Tíminn - 22.01.1984, Qupperneq 7

Tíminn - 22.01.1984, Qupperneq 7
SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 19« 7 FamiIjiEuropa STATISTIK l>.laad ir tn ö, som iigger i Nortk»t}«n4cn racUaa SkoUlond och r.rimlatxí í nkrhelcn av norra polcirkeln. Dct bor 225JM)0 raan- niskor pá Island, och av dessa bor KÚJXX) i huvudsioden Kcykjavik. öa» areai J»r 102.000 kvadrutkilo* meíer. V'interlcmperamrrn ttgger om- kring íryspunkten. inedan sotn- mstrtcmpcrat uren gár upp övtr 10 jrrader. Isbmds huvudexpurt kr Fisk, men lamict ár skrskitt kant pá grund mv sin firull, sitt iammJktitt och sioa hkstar. TIU det komracr vulkanema och dc varma ktUlor- Httatama betydrr myc- kxtför FintwvnS. 20 údandshtMar hör tiU famUfen, Jtom triva ail~ ra bási pá htutryggen *gfm agjl Mjnteuhetcn ar isiáodska kro- oor, ach en sádan motsvarar cn 50 örc i svenska pcngar. Nátxtren itrfcmtwHvsk h&r uppc. Atldeles utavför huaetfintus en tiUfrwei tjó, dttr bamen kan teka. < Kristjan har 300fár. Oet ar bland annat frán hanx djur den berirmda ialándska ulten komtner. Þegar Ola og Karin voru að leita fyrir sér með atvinnu á íslandi, rákust þau á opnufrásögn um fólkið að Grjóteyri í Kjós. Þau skrifuðu fjölskyldunni og óskuðu eftir að fá að koma til þeirra. nákvæmlega með nytinni og gert ráðstaf- anir ef eitthvað er að. En þessi búskapur er mjög dýr. Það kostar u.þ.b. eina milljón sænskra króna að hefja slíkan búskap og aldrei að vita hvernig til tekst. Eftir fimm eða tíu ár fara menn að sjá, hvort skuldirnar lækka eða hækka. I Norður Svíþjóð treysta menn meira á skóginn sem atvinnugrein. Ég hef þá tilfinningu, að menn beri heldur meira úr býtum í Svíþjóð af búskapnum, þó ég geti ekki nefnt tölur um þetta“, segir hann. Undir þetta tekur Kristján. „Við erum ekki búnir að fá uppgert fyrir sauðfjar- afurðir vegna ársins 1982 ennþá, bætir hann við. Ætli þið blaðamenn mynduð sætta ykkur við að eiga inni vinnulaun frá því 1982 möglunarlaust? „Fólksflótti af landsbyggðinni er vandamál t norðurhéruðum Svíþjóðar eins og hérna“, segir Karin. „Þeir sem menntun hafa svo sem læknar, tannlækn- ar og aðrar háskólamenntaðar stéttir sækjast eftir vinnu í stórborgunum. Því fækkar ungu fólki t.d. jafnt og þétt á morgum stöðvum í Norður-Svíþjóð. Má sem dæmi nefna að við Jormvattnet var um 1950 skóli með um eitt hundrað nemendum, en núna eru börnin ekki nema ellefu og þetta sýnir vandann í hnotskurn.“ Og það gcngur vel að temja merarnar? „Já, það gengur mjög vel, en það tekur mikinn tíma að temja hest, alltaf mikið tilfinningaatriði að eiga við skepnur. Hestana flytjum við með okkur næsta haust, þegar við förum heim til Svíþjóðar aftur, þá vonandi fulltamda. Þið saknið einskis heinian að? „Jú, vitanlega gerum við það. Þó okkur líði vel hérna, þá er það aldref eins og heima, þar sem maður á sínar rætur, fjölskyldu og vini. Okkur þykir orðið vænt um landið hérna, en við söknum skógarins mikið. Okkur finnst hann tilheyra landinu. Hann er hluti af okkur, þrengir sér inn í mann og verður hluti af manni. Því finnst okkur vanta skóginn hérna í Kjósinni. En þrátt fyrir það er ísland afskaplega failegt land á sína vísu. Bara öðruvísi. Við söknuðum líka fjölskyldunnar okkar um jólin. Þá kom mikill jólahugur í okkur eins og þegar maður var heima. Manni finnst einhvern veginn, aðmaður eigi að vera heima á jólunum og yfir hátíðina söknuðum við fjöiskyldunnar mikið í Svíþjóð. En það jafnar sig.“ Þannig að þið, getið ekki hugsað ykkur að setjast hér að? „Nei, ekki tii frambúðar. Við erum of bundin túninu heima, landinu. Þar eru rætur okkar. En við erum þegar búin að ákveða, að við ætlum að heimsækja íslands aftur, koma í heimsókn, þegar tóm gefst til að skoða landið.“ Við fylgjum þeim út á snjóbreiðuna. Þau ieiða út hesta sína. Önnur merin er illa ferðbúin og vill lítt þokast úr stað. En Ola sýnir okkur kúnstir sínar á hestbaki. Greinilegt er að þar fer hesta- maður af lífi og sál. Það dynur tEsjunni, þegar hófarnir skella í harðfenninu við útihúsin. Loftið er undurtært. Meira en tíu stiga frost. Fallegt að horfa út dalinn og finna þann jötunkraft, sem í hestun- Þannig litur hún út byggðin við Jormvattnet í Sviþjóð. ■ Ola Sundquist er ekki bara laghentur gítarsmiður. Handsmiðaðir gítarar þeirra feðga leika í höndum hans. Hér er hann heima við Jormvattnet að taka lagið fyrir fjölskylduna. ?v:' . i;.* #. \ ' ■ Ekki er annað að sjá en hundarnir að Grjóteyri kunni sænskum atlotum vel. Þeir eru af gæðakyni og langir biðlistar liggja frammi hjá þeim Kristjáni um býr. Einhver hefði lagt á sig íslands- og Hildi eftir fjárhundum. * ferð fyrir minna en þetta. Þ.H.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.