Tíminn - 22.01.1984, Qupperneq 17
SUNNUDAGUR 22. JANUAR 19M
Bfámfam
17
skák
Áhrifa-
mikið
■ Hverju leikur hvítur?
Formáli flestra leikfléttna er ann-
aðhvort mát, eða liðsvinningur.
(Nokkrar lenda þar fyrir utan, þar er
markmiðið t.d. jafntefli, með þrá-
skák eða patti.) Liðsvinningur bygg-
ist oftast á því að drepa fleiri eða
verðmætari menn heldur en and-
stæðingurinn. En leiði flétturnar til
frípeðs í næsta nágrenni við upp-
komureit, má ýmislegt leggja í
sölurnar. Sé peði breytt í drottningu,
breytast hlutföllin óneitanlega á
áhrifamikinn hátt. í þessari skák
sýndi svartur hvíta frípeðinu ekki
tilskilda virðingu. Einnig sýnir tafl-
mennska hvíts, góða uppstillingu
gegn „gúmívörn" svarts.
Ivanov: Bonin New York 1983.
1. c4 c5 2. Rf3 b6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
Bb7 5. Rc3 Rf6 6. f3 e6 7. e4 d6 8.
Be2 Be7 9.0-0 0-010. Be3 a611. Db2
Rb-d7 12. Hf-dl He8 13. Bfl Dc714.
Ha-cl Ha-d8 15. Df2 Db8 16. b4 d5?
(Oft gefst þetta vel í svipuðum
stöðum. En hér hefði svartur átt að
vera þolinmóðari. Best var trúlega
Hc8.) 17. cxd5 exd5 18. Rxd5 Rxd5
19. exd5 Bxb4 (19. . Bxd5 20. Rf5
gefur hvítum ótvíræða yfirburi, hann
fær biskupaparið í opinni stöðu.) 20.
Rc6 Bxc6 21. dxc6Bc5?? (Eftir 21. .
Rc5 Dh4 Ba3 gat svartur barist
áfram.) 22. Hxd7 Bxe3 (Eða 22. .
Hxd7 23. cxd7 Hxe3 24. Hxc5!. Eða
23. . Bxe3 24. Dxe3 Hxe3 25. Hc8t)
23. Dxe3 Hxe3 (Eða 23. . Hxd7 24.
cxd7 Hxe3 25. Hc8f) 24. c7 Gefið.
Þvinguð
fórn
jafnvel þó hægt sé að finna haldgóða
vörn á svart. Róleg taflmennska hefði
ekki gefið hvítum mikla möguleika.
En það sem raunverulega skeði var
það, að svartur missti móðinn. Fórn
hvíts stóðst ekki hörðustu gagnrýni,
en var hreinlega þvinguð.
Sex: Timman OHRA 1983. Sikil-
eyjarvörn.
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
e6 5. Rc3 a6 6. Rc6 (Venjulega eru
þessi uppskipti vafasöm, en Sax teflir
þetta oft. A6 er leiktapí því fram-
haldinu.) 6. . bxc6 7. Bd3 Dc7 8. 0-0
Rf6 9. f4 d5 10. e5 Rd7 11. Ra4 g6
12. c4 Rc5 13. Be3 Rxa4 14. Dxa4
Dd7 15. Ha-cl Be7 16. cxd5 (Byggt
á röngum útreikningi.) 16. . cxd5 17.
Dd4 0-0.18. Hc2 (Áætlunin var 18. f5
exf5 19. Bh6 He8 20. e6, en hann
gleymdi Da7..) 18.. Hb 8 19. a3 Bd8
20. Dx3 Da4
■ Margar óljósar fórnir eru aðeins
gruggugar með tilliti til þeirra loka
sem þær eiga að gefa. Fórn á borð við
þessa frá hvíts hendi í eftirfarandi
skák, er ekki hægt að gagnrýna,
(Nú er ljóst, að svartur hefur gott
frípeð á miðborðinu, en peðameiri-
hluti svarts á drottningarvæng er að
skorðast. T.d. 21. . b4 Bd7 ásamt
Bb5. Þetta sér ungverski stórmeistar-
inn, og tekur djarfa ákvörðun.) 21.
f5I? exf5 22. Bh6 d4?? (Tapar. Betra
er 22. . Bb6t 23. Khl d4, en það
besta er 22. . He8, og eftir 23. e6 f6
er ekkert að óttast.) 23. Dc5 He8 24.
e6. (Með hótuninni De5, og setur á
g7 og b8. f6 er svarað með 25. e7!
Bxe7 26. Dd5t Kh8 27. Df7, eða 25.
. Hxe7 26. Dd6, og nú er sett á b8 og
d8.) 24. . Da5 25. exHt Kxf7 26.
Bc4t Be6 27. Da7t (Eða 27. Bxet
Kxe6 28. He2t Kd7 29. Dxd4t Kc6
30. Hxe8 Bb6 31. He6t og vinnur.)
27. . Be7 28. Bxeót Kxe6 29. He2t
Kf6 (Eða 29. . Kf7 30. Hxe7t) 30.
Dxd4t Gefið.
Bent Larsen,
stórmeistari skrifar
um skák
Helgarskák-
mótið í Ólafsvík
■ Fyrir Reykvíkingana voru
vinningarnir harðsóttir á 23. helg-
arskákmóti Tímaritsins Skákar og
Skáksambandsins, sem haldið var
í Ólafsvík 7. og 8. janúar. Tólf
keppendur úr Reykjavík flugu
vestur um hádegi á föstudag, og
áætlað var að koma aftur seinni
hluta sunnudags. Þá var hinsvegar
komið versta veður, og engin von
með flug til Reykjavíkur. Að-
komumenn urðu því að gista um
nóttina og bíða færis. Á mánudags-
morgun var veðurútlit engu betra,
og því ákveðið að taka áætlunarbíl-
inn sem fara átti suður fyrir hádegi.
Hinsvegar láðist að tilkynna bíl-
stjóranum að skákmennirnir hygð-
ust fljóta með suður, og því renndi
bifreiðin úr hlaði á tilskyldum
tíma. Inni á hóteli varð uppi fótur
og fít meðal skákmannanna, þegar
farkosturinn hvarf út í sortann,
enda ekki meiningin að eyða
sumarfríinu í Ólafsvík. Eftir miklar
símhringingar tókst þó að stoppa
manninn af, en allt þetta umstang
hafði kostað rúmlega klukku-
stundar töf. Þessi klukkustund
reyndist sérlega afdrifarík fyrir
Helga Ólafsson sem fyrir bragðið
missti af fluginu til Noregs, þar
sem hann hugðist tefla á alþjóð-
legu móti í Gausdal. Helgarmótið
í Olafsvík var tileinkað minningu
helsta skákáhugamanns Snæfells-
ness um árabil, Ottós Árnasonar.
Keppendur voru 42 talsins, þó
slæmt veður hamlaði frekari þátt-
töku, bæði af Snæfellsnesinu og
Reykjavíkursvæðinu. Helgi Ólafs-
son sigraði rétt einu sinni, með 6
1/2 vinning af 7 mögulegum, og
komu þau úrslit lítt á óvart. Hitt
var öllu óvæntara, að í 2.-3. sæti
urðu Jóhann Þ. Jónsson og einn
yngsti keppandinn, Guðmundur
Árnason. Jóhann hefur aðallega
fengist við skákstjórnina á helgar-
skákmótunum, en brá sér þarna í
annað hlutverk með góðum ár-
angri. Jóhann tryggði sér 2.-3.
sætið í síðustu umferð með sigri
yfír Karli Þorsteins, en á meðan
sigraði Guðmundur í skák sinni
gegn Tómasi Björnssyni. Óli
Valdimarsson fékk öldungaverð-
launin og bestu útkomu Snæfell-
inga fékk Hilmar Viggósson, Hell-
issandi. Hann þótti tefla eina allra
bestu skák mótsins, og við skulum
líta á snilldina.
Hvítur: Hilmar Viggósson
Svartur: Arnór Björnsson
Meran-vöm.
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rc3 (Venjulega
kjósa menn frekar 3. Rf3, því eftir hinn
gerða leik hvíts, gæti svartur brugðið sér
út í hið tvíeggjaða Winawer bragð, með
3.. e5!?) 3... Rf64. Rf3 e6 5. e3 (Eftir 5.
Bg5 dxc4 6. e4 b5 7. e5 h6 8. Bh4 g5 9.
Rxg5 hxg5 10. Bxg5 er komið upp mjög
hvasst albrigði sem Arnór teflir jafnan á
svart, fái hann tækifæri til þess.)
5... Rb-d7 6. Bd3 dxc4 7. Bxc4 b5 8.
Bb3 (Eins og ótal dæmin sanna, borgar
sig ekki alltaf að leika sterkasta teoríu-
leiknum. Skákfræðin gefur þessum leik
vegna þess að svartur geti nú náð góðu
tafli með 8...b4! En þessi ieikur hvíts,
slær Arnór út af laginu.) 8...Bb7(?) 9.
0-0 Be7? (Full hægfara. Betra var 9...
Bd6.) 10. Re2 b4 11. Re2! (Riddarinn
skal til f4, þar sem hann verðurógnandi.)
11.. . 0-0 12. Rf4 Db6 13. e4 Hf-d8
abcdefgh
STÖÐUMYND
14. Bxe6! fxe615. Rxe6 h6 (Svörtum líst
ekkert á sóknarmöguleika hvíts eftir
15... He8 16. Rf-g5. Ef þá 16... h6 17.
Db3 hxg5 18. Rxg5+ Kh8 19. Dh3+ og
mátar.) 16. Rxd8 Hxd8 17. Db3+ Kh8
18. Rh4 Rf8 19. Rf5 Hd7 20. Bxh6!
Falleg cndalok. Ef nú 20... gxh6 21. Df7
Bd6 22. Dxf6+ og mátar. Svartur gafst
því upp.
Jóhann Örn Sigurjónsson
Jóhann Örn
Sigurjónsson
skrifar um skák
HÓTEL BORG
Sími 11440.
Veist þu
að þorrinn er
byrjaöur
Þorramatur og ???
Hvað er betra?
Seljum einnig út til einstaklinga og
hópa.
ÞORRABAKKINN
íár — 16teg.r ca 1 kg.
Verðið er aðeins
KR. 149,00 BAKKINN.
Útvegum þorramat í
smærri og stærri veislur.
OPNUNARTÍMI:
MÁNUDAGA — FIMMTUDAGA TIL KL.
19.00,
FÖSTUDAGA TIL KL. 19.30,
LAUGARDAGA TIL KL. 16.00.
«3'E
l^——— I • tunocAP
HOLAGARÐUR
KJORBÚÐ, LÓUHÓLUM 2 — 6, SÍMI 74100