Tíminn - 02.12.1983, Side 24
Opiö virka daga
9-19.
Laugardaga 10-16
H
HEDD
Skemmuvegi 20 Kopavogi
Simar (91 >7 75 51 & 7 80 30
Varahlutir
Mikiö úrval
Sendum um land allt
Ábyrgö á öllu
Kaupum nýlega
bíla til niðurrifs
SAMVINNU
TRYGGINGAR
8c ANDVAKA
ARMULA3 SIMI 81411
abriel
HÖGGDEYFAR
m _ |_ ■ . * namarsnoíc
(jjvarahlutir simiaesio.
Hamarshöfða 1
CtTS'ítni Ritstjorn 86300-Auglysingar 18300- Afgreiðsla og askrift 86300 - Kvoldsimar 86387 og 86306
Föstudagur 2. desember 1983
Hvað gerist ef beitt hefur verið of miklu harðræði við handtöku?
„MEMN EKAROTA SKAÐABÓT-
IIM EFTIR AIMENNUM REGLUM
— segir Eiríkur Tómasson, kennari f opinberri stjórnsýslu við Háskólann
V
■ „Handtaka í skilningi
réttarfarsreglna nær bæði til þess
þegar maður er tekinn úr umferð
og eins tekur það til framhalds á
þeirri frelsissviptingu, þar til
maðurinn er annaðhvort látinn
iaus eða hnepptur í gæsluvarð-
hald. Þessi tími á auðvitað að
vera eins stuttur og mögulegt er,
það er rauður þráður í gegnum
iögin, að handtaka á ekki að
valda mönnum meiri miska en
brýn nauðsyn ber til. I fyrsta lagi
á auðvitað ekki að handtaka
menn nema brýna nauðsyn beri
til og í öðru lagi ber að sýna
fyllstu varúð við handtökur“
sagði Eiríkur Tómasson héraðs-
dúmslögmaður og kennari í op-
inberu réttarfari við lagadeild
Háskóla íslands, þegar Tíminn
bað hann að rekja helstu laga-
reglur um handtökur og rétt
þeirra sem verða fyrir frelsis-
sviptingu.
„Fyrsta reglan í sambandi við
handtökur er að tilefni sé til
þeirra og ekki sé hægt að leysa
málið með friðsamlegri hætti.
Lögreglan hefur heimild til að
handtaka mann ef sérstakar á-
stæður eru fyrir hendi. Þá ber
lögreglu að handtaka mann til að
halda uppi lögum og reglu, þ.c.
ef hann hefur uppi háreysti og
óspektir, og sé umhverfi sínu
• hættulegur.
Réttindi manna sem hand-
teknir hafa verið, eru margvís-
leg. í fyrsta lagi ber lögreglu að
vekja athygli manna á að þeir
eiga rétt á að fá réttargæslu-
mann, þ.e. lögfræðing, strax og
handtaka hefur farið fram, og ef
aðstæður leyfa sem getur e.t.v.
verið erfitt mat. Ef menn eru til
dæmis ölóðir þýðir varla að gera
það fyrr en mesti móðurinn er
runninn af þeim.
Menn eiga að sjálfsögðu rétt á
að mál þeirra sé tekið fyrir
dómara sem fyrst. Og einnig er
sá réttur skýr að menn séu ekki
beittir meira harðræði við hand-
töku en ástæða er til. Þá hafa
menn einnig ákveðinn rétt við
yfirheyrslur: þeir eru ekki
skyldugir til að svara spurningum
sem varða sakarefni, en það
getur verið þeim í óhag.
Menn hafa einnig rétt til að
hafa samband við ættingja og
aðra vandamenn eftir handtöku
nema sérstök ástæða sé fyrir
hendi, t.d. ef menn eru grunaðir
um refsivert athæfi og ástæða er
til að ætla að þeir vilji bera sig
saman við ættingja.
Ef einhver réttindi eru brotin
á mönnum við handtöku getur
komið til skaðabóta. Menn eiga
rétt á bótum ef handtaka er
ólömæt, og á ekki við rök að
styðjast upphaflega, samkvæmt
lögum um meðferð opinberra
mála. Ef menn hafa verið beittir
of miklu harðræði þ.e. lögregla
hefur gerst offari, eiga menn rétt
á skaðabótum eftir almennum
bótareglum.
Pá er einnig hugsanlegt að
höfða opinbert mál á hendur
lögreglumönnum ef þeir hafa
valdið þessu tjóni af ásettu ráði
en ekki af gáleysi. Þetta er
lagabókstafurinn í stórum
dráttum, sagði Eiríkur Tómas-
son að lokum. GSH
Kviknar í
skipi í Dal-
víkurhöfn
■ Eldur kom upp í fiskiskip-
inu Blika EA-12 í gær þar sem
það lá í Dalvíkurhöfn. Slökkvi-
liðið kom á staðinn um kl.
15.45 og lauk slökkvistarfi um
hálftíma seinna.
Að sögn lögreglunnar á Dal-
vík er talið að eldsupptök séu
neisti frá rafsuðu en bátsverjar
voru að vinna í bátnum. Ekki
var vitað nákvæmlega um
skcmmdir í gær þar sem ekki
var lokið við að dæla sjó og
slökkvifroðu úr bátnum en
eldurinn mun hafa verið einna
mestur í ganginum og þar í
kring. Rannsóknarlögreglan á
Akureyri mun rannsaka málið
nánar. -GSH
BE
■ Ekki var hann nú hcinlínis þéttskipaður bekkurinn
í Háskólabíó í gær, þar sem fullveldisfagnaður stúdenta
fór fram í umsjón Vöku, félags lýðræðissinnaðra
stúdenta. Yfirskrift hátíðarhaidanna var „Friður-frelsi-
mannréttindi“. Meðal dagskrárliða á fullveldisfagnaðin-
um voru ávarp formanns 1. des. nefndar, Gunnars
Jóhanns Birgissonar, og háskólarektors, Guðmundar
Magnússonar, einleikur Péturs Jónssonar á gítar, lestur
Matthíasar Jóhannessen úr eigin verkum, hátíðarræða
borgarstjórans í Reykjavík, Davíðs Oddsonar, söngur
Fóstbræðra og samleikur Hrannar Geirlaugsdóttur og
Guðna Þ. Guðmundssonar á fíðlu og píanó. I gærkveldi
var svo fullveldisdansleikur á Hótei Sögu.
-AB Tímamyndir - Arni Sæberg
Sakfellisdómur kveðinn
upp í Spegilsmálinu:
„SÝNIST MKMLDA-
MYRKUR VERA AÐ
SKEUAAÁDÓMS-
MÁIASVKHNU”
—segir Úlfar Þormóds-
son.rifstjóri Spegilsins,
sem hefur áfríaðdómin-
um til Hæstaréttar
■ „Mér sýnist að það sé að
skella á miðaldamyrkur, ekki
aðeins á þjóðmálasviðinu held-
ur einnig á dómsmálasviðinu"
sagði Úlfar Þormóðsson rit-
stjóri Spegilsins eftir að hann
hafði verið dæmdur sekur í
Sakadómi Reykjavíkur fyrir
brot á 125. grein hegningarlag-
anna unt guðlast og einnig fyrir
klám.
Úlfar var dæmdur til að
greiða 16.000 króna sekt til
ríkissjóðs en sæta 20 daga varð-
haldi ella. Aðalkröfu ríkissak-
sóknara, um að 2. tölublað
Spegilsins og 1. tölublað Sam-
visku þjóðarinnar væru gerð
upptæk, var hafnað en vara-
krafa, um að þær síður t
blöðunum sem ákæran byggð-
ist á væru gerðar upptækar,
tekin til greina. Úlfar var einn-
ig fundinn sekur um brot á
prentlögum, og dæmdur til að
greiða málskostnað, þ.a.m.
15.000 krónur í saksóknarlaun
og 15.000 krónur t málsvamar-
laun.
Jóhann Abraham Ólafsson
sakadómari kvað upp dóminn
í gærmorgun. Meðdómendur
voru Eysteinn Sigurðsson bók-
menntafræðingur og Bjarni
Sigurðsson dósent. Dómi saka-
dóms hefur verið áfrýjað til
Hæstaréttar að hálfu Úlfars.
-GSH
dropar
Karlarnir mæta ekki
hjá konunum
og öfugt
■ Ágæt framsöknarkona hér
í bæ benti Dropum góðfúslega
á, eftir að Dropar greindu frá
því að þrjár framsóknarkonur
hcfðu sótt fund framsóknar-
manna, þar sem Albert Guð-
mundsson og Alfreð Þorsteins-
son ræddu hugsanlega sölu
ríkisfyrirtækja, að framsóknar-
konur í Keykjavík hefðu sömu
viku og ofangreindur fundur
var haldinn haldið hinn ágæt-
asta fund með Alexander Stef-
ánssyni félagsmálaráðherra,
og Ólafi Jóhannessyni alþingis-
manni, þar sem lífeyrismál
hefðu verið á dagskrá. Fundur-
inn hefði verið öllum opinn, en
aðeins cinn framsóknarkarl-
maður hefði mætt á fundinn að
ráðherranum og þingmannin-
um undanskildum. Það væri
því alveg gagnkvæmt í flokkn-
um - karlarnir mættu ekki á
fundum sem konurnar boða til
og konurnar ekki hjá körlun-
um. Ja, þvflíkt og annað eins!
„Af hverju ertu að
útiloka að
embættismenn séu
sjálfstæðismenn?,,
■ Það var glatt á hjalla i
Þingholti, á Hótel Holti í gær,
þar sem velflestir greinarhöf-
undar í bókinni Bjarni Bene-
diktsson, í augum samtíðar-
manna voru samankomnir, en
forráðamenn AB sem gefur
bókina út kynntu frétta-
mönnum og greinarhöfundum
bókina. Gylfl Þ. Gíslason ritar
einn kafla í bókina, sem nefnist
Mótherji - samherji. Þegar
farið var að ræða bókina vítt
og breitt, sagði Gylfl, og það
heldur hreykinn á svip: „Fyrir
utan cmbættismennina, er ég
víst eini ekki sjálfstæðismaður-
inn sem skrifar í bókina.“ Hlutu
þessi orð Gylfa undraágætar
undirtektir annarra fundar-
manna, þar tii Geir Hallgríms-
son spurði kíminn mjög: „En
afhverju ertu að útiloka það að
embættismennirnir séu sjálf-
stæðismenn?“ Hvað hlaut enn
betri undirtcktir! Einnig hjá
embættismönnunum.
Krummi...
...gæti trúað því að sumar
eiginkonur vildu notfæra sér
hina nýju lögregluþjónustu við
að hafa upp á ektamökunum
þegar þeir lenda í slarki.'