðið sé að láta hlutina gangá fljótt fyrir sig. CÍA, utanríkis- ráðuneytið og Pentagon t úja að upp- reisnarmenn hafi ekki nem: sex mánuði til stefnu og ef til vill aðe.as þrjá. Þá verða þeir að vera búnir aö sanna að uppreisn þeirra hafi fest rt'tur í öllu Nicaragua. „Sandinistar geta beðið, en það getur þingið ekki,“ hefur meriskur embættismaður sagt. Afghanistan: Leynilegir erindrekar CIA birgja afganska uppreisnarmenn upp með vopnum og skotfærum fyrir 2800 milljónir ísl. króna og nota til þess leynileg sambönd sín í Pakistan og Mið-Austurlöndum. Þá segja kunnugir að CIA hafi líka haft hönd í bagga með atburðum í Pakistan, til þess að verja hina amerísk-sinnuðu stjórn Zia ui-Haq áföllum. íran: CIA styður íranska flóttamenn í Tyrklandi, ,sem vinna að falli stjórnar Khomeiny. Ekki spillir að þessir menn flytja einnig upplýsingar frá íran yfir hin löngu og lítt vöktuðu landamæri landsins og eru því mikilsverðir sem njósnarar. Afríka: CIA veitir upplýsingar og beina aðstoð til þeirra sveita sem veita viðnám innrásarliði Lybíumanna í Tchad. Þá er veitt þjálfun, vopnabúnað- ur og bein efnahagsaðstoð til sveita í Eþíópíu, Angola og í Súdan. Tvær leynilegar aðgerðir voru stöðvaðar, vegna beinna afskipta þingsins. Þar var um að ræða áform um að fá fjand- mönnum Libíymanna á Mauritus vopn í hendur og einnig andstæðingum Gaddafi heima í Libyu. Asía: CIA hefur veitt Thailandsher stuðning með þjálfun í fjarskiptum og með upplýsingamiðlun, svo hann megi ná meiri árangri í baráttu gegn heroin- framleiðslu og hreinsistöðum fyrir eitur- lyf í sjálfu Thailandi og í baráttu gegn innflutningi á þessum efnum frá Burma. Þá hefur CIA samvinnu við Kínverja um að útvega vopn handa Pol Pot, svo hann geti beitt sér harðar gegn núverandi stjórn Kampucheu, en hún var studd af Vietnömum. „Mesta vandamálið hjá Casey, þegar að því kom að framkvæma allar þessar áætlanir, var það að mikill skortur reyndist á hæfum mönnum,1* segir einn kunnugra. Menntun og þjálfun leyni- þjónustumanns er verk sem tekur fleiri ár. Því hefur sá sem eftirlit hefur haft með leynilegum aðgerðum, 51 árs gamall maður að nafni John Stein, blátt áfram verið fluttur af fyrra verksviði og fengið í hendur það hlutverk að endurskipu- leggja skráningu og þjálfun nýliða. Með- an þeim málum er kippt í lag neyðist Casey til þess að gera skammtímasamh- inga við um það bil 800 gamla „agenta", sem létu af störfum á árunum 1977-1980. Hjálparmeðul Þá reyndist ekki síður erfiðleikum bundið að hafa uppi á öllum þeim hjálparkokkum í mynd einkafyrirtækja og félaga, sem stofnunin studdist við fyrr á tíð. Hér var um að ræða flugfélög, banka innan Bandaríkjanna og utan, minnst eina stóra vopnaverksmiðju, og tyrirtæki á sviði inn og útflutnings. Þessi skortur átti sök á því sem kom í Ijós er verið var að styðja við bakið á uppreisn- armönnum í Nicaragua, að CIA gat ekki útvegað Mið-Ameríkumönnunum áhöld sem ekki var hægt að rekja til uppruna síns, - svo sem tékknesk og vestur-þýsk vopn og rússnesk vopn, sem tekin höfðu verið herfangi. Nú mun hafa verið úr þessu bætt, - að miklu leyti á þann hátt að ísraelsmenn eru sagðir láta CIA í té margvíslegan útbúnað sem þeir hafa tekið herfangi í Líbanon. Til þess að bæta upp ýmsa ágalla sem standa CIA fyrir þrifum hefur Reagan stjórnin gripið til þess ráðs að koma upp nýrri upplýsingaþjónustu, sem er algjör- lega sjálfstæð. Það er upplýsingaþjón- usta hersins, „Army Intelligence Sup- port Activity (AISA). Um þessa stofnun vissu ekki eiitu sinni þeir þingmenn sem best fylgdust með, þar til rétt nýlega. Var það við yfirheyrslur fyrr á árinu að upplýsingar um þessa stofnun komu fram fyrir óaðgæslu. Hún mun eiga að taka að sér ýmsar áhættusamar sendi- ferðir og gera út hjálparleiðangra í erfiðum tilvikum. Hún var stofnuð eftir hrakfarir leiðangursins sem átti að frelsa gíslana í íran, en hann fór út um þúfur m.a. af þeim sökum að CIA átti þá ekki einn einasta njósnara eftir í íran. Enduruppbyggingin á njósnastarfsemi CIA er langtímaverkefni, en til þess að bæta það upp hefur Casey lagt áherslu á að endurbæta úrvinnsluna úr þeim mikla straumi upplýsinga sem berst frá njósna- gervihnöttum og hlerunarbúnaði ýmiss konar. Inn í þennan straum berst og firnamagn af öðrum upplýsingum, sem óskilgreindir vélgengir eða mannlegir njósnarar hafa aflað. „Casey hefur góða hæfileika til þess að vinna úr þessu efni,“ segir einn þeirra manna sem við móttöku þess hefur starfað. „Hann hefur reynt að gera skýrslur sínar styttri og aðlagar þær aðstæðum hvers tíma.“ Þeir sem vinna úr upplýsingum hjá CIA senda frá sér 50 skýrslur á hverju ári um þessar mundir í stað 10-12 áður. Nú ber ekki jafnmikið á skoðanaágrein- ingi á milli hinna ýmsu deilda eins og áður var, vegna þess að Casey hefur lagni til þess að lofa fleiri sjónarmiðum að koma fram. Hann hefur einnig til siðs að senda vikulegar skýrslur til fjölmiðia og hann tekur saman sérstaka vikulega greinargerð handa forsetanum og öðrum æðstu embættismönnum. Þar fá þeir upplýsingar um væntanlega övænta at- burði. Spádómar CIA hjafa í stórum dráttum verið komnir fram í tíma og þeir hafa staðist all nákvæmlega, þegar um mikils- verð mál hefur verið að ræða. Þar á meðal má nefna útnefningu Jurij And- ropov og heilsufarsvandamál hans, inn- rás Libyumanna í Tchad, afsögn Begins og setningu herlaga í Póllandi. En að sögn embættismanna í Washington mun CIA hafa spáð miklu meiri andspyrnu pólsks almennings, en raun varð á. Þá var það ekki nógu gott að CIA hafði ekki sagt fyrir um að sveitir ísraelshers mundu ráðast svo langt inn í Líbanon og raun varð á. Sumir af upplýsingaþjónustumönnu- num hafa sagt að CIA hafi verið kunnugt um að mikil hætta var farin að steðja að Anwar Sadat, skömmu áður en hann var myrtur. En ekki var gert nægilega mikið úr þssum upplýsingum og forstöðumað- urinn gaf þeim því ekki nægan gaum. Líklega hefur honum verið full hlýtt til Sadats, til þess að hann vildi ónáða hann með slíkum fréttum. Á sama hátt óttast margir að samband Bandaríkjanna við stjórnirnar í Saudi- Arabíu, Jórdaníu og á Filippseyjum verði til þess að CIA og bandarískir valdamenn kjósi að loka augunum fyrir víðtækum óróa í þessum löndum innan tíðar. s B Erlingur Isleifsson Kvöldsími 76772 Drögum vel úr ferð við blindhæðir og brýr. . GÓÐAFERÐ! UUMFERÐAR RÁÐ ÞAÐ ER FUNDIÐ! HVAÐ? ★ Nýtt efni, sem breytir ryði í fast efni! ★ Hindrar frekari ryðmyndun! ★ Sandblástur eða ryðslípun ónauðsynleg! ★ Grunnur óþarfur! ★ Einfaldlega borið á með pensii yfir flötinn sem tæring hefur myndast á. ★ Leiðbeiningar á íslensku. Hefur verið notað á verkstæði okkar í tvö ár og er reynslan sú sem eftir hefur verið leitað. Er fáanlegt í 0,251., 0,501., 1,01. og 25,01. umbúðum. ER drjúgt í notkun. Bitreiöaverkstæöi Heildverslun Bílaleiga Tangarhöfða 8-12 HOReykjavík Símar: (91 )-85504-85544 r Verslanir Fyrirtæki i' Póstkröfu- handbók kemur út með Tímanum 1. desember n.k. Þeir sem hafa hug á að minna á vörur vegna póst- kröfusendinga, vinsamlega hafi samband í síma 72250 kl. 9-20 eða 18300 kl. 9-17.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.