Tíminn - 25.11.1983, Side 4
4
FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1983
Laus staða
Staða bifreiðaeftirlitsmanns við Bifreiðaeftirlit
ríkisins á ísafirði er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknin berist Bifreiðaettirliti ríkisins, Bílds-
höfða 8, fyrir 15. desember n.k. á þar til gerðum
eyðublöðum, sem stofnunin lætur í té.
Reykjavík, 23. nóv. 1983.
Bifreiðaeftirlit ríkisins.
Bíldudalur
Starfsfólk óskast í fiskvinnu við pökkun og
snyrtingu.
Upplýsingar í símum 94-2110, 94-2116 og 94-
2128.
Fiskvinnslan hf.
Bíldudal.
Sími 44566
RAFLAGNIR
Nýlagnir - Breytingar - Vióhald iHHV'' Mj
samvirki JS\i
Skemmuvegi 30 — 200 Kópavogur.
Auglýsing til bænda
Höfum nú fyrirliggjandi sérframleitt þaramjöl, pakkaö í
25 kg pappírspoka. Verð kr. 8 pr. kg.
Vinsamlegast gerið pantariir sem allra fyrst í símum
93-4740 eða 91-16299
Þörungavinnslan h.f.
Reykhólum
Refir til sölu 50 blárefs og Shadowlæöur til sölu. Jpplýsingar á kvöldin í síma 99-5019.
fréttir
Göngur
og réttir
á Ing-
jalds-
sandi
■ Á Ingjaldssandi var göngum frest-
aö um þrjá daga vegna góðviðriskafla
sem kom loks eftir rigningarnar í
sumar og náðu sláttur og réttir saman
á einstaka bæ. Að áliti glöggra bænda
bættu dilkar verulega við sig við þenn-
an sumarauka. Hreppsnefnd Mýrar-
hrepps hefur vald til að fresta eða
flýta göngum, en göngur þarf að sam-
rýma hér og vestan heiða. Hjá bændum
á Ingjaidssandi eru þetta 3ja daga
göngur í senn. Fyrsta daginn eru
leitarsvæðin sjö, en fimm annan
daginn. Gist er eina nótt á skipsbrots-
mannaskýli á Skaga. Þar ríkja ýmsar
venjur og hefðir sem eru ekki leiknar
nema á gangnadaginn. Skipsbrotsskýlið1
er búið 6 kojum og þrem aukabeddum.
Hver gagnamaður á sína koju sem
hann hefur unnið-sér með hefð. Ka-
byssan er kynt með rekabreki og
kolamolum. Ákveðinn gangnamaður
sér um kabyssuna hverju sinni og þarf
hann að vakta hana hvort sem honum
líkar vel eða illa, en það verður honum
yfirleitt andvökunótt. Nýliðar eru and-
vaka fyrstu nóttina vegna þess að þeim
er sagt að talað verði illa um þá ef þeir
sofna á undan hinum. Síðla kvölds er
farið út í Skagavita og þar er sagt frá
ýmsu sem bara er hægt að segja þarna
á Skaga og sýna menn oftast á sér nýjar
hliðar. Þar rétt hjá er leiði tveggja
Fransmanna sem hafa verið drepnir og
grafnir þar. En enginn þorir að gjóa
augum þangað þetta síðsumarskvöld.
Daginn eftir skipta menn sér þannig að
þrír menn fara út á Ytri Hlíðar ogreka
út á Ingjaldssand, en sjö menn fara inn
Hlíðar og reka á Alviðrurétt. Daginn
eftir er Ingjaldssandur smalaður og
réttað samdægurs í Sandsrétt. Það er
hátt á fjórða þúsund fjár á fimm
bæjum, það er heldur færra en í fyrra
en fólkið var á annað hundrað. Þegar
menn koma saman með safnið segir
hver frá sinni ævintrýraför og viðureign
við þessar villtu kindur í þessum hrika-
legu fjöllum og ýmsir hafa lent í tæpu
og núna lenti einn maður í því að aflífa
nokkrar kindur sem höfðu hrapað.
FK/BK
■ WiUiam Douglas gangnamaður Helga
Árnasonar í Alviðru, gefur seppa „það
besta af sviðonum“, en enginn veit hvað
það var í þetta sinn.
■.....Leifi og Jón H. voru kófsveittir í
svitabaði eftir að hafa handsamað Hyrnu
hina víðfrægu fjallabikkju við mildnn
eltingarleik í almenningnum.
■ Rekið í réttirnar. Samsafn af fólki og fénaði að koma af fjalii á Ingjaldssandi. Um
fjögurþúsund fjár og á annaðhundrað manns var á Sandsrétt.
Þorsteinshom með Brekkudal og Hálsdal sitt hvoru megin í baksýn og býlið
Brekka. Myndin sýnir endarekstur seinni daginn.
■ Jóna i Alviðru, við heimkeyrsluna á Arnanesi, gefur Skagamönnum kaffi og með
því. Talið frá vinstri. Jólakakan á toppi bflsins, Jóna og kaffikannan, Jói krýpur,
Obbi drekkur, Kristján á Brekku, Helgi í Alviðru, Ámi á milli og Doglas við staurinn
■ Réttarpelinn dreginn upp eftir dráttinn. Beta, Pétur með pelann, Jói með
gleraugun og Hilmar með vindilinn. Þekkja má Guðna á Sæbóli fyrir aftan, að benda
á Golsu sina. Tímamyndir Finnbogi Kr.
■ „Hver á þig?“ Segir Kristján á Brekku réttarbóndi á Sandsrétt um leið og hann
gripur í homið á einni óskilakindinni. Þekkja má Sigga á Kirkjubóli, dregur dilk,
Elísabet í Bolungarvík heldur í lamb.við hlið hennar er Helga í Tröð og Jói á Brekku
er við Brckkudilkshliðið.
■ Vasahnífurinn og sviðin. Guðmundur á Brekku, Torfí á Felii og Helgi í Alviðm
brytja í sig sviðin og seppi fýlgist vel með ef einhver skvldi missa bitann.