Tíminn - 30.03.1984, Page 7
FÖSTUDAGUR 30. MARS 1984
7
B.St. og K.L.
■ Nú þegar Alana Stewart er
skilin við rokk-eiginmanninn
sinn, hann Rod Stewart með
Ijósa hárið (í allar áttir) hefur
hún haldið sig í Hollywood.
Þarna er hún með stóran riffíl og
mjög veiðimannsleg. Líklega er
hún þó ekki að leita að Rod
sínum í hefndarhug, því að hann
hefur mest haldið sig hinum
megin Atlantshafsins. Hann hef-
ur sést með hinum glæstustu
sýningardömum, Kelly Emberg
og Christina Meyer. Sumir segja
að hann hafí verið á kvennafari ,
en aðrir að hann hafí hreint og
beint fengið stúlkurnar til að
sýna sig með sér, svo allir sæju
að hann væri hress og kátur,
þrátt fyrir að Alana hafði yfirgef-
ið hann.
Alana, sem sjálf var fyrirsæta
og sýningardama, hefur verið að
reyna fyrir sér sem leikkona og
komið fram hjá ABC sjónvarps-
stöðinni í Masquerade og einnig
leikur hún í nýrri upptöku af
Where the Boys Are. Alana
hefur börnin hjá sér, þau Kimb-
eriy sem er fjögurra ára og Sean
þriggja ára.
Alana Stewart er vígaleg með stóra riffílinn.
ERALANAAÐ
FARAÁVEIÐAR?
verðlaunin halda mönnum við
þetta og svo vonin um að stuðla
að betri arkitektúr í landinu."
- Hver er tilgangurinn með
keppninni?
„Að hanna hús sem byggð eru
upp úr einingum sem hægt er að
eiga á lager án þess að það bitni
á útlitsgæðum eða fjölbreytni
húsanna."
- Eru svona keppnir gagnleg-
ar?
„Þær eru tvímælalaust af hinu
góða. Þetta leiðir yfirleitt fram
góðar hugmyndir og er líklega
besta leiðin til að framkalla góð-
ar hugmyndir í byggingalist."
- Er byggingalist á Islandi í
framför?
„Já, ég verð að segja það. En
hlutur arkitekta mætti vera meiri
í einbýlishúsum. Núerfjórðung-
ur einbýlishúsa á íslandi teiknað-
ur af arkitektum."
- Er ekki dýrara að fá þjón-
ustu arkitekta?
„Það er ekki svo dýrt þegar
upp er staðið. Þetta eru sér-
menntaðir menn með langt nám
að baki í því að skapa gott
umhverfi. Það liggur heilmikil
hugmynd og vinna að baki því að
skapa bætt umhverfi."
- Svo við snúum okkur að
einingahúsunum, hvað er stór
hluti af húsum á íslandi eininga-
'hús?
„Ég treysti mér ekki til að
segja til um það. En framleiðslu-
getan er milli 100 og 200 hús, og
sú framleiðslugeta mun aukast.
Útkoman úr þessari samkeppni
mun einnig stuðla að bættri skip-
an þessara mála.
- Fenguð þið það sem þið
áttuð von á út úr keppninni?
„Við fengum jafnvel meira út
úr þessu en við áttum von á. Nú
eiga einingahús á landinu að
geta komist upp úr þeim öldudal
sem þau hafa verið í“.
■ Margaret Thatcher og Howe utanríkisráðherra
Thatcher undirbýr kosning
arnar til Evrópuþingsins
erlent yfirlit
Hún vill sýna að hún sé ennþá járnfrúin
■ ENN ER óleyst sú deila
innan Efnahagsbandalags
Evrópu, sem risið hefur milli
Bretlands annars vegar og hinna
aðildarríkjanna níu hins vegar.
Deilan stendur um hvað mikið
Bretland eigi að fá endurgreitt af
framlagi sínu til bandalagsins.
Öllum kemursaman um að Bret-
ar eigi rétt á endurgreiðslum, en
ósamkomulager um upphæðina.
Meðan það leysist ekki neita
Bretar að standa að afgreiðslu
fjárlaga fyrir bandalagið og vofir
gjaldþrot yfir því, ef hún dregst
lengi úr þessu.
Ótvírætt er, að deila þessi er
harðari en ella vegna þess, að í
júnímánuði fara fram kosningar
til þings bandalagsins, sem
venjulega gengur orðið undir
nafninu Evrópuþingið. Kosið
verður í fjórum þátttökuríkjum
14. júní.en í hinumsex 17. júní.
Ríkisstjórnunum þykir að
sjálfsögðu miklu skipta. að
flokkar þeirra fái sem hagstæðust
úrslit. Það hefur að sjálfsögðu
áhrif á afstöðu þeirra innan
bandalagsins um þessar mundir.
Engan af leiðtogunum skiptir
þetta þó meira máli en Margaret
Thatcher. Meðbyrinn, sem hún
fékk vegna Falklandseyjastríðs-
ins í þingkosningunum í fyrra,
virðist vera úr seglunum. Verka-
mannaflokkurinn virðist hafa
rétt sig við að sama skapi undir
forustu Neils Kinnoch.
Þótt kosningarnar til Evrópu-
þingsins snúist um önnur mál en
kosningarnar til brezka þingsins,
verður styrkleiki flokkanna eigi
að síður dæmdur af þeim. Því
leggur Thatcher áherzlu á að
halda vel velli. Þetta er vafalaust
ein skýringin á því hve óbilgjörn
hún hefur þótt í deilunni innan
Efnahagsbandalagsins um endur-
greiðsluna, sem Bretar eiga að
fá.
EINS OG áður segir, er ekki
ágreiningur um, að Bretum beri
réttur til endurgreiðslu. Sam-
kvæmt reglum bandalagsins
verða þátttökuríkin að greiða
skatt til þess af landbúnaðar-
vörum, sem fluttar eru inn frá
löndum utan bandalagsins. Slík-
ur innflutningur er langmestur
til Bretlands, m..a. frá Ástralíu
og Nýja-Sjálandi. Af þessum
■ Mitterrand
ástæðum hafa Bretargreitt miklu
hærri framlög til bandalagsins en
þeir hafa fengið frá því. Að
þessu leyti hefurstaða Bretlands
innan bandalagsins orðið mun
óhagstæðari en annarra þátt-
tökuríkja.
' Á síðastliðnu sumri náðist
samkomulag um. að Bretar
skyldu fáendurgreiddar674mill-
jónir dollara af framlagi sínu til
bandalagsins á árinu 1983. Ó-
samið var hins vegar um framtíð-
ina og ákveðið að Bretar fengju
ekki greidda framannefnda
cndurgreiðslu fyrr en fullnaðar-
samkomulagi væri náð.
Á leiðtogafundi bandalagsins.
sem haldinn var í Aþenu í
desember. var þetta mál til um-
ræðu og lauk án þess að niður-
staða fengist. Ákveðið var að
reyna til þrautar að ná samkomu-
lagi á leiðtogafundi, sem haldinn
yrði í Brússel í marz. Mitterrand
forseti, sem fer nú meö for-
mennsku í stjórnarncfnd banda-
lagsins, tók að sér að reyna að
koma þessu máli í höfn.
Umræddur fundur var haldinn
í Brússel í síðustu viku og lauk
honum án þess að samkomulag
næðist. Undir forustu Mitter-
rands höfðu þó ríkin níu teygt
sig langt til samkomulags.
Margaret Thatcher heimtaði
hins vegar meira og strandaði
samkomulag á því.
Vonir stóðu til þess, að eitt-
hvað myndi greiðast úr þcssari
deilu á utanríkisráðherrafundi
bandalagsins, sem haldinn var á
þriðjudaginn. Svo fór þó ckki.
Málið stendur enn í sömu spor-
um og við lok leiðtogafundarins
f síðastliðinni viku.
Bretum hefur verið tilkynnt.
að þeir fái ekki greidda framan-
nefnda endurgreiðslu fyrir árið
1983 fyrr en fullnaðar-samkomu-
Þórarinn
Þórarinsson,
ritstjóri, skrifar
lag hafi náðst. Thatcher hefur
hótað. að þá ýerði hætt við að
greiða framlög Bretlands til
bandalagsins.
Samkvæmt reglum bandalags-
ins, sem Bretar undirrituðu á
sínum tíma, er áætlað að þeir
cigi að greiða 1.7 milljarð dollara
til bandalagsins á þessu ári.
Brezka stjórnin hefur krafizt
aðfá 1.1 milljarð endurgreiddan
á þessu ári, en eftirleiðis verði
framlög þátttökuríkjanna svo
ákveðin með hliðsjón af þjóðar-
tckjum.
Hin ríkin hafa boðizt til að
endurgrciöa 850 milljónir doll-
ara á þessu ári-og sömu upphæð
árlcga næstu fjögur ár. Rcglurn-
ar haldist svo óbreyttar.
ÞETTA tilboð telur Thatcher
óaðgengilegt og hefur hún þá
vafalítið kosningarnar í júní í
huga. Verkamannaflokkurinn
gagnrýnir mjög þátttöku í Efna-
hagsbandalaginu og boðar úr-
göngu úr því. ef hann kemst til
valda. Skoðanakönnun, sem
gerð var á vegum blaðsins Guar-
dian nýlega, leiddi í Ijós, að 55%
þeirra, scm svöruðu, voru fylgj-
andi brottför úr bandalaginu.
Bandalag jafnaðarmanna og
frjálslyndra er fylgjandi áfram-
haldandi aöild og mun því keppa
við íhaldsflokkinn um þá kjós-
endur, sem eru aðild fylgjandi.
Þetta getur leitt til þess, að
íhaldsflokkurinn missi atkvæði
á báða bóga.
Undir þessum kringumstæð-
um er Thatcher ekki í neinum
samningahug. Hún vill sýna enn
svart á hvítu, að hún verðskuldar
járnfrúar-nafnið.
Hinir þjóðarleiðtogarnir
verða einnig að hafa hliðsjon af
kosningum, ekki sízt Mitter-
rand. Hann beitti sér fyrir því að
gengið var langt til samkomulags
til Thatcher. Hann taldi það
styrkja sig, ef hann leysti deil-
una. Lengrageturhannvartgeng-
ið fyrir kosningarnar en yfirleitt
er spáð. að þær verði hagstæðar
fyrir frönsku stjórnarandstöð-
una.
Eins og nú standa sakir virðast
litlar horfur á, að þessi deila
leysist fyrr en eftir kosningarnar
í júní. ef hún þá á annað borð
leysist.