Tíminn - 20.03.1984, Blaðsíða 3
12______
íþróttir
Keflavík áfram
ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 1984
ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 1984
,13
í bikarnum
■ Keflvíkingar sigruðu Fram, 83-71, í
bikarkeppni KKÍ á fimmtudaginn. í
hálfleik höfðu Keflvíkingar tveggja stiga
forskot, 34-32. í upphafi síðari hálflciks
stungu Keflvíkingar Framarana algjör-
lega af. Á áttundu mínútu voru þeir
komnir með 24 stiga forystu, 61-37.
Þennan mun misstu þeir ekki niður og
lokatölurnar 83-71 og öruggur sigur
Kcflvíkinga í 'höfn. Þeir eru þar með
komnir í fjögurra liða úrslit keppninnar
ásamt KR, Val og Haukum. Fram er
hins vegar úr leik.
Stigahæstir hjá Keflavík voru: Þor-
steinn Bjarnason 25, Jón Kr. Gíslason
16 og Guðjón Skúlason 16. Hjá Fram
skoraði Þorvaldur Geirsson mest eða 26
stig. - BL
Enn tapar
SkaHagrímur
■ Framarar unnu öruggan sigur á
Skallagrímsmönnum, er liðin mættust í
1. deildinni í körfuknattleik um helgina.
Framararnir rufu 100 stiga múrinn er
þeir sigruðu 103-78. Það voru hins vegar
Borgnesingarnir, sem höfðu yfir í hálf-
leik, 48 -43. Ómar Þráinsson skoraði 29
stig fyrir Fram, Lárus Thorlasíus 24 og
Þorvaldur Geirsson 20. Björn Axelsson
var stigahæstur hjá Skallagrími meö 30
stig, en Hafsteinn Þórisson skoraði 19
stig.
- BL
Laugdælir
unnu á
Selfossi
■ Laugdælir sigruðu Grindvíkinga er
liðin mættust á Selfossi á laugardag, í 1.
deildinni í körfuknattleik. Lokatölurnar
81-72,, eftir að Grindvíkingar voru yfir
í hálflcik, 39-38. Ellert Magnússon skor-
aði mest fyrir Laugdæli eða 24 stig,
Unnar Vilhjálmsson skoraði 22. Hjá
Grindvíkingum skoraði Hjálmar Hall-
grímsson mest eða 33 stig og Jóhannes
Sveinsson skoraði 16 stig.
- BL
Bikarkeppnin
í körfuknattleik:
Dregið í kvöld
■ í kvöld kl. 18 kemur í Ijós hvaða lið
munu leika saman í fjögurra liða úr-
slitum bikarkeppni körfuknattleiks-
sambandsins. Þau fjögur lið sem eítir
eru í keppninni eru: Valur, KR, Haukar
og Keflavík. Valsmenn eru einnig í
eldlínunni í úrslitum úrvalsdeildarinnar
eins og kunnugt er. Þeir leika fyrri/fyrsta
leik sinn við Njarðvíkinga um íslands-
meistaratitilinn, einmitt í kvöld kl. 20 í
íþróttahúsinu í Njarðvík. Á fimmtudag
mætast liðin síðan í Seljaskóla kl. 20.30.
Valsmenn eiga sem sé möguleika á ,
því að endurtaka sama leikinn og í fyrra.
Það er að segja að sigra í Reykjavíkur,
íslandsmótinu og bikarkeppninni. Vals-
menn urðu sem kunnugt er Reykjavík-
urmeistarar í haust. - BI,
Snæfell í
úrslitin
■ Ríkharður Hrafnkelsson og félagar
úr 2. deildarliði Snæfells í körfuknatt-
leik, sigruðu Breiðablik nteð 70 stigum
gegn 60, er liðin mættust í Kópavógi um
helgina. Með þessurn sigri hafa Hólmar-
amir tryggt sér rétt til að leika í
úrslitakeppni 2. deildar sem fram fcr á
Egilsstöðum um hæstu helgi. Þar munu
Snæfell, Reynir Sandgerði og IME berj-
ast um eitt laust sæti í 1. dcild að ári.
- BL
FORU HALLOKA
— Bayern Munchen og HSV unnu stóra sigra
-Frá Gísla Á. Gunnlaugssyni - íþrótta-
fréttamanni Tímans í V-Þýskalandi:
■ íslendingaliðin í Búndeslígunni riðu
ekki feitum hesti frá 24. umferð Búndes-
lígunnar. Stuttgart gerði jafntefli við
Leverkusen á heimavelli, og Fortuna
Dússeldorf fékk stóran skell heima gegn
Dortmund. Stuttgart hefur greinilega
farið illa út úr meiðslum leikmanna og
stífrí leikjadagskrá að undanförnu.
Flensa hrjáir nú nærallt Dússeldorfliðið,
og voru ekki fxrri en 9 leikmenn liðsins
hrjáðir af flensu en léku samt um helgina.
Leikur Stuttgart og Leverkusen þótti
í meðallagi. Stuttgart sótti meira allan
leikinn, fékk 16 hornspyrnur. Lítil ógn-
un var við mark Leverkusen, þar sem
framherjarnir Corneliusson og Reichert
áttu ekki góðan dag. Varnarleikur Stutt-
gart var mjög slakur, Karl Heins Förster
var meiddur, en kom reyndar inn á 10
mínútum fyrir leikslok. Buchwald tók
stöðu hans og átti afleitan leik. Vörnin
opnaðist oft illa er Leverkusen beitti
skyndisóknum með góðum árangri.
Stuttgart komst þó yfir á 18. mínútu.
Reichert skoraði með skalla, eftir að
Ásgeir Sigurvinsson hafði tekið auka-
spyrnu utan vítateigs, gefið vel fyrir
markið, og Corneliusson framlengt bolt-
anum með skalla. Flestir bjuggust við að
Stuttgart mundi gera út um leikinn í
síðari hálfleik að venju, en það fór ekki
svo. Á 53. mínútu jafnaði Zechel fyrir
Leverkusen. Karl Allgöver kom Stutt-
gart í 2-1 á66. mín,enBast náði aðjafna
á 71. mín.
Ásgeir Sigurvinsson var einna besti
maðurinn í slöku liði Stuttgart, hann
fékk 3 í einkunn hjá Kicker.
Fortuna Dússeldorf er nú gjörsamlega
heillum horfið. Flensa herjar á leikmenn
liðsins, og voru hvorki meira né minna
en 9 af leikmönnum liðsins slappir eða
með hita þegar leikur liðsins gegn
Dortmund hófst í Dortmund á laugar-
dag. Þótti furðu gegna hversu vel Dúss-
eldorfleikmennirnir vörðust í síðari hálf-
leik, en staðan í háfleik var 0-0, og hafði
þá Dusseldorf skapað sér þó nokkur færi.
í síðari hálfleik var kraftur Dússeldorf-
leikmannanna á þrotum, og leikmenn
Dortmund tóku öll völd. Mörkin létu
heldur ekki á sér standa, þau urðu 6 áður
en upp var staðið, Klotz 2, Zorc 2 þar
af annað úr víti, Wegmann 1 og Raduc-
anu 1, skoruðu'. Rúmeninn landflótta,
Raducanu, átti frábæran leik á miðjunni
hjá Dortmund. Unun var að sjá gull-
fallegar sendingar hans. Hann fékk 1 í
öllum blöðum og var hvarvetna valinn í
lið vikunnar. Atli Eðvaldsson lék með í
leiknum, en Pétur Ormslev lá í rúminu
með flensu og 39 stiga hita.
Bayern Múnchen gerði út af við Bochum
á fyrstu 15 mínútunum. Eftir 14 mínútna
■ Karl Heinz Rummenigge:
skorað 19 mörk í Búndeslígunni.
hefur
leik var staðan 3-0 Bayern í hag. Mörk
Bayern skoruðu Michael Rummenigge,
Pflúgler, Höness 2 og Karl Heinz Rum-
menigge. Karl Heinz Rummenigge hefur
nú skorað 19 mörk í deildinni, og hafði
tækifæri til að skora það tuttugasta í
leiknum gegn Bochum, en Zundik mark
vörður Bochum varði vítaspyrnu hans
á 80. mínútu. Leikur Bayern þótti mjög
góður, liðið virðist til alls líklegt í
baráttunni um meistaratitilinn, og Karl
Heinz blómstrar aftur.
Leikur Kölnar og Moenchengladbach
var leikur sem beðið var með eftir
væntingu. Liðin eru nágrannalið, og
mættu 45 þúsund manns á völlinn, þar af
um helmingur frá Moenchengladbach.
Fyrstu 20 mínútur leiksins voru vel
leiknar. Klaus Allofs skoraði gullfallegt
mark á 8. mín fyrir Köln, og 1-0 í
hálfleik. Á 55. mín. náði Mattheus
fyrirliði „Gladbach" að jafna leikinn, en
hann átti sannkallaðan s.tórleik í síðari
hálfleik eftir fremur daufan fyrri hálf-
leik. Hann hljóp út um allan völl og
sendi á félaga sína / hættuleg færi.
Schumacher var þó vel á verði, þar til
Rahn náði að skora sigurmark
„Gladbach" á 84. mín, eftir góðan
undirbúning Mattheusar. Moenchengla-
dbach hefur unnið hvern leikinn af
öðrum að undanförnu, og verður að
reikna með að þeir muni blanda sér af
krafti í baráttuna um meistaratitilinn, en
um næstu helgi leikur liðið á heimavelli
gegn Bayem Múnchen.
Leikur HSV og Bremen var stórleikur
helgarinnar. Bremen hefur leikið mis-
jafnlega að undanförnu, en leikir þessara
nágranna hafa jafnan verið hörkuspenn-
andi. Að þessu sinni brá út af venjunni,
HSV réð öllu á vellinum frá upphafi.
Staðan í hálfleik var 2-0, Wuttke og
RoUT skoruðu. Bremenleikmennirnir
náðu að skapa sér nokkur færi, en Stein
markvörður HSV, sem lék með flensu í
markinu, sýndi nokkrum sinnum frábær
tilþrif, þrátt fyrir veikindin. í síðari
hálfleiknum bættu Hartwig og Magath
tveimur mörkum við. Meistarabragur er
nú á HSV, Schatzschneider er á
bekknum, en lágvöxnu framherjarnir
Milewski og Wuttke ná að skapa mikla
hættu. Á miðjunni léku þeir allir vel,
Magath, Groh og RolfT.
Úrslitin urðu þessi:
Uerdingen-Bielefeld................1-3
Stuttgart-Leverkusen...............2-2
Frankfurt-Braunschweig.............1-2
Kaiserslautern-Offenbach...........1-1
Dortmund-Dússeldorf ...............6-0
Köln-Moenchengladbach..............1-2
Bayern Múnchen-Bochum..............5-1
Númberg-Mannheim...................0-0
HSV-Bremen.........................4-0
Staðan er nú þannig:
Bayern .....
Hamborg ...
Gladbach ...
Stuttgart ...
Bremen ....
Leverkusen .
Dússeldorf..
Köln.......
Bielefeld ..
Uerdingen .
Kaisersl. ..
Braunsch. .
Dortmund .
Mannheim .
Bochum ...
Frankfurt .
Núrnberg ..
Offenbach .
. 24 15
. 24 15
. 24 14
. 23 12
. 24 12
24 10
. 24 10
. 24 11
. 24 8
. 23 8
.24 9
. 24 10
. 24 8
. 24
. 24
. 24
. 24
. 24
59-22 35
56-26 34
54-34 33
48-24 31
50-30 29
8 43 40 26
9 51-43 25
10 43-37 25
9 30-29 23
9 41-47 22
4 1 46-54 22
2 12 39-56 22
11 36-45 21
9 26-39 20
13 42-58 18
11 29-47 16
16 29-49 14
15 31-75 14
GÁG/SÖE
■ Tómas Holton sækir að körfu KR, Páll Kolbeinsson til
varnar. Þessir ungu og atkvæðamiklu ieikmenn voru i
aðalhlutverkum hjá liðum sínum á sunnudag. Tómas varð
þó að bíta í það súra epli að fara á slysavarðstofuna þegar
16 mínútur voru liðnar af leiknum, og leika ekki meira.
Hann hafði þá skorað 16 stig, eða um það bil stig á mínútu.
-SÖE
Timamynd Árni Sæberg
umsjón: Samúel Öm Eriingsson
iiiMiii—wiiniiin—m—ínrTwinnMirn—■■■■n — -
Islandsmótid í fimleikum:
w
AD HÆTTA KEPPNI
meiddist í keppninni á laugardag
- Davíð og Hulda meistarar
■ Islandsmeistaramótið í fimleikum var háð í Laugardalshöllinni um helgina. Davíð
Ingason og Hulda Ólafsdóttir sigruðu í samanlagðri keppni á öllum áhöldum. Sú
keppni fór fram á laugardag. Davíð sem er úr Ármanni hlaut 48.25 stig, en annar
varð Heimir Gunnarsson Armanni með 47,25 stig. í þríðja sæti hafnaði Guðjón
Gíslason einnig úr Ármanni, hann hlaut 45.55 stig.
I stúlknaflokki sigraði Hulda Ólafsdóttir, 16 ára stúlka úr Björk. Hún hlaut 31.65
stig. Önnur varð Hlín Bjamadóttir Gerplu með 31.50 stig. Dóra Óskarsdóttir Björk
varð þríðja með 30,85 stig. íslandsmeistarinn frá því ■ fyrra Kristín Gísladóttir,
Gerplu varð fyrír því óhappi að meiðast og varð að flytja hana á sjúkrahús. Krístín
hafði öragga forystu þegar hún varð fyrír meiðslunum.
Á sunnudag var keppt í einstökum greinum og þar sigraði Davið Ingason í fimm
greinum af sex. Guðjón Gíslason sigraði í einni grein.
Úrslitin urðu annars sem hér segir:
Gólfæflngar:
1. Guðjón Gíslason, Á .
2. Heimir Gunnarsson, Á
3. Davíð Ingason, Á . .
Bogahestur:
1. Davíð Ingason Á . . .
2. Heimir Gunnarsson, Á
3. Guðjón Gíslason, Á.
Hríngir:
1. Davíð Ingason, Á. ..
2. Guðjón Gíslason, Á.
3. Heimir Gunnarsson, Á
Stökk:
1. Davíð Ingason, Á. . .
2. Guðjón Gíslason, Á .
3. Heimir Gunnarsson, Á
Tvíslá:
1. Davíð Ingason, Á ...
2. Heimir Gunriarsson. Á.
3. Guðjón Gíslason, Á. . .
Svifrá:
1. Davfð Ingason........
2. Heimir Gunnarsson . .
I keppni stúlkna á einstökum
urðu úrslit sem hér segir:
Stökk:
1. Dóra Sif Óskarsdóttir, B . . . .
2. Bryndís Ólafsdóttir, G .......
3. -4. Hlín Bjarnad.,G..........
3.-4. Hulda Ólafsdóttir, B......
Tvíslá:
1. Hulda Ólafsdóttir, B.........
2. Bryndís Ólafsdóttir, G .......
3. Hlín Bjarnadóttir, G..........
17.00
16.20
15.85
16.30
14.70
13.30
16.30
15.10
14.60
17.10
17.00
16.80
16.30
16.05
14.05
16.45
15.00
áhöldum
17.20
16.90
16.60
16.60
14.40
13.85
12.90
VALUR—NJARDVIK I URSUTUM
úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik - Valur
■ Það verða Valsntenn sem leika til
úrslita um íslandsmeistaratitilinn í
körfuknattleik við Njarðvíkinga. I þriðja
leik Vals og KR í undanúrslitum á
sunnudagskvöid höfðu Valsmenn betur,
í mjög spennandi og góðum leik. Loka-
tölur leiksins 87-79, eftir að staðan í
hálfleik var 45-43 KR-ingum í vil.
Þeir fjölmörgu áhorfendur sem lögðu
leið sína í Seljaskólann á sunnudags-
kvöld fengu heldur betur mikið fyrir
aurana sína. Leikurinn var mjög vel
leikinn á báða bóga, hittni var góð og
hraðinn var mikill. Þá var leikurinn
einnig mjög spennandi. Allt fyrir hendi
sem gerir úrslitaleik skemmtilegan.
j Torfi Magnússon Val:
I
I
„ÆTLUM 0KKUR ALLA LEIÐ
”1
— vinnum Njarðvíkinga í úrslitum
■ „Ég er geysilega ánægður með Hvernig skýrir þú sveifluna á milli
þennan leik“ sagði Torfi Magnússon fyrsta leiksins, sem Valur vann með
L,
þjálfari Valsmanna eftir sigurinn á
KR á sunnudagskvöld. „Þessi leikur
hafði uppá allt að bjóða sem úrslita-
leikir þurfa að hafa. Góðan körfu-
knattleik, spennu, hraða og
áhorfendumir sköpuðu skemmtilega
stemmningu. Við vorum betri aðilinn
og áttum sigurinn fyllilega skilið."
15 stiga mun og hins leiksins, sem
KR vann með 16 stiga mun. Nú liðu
aðeins tveir dagar á milli þessara
leikja?
„Við vorum eitthvað illa upplagðir
á fimmtudaginn. KR-ingarnir áttu
líka algjöran toppleik þá. Síðan hef-
ur heimavöllurinn líka talsvert að
segja, við kunnum vel við okkur
hérna í Seljaskólanum.
Hvernig leggst viðureignin við
Njarðvíkinga í þig?
„Ég er bjartsýnn á þá leiki, við
Valsmenn ætlum alla leið í þessu
móti og stefnum hiklaust að íslands-
meistaratitlinum", sagði Torfi
Magnússon þjálfari Valsmanna.
BL
Áhorfendur kunnu vel að meta skemmt-
unina og létu mikið í sér heyra, strax frá
fyrstu mínútu.
Það voru ungu mennirnir sem voru
fyrstir til að sendæjtnöttinn rétta leið í
körfuna. Páll Kolbeinsson og Guðni
Guðnason í KR og leikmaðurinn stór-
kostlegi í Val, Tómas Holton. Allt fram
undir miðjan hálfleikinn var leikurinn
hnífjafn og yfirleitt jafnt á öllum tölum.
Á 9. mínútu komust KR-ingar 7 stig yfir,
22-15, en Valsménn jöfnuðu, 31-31, á
14. mínútu. KR-ingar höfðu tveggja
stiga forskot í hálfleik, 45-43, eftir að
Valsmaðurinn Einar Ólafsson, hafði
skorað úr tveimur vítaskotum eftir að
fyrri hálfleikur var liðinn. Valsmenn
urðu fyrir því áfalli, fjórum mínútum
fyrir leikhlé, að þeirra besti maður, í
leiknum, Tómas Holton, varð fyrir
meiðslum. Varð hann að fara á Slysa-
deild, þar sem hugað var að meiðslum
hans. Tómas hafði þá skorað 16 stig og
verið hreinlega óstöðvandi. Valsmenn
jöfnuðu strax metin í upphafi síðari
hálfleiksins. Þegar 5 mínútur voru liðnar
af hálfleiknum var staðan 55-49. Þótt
KR-ingum tækist aö minnka muninn í 2
stig á tímabili, þá héldu Valsmenn áfram
að herja á körfu KR-inga. 10 stiga
munur, 73-63 var staðreynd, þegar 5
mínútur voru til leiksloka.
Á síðustu 2 núnútuni leiksins, reyndu
KR-ingar ákaft að jafna og beittu þeir
pressuvörn í þeim tilgangi. Þrátt fyrir
mikla baráttu KR-inga, voru Valsmenn
samt sterkari á endasprettinum og
tryggðu sér sigur, 87-79 og þar með
réttinn til að leika gegn Njarðvíkingum,
um titilinn, besta körfuknattleikslið Is-
lands 1984. Valsmenn og Njarðvíkingar
munu leika tvo til þrjá leiki um þennan
eftirsótta titil og fyrsti leikurinn er í
kvöld í íþróttahúsinu í Njarðvík og hefst
hann kl. 20.
Sterk liðsheild Valsmanna
Valsliðið lék mjög vel í þessum leik.
Hvergi var veikan hlekk að finna. Orða-
tiltækið gamla, „maður kemur í manns
stað“ sannaðist enn einu sinni á sunnu-
dagskvöld. Eftir að Tómas Holton
meiddist komu þeir Einar Ólafsson og
Páll Arnar til sögunnar og stóðu sig
frábærlega vel þrátt fyrir erf itt hlutskipti.
Þá kom Jón Steingrímsson einnig mjög
til í síðari hálfleiknum, en hann hafði
verið fremur daufur framanaf.
Kristján Ágústsson og Torfi Magnús-
son léku báðir vel. Kristján hitti mjög
vel og var skotnýting hans um 70%.
Leifur Gústafsson stóð einnig vel fyrir
sínu, þrátt fyrir að hann skoraði ekki
mikið að þessu sinni. Eftirminnilegastur
er samt stórleikur Tómasar Holton í
fyrri hálfleiknum, þegar hann skoraði 16
stig á 16 mínútum. En óheppnin eltir
Tómas. í fyrsta leik Vals og KR fyrir
viku varð Tómas fyrir því óhappi að
nefnbrotna og nú springur vör og tenn-
ur ganga til. Það er því fátt eftir ólask-
að í andliti „Tomma“ þessa dagana.
Jóhannes Magnússon lék einnig vel
þann tíma sem hann var inná.
vann KR 87-79 á
Páll og Garðar bestir
KR-ingar geta verið þokkalega
ánægðir með sína frammistöðu í leiknum
þrátt fyrir tapið. Þeir eiga unga leikmenn
sem eiga eftir að láta mikið að sér kveða
í framtíðinni. Páll Kolbeinsson átti stór-
leik á sunnudagskvöld. Framan af
leiknum var um hálfgert einvígi að ræða
milli þeirra Páls og Tómasar Holton í
Val. Garðar Kolbeinsson átti einnig
góðan leik og hittni hans nú var mun
betri, en í fyrsta leiknum gegn Val,
skotnýting hans á sunnudagskvöid var í
kringum 60%. Jón Sigurðsson átti einnig
þokkalegan leik þó han hafi oft skorað
meira. Jón gerir þó meira en að skora,
sunnudag
hann stjórnar leik liðsins af mikilli
röggsemi og hann hirti einnig flest frá-
köst KR-inga. Guðni Guðnason átti líka
góðan leik, bæði í sókn og vörn.
Stig Vals skoruðu: Kristján Ágústsson
22, Tómas Holton 16, Torfi Magnússon
14, Jón Steingrímsson 12, Jóhannes
Magnússon 7, Leifur Gústafsson 6J2inar
Ólafsson 6 og Páll Arnar 4.
Stig KR skoruðu: Garðar Jóhannsson
14, Páll Kolbeinsson 22, Jón Sigurðsson
13, Guðni Guðnason 12, Birgir Guð-
björnsson 6 og Ágúst Líndal 2.
Dómarar leiksins voru þeir Kristbjörn
Albertsson og Davíð Sveinsson og
dæmdu þeir þokkalega.
-BL
Jón Sigurðsson KR:
„VIÐ VINNUM BIKARINN
ff
„Þetta var góður leikur, þar sem
sigurinn gat lent beggja megin“ sagði
Jón Sigurðsson þjálfari KR, eftír
leikinn á sunnudagskvöld. „Það var
fyrst og fremst slæmur leikkafli hjá
okkur í síðari hálfleiknum, sem gerði
gæfumuninn. Við vorum búnir að
minnka muninn niður í 2 stig, en
okkur tókst ekki að fylgja því eftir.
Þrátt fyrir tap okkar þá fannst mér
þetta mjög skemmtilegur leikur,
stemmningin var eins og hún á að
vera í úrslitaleik", sagði Jón enn-
fremur.
Hveraig skýrír þú muninn á fyrsta
leiknum, sem KR tapar með 15 stiga
mun og öðrum leiknum, sem KR
vinnur með 16 stiga mun. Nú liðu
aðeins tveir dagar milli þessara
leikja?
„Nú við áttum mjög góðan leik á
fimmtudaginn, menn fundu sig virki-
lega vel. Þá finnst okkur KR-ingum
alit annað að leika á okkar heimavelli
í Hagaskóla, en að leika í Seljaskóla.
Við kunnum ekki við okkur hér í
þessu húsi. “
-Nú er KR enn með í bikarkeppn-
inni, Jón, hvert stefnið þið í þeirri
keppni?
”Við ætlum okkur ekkert annað en
sigur í þeirri keppni. Ég tel að við,
ásamt Valsmönnum séum með tvö
bestu liðin í dag og við ætlum að
sanna það í bikarkeppninni að okkar
lið sé það næst besta á landinu í dag,
bætti Jón Sigurðsson, þjálfari KR-
inga við að lokum.
-BL
í
! .
■ Kristín Gísladóttir - varð að hætta
keppni vegna meiðsla.
Slá:
1. Hlín Bjarnadóttir, G.............. 16.55
2. Hulda Ólafsdóttir, B.............. 15.25
3. Bryndís Ólafsdóttir, G .......... 15.20
Gólfæflngar:
1. Dórá Sif. Óskarsdóttir, B ....... 16.80
2. Hlín Bjarnadóttir, G.............. 16,05
3. Hulda Ólafsdóttir, B.............. 15.50
Mótið tókst með miklum ágætum og þótti
skemmtilegt á að horfa. Þó settu meiðsl
íslandsmeistarans frá því í fyrra, Kristínar
Gísladóttur, skugga á mótið.
-BL
Finninn
fljúgandi
setti met
■ Óiympíumeistarinn í skíðastökki,
Matti Mykanen tvíbætti heimsmetið í
skíðastökki um helgina. Keppnin fór
fram af 145 metra háum palli. Matti
stökk fyrst 180 metra, en síðan bætti
hann metið í 185 metra. Hann sigraði
samanlagt í keppninni, hlaut 391 stig. Á
sunnudag stökk hann 170 og 178 metra í
keppninni. Jens Weissflog, A-Þýska-
landi og Pavel Ploc, Tékkóslóvakíu
urðu jafnir í öðru sæti með 357,5 stig.
Matti er nó efstur að stigum í heimsbik-
arkeppninni með 212 stig, en Weissflog
er annar með 195 stig. -BL
----------------------1
I
Kf
|1|
m
■ Vilhelm Frederíksen hefur gengið til
liðs við Þróttara
Vilhelm áfram
röndóttur
■ Knattspymumaðurinn sókndjarfi úr
KR, Vilhelm Frederiksen, hefur tilkyhnt
félagaskipti, Vilhelm mun þó áfram
leika í röndóttum búningi, því liann
hefur gengið til liös við Þróttara. Á
síðasta keppnistímabili tókst Vilhclm
ekki tryggja sér fast sæti í KR-liðinu, en
vafalaust verður itann mikiil styrkur
fyrir Þróttara, þar sem kappinn er
ntarksækinn mjög og getur skorað niikið
af mörkum, ef sá gállinn er á honum.
Gaman verður að fylgjast með Þróttara-
liðinu í sumar, þar sem mikið af nýjum
niönnum hafa gengið til liðs við iiðið.
Góður sigur
Eriku Hess
■ Skíðadrottningin frá Sviss, Erika
Hcss, sigraði í stórsvigskeppni í Jasna. í
tckkóslóvakíu, á laugardag. Hún fékk
tímann 2:17,08 mtn. Önnur varö Micha-
cla Figini, cinnig frá Sviss. Hún fékk
tímann 2:17,89 mín.
Með þcssum sigri sínum hefur Erika
tryggt stöðu sína í stigakeppni heimsbik-
arsins til muna. Hún hefur 26 stiga
forskot á næstu skíðakonu sem er Hanni
Wcnzel. í svigkcppninni á sunnudag, í
Jasna, sigraði Riswitha Steincr, Austur-
ríki á 1:35,53; Erika Hessféll úrkeppni,
en Hanni Wenzel náði fimmta sæti.
Zurbriggen
sigrar í heims-
bikarkeppninni
■ Svisslendingurinn Pirmin Zurbrigg-
en hefur tryggt sér sigur í samanlagðri
stigakcppni heimsbikarsins í skíðaí-
þróttum. Eftir stórsvigskeppnina í Áre
á laugardag er ijóst að enginn keppandi
gctur náð Zurbriggen að stigum. Sænski
skíðakóngurinn Ingemar Stenmark, sem
einn manna gat náð Svisslendingnum að
stigum fyrir keppnina, náði aðeins
fimmta sæti og því er Zurbriggcn örugg-
ur um sigur í stigakeppninni. Hann náði
þó aðeins 13 sæti á laugardag. Keppt var
í svigi, á sunnudag, á sama stað, og þá
sigraði Franz Gruber frá Austurríki, en
annar varð landi hans Robert Sollcr. Nú
eru þrjú mót í Noregi cftir í heimsbikar-
keppninni. - ®L
Fyrsti sigur
KA í vetur
■ HandknattleiksliÖ KA frá Akureyri,
vann sinn fyrsta sigur í.f opinberu móti
í vetur á fimmtudagskvöld. Norðmenn
sigruðu Keflvíkinga í bikarkeppni HSÍ.
Lokatölur leiksins 27-22. Lcngi
framan af mátti vart á milli sjá hvort liðið
lcki í I. deild, en í hálfleik höfðu
norðanmenn tveggja marka forystu. 15-
13. KA-menn bættu síðan við forskot
sitt í síðari hálfleiknum og gerðu út um
leikinn. Lokatölurnar 27-22 og KA
kemst þar með áfram í bikarkeppninni
cn Keflavík er úr leik. Flest mörk KA í
leiknum gerði Jón Kristjánsson eða 9, en
Gunnar Oddsson gerði 7 mörk fyrir
Kéflavík. - BL
WBUm