Tíminn - 02.12.1983, Síða 15
FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1983
„Geymdu
ekki gjafir
þínar“
Heiðrekur Guðmundsson:
MANNHEIMAR
Úrval
Gísli Jónsson valdi Ijóðin
Almenna bókafélagið
Reykjavík.
■ Margir kannast við þetta erindi eftir
Stephan G:
„Þann ferðamann lúinn ég lofa og virði
sem lífsreynsluskaflana brýtur á hlið
en lyftir samt ævinnar armæðu byrði
á axlirnar margþreyttu og kiknar ei við.“
Þetta erindi verður mér ofarlega í
huga yfir ljóðasafni Heiðreks Guð-
mundssonar. Hann hefur hlotið sinn
skerf af „ævinnar armæðubyrði“. Það fá
þeir sem horft hafa opnum augum á
mannlíf þessarar aldar og gæddir eru
næmri tilfinningu og hlýrri samúð með
mannfólkinu almennt. En Heiðrekur
kiknar ekki undir sinni byrði.
Gísli Jónsson ritar formáia að þessari
bók og rekur þar skáldferil Heiðreks.
Hann gerir í stuttu máli glögga grein
fyrir skáldskap, formi og efni. Hann
segir þar að bestu kvæði Heiðreks séu
með einhverjum hætti tragisk. Og víst er
það satt að þar ber mikið á trega en hann
er ekki tilefnislaus.
Heiðrekur veit að það veitir ekki sælu
og fullnægju að hafa allt sem hugurinn
girnist. Það segir hann m.a. í kvæðinu
Að loknum sigri:
„Þú settir þér takmark
Og nú er því náð.
En nú hefur slaknað þinn strengur.
Því allt sem þú girntist,
það hefurðu hreppt
°g hryggist og gleðst ekki lengur.“
Þú ættir að fagna.
Því allt er nú tryggt,
og ekki nein hindrun
í vegi.
En þó skortir lífið
hinn Ijúfa seið.
Þú leitar-
og finnur hann eigi.“
Maðurinn finnur ekki hinn Ijúfa seið
lífsins þegar hann finnur sig ekki hafa
neitt til að keppa að - neitt til að berjast
fyrir. Það er ógæfa velmegunar og of-
sældar - næsta algengt og dapurlegt
fyrirbæri í velferðarþjóðfélagi.
Það mætti skrifa langt mál um skáld-
skap Heiðreks og úrval Ijóða hans. Það
verður ekki gert nú. Aðeins skal því
fagnað að þetta úrval er komið út og
síðan vitnað í Heilræði ömmu þinnar:
„Geymdu ekki gjafir þínar
góðum vini - í dánarkrans.“
En það er unnt að finna mörg heilræði
önnur í þessum úrvalskvæðum.
- H.Kr.
Augna-
bliks-
myndir
Birgir Svan Símonarson:
FÓTMÁL
Ljóð
Gefið út á kostnað höfundar.
Reykjavík 1983
■ Þetta Ijóðakver er myndskreytt og
það hefur Sigrid Valtingojergert. Ljóðin
eru öll stutt, myndir af landi og mannlífi.
Mörg þeirra eru haglega gerð. Eitt
heitir: Gömul frétt og ersvona:
„fallorka társins
í kerskálum holdsins
sprengikraftur svitaholunnar
í landssmiðju vanmáttarins
aflvél óttans
í frystihúsum valdsins
fallhamar brjóstsins
í steðju niðurlæginarinnar.“
Þetta er mannlífsmynd þar sem saman
er fléttað orðaleikjum og líkingum og
tekst stundum vel.
Birgir Svan yrkir um árstíðir og veðr-
áttu svo sem lengi hefur verið gert.
Vetur heitir þetta:
Svo sem sjá má þykir óþarfi að nota
upphafsstafi og greinarmerki í þessum
skáldskap. Kannske er það meinlaus
sérviska eða tilgerð en það út af fyrir sig
gerir ekki ritað mál skáldskap.
Sumar ljóðmyndirnar í þessu kveri
leyna á sér og búa yfir meiru en einu.
Þetta er kallað Utan dagskrár:
„framá sjávardröngum
stendur ölóður maður
á rifinni skyrtu
og steytir hnefa
að briminu
öskrar ókvæðisorðum
í vindinn.“
Þar eru ýmis dæmi að menn steyti
hnefa og öskri ókvæðisorð að náttúru-
lögmálunum þó að þeim verði ekki
breytt og manneskjan verði að aðlaga sig
þeim ef hún vill lífi halda og njóta þess.
Drottinn blessi heimilið heitir þetta:
„hún fleygði í hann
fjallahringnum hamrabeltinu
þessum dýru erfðagripum
og ók úr hlaði
án þess að kveðja.“
Þessi sýnishorn ættu að nægja til að
votta að hér er unnið af nokkurri íþrótt
þeim til yndis sem njóta hagleiks í máli.
- H.Kr.
„kominn er hann
með kalið hjarta
frostrós í barmi
gráhærða hörkutólið
hcfur bókað sig
inná hótel ísland
tekur upp úr töskum
frostmyrkur og storma
grýlukerti og kvilla.
kominn til langdvalar.“
lb H. Cavling
Stúlkan frá Rapallo
Bókaútgáfan HILDUR hefur gefið út margar
bækur eftir Ib. H. Cavling.kemur nú 24. bók
þessa vinsæla danska höfundar, sem látinn er
fyrir fáum árum. Bókin nefnist Stúlkan frá
Rapallo. Syni ítalska dómsmálaráðherrans
er rænt og eiginkona enska sendiráðunautar-
ins, Sir Rogers Winthers, hverfur á dular-
fullan hátt. Skömmu síðar fær ráðherrann
bréf með kröfum um að hann láti lausa tvo
mafíuforingja, sem sitja í fangelsi. Saga
ástar, örlaga, lífshættu og sigra að lokum.
BÖRNIN Á HVUTTAHÓUIM
KOMA í BÆJNN
Mauri Kunnas
„Börnin á Hvuttahólum"
ný saga eftir Mairi Kunnas
Iðunn hefur gefið út bókina Börnin á
Hvuttahólum koma í bæinn eftir finnsku
höfundana Mairi Kunnas og Tarja Kunnas.
Álfhildur Álfþórsdóttir þýddi söguna. Eftir
sömu höfunda er Jólasveinninn, saga af
jólasveininum og búálfum hans á Korvafjalli
sem út kom í fyrra. Börnin á Hvuttahólum
koma í bæinn er myndasaga í litum og segir
frá því þegar Else og Kalli fá að fara í sína
fyrstu löngu heimsókn til frændfólksins í
bænum.
Bömin á Hvuttahólum er 40 síður í stóru
broti. Ásetning annaðist setningu.
ÍSLENSKIR
SAGNAÞÆTTIR
íslenskir sagnaþættir
II. bindi
Bókaútgáfan HILDUR gefur út íslenska
sagnaþætti II. bindi, samantekna af Gunnari
Þorleifssyni. Efnið er tekjð saman úr ýmsum
áttum, úr gömlum blöðum og bókum. Hug-
myndin er að halda þessari útgáfu áfram og
birta smám saman þætti alls staðar að af
landinu, gamla og nýja og mun kappkosta að
hafa efnið sem fjölbreytilegast. I þessu II.
bindi íslenskra sagnaþátta eru m.a. þessir
þættir. Sagnaþættir, þjóðlífsþættir,
skipsströnd, þættir fyrri alda, sérkennilegir
menn o.fl.
„Þjóð í kreppu" í bókarformi
ísafoldarprentsmiðja h.f. hefur sent frá sér
ritið „Þjóð í kreppu“, en það eru 21 erindi
flutt á ráðstefnu Lífs og lands þ. 19. nóvem-
ber s.l. Ritið er geftð út í samvinnu við Líf
og land, það er 137 bls. að stærð og
útsöluverð er kr. 389.00
Búvélar
á vetrarverði
15
Sláttuvélar
Heyþyrlur
rnn
Múgavélar
ROKE
Baggavagnar
Sláttutætarar
Fjölnotavagnar
^l\EW HOLLAfsD
Rúllubindivélar
Hr .INEW HOLLAIND
Heybindivélar
NH 378
4=rSEW HOLLAIND
Baggafæribönd
KVERNELAND
Gnýblásarar
KVERNELAND
Heykvíslar
KVERNELAND
Plógar
VrHOWARD
Mykjudreifarar
i
Heyhleðsluvagnar
G 65 - 30 rúmm
Moksturstæki
Hafið samband sem fyrst.
Góð greiðslukjör.
Globuse
LÁGMÚLI 5, SlMI 81555 1
f STAÐAR NEM!
Öll hjól eiga að stöðvast
algerlega áðuren
að stöðvunarlínu
er komið.