Tíminn - 02.12.1983, Síða 2
2______
fréttir
FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1983
Forvitnileg bók um Bjarna Benediktsson skrifuð af samtlðarmönnum:
VILIN FA NÓBELSSKALMÐ
I FORSETflFRAMBOÐ 1968!
„Eitt af því sem ég man best eftir úr
samtölum okkar Bjama Benediktssonar
eru þau orö hans aö ég skyldi fara á fund
Halldórs Laxness upp í Gljúfrastein
þegar sýnt var á árinu 1967 að Asgeir
Ásgeirsson léti af forsetaembætti næsta
sumar og bjóða honum stuðning. Það
gerði ég og er mér undrun nóbelsskálds-
ins ógleymanleg. Þegar ég áður en þetta
var lagði upp í fyrsta samtalið við
Halldór í ritstjóratíð Bjarna hafði Bjami
sagt við mig með stríðnisbrosi: „Það er
ágætt, Matthías minn, en farðu ekki á
fjórum fótum, berðu höfuðið hátt.“ Svo
segist Matthíasi Johannesscn ritstjóra
frá í grein sinni sem hann ritar í bókinni
Bjarni Benediktsson í augum samtíð-
armanna, sem forsvarsmenn Almenna
bókafélagsins og greinarhöfundar
kynntu blaðamönnum.
Brynjólfur Bjarnason, framkvæmda-
stjóri AB sagði m.a. á fundi með frétta-
mönnum í gær: „Tilefni þess að við
hittumst hér nú, er að samgleðjast yfir
því að okkur hefur tekist að koma bók
um Bjarna Benediktsson út til dreifing-
ar. Það er ekki við hæfi að ég sé að hafa
mörg orð um Bjarna heitinn Benedikts-
son, en það er við hæfi að Almenna
bókafélagið gefi út bók um Bjarna.
Hann var jú einn af stofnendum og
frumkvöðlum Almenna bókafélagsins
og formaður þess á meðan honum entist
aldur.“
Það var Ólafur Egilsson sem hafði
með höndum ritstjórn þessa verks, og er
hann fór nokkrum orðum um verkið,
sagði hann m.a. „Höfundarnir eiga það
allir sameiginlegt, að þeir þekktu Bjarna
■ Ahuginn leynir sér ekki í svip fjögurra greinarhöfundanna, því þegar bókin var kynnt á fundi með fréttamönnum í gær,
þá höfðu höfundarnir ekki séð neitt í bókinni, nema þann kafla sem þeir höfðu sjálflr ritað. Frá vinstri: Olöf Benediktsdóttir,
systir Bjarna, en Olöf ritar fyrsta kafla bókarinnar, og var henni á fundinum í gær afhent fyrsta eintak bókarinnar, Geir
Hallgrímsson, Gylfl Þ. Gíslason og Matthías Johannessen.
Benediktsson mjög náið. Þeir segja frá
atburðum sem, þeir upplifðu með hon-
um eða hafa af öðrum ástæðum sérstak-
lega góða aðstöðu til þess að fjalla um.
Atburðum sem þeir sáu innan frá, marga
hverja, ef svo má segja. Þættirnir hafa
því allir sérstakt sögulegt gildi. Með
þeim skerfi sem höfundarnir 16 hafa lagt
fram, má ætla að bjargað hafi verið frá
glötun ýmsum heimildum og upplýsing-
um frá einu viðburðaríkasta tímabili
íslandssögunnar og um mann sem átti
flestum stærri þátt í sköpun þeirrar
sögu.“
Bókin hefur verið í vinnslu undanfarin
ár, en hugmyndin að bókinni fæddist
fyrir sex árum eða svo, eins og fram kom
á fréttamannafundinum í gær. Höfð var
hliðsjón af því, með útkomutíma bókar-
innar, að á þessu ári eru 75 ár liðin frá
fæðingu Bjama Benediktssonar. Bókin
skiptist í þrjá meginkafla: í þeim fyrsta
er æviskeið hans rakið, í öðrum er
svipmyndum frá einstökum atburðum
eða starfsvettvangi brugðið upp og í
þriðja kaflanum gera nokkrir menn m.a.
grein fyrir ákveðnum tímabilum í starfs-
ferli Bjarna, svo sem ritstjórnarstörfum
hans og fleiri.
Höfundarnir eru 16 talsins: Ólöf
Tímamynd - Arni Sæberg
Benediktsdóttir, systir Bjarna, Baldur
Möller, Birgir ísleifur Gunnarsson,
Agnar Kl. Jónsson, Ásgeir Pétursson,
Jónas H. Haralz, Matthías Á. Mathie-
sen, Árni Grétar Finnsson, Eyjólfur
Konráð Jónsson, Davíð Ólafsson,
Magnús Jónson, Pétur Ólafsson, Gylfi
Þ. Gíslason, Andrew G. Gilchrist, Matt-
hías Johannesson og Geir Hallgrímsson.
Bókin er með fjölda mynda frá starfs-
ferli Bjama Benediktssonar, og nafna-
skrá og atriðisorðaskrá fylgja verkinu.
Bókin er 262 blaðsíður að stærð og er
hún unnin í Prentsmiðjunni Odda.
AB
Veðdeild Landsbanka íslands:
KREFST NAUÐUNGARUPP
BOÐS Á426 FASTEIGNUM
ppSegi starfi mínu fyrr lausu en láta selja húseignir ofan af
barnafólki’% segir lögfræðingur deildarinnar
Fjölbreytt
dagskrá á
Loftleiðum
f desember:
Danskt
jóla-
borð í
Blómasal
■ Sérstök joladagskrá verður að
Hótel Loftleiðum í desember að
venju. Danskt jólaborð verður í
Blómasal frá 1. des, og frá þeim tíma
verður einnig hægt að fá jólaglögg og
piparkökur í veitingasölum hótels-
ins.
Aðventukvöld vcrður sunnudag-
inn 4. des. með fjölbreyttri dagskrá
og síðan eru norskir dagar í Blómasal
9. og 10. dcs. þar sem hinn kunni
vísnasöngvari Finn Kalvik skemmtir.
Lústukvöld vcrður aö vanda 11.
des. og loks verða jólapakkaköld 17.
og 18. des. með fjölbreyttri dagskrá
og happdrætti þar sem aðalvinning-
urinn er flugfar fyrir tvo til Kaup-
ntannahafnar.
Kynnir á öllum kvöldunum verður
Hcrmann Ragnar Stefánsson.
-FRI
Alþingi:
Kosið til
allra
sveitar-
*
stjórna
samtímis
■ Alexander Stefánsson félags-
málaráðherra hefur mælt fyrir frum-
varpi um sveitarstjórnarkosningar.
Höfuðbreytingarnar frá núgildandi
lögum eru að kjördagur verður sá
sami í öllum sveitarfélögum og er
stungið upp á að þær fari fram í síðari
hluta aprílmánaðar.
Ekki er gerður munur á hreppum
og kaupstöðum, en þó cr haldið í
þann mun sem geröur hefur verið á
hreppum og kaupstöðum varðandi
meðmælendur til framboðs.
í frumvarpinu er gert ráð fyrir að
nýkjörin sveitarstjórn taki við störf-
um 15. næsta mánaðar eftir kjördag
og að kosningaaldur lækki í 18 ár.
Kosningar verða ekki úrskurðaðar
ógildar nema að ætla ntegi að það
sem áfátt er hafi haft áhrif á k.osn-
ingaúrslit, jafnvel þótt frantbjóðandi
hafi átt í hlut.
Sérstök kjörnefnd fer með úr-
skurðarvald um gildi kosninga í stað
sveitarstjórnar. Kveðið er á um sér-
stakar reglur um meðferð sveitar-
stjórnarmála meðan úrslit kosninga
eru í óvissu. Heimild sveitarstjórnar
sem situr í óvissutímabili til að inna
af hendi greiðslur og gangast undir
skuldbindingar er takmörkuð.
Allntiklar umræður uröu eftir
framsögu félagsmálaráðherra og
einkum gagnrýndu þingntenn þann
tíma sem írumvarpið gerir ráð fyrir
að sveitarstjórnarkosningar fari
fram, og töldu liann óhentugan og
voru flestir á að heppilcgast væri að
kosningarnar færu fram í júnímán-
uði.
Alexander Stefánsson sagði að Al-
þingi væri í sjálfsvald sett að ákveða
kjördag og mundi það að sjálfsögðu
vera athugað í nefnd.
- AB.
■ í nýjasta hefti Lögbirtingablaðsins
eru 426 nauðungaruppboð á fasteignum
auglýst að fara muni fram þann 12.
janúar nk. að kröfu Veðdeildar Lands-
bankans, en samkvæmt heimildum Tím-
ans er hér um óvenjumörg tilfelli að
ræða.
Tíminn sneri sér til Braga Björnssonar
lögfræðings í lögfræðideild Landsbank-
ans og spurði hann hvort hann hefði
upplýsingar um tíðni svona krafna: „Ég
verð að segja það alveg eins og er, að
hér er um alveg óvenjulega mikið magn
að ræða,“ sagði Bragi , „ég tók saman
yfirlit um tíðni þessara uppboðsbeiðna í
fyrra, en þá fóru á árinu um 13000
uppboðsbeiðnir frá Veðdeildinni til emb-
ættanna. Þar af fóru um 1500 kröfur
áfram og voru þingfestar og um 500 sem
þar af héldu áfram í raun og veru. Til
samanburðar get ég nefnt þér að núna,
á einum degi, þá þingfestum við fyrir
bæjarþingi Reykjavíkur 430 mál, svo
aukningin er gífurleg. Að vísu eru þarna
mörg gömul mál, og það verður að hafa
í huga, því hjá embættinu hafa orðið
skipulagsbreytingar."
Bragi sagði, þegar hann var spurður
hvað hann vildi um það segja, að aðeins
fimm til tíu eignir seljist á ári á uppboð-
um: „Þegar sagt er að aðeins 5 til 10
eignir seljist á uppboði á ári, þá segir það
ekki hálfa söguna, vegna þess að maður
veit það, að ef fólk lendir í þeirri aðstöðu
að eign þess sé seld á öðru eða síðasta
uppboði, þá fær það aðeins slikkprís
fyrir eign sína. Því er það þannig, að allir
heiðarlegir kröfuhafar gefa fólki kost á,
að selja íbúðina eða húseignina á frjáls-
um markaði, til þess að það fái sem best
verð fyrir hana og á venjulegum kjörum.
Ég gæti því trúað því að það væru að
minnsta kosti tuttugu sinnum fleiri eignir
sem væru seldar raunverulega, vegna
þessara krafna, heldur en skýrslur þar
um segja. Ég segi bara fyrir mig, að ég
geri það ekki að selja ofan af barnafjöl-
skyldum. Það bara kemur ekki til greina.
Ég leita allra annarra ráða, heldur en að
setja slíkar eignir á síðustu sölu. Það má
kannski segja að þetta sé ekki voðalega
góður innheimtumáti, en maður verður
að hafa hið mannlcga sjónarmið í huga.“
Bragi var spurður hvort þeir fjölmörgu
sem taldir eru upp í auglýsingum Lög-
■ „Að sjálfsögðu mun ég, og ég held
öll húsnæðismálastjórn gera það sem við
getum til þess að framfylgja stefnu
félagsmálaráðherra í húsnæðismálalán-
um,“ sagði Þráinn Valdimarsson nýskip-
aður formaður húsnæðismáiastjórnar í
samtali við Tímann í gær.
Alexander Stefánsson félagsmálaráð-
herra skipaði Þráin sem formann og
Gunnar Helgason varaformann stjórnar-
innar, en aðrir í stjórn eru þau Guðrún
Hallgrímsdóttir, Jóhann Petersen, Jón
H. Guðmundsson, Gunnar S.
Björnsson, Kristín Blöndal, Björn Þór-
birtingablaðsins og skulda ekki nema á
hilinu 2 til 10 þúsund, þó svo að
talsverður fjöldi sé einnig með umtals-
verðar skuldir sem skipta tugum, jafnvel
hundruðum þúsunda, gætu ekki flestir
bjargað sér fyrir horn með greiðslur:
„Ja, þaðer nú einu sinni svo, aðþeirsem
skulda minnstu fjárupphæðirnar, eins og
þeir sem skulda 2 til 10 þúsund krónur,
sem hringja í mig, og segja mér að þeir
nái ekki saman heimilisreikningum, raf-
magnsreikningum og hitaveitureikning-
um. Dæmið gangi einfaldlega ekki upp
hallsson og Grétar Þorsteinsson. Auk
þess eru tilnefndir 9 varamenn.
Þráinn sagði jafnframt: „Við erum í
raun og veru mjög ánægð með það, að“
það er þó virkilega viðleitni til þess að
beina auknu fjármagni til húsbygginga,
eins og sést best með hækkun húsnæðis-
lána um 50%. Ekki nóg með það að
þessi lán hækki hjá þeim sem nú eru
húsbyggjendur, heldur nær þetta tvö ár
aftur í tímann, og það er að mínu mati
stórkostlegt skref sem stigið hefur verið
í þessu máli, sérstaklega með tilliti til
þess samdráttar sem á sér stað á flestum
og ekkert sé eftir til þess að standa í
skilum við Húsnæðismálastofnun. Þetta
er yfirleitt heiðarlegasta og besta fólkið
sem hringir og segir mér þetta. Hvað á
ég að gera þegar ég fæ svona upphring-
ingar - ég get bókstaflega ekkert gert,“
sagði Bragi.
Bragi sagðist í lengstu lög reyna að
gera eins gott úr hlutunum og hægt væri.
Hann myndi fyrr segja upp starfi sínu en
láta selja húseignir ofan af barnafólki.
Enda væri sjálfsagt engum hagur í
slíkum aðgerðum. _AB
öðrum sviðum. Ég verð að segja það
alveg eins og er, að þetta tel ég vera
'vísbendingu um að við höfum fengið
góðan, duglegan og einarðan félags-
málaráðherra og mér finnst það ganga
kraftaverki næst, hverju hann hefur
áorkað í ríkisstjórninni, á sama tíma og
dregið er úr fjárveitingum á öllum
sviðum.“
Þráinn benti á, að hann gæti svo sem
ekki mikið tjáð sig um hvaða starf hans
biði sem formaður húsnæðismálastjórn-
ar, þar sem hann hefði nú ekki verið
skipaður fyrr en í fyrradag. -AB
Hækkun húsnæðismála um 50%:
„Firmst það ganga
kraftaverki næst”
— segir Þráinn Valdimarsson, nýskipaður
formaður húsnæðismálastjórnar