Tíminn - 28.03.1984, Síða 2
MIÐVIKUDAGUR 2«. MARS 1984
fréttir
Málflutningur í Skaftamálinu í sakadómi í gær:
MENN VIRDAST RÉTT-
LAUSIR IÖLDURHÚSIIM
AÐ MATI SAKSÓKNARA
— sem telur málið Mmistök og slys” frá upphafi til enda
■ „Þctta er mál sem þarf að fá úrlausn þar sem það er orðið að svo stóru máli.
En ég tel að sakfellisdómur þurfi ekki að hafa áhrif á störf þessara lögrcglumanna.
Þeir verða jafngóðir og örugglega betri lögreglumenn eftir en áður; af mistökunum
læra menn. Þetta mál er mistök og slys. Fyrstu mistökin eru veitingahússins sem
afhendir frakkann öðrum en eiganda; síðan dyravarðarins sem kallaði á lögreglu
af engu tilefni og í þriðja lagi lögreglumannanna sem gerðu mistök dyravarðarins
að sínum. Þetta er sérstakt mál, þar sem ekki er venja að beðið sé um að fjarlægja
mann af veitingahúsi án þess hann sé ölvaður eða ósjálfbjarga. Nú var maðurinn
ekkcrt drukkinn. Lögreglumennirnir trúðu þcim sem á þá kölluðu en í svona
málum má engu trúa“ sagði Itragi Steinarsson vararíkissaksóknari m.a., í
niðurlagsorðum sínum við málflutning fyrir Sakadómi Reykjavíkur í gær vegna
máls ákæruvaldsins gegn þrem lögreglumönnum vegna handtöku og síðar áverka
Skafta Jónssonar 27. nóvembcr í fyrra.
Ákæruvaltlið höfðaði -mál þetta á
hendur lögreglumönnum fyrir að hafa
staðið ólöglega að handtöku Skafta
Jónssonar í Þjóðleikhúskjallaranum
og var tveim lögreglumannanna enn-
fremur gefið að sök að hafa annarhvor
eða báðir valdið þeim líkamsmeiðing-
um sem Skafti hlaut við flutning á
lögreglustöð.
í máli sínu las saksóknari m.a. upp
lögregluskýrslu þá sem einn lögreglu-
mannanna skrifaði söniu nótt og hand-
takan átti sér stað. Samkvæmt henni
taldi saksóknari upp nokkur atriði sem
hugsanlega hefðu getað verið tilefni
handtökunnar. Til viðbótar nefndi sak-
sóknari að atburðurinn hefði gerst í
öldurhúsi og þar virtust menn vera
réttlausir.
í lögregluskýrslunni stendur að
Skafti hafi verið áberandi ölvaður.
Saksóknari las upp vitnisburð lögreglu-
mannanna þriggja við dómsrannsókn
og þar bar þeim saman um að Skafti
hefði verið undir litlum og varla merkj-
anlegum áfengisáhrifum. Þetta hefði
verið stutt af fleiri vitnum og því hefði
áberandi ölvun á almannafæri ekki
verið handtökuástæða.
Þá nefndi saksóknari kröfu dyra-
varðar staðarins að lögregla kæmi á
staðinn og fjarlægði mann og einnig
þau ummæli dyravarðarins þegar
handtöku var lokið að hann ætlaði að
hafa uppi bótakröfu vegna fata-
skemmda í átökum við Skafta. Sak-
sóknari sagði að hugsanleg bótakrafa
kæmi ekki fram á frumstigi máls og
hún væri ekki tilefni til handtöku.
Þegar lögreglumennirnir komu að
húsinu stóð dyravörðurinn fyrir utan.
Þá báru föt hans einhver merki um
átök. Dyravörðurinn fór með lögreglu-
mönnunum inn og benti þeim á Skafta
sem stóð á tali við fdlk. Orð dyravarð-
arins voru ekki að mati saksóknara
næg ástæða fyrir handtökunni enda var
Skafti þá að búast til brottfarar af
staðnum.
Þá ersagt í skýrslunni að Skafti hafi.
eftir komu lögreglunnar, ráðist að
dyraverðinum og tekið hann föstum
tökum. Þetta hafa allir þrír lögreglu-
mennirnir staðfest fyrir dómi. Aftur á
móti hefði dyravörðurinn sjálfur boriö
fyrir lögreglurannsókn og dómsrann-
sókn að átökin hefðu verið milli lög-
reglumannanna og Skafta, hann hefði
gert sig líklegan til að ráðast á sig en
ekki gert það. Þessi framburður dyra-
varðarins var m.a. studdur af vitnuin.
í síðasta lagi nefndi saksóknari að í
skýrslunni stæði að Skafti hefði ærst,
þcgar lögreglumennirnir reyndu að
halda aftur af honum og lögreglu-
mennirnir þá þurft að beita töluveröu
harðræði áður en þeim tókst að hand-
járna hann. Saksóknari sagði að um
þetta atriði væri í sjálfu sér ekki deilt
en handtökuástæðan þarf að vera til-
komin áður en handtaka er
framkvæmd.
Þá fjallaði saksóknari um hvort
átökin sem áður höfðu orðið milli
Skafta og dyravarða, áður en lögreglan
kom, réttlættu handtöku. í framburð-
um vitna kom fram að Skafti var í
fatahenginu með leyfi umsjónarkonu
vegna þess að yfirhafnir hans og konu
hans fundust ekki. Skafti fann yfirhöfn
konu sinnar en síðan kom í Ijós að
frakki hans hafði verið afhentur áður
öðrum manni vegna mistaka. Dyra-
vörðurinn ber að hann hafi verið
béðinn að fjarlægja Skafta úr fata-
geymslunni og við það hafi orðið átök
milli þeirra, sem þeim Skafta og dyra-
verðinum ber ekki saman um hvor
hefði hafið. En aðalatriðið er að Skafti
var í fatageymslunni með leyfi. Og
öllum átökum var lokið og Skafti að
búa sig til heimferðar frakkalaus þegar
lögreglan kom á staðinn. Lögreglu-
mennirnir spurðust ekki fyrir um
ástæðu fyrir handtökunni þegar þeir
gengu til verks og skýrðu Skafta ekki
frá því hversvegna þeir vildu fá hann
með sér.
Saksóknari taldi þetta athæfi varða
við 131. grein hegningarlaga um ólög-
lega handtöku en til vara við 132. grein
um rangar aðferðir við handtöku
vegna ásetnings eða stórfellds gáleysis.
Hann sagði síðan að vegna eðlis máls-
ins yrði frekar miðað við varakröfuna
við dómsuppkvaðningu.
Þá fjallaði saksóknari um líkams-
meiðingar og fataskeinmdir þær sem
Skafti varð fyrir. Hann sagði að tvær
skýringar væru á hvenær þær hefðu
orðið. í fyrsta Iagi við mótspyrnu
Skafta við lögreglubílinn sem varð til
þess að hann féll á grúfu á gólf bílsins
og var síðan dreginn inneftir bílnum.
Þetta væri viðurkennt af lögreglu-
mönnunum sem hugsanlegur möguleiki.
Það væri ásetningsathöfn að draga
hann á þennan hátt inn í bílinn og
refsingarsök, a.m.k. fyrir gáleysissak-
ir.
í öðru lagi að meiðslin hefðu komið,
eins og Skafti og kona hans bera að
lögreglumaður hefði ítrekað slegið
höfði lians við gólf bílsins á leið á
lögreglustöð. Þessu hafa lögreglu-
mennirnir mótmælt og sagði saksókn-
ari það skoðun sína að þessi framburð-
ur Skafta og konu hans væri mjög
ótrúverðugur. Þá skoðun sína byggði
hann á viðbrögðum þeirra beggja á
lögreglustöðinni og mótmælum þeirra
þar sem þau beindust ekki að þessu
atriði.
Vinkona eiginkonu Skafta, sem var
með í bílnum segist ekki geta gert sér
grein fyrir hvort hþn sá eða skynjaði
með öðrum hætti það sem fram fór. Þá
hefur hún borið að henni hafi fyrst
verið ljóst um áverka Skafta á lögreglu-
stöðinni. Hún kveðst ekki geta gert sér
grein fyrir hvað hafi gerst fyrr en Skafti
var leystur úr haldi og sagði frá þessu.
Skafti hafi síðan fyrst kvartað yfir
þessu atriði í símtali við varðstjóra
seinna um nóttina.
Þá nefndi saksóknari að það að
lögreglumennirnir hefðu leyft stúlkun-
um að fara með í bílnum styddi
framburð þeirra og benti ekki til
ásetnings. Þvf væri framburður Skafta
og konu hans um þetta marklausenda
væri það ekki ákæruefnið í málinu
heldur sjálf meiðsl Skafta.
Saksóknari sagði að heimfæra mætti
þetta brot til 218. greinar almennra
hegningarlaga en 217. grein ætti frekar
við.
Að lokinni ræðu saksóknara var
málflutningi frestað til kl. 9.00 í dag.
Þá munu verjendur lögreglumannanna
taka til máls.
-GSH.
HVALREKIÁ
HVALSNESI
■ Hval rak upp á Hvalsnesi suður fyrir
skömmu. Við hringdum í Hákon Magn-
ússon bónda á Nýlendu til að spyrjast
fyrir um hvalrekann, en hvalinn rak upp
í land hans.
„Jú, hvalurinn er hérna fyrir neðan
hjá okkur. Það er líklega svona vika til
tíu dagar síðan hann rak upp, í stór-
straumi, brimi og vestanátt. Hann liggur
töluvert hátt uppi og fer líklega ekki út
aftur."
-Hvenær tókuð þið eftir honum?
„Á laugardaginn. Þetta er 15 metra
búrhvalur."
- Hvað ætarðu að gera við þetta?
„Þetta er vandamál, og verður líklega
vont að hafa þetta þarna í sumar þegar
fer að rotna. Það verður kannski hægt að
nota beinin úr þessu. en hvalurinn er
orðinn of gamall til að hægt sé að nýta
hann í fóður. Þetta þarf að vera nýlegt
handa refum og slíku."
- Hefur fólk verið að skoða þetta?
„Svolítið. Það eru að koma hérna
skólakrakkar til að líta á hvalinn.“
- Þú ætlar ekki að selja aðgang?
„Nei, ætli það. Það tekur því ekki.“
-ÁDJ.
Kaupfélagið í
Hveragerði
opnar að nýju
■ Ufibú Kaupfélags Ámesinga í Hvera-
gerði opnaði að nýju síðastliðinn föstu-
dag eftir endurbætur og breytingar sem
þar hafa verið gerðar. Húsið var allt
endurskipulagt og í raun endurbyggt frá
fokheldu ástandi. Skipt var um innan-
hússinnréttingu, allar búðarinnréttingar
og keypt vönduð tæki til geymslu á
kældum og frystum matvælum. Breyt-
ingum á útibúinu er þó enn ekki að
fullu lokið og er unnið að innréttingu
lagers og skrifstofuhúsnæðis.
Stærstur hluti framkvæmdanna var
framkvæmdur af Trésmiðju KÁ en
kaupfélagið hefur notið góðrar aðstoð-
ar teiknistofu og verslunarráðunauts
Sambandsins.
Þá segir í fréttatilkynningu Kaupfélags
Árnesinga að endurbygging útibúsins
hafi verið mjög aðkallandi og sé ánægju-
legt að geta nú boðið viðskiptavinum að
kynnast aðlaðandi verslun með vaxandi
vöruúrvali.
-b.
■ Sigurvegarar í aldurshópi 6 til 8 ára í íslandsmeistarakeppni í gömlu dönsunum
sem huldin var um helgina. Talið frá vinstri, Jón Helgason og Jóna Einarsdóttir frá
Vogum á Vatnsleysuströnd, Nína Björk Þórisdóttir og Óskar Kristinn Óskarsson úr
Hafnarflrði, Áróra Kristín Guðmundsdóttir og Þyri Halla Steingrímsdóttir einnig úr
Hafnarfirði.
Nýi Dansskólinn og Þjóðdansafélagið:
Yfir 170 tóku þátt í
íslandsmeistarakeppni
■ Um helgina fór fram íslands-
meistarakeppni í gömlu dönsunum.
Keppt var í 4 aldursflokkum barna og
einum flokki fullorðinna, þátttakendur
voru 174. Keppnin fór vel fram og voru
liðlega 1000 áhorfendur sem fylgdust
með. í fréttatilkynningu Nýja Dansskól-
ans og Þjóðdansafélags Reykjavíkur, en ■
þessir aðilar stóðu að keppninni, segir
að áhugi á gömlu dönsunum og öðrum
samkvæmisdönsum hafi margfaldast á
undanförnum árum „enda vafalaust
kominn tími til að snerta dansfélagann.
Segja má að skokk dans undangenginna
áraséáundanhaldi ínúverandi mynd."
-b.
Iðnaðarráðherra fellst ekki á kröfu Japana:
„HÖFIIM EKKIPENINGA í SLÍKT“
■ Nú er þess beðið að japanska fyrir-
tækið Sumitomo svarí gagntilboði því
sem íslensk stjórnvöld sendu því fyrir
rúmuni hálfum mánuði, þar sem einkum
er fjallað um í hve mikla endurfjár-
mögnun Járnblendiverksmiðjunnar á
Grundartanga Islendingar og Norðmenn
séu reiðubúnir að ráðast, en Japanirnir
gerðu þá kröfu í Japan, þegar fulltrúar
Elkem og samninganefnd um stóriðju
voru þar í samningaviðræðum við þá í
síðasta mánuði, að endurfjármögnun
fyrirtækisins yrði mun meiri en Islend-
ingar og Norðmenn höfðu ráðgert.
Samninganefndin fór fyrir skömmu til
Osló þar sem samkomulag náðist við
fulltrúa Elkem um að endurfjármögnun-
in yrði eitthvað meiri en ráðgert hafði
verið í upphafi, þó að hún yrði engan
veginn í þá veru sem Japanirnir höfðu
óskað eftir.
„Japanirnir hafa sett hærri kröfur en
við höfum viljað fella okkur við, í
endurfjármögnuninni," sagði Sverrir
Hermannsson iðnaðarráðherra í samtali
við Tímann í gær um þetta mál, og bætti
því við að auk þess væri innbyrðis deila
á milli Norðmannanna og Japananna um
það hversu hátt skyldi meta þau 18-20%
sem Japanirnir hafa viljað kaupa af
Elkem.
„Ég vil ekki fallast á þessa kröfu
Japananna um þessa miklu endurfjár-
mögnun," sagði Sverrir, „það er óþarft
og við höfum ekki peninga í slíkt. En ég
■ „Þessar kröfur hafa ekki verið sam-
þykktar og það er mjög skýr afstaða sem
fjármálaráðherra og borgarstjóri hafa
lýst yfir", sagði Þorsteinn Geirsson,
formaður launamálanefndar ríkisins
spurður hvernig ríkið taki í kröfu Starfs-
mannafélagsins Sóknar um að yfirvinna
hefjist þegar er dagvinnu lýkur og verði
greidd með 1% af mánaðarlaunum fyrir
hverja klukkustund, en það er ein af
þeim nýju kröfum sem ný samninga-
nefnd Sóknar lagði fram á fyrsta samn-
ingafundinum við viðsemjendur félags-
ins í gær.
Að sögn Guðlaugar Pétursdóttur, eins
samninganefndarmanna, vareinnigfarið
er nú þeirrar skoðunar að ef Japnirnir
koma hingað til viðræðna í endaðan
apríl, þó svo að þeir fallist ekki alfarið á
þetta gagntilboð okkar, að þeim sé þá
svo mikil alvara með þátttöku í þessu
fyrirtæki, að samningar náist.“ -AB
fram á að kjarna- ogvalgreinanámskeið-
um verði komið á fyrir alla Sóknarfélaga,
en slík námskeið hækka kaup þeirra sem
á þau fara. Einnig var farið frant á að
starfsfólk við barnagæslu og heimilis-
hjálp grunnist í sama launaflokk og
starfsfólk sem vinnur á stofnunum aldr-
aðra, geðsjúkra og vangefinna.
Varðandi aðra liði gat Guðlaug þess
að á mánudag hafi Sókn borist bréf frá
fjármálaráðherra þar sem hann býður að
fella niður unglingataxta fyrir 16-18 ára
starfsfólk, svo og launaflokkahækkun til
þeirra sem hafa 15 ára starfsaldur.
Annar samningafundur hafði ekki- ■
verið ákveðinn í gærkvöldi.
-HEI:
Nýju kjarakröfur Sóknar:
„ÞESSAR KRÖFUR EKKI SAMÞYKKTAR“