Tíminn - 02.12.1983, Side 6
6______________
f spegli tfmans
mmm
FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1983
-frétti þvi síðust allra að hún hefði sigrað!
■ Eva Reuber-Staier, Ungfrú heimur 1969, fann hamingjuna
eftir að sigurárið var liðið. Með tímanum varð hún þekkt
lcikkona og fyrirsæta í hcimalandi sínu og giftist sjónvarps -
• stjóranum Konald Fouracrc. Hann lést af hjartaáfalli þrem
mánuðum áður en Eva ól son þeirra, Alexander.
■ Eins og kunnurg er, er ekki
langt um liðið síðan krýnd var ný
Ungfrú heimur. Að þessu sinni
var það ungfrú Bretland, sem
hnossið hreppti, en hún Unnur
okkar Steinsson lenti að lokum í
4. sæti. Ekki þykir öllum það
jafneftirsóknarvert að hljóta
fyrsta sæti í þessari keppni, þó
að þær taki þátt í henni. Meðal
þeirra er austurríska stúlkan Eva
Reuber Staier, sem var Ungfrú
hcimur 1969.
Eva, sem nú er orðin 34 ára,
segir, að það, sem bjargaði henni
í gcgnum hreinsunareldinn, sem
hún gekk í gegnum á sínum tíma,
hafi verið sú afstaða að líta á allt
tilstandið mcira sem grín en
alvöru. - Hvernig á að vera hægt
að velja bara eina stúlku svona
og segja að hún sé fegursta
stúlka heimsins? Þegar allt kem-
ur til alls, hefur fólk mjög ólíkar
hugmyndir um fegurð, það sem
einum þykir Ijótt, þykir öðrum
fagurt og öfugt, segir hún.
Tildrögin að því, að Eva lenti
í keppninni á sínum tíma voru
þau, að ungur maður, sem Eva
var á þeim tíma í tygjum við, var
svo ánægður með útlit elskunnar
sinnar, að hann tilkynnti hana í
keppnina um titilinn Ungfrú
Austurríki. Þó að Eva væri síður
en svo hrifín, lét hún tilleiðast,
því að hún vildi allt fyrir vininn
sinn góða gera. Sér til mikillar
skelfíngar vann hún titilinn. Hún
hélt, að þar með væri hún laus
allra máia. Hún hafði ætlað að
giftast kærastanum og búið var
að ákveða dagsetninguna fyrir
brúðkaupið. Þar sem fcgurðar-
drottningar mega ekki vera
giftar, áleit hún það sjálfgert að
hún slyppi við frekari þátttöku í
slíkri keppni. En þá brást kærast-
inn henni aftur. Hann tilkynnti,
að hann væri fús til að bíða meö
brúökaupiö þar til út væri runnið
sigurár Ungfrú heims, ef það
mætti verða til þess, að Eva bæri
sigur úr býtum í þeirri keppni!
Þar með var hann búinn að
missa Evu fyrir fullt og allt.
Eva tók ekki þátttöku sína í
keppninni hátíðlegar cn svo, að
hún hafði ekki cinu sinni kvöld-
kjól í farangri sínum, þcgar hún
kom til London. Og þar sem ekki
hafði hvarflað aö henni að sigur-
líkurnar væru henni í hag og hún
skildi ekki orð í ensku, hafði hún
enga hugmynd um, hvað um
væri að vera, þegar úrslitin voru
tilkynnt. Það var ekki fyrr en
einhverjum tókst að smeygja á
hana borðanum með áletruninni
„Ungfrú heimur“, að upp rann
fyrir henni Ijós!
Arið, sem á eftir fór, gegndi
Eva samviskusamlcga skyldum
sínum og hafði raunar gaman af
öllum ferðalögunum og ævintýr-
unum. Hún tók fljótlega eftir
því, að venjulegir karlmenn
forðuðust hana, en einn tryggan
aðdáanda átti hún þó, afríkansk-
an prins, sem bað hennar með
vissu millibili, bréflega! En þó
henni hafí þótt heldur gaman að
öllu umstanginu, þegar á hólm-
inn var komið, var hún samt
ósköp fegin, þegar árið var liðið
og hún gat leyft sér að vera aftur
hún sjálf.
Að fenginni reynslu vill Eva
gefa eftirkomendum sínum í
þessu starfí þau ráð, að taka
þetta ekki of hátíðlega og binda
ekki alltof miklar vonir við alls
konar draumsýnir um frama á
hvíta tjaldinu eða sem fyrirsæt-
ur. Hún segir stúlkur, sem standa
föstum fótum á jörðinni, geta
haft i heilmikið gaman og lærdóm
af þátttöku sinni í fegurðarsam-
keppni, en þær trúgjörnu geti
orðið fyrir iniklum vonbrigðum.
■ Þar sem ekki
að Evu, að hún myndi bera sigur
úr býtum í keppninni, fylgdist
hún ekkert með þegar úrslitin
voru tilkynnt. Hún var því enn
talsvert annars hugar, þegar búið
var að koma henni í
skrúðann.
vidtal dagsins
Bókasafn Seltjarnarness í nýju húsnæði:
„HÖFUM VERIÐ MEÐ
20 ÚTLÁN Á ÍBÚA
SÍÐUSTU10 ÁRIN"
segir Finnur Sigurjónsson
forstöðumadur safnsins
■ „Lifa þar fáir og hugsa
smátt,“ var einu sinni ort um
Seltjarnarnesið, en nú er öldin
önnur, þar lifa margir og hugsa
stórt. Meðal þess sem benda má
á því til staðfestu er að bókasafn
bæjarins er nú flutt í ný húsa-
kynni, sem það deilirmeð heilsu-
gæslustöð og tónlistarskóla, en
áður var safnið til húsa við
Mýrarhúsaskóla. Við slógum á
þráðinn til Finns Sigurjónssonar
forstöðumanns safnsins vegna
þessara tímamóta.
„Þetta er nýtt hús 1000 fer-
metrar hvor hæð og við erum á
annarri hæðinni ásamt tónlistar-
skólanum. Þetta er gífurlegur
munur. gamla húsnæðið okkar
var 80 fermetrar."
Er mikil ný þjónusta sem þið
getið veitt, sem ekki hefur verið
til staðar áður?
„Það kemur til með að verða
það, þegar allt er komið í gangið
eins og áætlað er að hafa það.
Við verðum í framtíðinni með
tónlistardeild, útlán á kassettum
og slíku, en það cr ekki komið
ennþá. Hugsanlega verður líka
vídeoleiga, en það er ákveðið
Finnur Sigurjónsson P
Tímamynd GE.