Tíminn - 06.03.1984, Síða 4
14
ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 1984
enska knattspyrnan
umsjón: Samuel Örn Erlingsson
RISARNIR NU EINIR
í TO PPBARATTIJ N NI
— Manchester United nálgaðist Liverpool um helgina —
Nottingham Forest tapaði fyrir Úlfunum — West Ham vann
stórt á Portman Road
■ Eins og íslenskir sjónvurpsáhorfcndur sáu í keinni útsendingu á laugardag,
náði Liverpool aðcins einu stigi út úr leik sínum gegn Everton á Goddison Park,
og gat þegar á allt var litið verið nokkuð ámegt með það. Aðalkeppinautar
Liverpool, Manchester United, sigruðu hinsvegar sannfærandi á útivelli, unnu
Aston Villa 3-0 á Villa Park. Nú skilja því aðeins tvö stig þessa tvo risa enskrar
knattspyrnii en fylgifiskar í toppbaráttu þeirra eru að týnast úr lestinni.
Nottingham Forest, sem var svo hamingjusamlega komið í þriðja sæti og nálægt
toppnum uiii dui>inn, tapaði sínum öðrum leik í röð um helgina, og þaö fyrir
fallkandidötum Úll'anna. West Ham, sem hefur átt rysjóttu gengi að fagna
undanfarið og var að hverfa í hóp liða í cfri hluta meðalmennskunnar í 1. dcild,
tók hins vegar vel við sér, vann stórt á útivelli og er nú í 3-4. sæti ásamt Forest.
Þcssi lið eru 5 stigum á eftir Manchcster United, og 7 stigum á eftir Liverpool,
svo með sama áframhaldi eru risarnir áfram tveir einir á tindinum og vill þar hvor
hinn um koll og niður brekkuna. Hitinn er að aukast í botnbaráttu 1. deildar, þar
sem Leicester er enn á uppleið, en Ipswich og West Bromwich Albion á niöurleið,
og fall ef blaðinu verður ekki snúið við snarlega. Sunderland og Birmingham eru
að kveðja hóp þeirra sem eru á versta svæði að áliðnu móti af gömlum vana. í
annarri deild er allt við það sama, nema Grimsby tapaði á heimavelli og er nú
ekki alveg eins líklegt til að taka cins virkan þátt í baráttunni um 1. dcildarsætið
við Man City og Newcastle eins og áður, en Keegan og félagar töpuðu og City
vann, svo þau gætu nú orðið jöfn aftur.
Manchester llnited átti stórleik á
Villa Park. Maður leiksins var Ray
nokkui Wilkins, sem tók virkan þátt í
uppbyggingu spils og marka. Ekki
skoraði þó Wilkins, en byggði upp og
skaut í slá. Fyrsta mark Unitedskoraði
Remi Moses, og er það fyrsta mark
hans fyrir félagið í vetur. Það kom á
sextándu mínútu eftir hornspyrnu
Hollendingsins Arnold Miihren. í upp-
hafi síðari hálfleiks skoraði Norman
Whiteside og þriðja markið skoraði
fyrirliði utd. og Englands, Bryan Rob-
son með miklu glæsiskoli af lóngu færi.
Sjónvarpsleikur okkar íslendinga
var fjörugur, en ekki að sama skapi vel
leikinn. Þar var kappið í fyrirrúmi, en
samspil og forsjá létu í minni pokann.
Liverpool réði lögum og lofum á
vellinum í fyrri hálfleik. Ekki var þó
mikið um marktækifæri, enda yfirleitt
lítill tími með boltann í friði, slíknr var
hraði á mönnum og knetti Marka
maskínan Ian Rush skoraði mark Li-
verpool á 17. mínútu. Mestan heiður
af markinu átti Craig Johnstone, sem
lék á og komst framhjá þremur varnar-
mönnum Everton af miklu harðfylgi,
og gaf fyrir á koll Rush, sem skallaði
vel og vandlega í netið. Steve Nicol átti
síðan þrumuskot eitt mikið á markið
skömmu síðar, en það var varið. Fleira
var varið í leiknum, markvörðurinn
skemmtilegi, Bruce Grobbelaar hjá
Liverpool, varði hreint ofboðslega vel
vítaspyrnu scm Everton fékk í síðari
hálfleik. Vítaspyrnan, sem dæmd var
vegna gjörsamlega óþarfrar bakhrind-
ingar sem Alan Hansen Liverpoolverj-
ari leysti af hendi. var tekin af Graeme
Sharp. Hann gerði allt rétt, nema að
plata Grobbelaar, hann stökk eins og
köttur alveg út í horn og varði. Jöfn-
unarmarkið kom cngu að síður, það
skoraði varamaðurinn Alan Harper
eftir góða sendingu frá Sharp. Grobb-
elaar varði oftar vel, einu sinni þrumu-
skot frá Andi Gray, og einnig af tám
Sharp er hann var kominn einn innfyr-
ir. Liverpool átti eitt hættulegt færi í
síðari hálfleik, þá komst Graeme So-
uness í gegn en var gróflega fclldur rétt
utan vítateigs. Everton og Liverpool
skildu því jöfn og allir geta verið
ánægðir, liðin leika næst á Wembley
24. mars í úrslitum deildabikarkeppn-
innar.
Scott McGarvey, lánsmaður frá
Manchester United sem nú dvelst hjá
Úlfunum, var hctja þeirra síðarnefndu
um helgina, þegar hann skoraði sigur-
mark liðsins gegn Nottingham Forest
á næst síðustu mínútu leiksins. Hinn
Ijóshærði og hárprúði Skoti (eins og
FORYSTAN EYKST
HJÁ ABERDEEN
Lidid vann enn -
■ Forysta Aberdcen jókst enn í
Skotlandi um helgina, þegar Dundec
United vann góðan sigur á Celtic, á
meðan Aberdeen hélt uppteknum
hætti og vann einn leikinn enn. Mot-
herwell, lið Jóhannesar Eðvaldssonar,
tapaði naumlega um helgina, 1-2 fyrir
Hearts, en þó furðulegt sé, á Motherw-
ell enn möguleika á að hanga í deild-
inni, þó hann sé nú reyndar frekar
klénn.
Gordon Strachan og John Hewitt
skoruðu mörk Aberdeen í 2-0 sigri á
St. Mirren.
Kirkwood, Bannon og Dodds
skoruðu mörk Skotlandsmeistara
Dundee United gegn Celtic, en Roy
en Celtic tapaði
Aitken minnkaði muninn.
- Rangers urðu að sætta sig við að
missa stig, en liðið hefur haldið áfram
nær óslitinni sigurgöngu frá því Jock
Wallace gekk þar á mála og hóf að
stjórna. Rangers gerðu markalaust
jafntefli við Hibernian í Edinborg.
Motherwell tapaði naumt fyrir
Hearts, það var John Robertson sem
skoraði bæði mörkin fyrir Hearts.
St. Johnston vann Dundee 1-0, með
marki John Barren þremur mínútum
fyrir leikslok. Nú er mikil harka hlaup-
in í botnbaráttuna, Dundee hefur 16
stig, St. Johnstone 15, og Mothwewell
1.
-SÖE
nafnið bendir jú sterklega til) skoraði
glæsimark, þrumuskot í bláhornið.
Ekki gengur allt of vel hjá Luton
þessa dagana. Liðið hefur ekki unnið
leik í síðustu tólf, og gerði markalaust
jafntefli við QPR á heimavelli.
Sama var uppi á teningnum hjá
Notts County og West Bromwich Albi-
on, nema þar var skorað. Trevor
Christie skoraði fyrst fyrir County úr
vítaspyrnu, en Nicky Cross jafnaði.
Leicester vann stórsigur heima gegn
Watford. Eftir að staðan hafði verið
1-1 í hálfleik tóku hcimamenn á sprett,
og sigrúðu 4-1. Alan Smith skoraði
tvö, Gary Lineker og Andy Peake
skoruðu fyrir Leicester, en Wilf
Rostron skoraði fyrir Watford.
Það gekk mikið á the Dell, þar sem
Norwich var í heimsókn. Heimamenn
sem hafa haft heppnisdrauginn með
sér upp á síðkastið voru heppnir eins
og venjulega. Tvisvar skaut gamla
brýnið Mike Channon í stöng Sout-
hampton marksins, í leiknum, John
Deehan gerði slíkt hið sama einu sinni
og skalli Dave Watsons var varinn á
línu. Fvrsta markið í leiknnm skoraði
David Armstrong fvrir „Dýrlingana"
snemnta í leiknum. Jonn ucciiun jafn-
að 1-1, en David Puckett, varamaður,
skoraði sigurmark Southampton. Var
það hans tyrsia snerting við boltann.
Southampton er því vel sett í 5. sæti
deildarinnar.
West Ham hristi af sér slenið gegn
Ipswich. Paul Hilton, nýkeyptur
pjakkur frá Bury, skoraði fyrsta mark-
ið í leiknum eftir fjögurra mínútna
leik. Annað markið var sjálfsmark
Terrys Butcher, varnarmanns Ipswich,
og þriðja markið skoraði Tony Cottee.
Trevor Brooking lék að nýju með
West Ham, og er hann greinilega mikil
kjölfesta í liðinu, þó 35 ára sé.
Birmingham lætur ekki að sér hæða.
Enn sótti liðið þrjú stig á útivöll með
því að sigra Coventry á Highfield
Road. Liðið hefur nú ekki tapað í tólf
leikjum í röð. Það var Howard Gale
sem skoraði eina mark leiksins.
Gary Rowell var hetja Sunderland í
stormasömum leik í Sunderland.
Rowell jafnaði á síðustu mínútu leiksins
gegn Arsenal. Sunderland hafði kom-
ist yfir í upphafi leiks með marki Mark
Proctor. Charlie Nicholas jafnaði úr
vítaspyrnu. Tony Woodcock skoraði
síðan sitt fyrsta mark nú í dálítinn
tíma, og kom Arsenal í 2-1, en Rowell
sá svo um sitt.
Tottcnham marði sigur heima gegn
Stoke, 1-0. Ekki varð það nú vegna
þess að færin vantaði að munurinn var
ekki nema eitt mark á White Hart
Lane. Þeir Ally Dick, Ossie Ardiles og
Alan Brazil óðu allir í færum, en það
var ekki fyrr en Mark Falco skoraði úr
vítaspyrnu á 36. mínúttu að „Spurs“
komust yfir. Orsök þess var öðrum
fremur markvörður Stoke, Peter Fox.
Hann varði vel, en réði þó ekki við
vítaspyrnu Falcos. Leikurinn gæti þó
orðið Tottenham dýr, Mark Falco
varð að fara af leikvelli meiddur þegar
enn voru 8 mínútur til leiksloka. Lék
Tottenham með tíu menn það sem
eftir var, þar sem búið var að skipta.
Önnur deild:
Sheffield Wednesday og Chelsea eru
enn efst og jöfn í annarri deild. Enn
hefur þó Wednesday tveimur leikjum
færra á sinni skrá, svo þeir verða að
teljast líklegustu sigurvegarar deildar-
innar þessa stundina, reyndar eins og
alltaf í vetur. Wednesday sigraði
Barnsley heima með einu gegn engu,
Gary Megson skoraði. Kerry Dixon,
David Speedy og Paul Canoville
skoruðu fyrir Chelsea gegn Oldham.
Manchester City sigraði Shrewsbury
heima 1-0, Nicky Reid skoraði markið,
og komst að nýju upp að hlið New-
castle, sökumjress að Newcastle varð
að gera sér jafnteflið að góðu í
Lundúnum, þar sem leikið var við
Fulham. Peter Beardsley skoraði
fyrsta mark Newcastle, Peter Scott
jafnaði, og Gordon Davies kom síðan
Fulham yfir. Kevin Keegan skoraði þá
sitt 22. márk íveturogtryggðijafntefli.
Grimsby tapaði sínum fyrsta leik á
heimavelli. Þar var mikil markasúpa,
og Portsmouth fór með sigur af hólmi.
Kevin Dillon skoraði sigurmark Pom-
peys, sjöunda mark leiksins.
-SÖE
Urslit
■ Bruce Grobbelaar bjargaði því sem bjargað varð á Goodison Park um helgina,
er hann varði meistaralega vítaspyrnu Graeme Sharp. Grobbelaar varði oftar vel,
og veitti ekki af, því sóknarlotur Everton voru beittari en Liverpool, þó sóknir
Liverpool væru mun fleiri og liðið væri meira með boitann.
l.deild:.
Aston Villa-Man Utd . 0-3
Coventry-Birmingham 0-1
Evcrton-Liverpool . . . 1-1
Ipswich-Wcst Ham . . 0-3
Leicester-Watford . . . 4-1
Luton-Q.P.R
Notts C-W.B.A 1-1
Southampton-Norwich 2-1
Sunderland-Arsenal . . 2-2
Tottenham-Stoke . . . . 1-0
Wolves-Nott.For . . . . 1-0
2. deild:.
Barnsley-Sheff Wed . . 0-1
Blackburn-Charlton . .
CardifT-Middlesbro . . 2-1
Carlisle-Swansea . . . . 2-0
Chelscu-Oldham . . . . 3-0
Crystal Pal-Leeds . . . 0-0
Derby-Cambridge . . . 1-0
Fulham-Newcastle . . . 2-2
Grimshv-Portsmouth . 3-4
Huddersfield-Bríghton 0-1
Man City-Shrewsbury . 1-0
3. deild:.
Bournemouth-Walsall . 3-0
Bradford-Oxford . . . . 2-2
Bristol-Plvmouth . . . . 2-0
Excter-Gillingham . . . 0-0
Hull-Bolton 1-1
j Lincoln-Ncwporl . . . . 2-3
Millwall-Rotherham . .
Altrincham-Brentford .
Sheffield Utd-Orient . 6-3
Wigan-Scunthorpc . . . 2-0
Wimbledon-Preston . . T.T
4. deild:.
Blackpool-Wrexham .
Bury-Colchester . . . . . . 1-1
Chester-Hartlepool . . 4-1
1 Crew Alexandra-Halifax . 6-1
Darlington-Hereford .
Doncaster-Chesterfleld 2-1
Mansfield-Reading . . . 2-0
Petcrborough-Rochdale 2-0
Swindon-Tranmere . . 1-1
York-Bristoi C 1-1
STAÐAN
1. deitd.
Liverpool .... 30 17 9 4 48-21 60
Man. Utd. ... 30 16 10 4 57-31 58
Nott. For 30 16 5 9 54-34 53
West Ham ... 30 16 5 9 49-31 53
South.ton .... 29 15 7 7 37-25 52
QPR 29 14 5 10 45-26 47
Tottenham .. 30 12 8 10 47-45 44 1
Norwich 30 11 9 10 35-34 42
Luton 29 12 5 12 42-43 41
Aston-Villa .. 29 11 8 10 43-45 41
Arsenal 30 11 6 13 46-42 39
Coventry .... 29 10 9 10 38-38 39
Birmingham . 30 11 6 13 31-34 39
Everton 28 9 10 9 26-32 37
Leicester .... 29 9 8 12 48-50 35
Sunderland .. 29 8 10 11 30-41 34
WBA 30 9 6 15 33-49 33
Ipswich 29 9 5 15 36-43 32
Stoke 30 7 8 15 27-50 29
Notts C 29 5 7 17 37-59 22
Wolves 29 5 7 17 23-58 22
2. doilri:
Chelsea 31 17 10 4 63-32 61
Sheff.Wed.... 29 18 7 4 56-26 61
Newcastle ... 29 17 4 8 58-41 55
Man. City ... 30 16 7 7 48-31 55
Grimsby .... 30 15 10 5 45-32 55
Carlisle 30 14 11 5 35-19 53
Blackburn .. 28 12 12 S 36-31 48
Charlton ... 29 13 7 9 38-38 46
Brighton .... 30 11 7 12 47-43 40
Huddersfield . 29 10 10 9 38-37 40
Leeds 29 11 7 11 39-39 40
Portsmouth .. 30 11 5 14 52-45 38
Middlesbro .. 30 9 9 12 31-32 36
Shrewsbury . 29 9 9 11 31-38 36
Cardiff 29 11 2 16 36-46 35
Fulham 30 8 10 12 40-40 34
Barnsley .... 29 9 6 14 40-41 33
Oldham 30 9 6 15 30-50 33
C. Palace .... 29 8 8 13 29-36 32
Derby 30 7 7 16 27-53 28
Swansea .... 30 4 6 20 24-57 18 I
Cambridge .. 30 2 8 20 21-57 14 |
Skotland
■ Úrslit urðu þcssi í skosku úrvaUdeiid- f
inni uin helgina.
Abcrdeen-St. Mitten . 2-0
Dundee Utd- Celtic . . . , 3-1
Hcarts-Motherwell . . . . ,
Rangcrs-llihcniian . . . . 0-0
St. Johnstonc-Dundcc 1-0
Staðan er nú þessi:
Aberdeen ... 24 19 3 2 61-12 41
Celtic 25 15 5 5 58-29 35
Dundee Utd. . 22 13 5 4 43-21 31
Rangers 25 11 6 8 38-31 28
Hearts 24 8 8 8 28-36 24
St. Mirren ... 25 6 11 8 35-37 23
Hibernian ... 26 9 4 13 32-40 22
Dundee 24 7 2 15 31-50 16
St. Johnstone 26 7 1 18 24-63 15
■ Motherwell .. 25 2 7 16 19-50 11