Tíminn - 14.02.1984, Page 1

Tíminn - 14.02.1984, Page 1
ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1984 Stórleikur Asgeirs gegn Dortmund: V ■BESTILEIKMAÐUR BUNDESUGUNNAR” sagði þulur þýska sjónvarpsins — Stuttgart efst Frá Gísla Ágústi Gunnlaugssyni. íþrótta fréttaritara í Bonn: ■ Ásgeir Sigurvinsson sýndi enn einn stórleikinn með liði sínu Stuttgart þegar þeir félagar unnu auðveldan sigur gegn Dortmund 3-1 á laugardag- inn. Allt spil Stuttgart byggðist eins og endranær á sendingum og hugmynda- ríku spili Ásgeirs. Þýska sjónvarps- stöðin ARD sýndi frá leiknum í íþróttaþætti um helgina og átti þulur- inn erfitt með að leyna hrifningu sinni yfir leik Ásgeirs. „Líklega finnst ekki eins og stendur betri leikmaður í Bundesligunni en Ásgeir Sigurvinsson," sagði þulurinn orðrétt og bætti við „Synd að hann skuli vera íslendingur," minnugur þess hversu erfiðlega hefur gengið að finna mann til að stjórna spili þýska lands- liðsins eftir að Paul Breitner Iagði skóna á hilluna. Dómar þýsku blaðanna á sunnudag og mánudag voru flestir á eina lund. Fékk Ásgeir einn í einkunn hjá Bild an Sontag og Kicker og var valinn í lið vikunnar í báðum þessum blöðum og auk þess í Vínarblaðinu Fxpress, sem einungis gefúr þó leikmönnum liðanna í vesturhluta landsins einkunnir. Þetta var í fimmta skipti í vetur sem Kicker velur Ásgeir í lið vikunnar. Fyrri hálfleikur var lengst af leikur á eitt mark, mark Dortmund. Þrátt fyrir ágæt marktækifæri náðu framherjar Stuttgart þó ekki að skora fyrr en á 37. mínútu er Reichert fékk ágæta fyrir- gjöf. Olicher bætti svo öðru marki við fyrir leikhlé með góðu skoti af fjórtán metra færi á 44. mínútu. Immel, mark- vörður Dortmund, kom í veg fyrir að staðan yrði liði hans ennþá óhagstæð- ari í leikhléi og markstöngin kom í veg fyrir að Ásgeiri Sigurvinssyni tækist að skora fyrsta mark leiksins er hann lék sig í gegnum gjörvalla vörn Dortmund- liðsins og kom knettinum framhjá Immel og í innanverða stöngina, en þaðan hrökk hann í hendur rnarkvarð- arins. I síðari hálfleik sótti Stuttgart enn næstum óslitið og á 61. mínútu bætti Karl Heins Förster þriðja marki liðsins við með góðu skoti utan vítateigs sem hrökk af leikmanni Dortmund í vinstra markhornið þannig að Immel fékk ekki rönd við reist. Eftir þettaslökuðu leikmenn Stuttgart nokkuð á og leyfðu Dortmund að spila meira, en þeir sköpuðu sér þó ekki umtalsverð færi fyrr en á 78. mínútu, en þá fengu þeir vítaspyrnu og úr henni skoraði Zorc örugglega. Um 17.400 áhorfendur sáu þennan leik, sem þótti ágætur af hálfu Stuttgart þótt liðinu hefði átt að takast að skora mun fleiri mörk. Mótspyrna Dort- mund var hins vegar alltof lítil til að gera leikinn að Bundeslíguleik eins og þeir verða bestir. Gaman var að fylgj- ast með snilldarsendingum Ágeirs, sem fóru 30 til 50 metra, er sjónvarpið sýndi leikinn á laugardag. Og í Munchenarblaðinu Súd De- utsche Zeitung, er rétt enn einu sinni fjallað um Ásgeir í íþróttaleiðara, en blaðið hcfur margoft í vetur og fyrra- vetur ráðist gegn stjórn Bayern Munc- hen fyrir að selja Ásgeir Sigurvinsson á sínum tíma. í blaðinu núna segir, að aðdáendur Bayern hafi ekki setið ró- legir fyrir framan sjónvarpið á laugar- dagskvöldið og horft á knattspyrnuna. Heldur hrópi þeir „við viljum SIGI“, ■ Ásgeir Sigurvinsson en SIGI er gælunafn á Ásgeiri Sigur- vinssyni í Þýskalandi. GÁG/-Sjó. SIGGI ÓSTÖÐVANDI — skoradi 9 mörk Frá Gísla A. Gunnlaugssyni íþrótta- fréttamanni Tímans í V-Þýskalandi: ■ - Sigurganga Gummersbach held- ur áfram eftir þjálfaraskiptin. Um helgina lék liðið gegn Lemgo, liði Sigurðar Sveinssonar. Leiknum lauk með yfirburðasigri Gummersbach, 24- 16, eftir að staðan í hálfieik var 12-7. Sigurður Sveinsson var hins vegar einn besti maðurvallarins. Hann skor- aði 9 mörk í leiknum, meira en helming marka Lemgo, þrjú úr vítaköstum. Varnarmenn Gummersbach og lands- liðsmarkvörðurinn snjalli, Thiele, áttu í miklum erfiðleikum með að hemja Sigurð. Handknattleikslið Kiel, sem þjálfað er af Jóhanni Inga Gunnarssyni, vann góðan sigur á efsta liði deiidarinnar, Grosswallstadt, 21-16, eftir að staðan hafði verið 8-7 í hálfleik. Þetta var annar tapleikur Grosswallstadt í vik- unni, áður töpuðu þeir fyrir Essen, liði PEIUR MEB 44 SIK ■ Æsispennandi leik ÍR og KR í Seljaskóla í gærkvöld lauk með eins stigs sigri ÍR, 90-89. Staðan í hálfleik var 45-43 KR í vil. Pétur Guðmunds- son átti algjöran stórleik fyrir IR og skoraði 44 stig. KR-ingar höfðu yfirhöndina fram- an af en á 9. mínútu náðu ÍR-ingar í fyrsta sinn forystu 15-14. Á 15. mínútu voru ÍR-ingar komnir með 10 stiga forystu 32-22, en KR komst aftur yfir fyrir leikhlé en þá stóð 45-43. í síðari hálfleik héldu KR-ing- ar forskoti sínu þar til á 14. mínútu, að ÍR komst yfir 75-74. Þegar 1 mínúta var til ieiksloka urðu tveir bestu menn KR, þeir Garðar Jó- hannsson og Jón Sigurðsson að fara af leikvelli með 5 villur. Áður hafði Gylfi Þorkelsson, ÍR hlotið sömu örlög. Á síðustu mínútunni gekk mikið á, ÍR-ingar misstu boltann tvívegis mjög klaufalega og KR-ingar skoruðu og minnkuðu muninn í eitt stig 90-89, en hefðu hæglega getað tryggt sér sigur. Þeir misnotuðu t.d. Stadar ■ Staðan í úrvalsdeildinni í körfu- knattleik eftir leiki helgarinnar. Kefiavík-Njarðvík .... 60-69 Valur-Haukar...........80-79 ÍR-KR .................90-89 Njarðvík ... 16 13 3 1280-1175 26 Valur....... 16 8 8 1314-1141 16 KR ......... 16 8 8 1167-1163 16 Haukar .... 16 8 8 1161-1173 16 Kefiavik... 16 6 10 980-1103 12 ÍR.......... 16 5 11 1140-1185 10 4 vítaskot á síðustu 24 sekúndunum, og skot þeirra á síðustu sekúndunni var ekki langt frá því að fara ofaní. „Eg er ekki ánægður með hvernig við misstum þetta niður í lokin, við vorum heppnir að tapa ekki leiknum á því“, sagði langbesti maður vallar- ins, Pétur Guðmundsson ÍR, eftir leikinn. „Við vorum samt betri aðil- inn og áttum sigurinn skilið“. Hjá KR var Garðar Jóhannsson langbest- ur og brenndi varla af skoti allan leikinn. „Við kærum leikinn", sagði Bene- dikt Jónsson form. körfukn.deildar KR, eftir leikinn. „Pétur Guðmunds- son er ólöglegur með ÍR vegna þess að hann hefur ekki tilkynnt félaga- skipti í liðið". Stig ÍR: Pétur 44, Kolhcinn 12, Bcnedikt 12, Gylfi 10, Hreinn, Ragnar og Hjörtur 4 hver. Stig KR: Garðar 29, Guöni 20, Þorsteinn og Birgir 11, Jón 10, Kristján 6 og Ólafur 2. -BL Alfreð Gíslasonar. Við þessi úrslit dregur saman með efstu liðunum í deildinni, og spcnnan eykst. Gross- wallstadt hefur nú þremur stigum minna en næst efsta liðið, Schwabing, en áður var 7 stiga munur á þeim og lítil spenna í mótinu. -GÁG/SÖE Öruggt { hjá Bjarna i - á Afmælismóti JSÍ ■ Um helgina fór fram síðari hluti | afmælismóts JSI og var keppt í tveim flokkum, opnum flokki unglinga og I opnum flokki fullorðinna. 1 opnum flokki fullorðinna sigraði Bjarni Frið- I riksson mjög örugglega, hann lagði alla mótherja sína á „ippon“, scm þýðir að I honum tókst að fá öll möguleg stig út ' úr glímum sínum og vinna fullnaðar- I sigur. Úrslit á mötinu urðu annars sem hér segir. Opinn flokkur fullorðinna: 1. Bjarni Friðriksson, Ármanni. 2. Kolbeinn Gislason, Ármanni. 3. -4. Runólfur Gunnlaugsson, manni. 3.-4. Magnús Hauksson UMFK. Opinn flokkur unglinga: 1. Gunnar Jónasson, Gerplu. 2. Sævar Kristjánsson, Gerplu. 3. Rögnvaldur Guðmundsson, Gcrplu. * Ár- | I Stórsigur ÍA — á Fylki í kvennahandbolta — ■ Skagastúlkurnar í handknattleik unnu stórsigur á Fylki er liðin mættust í 1. deild kvenna í Seljaskóla á laugardag, 22-13. í upphafi leiksins varð Eva Baldursdóttir í Fylki fyrir meiðslum og gat ekki leikið meira með. Það var meira en Fylkir þoldi j Isl. ólympíukeppendurnir: ! AFTAN VIÐ MIÐJU I I I I I I I I I gær var keppt í 15 kflómetra skíðagöngu á vetrarólympíuleikunum í Sarajevo. 90 göngumenn luku keppni, og sigraði Svíinn Gunde Svan. Finnar urðu í öðru og þriðja sæti. Einar Ólafsson og Gottlieb Konráðs- son, íslensku keppendurnir í göngunni urðu aftan við miðju, Einar varð nr. 50 og Gottlieb nr. 56. Síðar í gær var svo einn göngumanna dæmdur úr keppni, svo þeir Einar og Gottlieb færðust upp um eitt sæti. Þeir urðu samt fyrir aftan miðju. í stórsvigi kvenna í gær komu úrslit mjög á övart. Þrjár bandariskar stúlkur voni í fjórum efstu sætunum. Sigurvegari varð Debbie Armstrong á 2:20,98 mín. önnur varð Christinc Cooper frá Bandaríkjunum, þriðja frönsk stúlka. Nanna Leifsdóttir varð í 38. sæti á 2:34,84 mín. Alls luku 43 stúlkur keppni í stórsvigi. A-þýska stúlkan Karin Enke sigraði í þúsund metra skautahlaupi, og vann þar sín önnur guilverðlaun. íþróttafólk frá 12 þjóðum hefur hlot- ið verðlaun á leikunum, flest hafa A-Þjóðverjar hlotið, 14 alls,þar af 6 gull, næstir eru Sovétmenn með 13 verðlaun, þar af 3 gull, og Finnar eru þriðju með 8 verðlaun, þar af 2 gúll. Næstir koma Norðmenn, Svíar og Bandaríkjamenn. -SÖE^^j ■I I I I I I l I I I I og Skagastúlkurnar gengu á lagið, í háltleik var staðan 7-3 fyrir I A o« í síðari hálfleik juku Skagastúlkurnar enn á mun sínum og sigruðu með 9 marka mun 22-13. Marka- hæstar í liði ÍA voru þær Laufey Sigurðar- dóttir og Ágústa Eiríksdóttir með 6 mörk hvor. Hjá Fylki skoraði Rut Baldursdóttir 5 mörk og var markahæst. FH-stúlkurnar gjörsigruðu Val ■ FH vann Val í Laugardalshöll á sunnu- dagskvöld með 23 mörkum gegn 12. Krist- jana Aradóttir skoraði 7/4 mörk fyrir FH og Kristín Pétursdóttir skoraði 6. Hjá Val skoraði Erna Lúðvíksdóttir mest eða 6 mörk. Staðan í 1. deild kvenna í handknattleik eftir leiki helgarinnar. Fylkir-ÍA................13-22 Valur-FH.................12-23 Fram ......... 10 9 0 1 221-156 18 ÍR............ 10 7 FH ........... 10 7 Akranes....... 10 3 Víkingur...... 10 2 KR ........... 10 2 Valur.......... 9 2 Fylkir......... 9 2 1 224-165 16 2 226-169 15 6 150-195 7 6 172-192 6 6 157-184 6 6 137-184 5 6 147-189 5 -BL I Islandsmet hjá Guðrúnu Femu - í 200 m bringusundi á innanfélagsmóti JEgis ■ Nýbakaður íþróttamaður Reykjavíkur, Guðrún Fema Ágústsdóttir, Ægi, sctti nýtt íslandsmet í 200 m bringusundi, á innanfé- lagsmóti Ægls fyrír helgi, er hún synti á 2:41,7. Hér cr um 2 sekúndna bætingu að ræða, en fyrra metið átti hún sjáif. Á mótinu kepptu einnig mcðlimir i íþróttafélaginu Osp, sem er íþróttafélag þroskaheftra. Rafn Logason setti nýtt ís- landsmet í flokki þroskaheftra er hann synti 400 metra skriðsund á 6:13,8 -BL Fylkir náði jafntefli - gegn HK í 2. deild í handknattleik 14-14. ■ Á sunnudagskvöld léku HK og Fylkir í 2. deild í handknattlcik. Jafntefli varð 14-14, en HK mcnn voru yflr í hálflcik 7-4. I upphafl síðari hálfleiks brugðu Fylkis- menn á það ráð að taka besta mann HK, Sigurð Sveinsson úr umferð, við það riðlað- ist leikur HK nokkuð ug tókst Fylkls- niönnum að jafna áður en leiktíminn var allur, 14-14. Vöm HK var mjög góð í þessum leik og einnig markvörðurinn, Magnús lngi Stef- ánsson. Magnús var besti maður liðs síns %samt Sigurði Sveinssyni, sem var marka- hæstur með 7 mörk. Hjá Fylki var Einar Einarsson bestur og skoraði 6 mörk. -BL Góður sigur góðra Blika ■ Brciðablik sigraði Fram 21-16, í 2. deild í handknattleik, í Digranesi, á laugar- dag. Leikurinn var mjög vel leikinn og sigur Breiðabliksmanna fyllilega sanngjarn. Staðan í hálfleik var 11-7 fyrir Brciðablik. Bcstu menn UBK vora þeir Björa Jónsson og Kristján Halldórsson, þeir skoruðu báðir 5 mörk. Hjá Eram skoruðu Tryggvi Tryggvason 5 mörk og Dagur Jónasson einnig 5 mörk. -BL Staðan - í 1. deild karla í hand- knattleik ■ Staðan í 1. deildinni í handknattleik ásamt úrslitum helgarinnar. Víkingur-KR ............22-23 Haukar-KA ..............24-15 Stjarnan-KA.............30-21 Valur-FH................21-27 FH ....... 13 13 0 0 383-239 26 Valur..... 13 9 1 3 291-260 19 Víkingur ... 13 7 0 6 305-282 14 Stjaman.... 13 6 1 6 265-294 13 KR ....... 13 5 2 6 177-235 12 Þróttur... 12 4 3 5 254-275 11 Haukar.... 12 2 1 9 236-286 6 KA ....... 13 0 2 10 232-325 2 HK-Fram í kvöld ■ í kvöld leika HK og Fram í bikarkeppni HSÍ og verður leikið í Digrancsi í Kópa- vogi. Lcikurinn hefst kl. 19.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.