Tíminn - 25.11.1983, Blaðsíða 2
Afstaða ráðherra og þingmanna misjöfn til tillagna
Stjórnkerfisnefndar:
„ÞARF AÐ BORÐA MARG-
AR MALTÍÐIR ÁÐUR EN
ÉG KEM ÖLLU NIÐUR”
— segir heilbrigðis- og tryggingaráðherra
Fæddi frumburð sinn á þilfari
póstbátsins Anný:
„Strákurinn er
alveg eldhress”
— segir Marsibil Erlendsdóttir
frá Dalatanga sem varð fyrir
hinni óvæntu Iffsreynslu
■ Ef að líkum lætur, eiga tillögur
stjórnkerfisnefndar um breytingar á
lögum um Stjórnarráð íslands eftir að
hljóta misgóðar undirtektir ráðamanna
þjóðfélagsins, enda er gert ráð fyrir1
verulega róttækum breytingum á mörg-
um sviðum. Tíminn spurði í gær ráð-
herra og þingflokksformenn stjórnar-
flokkanna álits á þessum breytingartil-
lögum stjórnkerfisnefndarinnar.
Páll Pélursson, formaður þingflokks
Framsóknarflokksins: „Ég tel sumt af
þessu vera mjög til bóta, en ég vil alls
ekki taka ábyrgð á því að ég verði með
öllu, þegar þar að kemur. Mér líst til
dæmis ekki þannig á það, að sé til bóta
að steypa landbúnaðar- og sjávarútvegs-
ráðuneyti saman, en hins vegar held ég,
að hreyfing á embættismönnum innan
stjórnarráðsins sé til bóta og reyndar
margt fleira. Ég hef hins vegar ekki
skoðað þessar tillögur nógu nákvæmlega
til þess að ég vilji á þessu stigi vera að
taka endanlega afstöðu til einstakra
atriða."
Sverrir Hermannsson, iðnaðarráð-
herra: „Ég þarf að skoða-þessar tillögur
betur, áður en ég greini frá mínu áliti á
þcim í einstaka atriði."
Albert Guðmundsson, fjármálaráð-
herra: „Ég tel margt vera til bóta í
þessum tillögum, en ég þarf nú reyndar
að kynna mér þær betur. Varðandi
hugmyndina um að leggja niður við-
skiptaráðuneytið og sctja málaflokka
þess undir forsætisráðuneyti og utanrík-
isráðuneyti, þá vil ég segja það, að það
segir sig sjálft að til þess að fylgjast með
tímanum, þá verður utanríkisþjónustan
að koma miklu sterkar inn í viðskipta-
málin en nú er. Það þarf að setja upp
sterkar verslunardeildir við sendiráð
okkar út í heimi, sem vinna að því að
afla markaða, því sala okkar á íslenskum
afurðum, er náttúrlega undirstaða vel-
megunar í landinu. Ég tel því að þessi
breyting yrði til bóta. Hins vegar er ég
ekki ánægður með það að nefndin gerir
ekki tillögur um að öll peningamálin
'heyri undirfjármálaráðuneytið. Þeirátta
sig ekki á því, að ég er þarna bara
tímabundið! Hið rétta er náttúrulega að
bankarnir heyri undir fjármálaráðherra,
því heilsteypt fjármálastefna næst ekki,
nema fjármálunum sé stjórnað frá einum
stað. Varðandi þá tillögu að fella niður
embættisheitið ráðuneytisstjóri, þá héld
ég að það yrði svo til eingöngu um
nafnabreytingu að ræða, því skrifstofu-
stjórinn yrði samkvæmt þessu í svipuðu
hlutverki og ráðuneytisstjóri er í dag. Ég
tel einnig að það geti verið til bóta að
afnema æviráðningu, og í heild sinni er
ég alls ekki svo frábitinn þeim hugmynd-
um sem þarna koma fram, a.m.k. vil ég
ekki hafna neinni þeirra á þessu stigi.“
Alexander Stefánsson, félagsmálaráð-
herra: „Ég er fyllilega sammála því að
róttæk endurskoðun á þessum lögum
fari fram, en við fyrsta yfirlestur, þá get
ég alls ekki verið sammála þeim tillögum
sem stjórnkerfisnefndin gerir þarna.
Mér finnst vanta rökstuðning fyrir mörg-
um breytingartillögunum og mér sýnist
að margar hugmyndir séu sóttar í stjórn-
arfar Svía og Finna, sem henta okkur
alls ekki. í fyrsta lagi tel ég óeðlilegt og
raunar skaðlegt fyrir okkar stjórnkerfi,
að dreifa skyldum málaflokkum inn á
mörg ráðuneyti. Ég hefði kosið að
endurskoðun hefði miðað að því að
lagfæra það ástand sem er í dag, því með
breytingunum sem gerðar voru 1970, þá
gerðist þetta einmitt að skyldum mála-
flokkum var dreift á mörg mismunandi
ráðuneyti. Ég nefni sem dæmi úr til-
lögum nefndarinnar, að hún vill dreifa
málefnum sveitarfélaga inn á mörg ráðu-
neyti. Ég er jafnframt ósammála því að
undir forsætisráðuneytið verði sett mörg
mál, svo sem vinnumarkaðsmál og fleira,
þessi mál eiga einfaldlega ekki heima
þar. Þá virðist mér að þessir tíu ráðherr-
ar sem nú sitja, hafi næg verkefni allir,
þannig að ég álít að nefndin hafi ekki
áttað sig á þeim þjóðfélagsbreytingum
sem orðið hafa hjá okkur, og þeim
framtíðarmarkmiðum sem augljós eru,
varðandi nýja tækni og fleira.“
Matthías Bjarnason heilbrigðis, trygg-
inga og samgönguráðherra: „Ég þarf nú
að borða margar máltíðir, áður en ég
kem öllum tillögum nefndarinnar
niður!“
Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráð-
herra: „Ég tel tillögur stjórnkerfisnefnd-
ar vera mjög athyglisverðar. Ég er
þeirrar skoðunar að róttækar breytingar
í stjórnkerfinu þurfi að fara fram. Hvort
þær eiga að fara fram með þeim hætti
sem þarna er lagt til eða ekki, má alltaf
um deila. Ég sé að það sem nefndin
hefur í huga, er heildarsjónarmið, en
ekki sjónarmið einstakra atvinnugreina.
Það kemur til dæmis fram að nefndin
telur heppilegast að sameina sjávarút-
vegsráðuneytið og landbúnaðarráðu-
neytið, en ég hefði nú talið að það væri
ekki heppilegasta sameiningin. Sjávarút-
vegurinn stendur nú einu sinni undir
mest allri útflutningsframleiðslu lands-
manna og ég tel að margt af því sem
heyrir undir önnur ráðuneyti, færi mjög
vel saman við sjávarútvegsráðuneytið,
svo sem siglingamál, öryggismál sjó-
manna, fiskeldi og fleira, þannig að sumt
af því sem er í landbúnaðarráðuneytinu
í dag, og í öðrum ráðuneytum reyndár
einnig gæti fallið vel að því starfi sem
fram fer í sjávarútvegsráðuneytinu, en
annað ckki. Ég er almennt þeirrar
skoðunar að það eigi að stefna að stærri
ráðuneytum. og sameiningu, því það
verður til þess að starfsemin verður
hagkvæmari og kraftarnir verða meira
sameinaðir.“
Ólafur G. Einarsson, formaður þing-
flokks Sjálfstæðisflokksins sagðist þurfa
að kynna sér tillögurnar betur.
-AB
■ „Ég hefði átt að mæta í skoðun á
Neskaupstað og ætlaði mér ekki til
baka fyrr en ég væri búin að fæða. En
um fjögur leytið aðfaranótt miðviku-
dagsins fór ég að finna til og varð
fljótlpga Ijóst hvað væri að gerast. Ég
fór þá með bíl til Mjóafjarðar og
þaðan áleiðis til Neskaupstaðar með
póstbátnum Anný. En strákurinn
mátti ekki vera að því að bíða eftir því
að við kæmumst á sjúkrahús og hann
fæddist í þann mund sem við vorum að
leggja að bryggju. Og úti á þilfari, því
að það var ekki hægt að koma sjúkra-
börunum sem ég lá á inn um dyrnar á
bátnum." Þetta sagði Marsibil Er-
lendsdóttir frá Dalatanga f samtali við
blaðið í gær, en hún varð fyrir þeirri
óvanaiegu reynslu á miðvikudaginn
var, að fæða fyrsta barn sitt, 11 marka
strák, undir beru lofti um borð í bát.
„Það kom Ijósmóðir á móti okkur á
■ Vegna slyssins á loðnumiðunum í
fyrrinótt hefur Sjómannasamband ís-
lands sent ríkisstjórninni eftirfarandi
bréf:
Loðnuveiðarnar á hafsvæðunum
norður af íslandi hafa þegar kostað eitt
mannslíf. Ekkert hjálparskip hefur
verið á loðnumiðunum frá því veiðarn-
ar hófust og er því enga aðstoð eða
lækni eða neyðarþjónustu að fá þegar
umrætt slys átti sér stað. ítreka verður
að loðnuskipin sjálf hafa hvorki aðstoð
né viðbúnað til að sinna slíkri þjónustu
hvert við annað.
Hafsvæði það sem loðnuflotinn
heldur sig nú á er eitt það hættulegasta
hér við land, ekki síst á þessum
árstíma þegar allra veðra er von.
Óverjandi verður því að teljast að ekki
skuli vera hjálparskip í fylgd með
loðnuflotanum sem hafi lækni innan-
borðs og búnað til að yeita alla nauð-
synlega neyðarþjónustu.
Sjómannasamband íslands vill því
af gefnu tilefni krefjast þess að allt
gúmíbát og kom um borð hérna rétt
hjá Norðfjarðarnípunni. Það mátti
raunar ekki tæpara standa því að
fæðinguna var þá alveg að bera að. Það
var vel búið um mig á dekkinu, veðrið
var gott og hvorugu okkar varð meint
af, strákurinn er alveg eldhress. Hann
var strax vafmn inn í handklæðí þegar
hann var fæddur og okkur komið inn í
sjúkrabíl sem beið á bryggjunni og við
drifin á sjúkrahúsið.
Með Marsibil í þessari ævintýralegu
ferð voru systir hennar og kona frá
Mjóafirði og svo auðvitað maður
hennar, Heiðar Jones, en þau hjónin
reka búskap á Dalatanga, þar sem
faðir Marsibil er vitavörður. Marsibil
bað fyrir þakklæti til þeirra sem að-
stoðuðu hana á leiðinni og blaðið
óskar þeim hjónum til hamingju með
frumburðinn.
verði gert sem í mannlegu valdi stend-
ur til að tryggja öryggi loðnusjómann-
anna og neitar að trúa því að óreyndu
að stjórnvöld meti þyngra sparnaðar-
sjónarmið en líf og öryggi þeirra
sjómanna sem eru við störf við þessar
hættulegu aðstæður. Sjómannasam-
band íslands gerir ennfremur þá kröfu
til stjómvalda að nú þegar verið gerðar
ráðstafanir til að senda varðskip með
lækni innanborðs og skal það fylgja
loðnuflotanum eftir og ánnast neyðar-
þjónustu fyrir hann. Þá leggur Sjó-
mannasamband íslands áherslu á að
hið fyrsta verði gerðar ráðstafanir til
að kaupa þyrlu til Landhelgisgæslunn-
ar í stað þeirrar sem fórst nú nýverið.
Sú þyrla hefur margsinnis sannað gildi
sitt í björgunar og hjálparstarfi svo
óþarft er að rökstyðja frekar nauðsyn
slíkra björgunartækja. Sjómannasam-
band íslands væntir þess að ríkisstjórn-
in veiti þessum nauðsynlegu öryggis-
málum sjómanna lið og grípi til nauð-
synlegra aðgerða þegar í stað. -GSH
-JGK
„LOÐNUVEIÐARNAR ÞEGAR
KOSTAÐ EITT MANNSLÍF”
Pólskar nunnur í
Hafnarfjardarklaustur:
Koma til landsins
slyppar og snaudar
biðja íslensku þjóðina
um stuðning
■ A anna tug pólskra nunna hefur lýst
áhuga sínum á að setjast að í Klaustrinu
í Hafnarfirði og hefja þar bænahald að
nýju, en sem kunnugt er lagðist það af í
sumar. Biða þær aðeins eftir nauðsvn-
legum leyfum stjórnvalda, sem munu
væntanleg innan skamms.
Nunnurnar sem héi um r.eðir eru úr
Karmelklaustri í Elblag í Póllandi. Fjár-
hagur klaustursins mun mjög bágborinn
og þess vegna geta nunnurnar nær ekkert
haft meðferðis hingað til lands og er
stuðningur vel þeginn. Þeir sem vilja
styðja nunnurnar til að koma sér fyrir í
Hafnarfirði, en þar er nú allt tómt
innanhúss, eru beðnir að notg gíróreikn-
ing 19600-2. Kenniorðið er „Karmelsyst-
ur“. Þeir sem kynnu að vilja gefa muni,
svo seiu hvers konar innanstokksmuni
rúmföt eða búsáhöld, eru beðnir að liafa
samband við prestana í Landakoti, Há-
vallagötu 16, í síma 25619 eða 25697.
-SJÓ.
ALVARLEGT UM-
FERÐARSLYS!
— ekið á ungan dreng við
ElliðavogT og annan
vegfaranda við Suðurgötu
■ Mjög alvarlegt umferðarslys varð á
Elliðavogi fyrir neðan Laugarásbíó þeg-
ar ekið var á ungan dreng á gangbraut
um kl. 17.00 í gær. Að sögn lögreglu
slasaðist drengurinn lífshættulega og lá
hann á gjörgæsludeild í gærkvöldi. Ekki
er enn fulljóst um aðdraganda slyssins.
Þá var einnig ekið á gangandi vegfar-
enda á Suðurgötu á móts við Háskólann
um kl. 18.15 í gær. Aðsögn lögreglunnar
slasaðist vegfarandinn ekki alvarlega.
■ Af slysstað á Elliðavogi í gær, þar sem ekið var á ungan dreng á gangbraut með þeim afleiðingum að hann slasaðist
lífshættulega. Tímamynd Sverrir.