Tíminn - 06.03.1984, Síða 3
ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 1984
13
12
ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 1984
Víkingur vann
fyrsta leikinn
í kvennaflokki - ÍS í basli með
Víking íkarlaflokki
■ Víkingsstúlkurnar í 1. deild í blaki
unnu sinn fyrsta sigur í deildinni í vetur,
er þær lögðu KA að velli í hörkuleik á
laugardag, 3-2. KA lék annan leik í
suðurferðinni, og vann þá Þrótt 3-2
Tveir leikir voru í 1. deild í karla flokki,
ÍS marði Víking í löngum leik, og
Þróttur vann Fram 3-0.
KA stúlkurnar unnu Þrótt í Vogaskóla
á föstudagskvöldið 3-2. Þróttur lék þar
án tveggja sinna sterkustu leikmanna,
Steinu Ólafsdóttur og Snjólaugar
Bjarnadóttur. KA lá svo óvamt fyrir
Víkingi daginn eftir. Baráttugleði var
aðall Víkingsstúlknanna, og þær höfðu
sigur 3-2.
Víkingar unnu tvær fyrstu hrinurnar
gegn ÍS, 15-5, og 16-14. Síðan seig á
ógæfuhliðina hjá þeim og ÍS lék betur.
ÍS vann þrjár næstu hrinur, 15-6, 15-4 og
15-11. Lokahrinan var jöfn lengst af, uns
Stúdentar sigu að lokum fram úr og
sigruðu 15-11. Hjá Víkingi var Bjarni
bestur, en Þórður Svanbergsson og Indr-
iði Arnórsson báru af hjá ÍS.
Þróttur vann öruggan sigur á Fram,
3-0. Hrinur enduðu 15-3, 15-9 og 15-11.
Framarar voru afspymulélegir í leiknum,
og falla örugglega ef þeir leika á sama
stigi og þeir gerðu í þessum leik.
í 2. deild vann Samhygð b lið HK 3-0.
- SÖE
■ Baráttan í algleymingi. Víkingsstúlkur að knýja fram sigur gegn KA í
kvennablakinu. Víkingur vann þama sinn fyrsta sigur í kvennaflokki í vetur.
Tímamynd Róbert
_ Þrir á efri hæðinni, og berjast hér um boltann í leik Vals og ÍR á laugardag. Bragi Reynisson og Pétur Guðmundsson
úr ÍR og Torfi Magnússon Val. ÍR vann góðan sigur í leiknum 97-90. Tímamynd Róbert
HAIIKAR f ÚRSUT 0G
KEFLAVfK NKHIR
FRAKKAR BARtl HÆRRI HLIIT
FRABOMH
sigruðu Islendinga á sunnudag
24-21. Island vann 23-22 á
laugardag
■ Frakkar báru hærri hlut frá borði í
— eftir sigur Hauka á ÍBK 84-82
■ Haukar úr Hafnarflrði tryggðu sér
sæti í úrslitum Islandsmótsins í körfu-
knattleik á sunnudag. Þeirsigruðu þá lið
ÍBK með 84 stigum gegn 82. Um leið
féllu Keflvíkingar úr úrvalsdeild eftir
tveggja ára dvöl í deildinni. Staðan í
hálfleik var 42-41 fyrir Keflavík.
Leikurinn var mjög jafn og spennandi.
Haukar voru yfir í upphafi leiksins en
Keflvíkingar náðu fljótlega að jafna og
komast yfir. Mest var forysta Suður-
nesjamanna 13 stig, 26-13. Haukar söx-
uðu síðan jafnt og þétt niður forystu
Keflvíkinga og í hálfleik munaði einung-
is einu stigi 42-41.
Strax í upphafi síðari hálfleiks náðu
Haukar að komast yfir, 43-42. Sú dýrð
stóð þó stutt, Suðurnesjamenn voru
ekki búnir að segja sitt síðasta orð.
Hófst þá kafli þar sem liðin skiptust á að
hafa forystuna. Þegar staðan var 65-65
urðu þáttaskil. Haukar skoruðu átta stig
í röð án þess að Keflvíkingar næðu að
svara fyrir sig. Eftir þetta höfðu Hafn-
firðingar forystu. Naumur var munurinn
oft á tíðum. Mátti sjá tölureinsog 79-78,
81-80 og 83-82. Þegar staðan var 83-80
fyrir Hauka náðu Keflvíkingar að
minnka muninn. Voru þá örfáar sekúnd-
ur eftir en hinir leikglöðu körfuknattleik-
spiltar úr Hafnarfirði héldu knettinum
til leiksloka og tryggðu sér þannig dýr-
mæt stig ogjafnframt sæti í úrslitakeppn-
inni. Þegar leiktíma lauk fengu Haukar
tvö vítaskot. Notfærði Pálmar Sigurðs-
son sér síðara skotið og náðu Haukarnir
því að sigra með tveggja stiga mun,
84-82.
Þessi leikur einkenndist af baráttu
tveggja liða enda mikið í húfi hjá
báðum. Annað liðið var að tryggja sér
sætið fyrrnefnda og hitt liðið að bjarga
sér frá falli. Lið Hauka er vel að því að
fá að keppa í úrslitakeppninni. Einar
Bollason þjálfari liðsins hefur unnið
frábært starf með þetta unga lið. Líkur
eru einnig á að liðið verði enn sterkara
næsta vetur ef DeCarsta Webster fær
ríkisborgararétt hér á Fróni á næstu
mánuðum.
Lið Keflavíkur verður nú að sætta sig
við að kveðja úrvalsdeildina. Ekki eru
þó líkur á að dvöl þeirra verði löng niðri
í 1. deild. Margir ungir og efnilegir
leikmenn eru í liði þeirra. Einn þeirra
Guðjón Skúlason sem skoraði 20 stig
fyrir lið sitt á sunnudag og er einungis á
sextánda ári. Hann á því eftir að taka
mikið út áður en hann nær sínum toppi.
Flest stig Hauka skoruðu Pálmar Sig-
urðsson 28, Sveinn Sigurbergsson 14 og
Reynir Kristjánsson 11. Jón Kr. Gísla-
son skoraði 21 stig fyrir Keflavík en
Þorsteinn Bjarnason og Guðjón Skúla-
son skoruðu 20 stig hvor.
Dómarar voru Kristbjörn Albertsson
og Jón Otti Jónsson og dæmdu þeir
félagar ágætlega.
-BH
viðureignum sínum við íslendinga í
handknattleik um helgina, en þjóðirnar
léku tvo landsleiki í handknattleik í
Frakklandi á laugardag og sunnudag.
Greinilegt er að Frakkar eru í mikiu og
góðu formi um þessar mundir. I fyrri
leiknum sigruðu Islendingar með eins
marks mun, 23-22, eftir að Frakkar
höfðu haft forystu nær allan leikinn. í
síðari leiknum hefndu Frakkarnir ófar-
anna og sigruðu 24-21. íslendingar léku
vel að sögn Karls Harry Sigurðssonar
stjórnarmanns HSI sem Tíminn náði
sambandi við eftir leikina, en Frakkar
voru einfaldlega betri í síðari leiknum.
Bjarni Guðmundsson var hetja ís-
lands í fyrri leiknum. Hann vatt sér inn
í teiginn og skoraði hjá þeim frönsku,
fimmtán sekúndum fyrir leikslok. Var
gleði íslendinga mikil eftir þann sigur,
enda hafði leikurinn verið erfiður og
íslenska liðið lengst af átt á brattann að
sækja.
Frakkar byrjuðu betur, og náðu for-
ystunni 8-5. íslendingar áttu þá sinn
besta kafla í ferðinni til þessa, skoruðu
7 mörk gegn einu Frakka, og höfðu yfir
12-10 í hálfleik. Frakkar náðu strax að
jafna í síðari hálfleik, og síðan var jafnt
á öllum tölum. Frakkar voru þó alltaf
aðeins á undan, og höfðu eins marks
forystu milli þess að íslendingar jöfnuðu.
íslendingar náðu síðan að jafna 22-22 og
Bjarni gerði svo út um leikinn eins og
áður var lýst. - Mörk íslands í leiknum
skoruðu Kristján Arason 7, Páll Ólafs-
I son 6, Alfreð Gíslason 4, Jakob Sigurðs-
' son 3, Bjarni 2 og Þorbjörn Jensson 1.
í síðari leiknum gáfu Frakkar hvergi
eftir. Þeir tóku strax sprettinn, og kom-
ust í 5-1. Þeir höfðu síðan yfir 7-3 og
mest 11-5. íslendingar klóruðu þá aðeins
í bakkann, 9-12, en Frakkar höfðu yfir
14-10 í hálfleik.
í síðari hálfleik tóku íslendingar vel
við sér, og náðu að jafna 15-15. Lék
íslenska liðið við hvern sinn fingur, uns
BAGT HJA STUTTGART
lidiö hefur ekki leikid lengi -
erfitt framundan
Frá Gísla Á. Gunnlaugssyni - íþróttafrétta-
manni Tímans í V-Þýskalandi.
■ Nú er áslandið bágt hjá liði Ásgeirs
Sigurvinssonar, VFB Stuttgart. Liðið
hefur ekki leikið keppnisleik síðan 11.
febrúar. Óttast menn mjög að liðið hafl
verið sett út af laginu vegna leikleysisins,
og mjög erfið dagskrá er nú framundan
hjá liðinu, sem er enn á toppnum í þýsku
deildinni.
Leik Stuttgart á laugardag í bikar-
keppninni gegn Werder Bremen var
BAYERN MARÐI AHUGAMENNINA
í þýsku bikarkeppninni - Gladbach áfram á
ólöglegu marki
Frá Gisla Á. Gunnlaugssyni - íþróttafrétta-
nianni Tímans í V-Þýskalandi:
■ Flcstum leikjum þýsku bikarkeppn-
innar sem vera áttu um helgina var
frestað, en þó voru tveir leikir leiknir,
Bayern Munchen lék við áhugamennina
frá Bocholt, og Hannover 96 lék við
Borussia Múnchengladbach. Úrslit urðu
eftir bókinni, en ekki gekk það þó átaka
eða skrautlaust fyrir sig.
Eftir að áhugamennirnir höfðu verið
taugaóstyrkir í upphafi, og látið Dieter
Höness skora hjá sér á 2. mínútu, fór af
þeint feimnin og þeir tóku vel á móti.
Norbert Nachtweih skoraði gegn gangi
leiksins í lok hálfleiksins, eftir að áhuga-
mennirnir höfðu misnotað nokkur góð
færi. í upphafi síðari hálfleiks tókst þó
Bochoft að skora, 22 sekúndum eftir að
hann hófst. Tönnies var þar að verki.
Leið svo leikurinn án stórtíðinda.
Udo Lattek, þjálfari Bayern sagði að
sínir menn hefðu leikið illa, og að
áhugamennirnir hefðu átt skilið að leika
í framlengingu um réttinn til að leika í
fjögurra liða úrslitum.
Hinn leikurinn sem fram fór í bikar-
keppninni var leikur Hannover 96 gegn
Borussia Múnchengladbach. Leikurinn
var mjög slakur, þrátt fyrir 58 þúsund
áhorfendur. Það var Rahn sem skoraði
sigurmarkið í leiknum fyrir „Gladbach"
á 46. mínútu. Markið var mjög skraut-
legt. Mikil þvaga varð til í vítateig
Hannover, og ekki var hægt að sjá hver
hefði skorað samkvæmt myndum sjón-
varpsins. í gær birtu nokkur dagblöð
myndasyrpur sem sýna að framherjinn
Mill hjá „Gladbach1' hafði lagt boltann
fyrir Rahn með hendinni, og Raltn
skoraði síðan sigurmarkið í leiknum,
sem nú sést að hefur verið ólöglegt.
Leikurinn var mjög slappur og Hann-
over langt frá þeirri frammistöðu sem
það sýndi þegar það sló út bikarmeistara
1. FC Köln í síðustu umferð.
-GÁG/SÖE
frestað þegar á föstudaginn var. vegna
10 sentimetra vatnslags á vellinum í
Bremen, en þar hafði rignt samfellt í
fleiri daga. Leikurinn verður leikinn 13.
mars á þriðjudagskvöldi, en mikið verð-
ur að gera hjá Stuttgart næstu vikurnar.
Þann 10. mars leikur liðið loks að nýju í
deildinni, og það á útivelli gegn Múnc-
hengladbach, og verður þar um stórleik
að ræða. Næstu 14 daga þar á eftir, það
er frá 10. til 24. mars leikur liðið hins
vegar 5 leiki, þar á meðal gegn liðum
eins og „Bladbach, Uerdingen, Bremen,
og Köln.
Til að reyna að halda leikmönnum
VFB við efnið greip þjálfari Stuttgart,
Benthaus til þess ráðs að láta liðið leika
við Stuttgarter Kickers, sem eru neðar-
lega í annarri deild, á sunnudaginn var.
Leikur þessi þótti með afbrigðum lé-
legur. honum lauk með sigri Stuttgart
3-2, eftir að staðan í hálfleik hafði verið
2-1 fyrir Stuttgarter Kickers. Mörk VFB
.skoruðu Bucwald á 10. mínútu, og síðan
iZietsch sem skoraði bæði síðari mörk
liðsins á 57. og59. mínútu. í umsögn uin
leikinn í Kicker er þess getið að hinir
sterku leikmenn Stuttgart. Sigurvinsson,
Allgöwer og Coreliusson hafi greinilega
lítið lagt sig fram í leiknum, sem leikinn
var við hinar verstu aðstæður. 2700
áhorfendur voru, og taldi Kicker að
leikurinn hefði ekki verðskuldað að
fleiri hefðu borgað sig inn.
-GÁG/SÖE
dómararnir, afspyrnuslappir Svisslend-
ingar drógu þá niður. Vísuðu þeir Jakobi
Sigurðssyni útaf þrisvar. og var það
grátlegt, þar eð Jakob fékk eitt sinn
brottrekstur sem annar átti að fá. Misstu
íslendingar síðan vítakast þegar staðan
var 19-20 og Frakkar gengu á lagið.
Úrslitin 24-21 fyrir Frakkland. Mörk
íslands í leiknum skoruðu Kristján 8/2,
Páll 3, Jakob 3, Alfreð 2/1, Bjarni 2,
Steinar Birgisson 2 og Þorbjörn Jensson
1.
íslenska liðið fór í gær til Strasbourg í
Frakklandi, þar sem það mun leika
æfingaleiki í dag og á morgun við
félagslið eða úrvalslið. Liðið heldur
síðan til Sviss, þar sem það leikur tvo
leiki við Svisslendinga 9. og 10. mars.
-SÖE
Bjarni Guðmundsson tryggði íslandi sigur á laugardag gegn Frökkum.
DANIR EINRAÐIR A
NORDURLANDAMÓTINU
— íbadminton um helgina - Þórdís og Elísabet
komust í undanúrslit
■ Danir voru alveg einráðir á Norður-
landamóti unglinga í badminton, sem
haldið var í Laugardalshöll um heigina.
Danir unnu öll gullverðlaun á mótinu og
öll silfurverðlaun nema tvö, þau vann
sænska stúlkan Charlotta Wihlborg í
einliðaleik stúlkna, og sænska sveitin í
sveitakeppni. Betur verður varla gert en
Danir gerðu um helgina. - íslensku
keppendurnir stóðu sig mjög vel, urðu í
þriðja til fimmta sæti ásamt Norð-
mönnum og Finnum í sveitakeppni, og
er það mjög góður árangur, að standa
Norðmönnum og Finnum á sporði. Þá
komust þær Elísabet Þórðardóttir og
Þórdís Edwald í undanúrslit tvíliðaleiks
stúlkna, en töpuðu þar fyrir
Norðurlandameisturunum, Gitte Jensen
og Gitte Paulsen, 1-15 og 4-15.
í einliðaleik pilta sigraði nokkuð
óvænt Daninn Jan Paulsen, vann landa
sinn Paul Erik Hauger 15-4, 10-15 og
15-4. Lene Sörensen vann Charlottu
Wihlborg í úrslitaleik einliðaleiks
stúlkna 11-5, 0-11 og 11-2. Jan Paulsen
vann sín önnur gullverðlaun er hann
sigraði í tvíliðaleik pilta ásamt Anders
Nielsen 15-2 og 18-15, þau Paul Erik
Höyer og Henrik Jessen. Þær stöllur,
Gitte Paulsen og Gitte Jensen sigruðu
Lisbeth Lauridsen og Lene Sörensen í
tvíliðaleik stúlkna 15-12 og 15-8, og
Gitte Paulsen vann sín önnur gullverð-
laun er hún sigraði í tvenndarleik ásaml i
Anders Nielsen, og voru það einnig |
önnur gullverðlaun Nielsens. Þau sigr-
uðu Jan Paulsen og Gitte Jenson í |
úrslitum 15-9, 9-15 og 15-9. Það má því
segja að maður mótsins hafi verið Jan i
Paulsen, vann í einliðaleik, tvíliðaleik ;
og varð annar í tvenndarleik, auk þess |
að vinna gullverðlaun með dönsku sveit-
inni í sveitakeppninni.
Eins og við var búist sigruðu Danir í
sveitakeppninni, og Svíar urðu í öðru
sæti. íslendingar komu á óvart, tylltu
sér í 3-5. sæti ásamt Norðmönnum og
Finnum, en Færeyingar ráku lestina.
-SÖE
Charlotta Wihlborg frá Svíþjóð í leik á NM unglinga um helgina. Þessi knáa stúlka, sem var helsta von Svía gegn
Dönunum á mótinu náði lengst þeirra keppenda sem ekki voru Danir, varð önnur í einliðaleik kvenna, tapaði fyrir Lene
Sörensen frá Danmörku í úrslitum. j Tímamynd Róbert
NBA TAKTAR
HJÁ ÍR-INGUM
— er þeir unnu Val 97-90 - enn
einn stórleikur Gylfa
■ ÍR-ingar björguðu sér endanlega frá
falli í 1. deild í körfuknattleik, er þeir
sigruðu Val með 97 stigum gegn 90 í
úrvalsdeildinni á laugardag.
Leikurinn var mjög vel leikinn, mikill
hraði og frábær hittni á báða bóga.
IR-ingar náðu strax yfirhöndinni og
héldu forskoti sínu til leiksloka. Tölur
eins og 24-19,32-25 og 42-29 lyrir IR sáust
í fyrri hálfleiknum. Þegar blásið var til
leikhlés var staðan 57-47 fyrir ÍR, vafa-
laust eitt mesta stigaskor í fyrri hálfleik
í úrvalsdeildinni frá byrjun. Valsmenn
náðu að minnka muninn nokkuð í
upphafl síðari hálfleiks, 63-57 og 69-64,
en IR-ingar náðu aftur verulegu forskoti
81-68. Undir lok leiksins náðu Valsmenn
að minnka muninn í eitt stig 89-88, en
ÍR-ingar tryggðu sér sigurinn í lokin með
góðum körfum Gylfa Þorkelssonar.
Lokatölurnar 97-90.
IR-ingar voru mjög góðir í þessum
leik og hefur liðið sjaldan leikið betur.
Þó var klaufalegt að sjá þá missa 13 stiga
forskot niður í eitt stig í síðari hálf-
leiknum. „Við slökuðum á þarna á
tímabili og þá var ekki að sökum að
spyrja, Valsmenn náðu strax að minnka
muninn", sagði fyrirliði ÍR, Hreinn
Þorkelsson. „Annars var þessi sigur
frekar öruggur hjá okkur og mjög kær-
kominn. Geta liðsins er mun meiri en
staðan í deildinni gefur til kynna,“ sagði
Hreinn ennfremur.
Bestu menn ÍR í leiknum voru Gylfi
Þorkelsson, sem átti enn einn stórleikinn
og knýr hann nú fastar á dyr landsliðsins
en nokkru sinni fyrr, spurning hvort
dyrnar þola þennan barning mikið
lengur. Pétur Guðmundsson átti mjög
góðan leik og voru tilþrif hans á köflum
stórglæsileg. Hann „tróð“ knettinum
hvað eftir annað í körfu Valsmanna og
áhorfendur voru á tímabili farnir að
halda að þeir væru á NBA leik en ekki
á leik með liði sem væri að bjarga sér frá
falli í úrvalsdeildinni á íslandi. Hreinn
Þorkelsson átti einnig góðan leik og
Kolbeinn Kristinsson kom vel frá
leiknum. Þá vakti athygli ungur leikmað-
ur hjá ÍR, Bragi „Bóbó“ Reynisson, sem
kom inná og skoraði tvær körfur af
mikilli yfirvegun.
Það er engan veginn hægt að segja að
Valsmenn hafi átt slæman leik. Flestir
leikmenn liðsins áttu góðan dag ef
undan eru skildir Kristján Agústsson, og
Jón Steingrímsson. Torfi Magnússon og
Leifur Gústafsson voru mjög góðir og
Tómas Holton átti líka góðan leik. Páll
Arnar lék einnig vel þann stutta tíma
sem hann var inná. Valsmenn mættu
einfaldlega ofjörlum sínum í þessum
leik.
Stig ÍR skoruðu: Gylfi Þorkelsson 28,
Pétur Guðmundsson 25, Hreinn Þor-
kelsson 20, Kolbeinn Kristinsson 12,
Hjörtur Oddsson 8, og Bragi Reynisson
4.
Stig Vals skoruðu: Torfi Magnússon
25, Leifur Gústafsson 22, Tómas Holton
18, Kristján Ágústsson 11, Pál! Arnaró,
Valdemar Guðlaugsson 4 og Jón Stein-
grímsson 4.
Dómarar voru þeir Hörður Túliníus
og Ingvar Kristinsson og dæmdu þeir illa.
-BL
umsjón: Samuel Örn Erlingsson
Klempel atvinnumaður
- fékk ekki að vera með - Siggi Sveins
með 5 gegn Göppingen
F’rá Gísla Á. Guunlaugssyni - íþróttafrétta-
manni Tímans i V-Þýskalandi:
■ Kinn lcikur fór fram í Búndcsligunni í handknatt-
lcik um helgina, lift Sigurftar Svcinssonar lék vift
Frisch auf Göppingen. Leikur þessi hefur vakið
nokkra athvgli í þýskum blöðum, vegna þess aft
pólski landsliðsmaðurinn klcmpcl var scttur út úr
lifti Göppingen fyrir lcikinn. Ahugamannaréltindi
Klempels í V-Þýskalandi þykja mjög vafasöm.
Leikinn vann Lemgo með Sigurð Sveinsson í broddi
fylkingar.
Leiknum lauk með sigri Lemgo. sem skoraði 25
mörk gegn 20 mörkum Göppingen, en staöan í
háldeik var jöfn 10-10. Sigurinn var Lemgo mjög
mikilvægur, því liðið á í harðvítugri fallbaráttu, það
er nú í 12. s:eti deildarinnar með II stig. Siguröut
Svcinsson var ásamt Schúpel markahæsti maður
Lemgo-liðsins með 5 miirk. þar af I úr víti.
Áhugamannaréltindi Jerzy Klempel þykja nu
mjög vafasöm. Þýska blaöið Bild hefur upplýst og
liirt myndir af samningi hans, þar sem kcntur fram
að hann fær hundrað þúsund ntörk á ári fyrir að leikr
með Göppingen, og það er íullkomlega gegn áltuga-
ntanttareglum. þrátt fyrir aö greiöslur til leikmanna
tíökist f v-þýsku deildinni. Þær gr^iðslur eru ekk
svona opinherar.
-GÁG/SÖF
Björn skaut Grind-
víkinga í bólakaf
■ Þór sigraði UMFG í leik liðanna í 1. deild karla
í körfuknattlcik um helgina meft 108 stigum gegn 98,'
i fjörugum leik, og er þessi leikur að líkindum met
stigaskorun í körfunni í vetur.
Þörsarar höfðu ntikla yfirburði i fyrri hálfleik.
Björn Sveinsson var þá östöðvandi, og skoraði 25
stig í hálfleiknum. missti varla skot. Grindvtkingar
áttu ekkert svar við þessu, og í hálflcik var staðan
60-42 Þör í hag. I síðari hálflcik voru Þórsarar
slakari. Grindvíkingar sent aldrei gefasl upp minnk-
uðu þá ntuninn í 7 stig, 63-70. Þórsarar tóku hins
vegar við sér á ný, náðu mcst 18 stiga fórskoti, og
lokatölurnareinsogáðursagði 108-98, mikiðskorað.
Björn Sveinsson skoraði 39 stig fyrir Þór, Konráð
Óskarsson 26 og Jón Hcðinsson 18. Hjálmar Hall-
grfmsson skoraði 27 stig fyrir UMFG, Eyjólfur
Guðlaugsson 22, en hann fór útaf með 5 villur í
upphafi sfðar hálflciks.
gk Akurcvri SÖF.
ÍS í úrvaldsdeild
Fram tapaði fyrír UMFL
■ Frantarar töpuðu fyrir l.augdælum í 1. dcild
karla í körfuknafllcik um helgina ú Selfossi 66-72.
Með þessu tapi er leið íþróttafélags Stúdenfa í
úrvalsdeildina aft því cr virðisl greið, liftift hefur nú
tapaft tveimur stigum minna en F’ram og á létta leiki
eflir.
Framarar voru sterkari framan af,æn á 17. mínútu
jöfnuðu Laugdælir 30-30 og höfðu yfir eftir það.
Staöan var 37-36 UMFL í hag í hálfleik. Ellcrt
Magnússon var atkvæðamestur Laugdæla í leiknum
með 24 stig, Lárus Jónsson skoraði 20 og Unnar
Vilhjálmsson 15. Þorvaldur Geirsson skoraöi 17 stig
fyrir Fram, Ómar Þráinsson 12 og Guðbrandur
Lárusson 11.
Staðan í 1. deildinni i körfuknattleik ásamt
úrslilum helgarinnar.
IS-Skallagrímur....................... 101-66
Þór-Cirindavík ....................... 108-98
Fram-Laugdælir ........................ 66-71
Staðan:
ÍS.................... 18 14 4 1469-1237 28
Fram................... 15 10 5 1140- 972 20
Laugdælir ............. 15 9 6 1029-1009 18
ÞórAk ................. 16 8 8 1203-1171 16
Gtindavík ............. 15 6 9 1061- 992 12
Skallagrímur........... 13 0 13 795-1174 0
Leikur Þórs og Fram sem flaulaður var af dæmdur
Þór sigraður, er ekki inní slöðunni, þar sem kærur
gengu á báða bóga og ekki er útséð utn hvernig þeim
málutn lyktar.
-SÖE/BL
Stórtap ÍR í
kvennakörfunni
■ Efsta lift 1. deildar kvenna í kurfuknattleik, ÍR,
mátli þula stúrtap 6540, er þær léku gegn Haukum
í Hafnarfirði á sunnudag. í húlfleik var staftan 26-18
fyrir Hauka. Þaft stefnir þvt í hreinan úrslitalcik milli
ÍK ng ÍS um íslandsmeistaratitilinn, en sá leikur
verftur í Kennarahásknlanum 26. mars.
F’lest stig llauka í leiknuin á sunnudag sknruðu:
Sóley Indriftadnllir 26, Svanhildur Guðlaugsdóttir
13 ug Anna Guftnmndsdóttir 14, Frífta Tnrfadóllír
10 ug Auftur Kafnsdóttir 6.
Sökum þcss aft Snæfcll hætti keppni í I. deild
kvenna, vuru stig liftsins felld niður, Slaftan cr nú
þannig:
IK ..................... 15 12 3 722-638 24
ÍS......................... 13 9 4 587-,533 18
Haukar..................... 14 8 6 68.3-608 16
Njarðvík .................. 13 3 10 519-584 6
KK......................... 13 2 11 434-585 4
- BL/SÖE