Tíminn - 30.03.1984, Side 1
Dagskrá ríkisf jölmiðlanna næstu viku - sjá bls. 13
FJÖLBREYTTARA
OG BETRA BLAÐ!
Föstudagur 30. mars 1984
77. tölublað - 68. árgangur
Siðumúla 15—Pósthólf 370 Reykjavík — Ritstjorn86300—Augtysingar 18300- Atgreiðsla og askrift 86300 - Kvöldsimar 86387 og 86306
Glórulaus viðskipti byggingarsjóða Húsnæðisstofnunar:
LÍFEYRISSIÓÐIRNIR FA SÍRAX
66% LANSFIAR SÍNS HL BAKA
■ Af samtals tæpum 268 mill-
jónum króna sem Byggingar-
sjóðir ríkisins og verkamanna
fengu lánaðar hjá lífeyrissjóðun-
um í landinu var aðeins 91 mill-
jón notuð, eða 34% til aukinna
útlána hjá sjóðnum en 177 mill-
jónir, eða 66% ijárins fór til að
borga af eldri lánum bygginga-
lánasjóðanna hjá lífeyrissjóðun-
um. Hlutfail þetta hefur hækkað
mjög ört að undanförnu. Árið
1982 fengu byggingarsjóðirnir
195,7 millj. kr. frá lífeyrissjóðun-
um og þar af fóru 86,5 millj.
króna til endurgreiðslna eldri
lána eða 44,2%. Árið 1981 var
þetta hlutfall 27,8%.
í skýrslum Húsnæðisstofnunar
fyrir árið 1982 segir svo m.a.:
„Þessar lántökur Húsnæðisstofn-
unar (hjá lífeyrissjóðunum) geta
varla talist með fullri forsjá
gerðar, skuldabréfin eru til 15
ára með 3.5% vöxtum og full-
verðtryggð. Byggingarsjóðirnir
(ríkisins og verkamanna) endur-
lána síðan þetta fé til mun lengri
tíma og með lægri vöxtum (0,5%
hjá Byggingarsjóði verka-
manna). Með þessu lagi má ætla
að skuldabréfakaup lífeyrissjóð-
anna verði senn í litlum mæli
eiginleg viðbót við ráðstöfunar-
fé byggingarsjóðanna".
„Þetta er óneitanlega skugga-
leg þróun og staðfestir það sem
skrifað var í skýrslu okkar á
síðasta ári", sagði Sigurður
Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri Húsnæðisstofnunar í sam-
tali.
Þar sem skuldabréfakaup líf-
eyrissjóðanna hafa á undanförn-
um árum verið einn stærsti tekju-
stofn Byggingarsjóðs ríkisins var
Sigurður spurður hvort þessi
þróun yrði ekki til að fara þurfi
að stokka kerfið upp. „Það átti
umfram allt aldrei að fara út í
þetta og síst af öllu í þeim mæli
sem gert hefur verið", sagði
Sigurður.
-HEl.
Ríkisstjórnin skipar sérstaka
nefnd í „fjárlagagatið“:
MIKILL AGREINING-
UR UM NIÐURSKURÐ
OG NIÐURGREIÐSLUR
■ Enn er langt í land að samkomulag náist um
það í ríkisstjórninni hvernig staðið skuli að f jár-
málalegri lausn tveggja milljarða gatsins alkunna
á f járlögum. Á ríkisstjórnarfundi í gærmorgun var
þetta rætt vítt og breitt, en án þess að nokkur
niðurstaða fengist. Gerðu hvor aðili fyrir sig grein
fyrir afstöðu sinni í málinu, en Ijóst varð að svo
mikið bar á milli, að ákveðið var að Steingrímur
Hermannsson, forsætisráðherra og Albert Guð-
mundsson fjármálaráðherra myndu í dag ásamt
sérstökum fulltrúum stjórnarflokkanna reyna að
leita leiða, sem gæfu sameiginlega niðurstöðu.
Flugvél
hvolfdi
■ Lítilli eins hreyfils flugvél
hvolfdi á flugveliinum við Stóra
Kropp í Borgarfir ði kl. rúmlega
3 í gærdag. Engin slys urðu á
mönnum.
Samkvæmt heimildum Tímans
er mikill ágreiningur á milli
flokkanna um niðurskurð eða
afnám niðurgreiðslna á landbún-
aðarafurðum. Sumir sjálfstæðis-
menn vilja afnema niðurgreiðsl-
urnar með öllu, en framsóknar-
menn benda á að ef það verði
gert, þá hafi það hækkun á
mjólkurvörum og landbúnaðar-
afurðum í för með sér á bilinu
30-40%. Aðrir sjálfstæðismenn
telja að slíkt myndi koma alltof
hart við buddu launþeganna og
vilja fara einhverja millileið hvað
varðar minnkun á niðurgreiðsl-
unum. Framsóknarmenn vilja
enn aðra millileið, þ.e. enn
minni niðurskurð á niðurgreið-
slunum og þá fjármuni sem
þannig vinnast vilja þeir n ota til
þess að greiða með láglaunabæt-
urnar sem um hefur samist.
Önnur ágreiningsatriði eru
t.d. tillaga fjármálaráðherra um
100 milljón króna niðurskurð til
vegamála, en flokksbróðir
fjármálaráðherra, Matthías
Bjarnason samgönguráðherra
hefur lýst sig gjörsamlega and-
snúinn slíkum niðurskurði, og
Tíminn hefur fregnað að fram-
sóknarmenn séu einnig á móti
niðurskurði til vegamála.
Ekki munu ráðherrarnir bjart-
sýnir á að lausn finnist á þessu
máli í dag, en með ráðherrunum
verða þeir Tómas Árnason og
Þorsteinn Pálsson, auk einhverra
embættismanna.
-AB.
Breytingar á yfirstjórn Flugleiða:
Forstjórastaðan lögð
undir stjórnarformann
— Sigurður Helgason, fyrrverandi forstjóri, kjörinn stjórnarfor-
maður en gegnir um leið fyrra starfi
■ Sigurður Helgason var í
gær kjörinn stjórnarformaður
Flugleiða jafnframt því sem
hann hefur á hendi yfirumsjón
með daglegum rekstri í sam-
vinnu við framkvæmdastjóra
fyrirtækisins en forstjórastað-
an sem Sigurður gegndi áður
verður formlega lögð niður.
Þessar ákvarðanir voru teknar
á fyrsta stjórnarfundi nýkjör-
innar stjórnar Flugleiða að af-
stöðnum aðalfundi fyrirtækis-
ins. Jafnframt var Grétar Br.
Kristjánsson endurkjörinn
varaformaður stjórnar. Að
sögn Sæmundar Guðvinssonar
fréttafulltrúa Flugleiða er hér
um einföldun á yfirstjórn fyrir-
tækisins að ræða sem á sér
hliðstæðu í mörgum fyrirtækj-
um vestan hafs. Þar mun þó
víðast heita að stjórnarfor-
maður gegni jafnframt for-
stjórastöðu en hérlendis brýtur
það í bága við lög um hlutafé-
lög.
Á aðalfundinum í gær sögðu
þeir Örn Ó. Johnson og Óttar
Möller sig úr stjórn fyrirtækis-
ins en í stað þeirra voru kjörnir
Ólfur Ö. Johnson og Hörður
Gestsson. Aðrar mannabreyt-
ingar urðu ekki í stjórninni og
eru í henni eftirtaldir menn
auk Harðar og Ólafs, Sigurður
Helgason formaður, Grétar
Br. Kristjánsson varaformað-
ur, Kristinn Olsen, Halldór H.
Jónsson, Kristjana Milla
Thorsteinsson, Sigurgeir Jóns-
son og Kári Einarsson en þeir
tveir síðasttöldu eru fulltrúar
ríkisins.
Sjá nánar bls. 2
mœ
.