Tíminn - 21.02.1984, Page 1
Alvarlegt ástand hjá IBK að ári:
■ Þorsteinn Bjamason hyggst
leggja körfuknattleiksskóna á hilluna
í vor, og margir fleiri virðast ætla aö
hætta hjá ÍBK.
Við verðum
bikarmeistarar
- sagðiBjörgúlfurJóhanns-
son þjálfari ÍS
■ Við verðum bikarmeistarar, leggjum.
Þróttarana," sagði Björgúlfur Jóhannsson j
þjálfari IS eftir leik þeirra við Fram íj
bikarkeppni karla í blaki um helgina.
Stúdentar unnu eftirminnilegan sigur í
leiknum 3-0.
Stúdentar hefndu grimmilega þeirra
tveggja tapleikja, sem þeir hafa leikið gegn
Fram í 1. deildinni í vetur á laugardaginn.
Minnugir annars þeirra leikja sem var í
síðustu viku og Fram vann 3-2, sneru
Stúdentar nú bökum saman og unnu 3-0,
15-2,15-2 og 15-4. „Það hafa verið ákveðin
vandamál í liðinu, en þau eru nú að fullu
leyst, og við ætlum ekki að láta neitt stöðva
okkur hér eftir," sagði Björgúlfur.
Þróttarar lögðu annarrardeildarlið Sam-
hygðar að veili 3-0, 15-8, 15-9 og 15-6.
Þá sigraði Breiðablik Víking 3-0 í 1.
deild kvenna. - SÖE
Grótta
vann Fram
■ Grótta vann Fram í annarri deild karla í
handknattleik um helgina, 25-12. Þetta hjálp-
ar Breiðabliki töluvert, og er nú Breiðablik
allvel sett í öðru sæti deildarinnar.
Úrsiit urðu þessi:
Þór V-Reynir . . ír.hk 17-21
Fylkir-Breiðablik 12-21
Grótta-Fram . . . 25-12
Staðan er nú þessi:
ÞórV 13 13 0 0 300-220 26
Breiðablik .... . 14 1 0 3 301-255 22
Fram 14 9 1 4 298-279 19
Grótta 13 7 1 5 284-255 15
HK 14 4 1 9 250-276 7
ÍR 14 4 0 10 241-288 7
Fylkir 14 1 4 9 240-285 6
Reynir.S 14 2 1 11 299-356 5
-SOE
HÆTTAIVOR
■ Fari svo að Keflvíkingum takist aö
halda sér upp í úrvalsdeildinni í körfu-
knattleik í vetur þá verður næsti vetur
sennilega erfíður fyrir liðið.
Fjórir af bestu mönnum liðsins eru á
förum eða að hætta. Þeir sem hætta
eru þeir Jón Kr. Gíslason, sem hefur í
hyggju að stunda nám utan Keflavíkur
næsta vetur. Sigurður Ingimundarson
og Matti Osvald Stefánsson verða í
Bandaríkjunum við nám og einnig
munu þeir leika þar körfuknattleik.
Þá hefur Þorsteinn Bjarnason í hyggju
að leggja körfuboltaskóna á hilluna
eftir þetta keppnistímabil. Tveir Kefl-
víkingar eru fyrir í Bandaríkjunum,
þeir Viðar Vignisson og Axel Nikulás-
son. Ekki er vitað hvað þeir hafa í
hyggju fyrir næsta keppnistímabil.
-Tóp/BL
Hermannsmótið á skfðum:
AKUREYRARSTÚLKUR BESTAR
Daníel Hilmarsson fékk Hermannsbikarinn
■ Hermannsmótið á skíðum var
haldið í Hlíðarfjalli við Akureyri um
helgina, og mættu þar til leiks skíða-
menn og konur víðsvegar að af land-
inu. Keppt var í svigi og stórsvigi í
karla og kvennaflokkum.
Daníel Hilmarsson frá Dalvík sigr-
aði í svigi karla, fékk tímann 93,15
sekúndur. Annar varð Árni G. Árna-
son frá Húsavík á 93,70, og þriðji
Ólafur Harðarson frá Akureyri á 94,33
sek.
j Plymouth og
i Sheffield Wed
! á Wembley?
■ Munu Plymouth Argyle og
Sheffíeld Wednesday leika til úr-
slita í ensku bikarkeppninni á
Wembley í vor? Þessi spurning
hefur komið upp hjá knattspymu-
spekingum, eftir að dregið var í
átta liða úrslit ensku bikarkeppn-
innar í knattspyrnu í gær.
Drátturinn fór þannig:
Plymouth-Derby County,
Derby County,
Sheffield Wed.-Southampton
Souhampton
Notts County-Everton
Birmingham City-Watford
Margir hafa spáð Southampton
sigri í þessari bikarkeppni, eftir því
sem stórliðum hefur fækkað, Nú
fær Southampton þriðja útileikinn
í röð, og þann ekki kræsilegan,
Sheffield Wednesday þykir erfitt
lið heim að sækja, þó það leiki j
annarri deild. Þar er liðið enda í
næst efsta sæti, og á möguleika á
flestum stigum þar. Plymouth Arg-
yle, þriðjudeildarliðið sem svo
óvænt komst í 6. umferð, fékk
besta drátt sem hægt var að hugsa
sér, Derby heim, því þó Derby geri
góða hluti á heimavelli, er nýting
þeirra á útivelli allt annað en
góð. Everton og Watford fá bæði
erfið lið heim að sækja, Notts
County og Birmingham. í augna-
blikinu virðast möguleikar Birm-
ingham vera hvað mestir allra
fyrstudeildarliðanna fimm sem eftir
eru. Ennúerbara aðbíða ogsjá...
- SÖE
í stórsvigi karla sigraði Árni G
Árnason Húsavík á 118,95 sek, annar
varð Daníel Hilmarsson frá Dalvík, og
þriðji Akureyringurinn Björn Víkings-
son á 120,13.
Daníel Hilmarsson sigraði í Alpa-
tvíkeppni karla og hlaut að launum
Hermannsbikarinn.
Eins og í flestum skíðamótum að
undanförnu voru það stúlkur frá Akur-
eyri sem röðuðu sér í efstu sætin. I
sviginu sigraði Guðrún H Kristjáns-
dóttir á 101,48 sekúndum, önnur varð
Anna María Malmquist á 102,46 og
þriðja á 130,30. Allar þessar stúlkur
eru frá Akureyri. Guðrún Kristjáns-
|dóttir sigraði í Alpatvíkeppninni og
jhlaut Helgubikarinn svokallaða.
-gk Akureyri
Hafþór með
■ Hafþór Sveinjónsson, knatt-
spyrnumaður úr Fram, sem nú leikur
með v-þýska þriðjudeildarliðinu FC
Paderborn, lék með að nýju í fyrsta
sinn í langan tíma um helgina.
Paderborn gerði jafntefli við Lang-
ertreer 04.
-GÁG/SÖE
Þrír voru í sérflokki
í bikarglímu íslands - Pétur sigraði
■ Pétur Ingvason HSÞ sigraði í bikar-
glímu íslands sem háð var á laugardag
í íþróttahúsi Melaskóla. Þrír menn
voru nokkuð í sérflokki í keppninni,
þeir Pétur, Ólafur Haukur Ólafsson
KR og Eyþór Pétursson HSÞ. Þeir
Pétur og Ólafur gerðu jafnglími í
viðureign sinni og Ólafur gerði einnig
jafnglími í viðureign sinni við Eyþór.
Eyþór tapaði hins vegar fyrir Pétri.
Þeir Pétur og Ólafur töpuðu ekki
glímu í keppninni.
Úrslit.
1. Pétur Ingvason HSÞ. 8 Vi
2. Ólafur Haukur Ólafsson 8
3. Eyþór Pétursson 7 V5
4. Ámi Bjarnason 5 '/>
5. Halldór Konráðsson 5
6. -8. Helgi Bjarnason KR 3
Marteinn Magnússon KR3
Rögnvaldur Olafsson KR 3
9. Hjörtur Þráinsson HSÞ 1 V4
10. Hjörleifur Pálsson KR
í flokki unglinga sigraði Arngrímur
Jónsson HSÞ og annar varð Davíð
Jónsson HSÞ. Keppendur voru aðeins
tveir.
-BL
Jónas og
Bjarni hættir við
■ Þórsararnir Jónas Róbertsson og
Bjami Sveinbjörnsson hafa ákveðið
að hætta við fyrirhugaða Noregsferð
sína, en til stóð að þeir mundu leika
þar með liði í þriðju deild í sumar.
þeir Bjami og Jónas sögðu í samtali
við Tímann um helgina, að þeir væru
hættir við þessi áform og mundu leika
með Þór í sumar, en þeir hafa verið
tveir af máttarstólpum Þórsliðsins.
-gk Akureyri
Haukar unnu
Njarðvík
■ Haukar unnu Njarðvík í 1. deild
kvenna í körfuknattleik um helgina,
52-37. Staðan í hálfleik var 27-16
Haukum í vil.
Flest stig Hauka skoraði Svanhildur
Guðlaugsdóttir 16 og Sóley Indriða-
dóttir 14. Hjá Njarðvík skoraði Sig-
ríður Guðbjörnsdóttir mest eða 16 og
Ásdís Hlöðversdóttir skoraði 9. -BL
Sighvatur Dýri fýrstur
Sighvatur Dýri Guðmundsson varð
fyrstur í Breiðholtshlaupi ÍR, sem
haldið var um helgina. Sighvatur Dýri
hafði allgott forskot á annan mann,
Gunnar Birgisson ÍR. Garðar Sigurðs-
son ÍR sigraði í drengjaflokki.
Breiðholtshlaupinu var frestað á
sínum tíma, þegar það átti að vera,
vegna ísalaga. Nú var það sett inn í
stað Flóahlaupsins sem frestað var.
Tíu hlauparar voru með í karla-
flokki. Sighvatur Dýri hlaut tímann
61,35 mín, Gunnar 62,42, Bragi Sig-
urðsson sem varð þriðji hljóp á 63,45
mín, Magnús Haraldsson FH varð
fjórði á 71,36 og Guðmundur Ólafsson
R fimmti á 74,78. Hlaupnir voru um
17 kílómetrar. Garðar Sigurðsson
hljóp á 30,43 mín í unglingaflokki,
Viggó Þ. Þórisson FH varð annar á
34,01 og Sveinn Jóhannsson ÍR þriðji
á 34,02 mín. -SÖE
Unnu Gummers-
bach 14-7!
Frá Gísla Á Gunnlaugssyni - íþrótta-
fréttamanni Tímans í V-Þýskalandi:
Þau furðu tíðindi gerðust í Búndes-
lígunni í handbolta hér um helgina, að
Bergkamen, sem er í þriðja neðsta sæti
deildarinnar, sigraði Gummersbach 14-
. Staðan í hálfleik var 4-1.
Þessi leikur er talinn hafa veríð stór-
leikur vetrarins. Áhorfendur mættu
tama á völlinn til að sjá Gummersbach,
sem hefur verið á mikilli uppleið að
undanfömu, og reiknuðu ekki með
miklu af sínum mönnum. Annað kom á
daginn. Tveir unglingalandsliðsmenn,
Rabka og Schúnemann báru af í liði
Bergkamen, og skoruðu tíu af fjórtán
mörkum liðsins. -GÁG/SÖE
LÁRUS K0MINN ÁFUULAFERD
Lárus Guðmundsson skoraði sigurmark Waterschei um helgina
■ Láms Guðmundsson knattspyrnu-
maður með Waterschei í Belgíu er nú
kominn á fulla ferð. Lárus skoraði um
helgina sigurmark Waterschei í leik
gegn Waregem. Lárus, sem hefur átt í
deilum við þjálfara Waterschei, og er
nýlega kominn inn í liðið eftir þær, átti
mjög góðan leik og var mjög ógnandi,
átti meðal annars skot í þverslá og
annað var naumlega varíð.
Pétur Pétursson lék með Antwerpen
' í 4-1 sigri gegn Beerschot, Pétur lék
enn í miðherjastöðunni, en náði ekki
að skora.
Sævar Jónsson og félagar í CS
Brugge gerðu jafntefli við Lokerne
0-0. Anderlecht vann stóran sigur á
Mechelen, 6-1. Standard Liege tapaði
fyrir Lierse 1-2, og toppliðin Beveren
og Seraing gerðu jafntefli 1-1. FC
Brugge tapaði 0-1 fyrir Gent.
Staðan er nú þessi:
Beveren...... 23 16 6 1 46-24 38
Seraing...... 23 15 5 5 45-25 31
Anderlecht .. 23 12 7 4 53-30 31
FC Bmgge .. . 23 10 8 5 39-25 28
Standard ... . 23 11 5 7 35-25 27
Antwerpen . . 23 9 8 6 40-28 26
Mechelen... . 23 7 10 6 27-31 24
Waregem ... . 23 9 5 9 32-29 23
CS Brugge .. . 23 9 5 9 25-22 23
Waterschei . 23 8 6 9 30-33 22
Courtrai .... . 23 7 7 9 24-29 21
Lokeren .... . 23 7 6 10 23-31 20
Beerschot .. . 23 6 9 9 30-45 19
FC Liege ... . 22 6 6 10 20-30 18
Lierse . 23 7 3 13 28-42 17
Molenbeek . . 23 3 10 10 20-31 16
Gent . 23 5 4 14 23-36 14
Beringen ... . 22 5 4 13 20-45 14