Tíminn - 02.12.1983, Side 11
FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1983
■ Henni var misþyrmt og hún myrt 14. mars si. Myndirnar tala sínu máli.
80% jarðnæðis er í höndum tíunda hluta
þjóðarinnar. 8% þjóðarinnar hagnýtir
um 50% þjóðartekna. 60% þjóðarinnar
er ólæs og óskrifandi. Aðeins 3 læknar
eru á hverja 10 þúsund íbúa.
Stuðningur Regans
Stuðningur Bandaríkjastjórnar við
herforingjastjórnir í El-Salvador á sér
langa sögu. Forsetinn sem nú er, Ronald
Reagan, lítur á stríðið í El-Salvador sem
valdabrölt kommúnista og á þeim grund-
velli styður hann ofbeldisstjórn bæðj
hernaðarlega og efnahagslega.
Kirkjan
Romero erkibiskup var einn af stofn-
endum Mannréttindanefndarinnar.
Hann naut virðingar og barðist fyrir
bættum kjörum alþýðu. Hann var drep-
inn vorið 1980. Eftirmenn hans hafa
haldið hlífiskyldi yfir Mannréttinda-
nefndinni og höfuðstöðvar hennar eru í
skjóli biskupsins í El-Salvador. Þá hafa
kirkjunnar menn tekið höndum saman
og stofnað Alþýðukirkjuna og tekur hún
upp hanskann fyrir almenning. Sú kirkja
er ofsótt.
BK
Ég græt að morgni
í 3. útgáfu
Útgáfan HILDUR hefur gefið út Ég græt að
morgni, ævisögu Lillians Roth sem seldist
upp í fyrra. Nú kemur hún út í III. úgáfu í
takmörkuðu upplagi. Þessi sívinsæla bók
sem segir frá örlögum heimsfrægrar konu
sem berst hetjulegri baráttu við alkaholið en
sigrar að lokum. Bókin er sígild saga örlaga
miljóna manna þar sem sigur og ósigur
skiptast á.
HAMSKIPFIN
Franz Kafka var fæddur í Prag árið 1883
og af gyðingaættum. Hann nam í háskóla
germönsk fræði en síðan lögfræði og varð
doktor í þeirri grein. Hann lést úr tæringu
árið 1924. Að Kafka látnum gaf vinur hans
Max Brod út margt sem eftir hann lá, þar á
meðal skáldsögurnar Réttarhöldin og Höllin.
- í eftirmála þýðingar Hamskiptanna rekur
þýðandi æviatriði höfundar og telur rit hans.
Hamskiptin eru nú gefin út á íslensku með
styrk úr Þýðingarsjóði. Bókin er 111 blaðsíð-
ur. Oddi prentaði.
„Hamskiptin“
eftir Kafka í endurskoðaðri þýðingu
Iðunn hefur gefið út Hamskiptin, sögu
Franz Kafka í þýðingu Hannesar Pétursson-
ar. Bókin er gefin út í tilefni þess að í ár er
öld liðin frá fæðingu Kafka, eins hinna miklu
brautryðjenda nútímalegs skáldskapar í
lausu máli. Hann hefur haft drýgri áhrif í
bókmenntum aldarinnar en flestir höfundar
aðrir, en Hamskiptin er hin eina af lengri
sögum hans sem þýdd hefur verið á íslensku
fram til þessa. Sagan kom út í þýðingu
Hannesar Péturssonar árið 1960 og er sú
útgáfa löngu horfin af markaði. Nú hefur
Hannes endurskoðað þýðinguna og breytt
henni verulega, svo að í raun er um nýja
þýðingu að ræða.
Hamskiptin samdi Kafka árið 1912 og var
langlengsta saga höfundar sem birtist að
honum lifandi.
oa
HVtTHATTAKLMN
Hin fjögur fræknu
Tvær nýjar bækur um hin fjögur fræknu
Iðunn hefur gefið út tvær nýjar bækur í
hinum vinsæla teiknimyndasagnaflokki um
hin fjögur fræknu. Nefnast þær Hin fjögur
fræknu og F-sprengjan og Hin fjögur fræknu
og hvíthattaklíkan. Þetta eru fimmtánda og
sextánda bókin í flokknum. Sögur þessar
voru upphaflega gefnar út á frönsku. Teikn-
ingar eru eftir Francois Craenhals og texti
eftir Georges Chaulet. Aðalpersónur eru
þau Búffi, Lastík og Doksi, ásamt hundinum
Óskari. Þessir félagar eiga jafnan í höggi við
misindismenn og skortir ekkert á æsilega
atburði og spennu í frásögn. Texta hinna
nýju bóka um hin fjögur fræknu þýddi Jón
B. Guðlaugsson. Bækurnar eru gefnar út í
samráði við Casterman í París.
Maðurinn sem féll til jarðar
framtíðarsaga eftir Walter Tevis
Iðunn hcfur gefið út skáldsöguna Maðurinn
sem féll til jarðar eftir bandariska höfundinn
Walter Tevis. Þorsteinn Antonsson þýddi.
Saga þessi segir frá manni, sem raunar var
enginn maður sem kemur til jarðar frá
annarri stjörnu, vitjar jarðarbúa utan úr
geimnum og vill beina lífi þeirra í hollari
farvegi. Maðurinn sem féll til jaröar skiptist
í þrjá hluta sem eru afmarkaðir í tíma. Fyrsti
hluti, Ikarus á niðurleið, hefst árið 1985,
annar hluti, Hrokkinskinni, árið 1988, hinn
þriðji, lkarus drukknar, árið 1990. Sagan er
víðkunn og hefur verið kvikmynduð. Iþeirri
mynd fór David Bowie með aðalhlutverkið.
Maðurinn sem féll til jarðar er 200 blaðsíðna
bók. Oddi prentaði.
Bláalónið
Gistihús við Svartsengi
Bláalónið er 1. flokks hvíldarstaður við hið frábæra
Bláa lón. Dvöl þar getur gert kraftaverk, og endur-
nýjað bæði sál og líkama. 1. flokks herbergi með
baði og nuddsturtu; sjónvarp og vídeó á öllum
herbergjum. Allar veitingar á lágu verði. Yndislegt
útivistarsvæði í nágrenninu tilvalið til gönguferða,
og sundsprettur í Bláa lóninu gerir ölium gott.
Gisting aðeins:
1 nótt kr. 1000..........................fyrir 2
m/fullu fœði kr. 1600.- ..................fyrir 1
mlfullufæði kr. 2200.- ...................fyrir 2
3 dagar m/fullufœði kr. 4500.- ..........fyrir 1
3 dagar mlfullu fæði kr. 6000.- ....... fyrir 2
7 dagar m/fullufæði kr. 10.000,- ........fyrir 1
7 dagar mlfullu fæði kr. 14.000.- .......fyrir 2
Skortir þig þrek?
Skortir þig þor?
Sæktu það í Bláalónið
Bláalónið su