Tíminn - 29.02.1984, Blaðsíða 22

Tíminn - 29.02.1984, Blaðsíða 22
"Vf tt fcfHi?- ■ -- AMIITTTIIVV MIÐVIKUDAGUR 29. FEBRÚAR 1984 MF50D mögnuð hjólagrafa Ný og mögnuð hjólagrafa sem tekur við af MF 50 B ★ Fjórhjóladrif ★ Flothjól ★ Opnanleg skófla ★ Framlenging Gott verð - uppítaka og greiðslukjör jOAaffaAvé/g/t A/ SUDURLANDSBRAUT 32 • REYKJAVlK • SIMI 86500 VÉLALEIGAN HAMAR Auðbrekku 39, Kópavogi. Sími 36011 Leigjum út: Loftpressur - Gröfur - Snjómoksturstæki. Önnumst sprengingar. Örugg og góð þjónusta Góð tæki - Vanir menn Vinnuvélar — hvað á að vera í lagi? — birt skrá yfir atriði sem skoðuð eru við árlega skoðun vinnuvéla ásamt regum um búnað rafmagnskrana og lyftara ■ Það er margt að athuga, þegar keypt er gamalt tæki. Þegar notuð vinnuvél er keypt, er rétt að menn athugi, hvað þarf að vera i lagi, öryggisins vegna. Eins er gott fyrir menn sem eiga tæki að vita hvað þarf að vera í lagi, enda mest þeim sjálfum i hag, að tækið stoppi ekki í vinnu og valdi ekki öðrum tjóni. Hjá Vinnueftirliti Ríkisins feng- ust eftirfarandi upplýsingar, fyrst er reglugerð um öryggisbúnað og frágang rafmagnskrana, þá yfirlit yfir hvað skoðað er á þeim, þá eru reglur fyrir lyftara og siðan listar yfir hvað skoðað er á öðrum teg- undum vinnuvéla. Ekki er þó slíkur listi um dráttarvélar, enda kemur í Ijós i viðtali við Eyjólf Sæmunds- son forstjóra Vinnueftirlitsins hér á siðunni, að ný reglugerð fyrir dráttarvélar er i vinnslu. Leiðbeiningar um öryggis búnað og frágang rafmagnskrana. 1. Aldrei skal slaðsetja krana á undirstööu, sem þolir minna en 3 kp/cin'. 2. Trvggilega skal gengiö frá brautarteinum eöa útleggjurum. Brautartcinar skulu vera saman- tengdir. láréttir og ekki hietta á að þeir skriöi til. 3. Brautartcinar mega ekki standa nær skurðbrún en 70 cm. og utan ■ Eyjólfur Sæmundsson forstjóri Vinnueftirlits ríkisins. Tímamynd G.E. 7 „Erum að endurskipuleggja skoðun farandvinnuvéla" — segir Eyjólfur Sæmundsson forstjóri Vinnueftirlits ríkisins — ný reglugerð um dráttarvélar í burðarliðnum — inn- fluttar notaðar vélar oft mjög slitnar ■ „Það má búast við umtalsverðum breytingum á reglugerð um dráttarvélar og búnað þeirra, en ný reglugerð þar að lútandi lítur dagsins Ijós á þessu ári” sagði Eyjólfur Sæmundsson forstjóri Vinnueftirlits ríkisins í samtali við Tímann. „Vinnueftirlit ríkisins sér um skoðun farandvinnuvéla, og við vinnum nú að endurskipulagningu þeirra mála", sagði Eyjólfur. „Uppkast að reglugerð um dráttarvél- ar og búnað þeirra eru þegar til og er á leið til hagsmunaaðila til umsagnar”, sagði Eyjólfur Sæmundsson. „Söluaðilar dráttarvéla og samtök bærtda eiga eftir að gera sínar tillögur um reglugerðina, og fá hana til umfjöllunar nú næstu daga. Það ér óhætt að segja, að verulegar breytingar geti orðið á þeirri reglugerð sem gildir. og um leið munum við efla eftirlit með vélunum. Það er nú svo að bændur eiga yfirleitt amk. þrjár dráttar- vélar, þá er yfirleitt amk. ein sem er með húsi og vel búin til að aka á vegum, og af slíkum vélum verður að sjálfsögðu krafist, að þær hafi allan nauðsynlegan búnað til þjóðvegaaksturs, í samræmi við umferðarlög, sem og aðrar dráttar- vélar sem ekið er á vegum. En vélar sem gera ekki annað en snúa blásurum. færiböndum eða er eingöngu ekið utan vega þurfa ekki allan þann útbúnað sem hinar þurfa. - Það verður að segjast eins og er, að eftirlit með dráttarvélum hingað til hefur verið heldur bágborið, en nú sendur til að bæta það verulega. Vinnueftirlitið hefur leigt lóð við Sundahöfn þar sent fara mun fram skoðun á krönum og fleiri tækjum, í samvinnu við Bifreiðaeftirlit ríkisins. Við munum þar skoða kranann, ef um kranaskoðun er að ræða, en þeir bílinn. Þá eigum við ntjög gott samstarf við Iðntæknistofnun íslands í kranaskoðun- um. Okkar menn eru þjálfaðir í að gera frumskoðun á krönum, og þeir ákveða síðan hvort ástæða er til sprunguleitar. Hana annast Iðntæknistofnun". „Ástand oft bágborið á innfluttum notuðum vélum“ „Ástand er oft afar bágborið á inn- fluttum notuðum vélum. Því miður eru ekki til í dag nein ákvæði í lögum eða reglugerðum, sem geta stöðvað hömlu- lausan innflutning slíkra véla. Nauðsyn- legt er að við getum skoðað þannig vélar áður en þær eru teknar í notkun hér. Menn kaupa oft vélar sem eru útslitnar erlendis, og flytja síðan heim. Nú er unnið að því að færa þessi atriði í lag, enda tími kominn til.“ - Skoðun á vinnuvétum er ekki auð- velt verk, það er ekki hægt að kalla öll tæki til skoðunar einsogbíla, það verður að skoða þau þar sem þau eru í vinnu. Þetta þarnast mikillar skipulagningar og mannafla. Við skoðuðum tvö til þrjú þúsund vélar á síðasta ári. Við munum áreiðanlega þurfa 2-3 ár til þess að endurskoða eftirlit farandvinnuvéla, en þá verður þetta vonandi komið í gott lag”, sagði Eyjólfur Sæmundsson forstjóri Vinnueftirlits ríkisins. -SÖE.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.