Tíminn - 02.12.1983, Blaðsíða 10
10_______
teknir tali
FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1983
Wmnm
■ „Eftir dauða Maríanellu García
Villas, sem var formaður Mannréttinda-
nefndar El-Salvador, hafa ofsóknir á
hendur fólki í Mannréttindanefndinni
farið mjög vaxandi“ sagði Patricio Fu-
entes fulltrúi Mannréttindanefndar El-
Salvador, en hann er nú staddur hér á
landi til þess að kynna ástandið í
heimalandi sínu, en nefndin leggur nú
gífurlega áherslu á að fínna friðsamlega
lausn á ástandinu og reynir að þrýsta á
ríkisstjórnir lýðræðisríkja um að þxr
vinniaðþví á alþjóðlegum vettvangi að
þrýsta á friðsamlega lausn svo að þessu
olbeldis og ógnarástandi, sem tæpast á
sér hiiðstæðu í samtíðinni, megi linna.
í El-Salvador hafa ríkt herforingja-
stjórnir síðan 1932, en þá voru þúsundir
bænda drepnir í uppreisn. Allan síðasta
áratug óx sterkum almannasamtökum
fiskur um hrygg undir merkjum lýðræðis-
baráttu, en það kallaði á nýja ógnaröld
sem hófst með herforingjabyltingu 1979.
Nú logar landið í átökum. Þar starfar
skæruliðahreyftng FMLN og pólitísk
hreyfing FDR, hvorttveggja skipulegar
hreyfingar sem miða að því að ná
völdum í landinu og hafa náð þeim í
afmörkuðum héruðum. Mannréttinda-
nefndin er hins vegar stofnuð 1978 og
hefur það markmið að upplýsa um þær
ógnir og það ofbeldi sem ríkir og vinna
■ Patricío Fuentes fulltrúir Mannréttindanefndar El-Salvador ræðir við blaðamann, ásamt túlki sínum Þráni Hallgrímssyni
fulltrúa Mannréttindanefndarinnar á íslandi. Tímamynd Róbert
í öðru lagi beinist kúgunin að þeim
sem veljast til einhverskonar forystu í
verkalýðsfélögum eða almannasam-
tökum. Þeir eru miskunnarlaust ofsóttir
og drepnir, dregnir út af heimilum
sínum og misþyrmt og þeir myrtir.
í þriðja lagi er kúgunin gagnvart þeim
sem hafa nám að baki, gagnvart læknum
og lögfræðingum og kennurum. Það er
sérstaklega hættulegt að vera kennari í
El-Salvador.
í fjórða lagi beinist ógnin að almenn-
ingi án tillits til stéttar. Til dæmis er
ráðist að skólabörnum og þau drepin í
þeim tilgangi að skapa ótta.“
Ofbeldið tekur á sig
ný og ný form
„Langmesta ofbeldið er gagnvart al-
mennum borgurum. Og það tekur á sig
ný og ný form. Efnahernaður færist í
vöxt. Notaður er hvítur fosfór í duft- eða
sprengjuformi. Hann brennir af lík-
amshluta. Afleiðingin er oft sú að börn
missa hendur og fætur. Heilbirgðis-
ástandið á þeim svæðum þar sem skæru-
liðar ráða er vægast sagt slæmt og oft er
það eina sem læknir getur gert þegar
sýking kemur í sár að höggva af hinn
sýkta lim.“
Óhugnaðurinn í El Salvador aldrei meiri:
„ÞRÝSTUM A RÍKISSTJÓRN-
IR LYÐRÆÐISRlKJA UM AD
FINNA FRIÐSAMLEGA1AUSN”
— segir Patricío Fuentes, fulltrúi Mannrérttindanefndar El Salvador
að því að aflétta þessu hryllilega ástandi
og að fólkið í landinu fái sjálft að velja
sér stjórn t.d. í lýðræðislegum kosning-
um.
„Astandið er sprottið af gífurlegu
félagslegu óréttlæti", segir Patricio.
Þetta er ekki barátta milli hugmynda-
kerfa. „Fólkið í El-Salvador er einfald-
lega að berjast fyrir lífi sínu. Berjast
fyrir því að lifa af, að hafa í sig og á.
Lögfræðingur Mannrétt-
indanefndarinnar myrtur
Við í nefndinni söfnum gögnum um
ofbeldið, tökum ntyndir af limlestu fólki
og líkum, gröfum upp lík, aðstoðum
börn sem misst hafa foreldra sína. Eftir
að Marianella er öll er miklu meira gert
af því að ógna nefndarmönnum og drepa
þá. Nú hafa sex af félögum í nefndinni
verið myrtir, tveir eru í fangelsi, fjórir
eru horfnir. Fyrir tveim vikur var lög-
fræðingur nefndarinnar myrtur fyrir utan
skrifstofu sína í San Salvador. Eftir það
hefur nefndin engan lögfræðing á sínum
snærum og er það mjög alvarlegt mál“.
Konum nauðgað
„Það má lýsa ógnaröldinni í fjórum
meginatriöum" heldur Patricío áfram:
„í fyrsta lagi er það ógnunin á hendur
konum. Flestar konur sem eru teknar
höndum eru beittar kynferðislegu of-
beldi. Allt frá 3ja til 4urra ára gömlum
og uppúr. Hermenn segja brandara um
þetta ofbeldi sitt og sá er ekki maður
með mönnum sem ekki hefur nauðgað
og misþyrmt konu á þennan hátt.
■ Maríanella García Villas lögfræðing-
ur var formaður Mannréttindasamtaka
El-Salvador. Róbert tók þessa mynd er
hún var stödd hér á landi í fyrrahaust.
■ Eitt mikilvægasta starf Mannréttindanefndarinnar er að safna gögnum um
misþyrmingar. Þetta barn hefur orðið fyrir barðinu á eiturefnahernaði stjómarinnar.
Hefur fcngið framan í sig hvítan fosfór sem brennir eins og eldur.
Ljósmynd Marianella García Villas.
52000
óbreyttir borgarar drepnir
„Stríðið í landinu hefur kostað hvorki
meira né minna en 52000 óbreytta borg-
ara lífið síðan í október 1979 og frá því
á árinu 1982 hafa u.þ.b. 5000 manns
horfið. Meðal þess sem Marianella var
að vinna að þegar hún var myrt var að
kanna áhrif eiturefnanna og safna um
þau gögnum. Hún var pyntuð til dauða
14. mars sl. Nefndin hefur ákveðið að
heiðra. minningu hennar með því að
veita henni svokölluð „friðarverðlaun
alþýðu“ og safna fé til mannúðarverk-
efna sem henni voru hugleikin. Fjöldi
þingmanna í Svíþjóð hefurt.a.m. skrifað
undir áskorun til almennings um þetta
efni. Von okkar er sú að íslendingar láti
ekki sitt eftir liggja í baráttunni fyrir friði
og mannréttindum í El-Salvador og
styðji þannig Mannréttindanefnd El-Sal-
vador.
Minnsta land
í Mið-Ameríku
„El-Salvador er aðeins 22000 ferkíló-
metrar eða fjórum sinnum minna en
ísland. Það liggur milli Nígaragúa og
Hondúras og íbúar eru 4 til 4V5 milljón.,
Það er ekki vitað nákvæmlega, vegna
þess hve margir hafa flúið en íbúðarnir
voru 5 milljónir fyrir fimm árum. Land-
inu er stjórnað af fjórtán fjölskyldum,
60% landsbúa eru bændur. Útflutningur
er aðallega kaffi og bómull og ýmiskonar
litarefni. Nærri helmingur barna deyr
áður en þau hafa náð fimm ára aldri.