Tíminn - 17.04.1984, Side 3
ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL I9IU
3
fréttir
iiiíilfifiiBiLini;
....__ j
_______ "
Í!!SÍÍÍÍÍ!Í
ll’SÍÍl'ÍÍÍi
Skilrúmið sem kveikt var í í kjallara Glæsibæjar.
Tímamynd Sverrir
REVNT AD KVÐKIAI GUESBfE?
■ Líkurbenda til að um íkveikju hafi
verið að ræða þegar eldur kom upp í
kjallara verslunarmiðstöðvarinnar
Glæsibæjar í fyrrinótt. l>ar hafði verið
brotin upp útihurð en eldur logaði í
skilrúmi fyrir innan. Miklar skemmdir
urðu af reyk og sóti í kjallaranum og
einnig á efri hæð hússins en sjálfar
eldskemmdirnar urðu ekki miklar.
Slökkviliðið fékk tilkynningu um eld-
inn kl. 00.45 aðfaranótt mánudags. Peg-
ar það kom á staðinn var mikill reykur í
kjallaranum. Reykkafarar fóru inn í
kjallarann og voru um 30 metrar frá
útihurð til skilrúmsins sem eldurinn var
í. Vel gekk að slökkva eldinn en liann
var ekki farinn að breiðast út. Töluverð-
an tíma tók hinsvegar að loftræsta þar
sem aðstæður voru erfiðar, m.a. fór allt
rafmagn af húsinu vegna þess að raf-
magnsleiðslur og dósir bráðnuðu af hit-
anum sem myndaðist af eldinum.
Alls unnu 7 reykkafarar við loftræst-
ingu með 11 blásara, og var verkið
nánast allt unnið nteð grímum. Starfinu
var lokið kl. 2,45 um nóttina en vakt var
við húsið til kl. 8.00 á mánudagsmorgun.
Eins og áður sagði urðu reykskemmdir
miklar í kjallaranum, mestar í vörulager
verslunar SS. Þá komst reykur einnig
upp í verslunina og aðrar verslanir á cfri
hæðinni.
GSH
Stjórnarfrumvarp um kvikmyndamál lagt fram á alþingi:
Söluskattur af bíósýningum
standi undir Kvikmyndasjóði
Fimmföld
ferming
er ekki
einstök
■ Um daginn sagði Tíminn frá sam-
eiginlegri fermingarveislu 5 systkina-
bama og því haldið fram að hér væri
um cinstakt fyrirbæri að ræða. Þetta er
ekki rétt því árið 1948 voru 6 barna-
börn Valgcirs Jónssonar í Norðurfirði
og Sesselju Gísladóttur konu hans
fermd í Arneskirkju á Ströndum en
foreldrar barnanna voru allir búsettir
þar í sókninni. Það var eitt fermingar-
harnanna, Björg Jónsdóttir sem
hringdi í Tímann og skýrði frá þessu.
I’að er líka skemmtileg tilviljun að
við báðar þessar fermingar eru það
Strandamenn sem eiga í hlut, nema þá
að þetta sé ienska þar í sveitum?
Guðlaugur Magnússon í Kjörvogi sem
átti þann fríða flokk sem kom saman
úti á Álftanesi um helgina og Valgeir
Jónsson á Norðurfirði hafa verið
sveitungar og grannar þó sá síðar-
nefndi hafi verið af annarri kynslóð.
Nú og svo verða fermingar,.börnin"
frá Norðurfirði fimmtug á þessu ári og
kannski það vcrði aftur slegið saman?
■ Stjórnarfrumvarp um kvikmynda-
mál hefur verið lagt fram. Þar er ráð
fyrir gert að Kvikmvndasjóður Islands
starfi undir sérstakri stjóm og fer mennta-
málaráðuneytið með yfirstjórn hans.
Verkefni Kvikmyndasjóös eru m.a.:
Úthlutun styrkja og lána til íslenskrar
kvikmyndagerðar. Ennfremur er heimilt
að styrkja kvikmyndagerð, sem unnin
eru í samvinnu við erlenda aðila. Að-
gerðir til að efla kvikmyndamenningu á
Islandi. Öflun og útgáfa upplýsinga um
íslenskar kvikmyndir. Kvnning á ísl-
enskum kvikmyndum erlendis í sam-
vinnu við íslenska kvikmyndafram-
leiðendur á kvikmyndahátíðum og
öðrum vettvangi.
Tekjur Kvikmyndasjóðs eru áætlaðar
eftirfarandi: Árlegt framlag úr ríkissjóði
er nemi áætluðum söluskatti af kvik-
myndasýningum í landinu. Vaxtatekjur
og aðrar tekjur. Kvikmyndasjóður ís-
lands tekur við tekjum og eignum Kvik-
myndasjóðs, sem fyrir er.
Kvikmyndasafn íslands skal starfa
innan vébanda Kvikmyndasjóðs, en um
starfsemi þess skal sett sérstök reglu-
gerð, þar sem nánar skal kveðið á um
verksvið safnsins og starfssvið. Fram-
kvæmdastjóri Kvikmyndasjóðs skal
jafnframt vera forstöðumaður safnsins.
Um kvikmyndasafn segir í frumvarp-
inu, að það skuli safna íslenskum kvik-
mvndum og kvikmyndum um íslenskt
efni, gömlum og nýjum, hverjum nöfnum
sem þau nefnist og varðveita þær. Jafn-
framt afli safnið sér eintaka af erlendum
kvikmyndum sem hafa listrænt og kvik-
myndasögulegt gildi. Heimilt er að koma
á skylduskilum kvikmynda samkvæmt
nánari ákvæðum í reglugerð.
Auk þess að fá fé til starfsemi sinnar
á fjárlögum er Kvikmyndasafni heimilt
að afla fjár með kvikmyndasýningum og
útgáfustarfsemi.
Kvikmyndasjóði er heimilt að láta
starfsemi sína ná til myndbandagerðar
og annarra tækniaðferða, sem skyldar
eru eða tengjast hefðbundinni kvik-
myndagerð með einum eða öðrum hætti.
Lögð skal áhersla á samstarf og sam-
vinnu við sjónvarpsdeild Ríkisútvarpsins
og aðra dreifiaðila sjónvarpsefnis.
í maí 1981 skipaði þáverandi mennta-
málaráðherra Ingvar Gíslason nefnd
til að kanna leiðir til að efla Kvikmynda-
sjóð. Nefndin skilaði af sér í okt. s.l. Er
frumvarpið byggt á niðurstöðum nefnd-
arinnar að miklu leyti en nokkrar breyt-
ingar hafa verið gerðar á vegum mennta-
málaráðuneytisins.
1 athugasemdum með frumvarpinu
segir að miðað við áætlaðan söluskatt af
kvikmyndum á árinu 1982 hefðu tekjur
sjóðsins nuntiö 14.5-16 millj. kr. sam-
kvæmt fyrirliggjandi frumvarpi.
Sædýrasafnið
í Hafnarfirði:
Eitt af
fimmtíu
stærstu
útflutn-
ingsfyrir-
tækjum
■ Sædýrasafnið í Hafnurfirði komst
á síðusta ári i röð 50 stærstu
útflutningsfyrirtækja landsins. Sæ-
dýrasafnið var númer 47 í röðinni með
útflutning upp á 11,2 milljónir króna.
Númer 45 á listanum var t.d. Samband
íslcnskra loðdýrabænda með 12,5 mill-
jón króna útflutning. Þá má geta þess
að Póstur og sínii (sem við hugsum
líkiega sjaldan um sem útflutningsfyr-
irtæki) var númer 39 á útflytjcnda-
ILstanum með 18,6 milljónir króna
fyrir seld frímerki. Einnig er athyglis-
vert að BM Valla h.f. hcfur flutt út
fósturjörð (vikur) fyrir 25 milljónir
króna 1983, sem var nær fintmföldun
frá því á árinu áður.
Risarnir í íslenskum útflutningi eru
fjórir og nam útflutningur þeirra á
síðasta ári 68.3% af heildarútflutningi
landsmanna. cöa samtals 12,7
milljörðum króna af alls tæpum 18,6
milljarða króna útfiutningi frá íslandi
á síðasta ári. Stærsti útflytjandinn cr
Sölumiðstöð hraöfrystihúsanna með
4.453,8 millj. króna útfiutning og því
um 24% af öllum útflutningi lands-
manna. Annað sætiö á síðasta ári átti
íslenska Álfélagið mcð 3.387,4 mill-
jóna króna útflutning í fyrra og var það
nær fjorfalt hærri upphæð en árið
1982. Þriðja í röðinni kom Santband
ísl. samvinnufélaga með 2.756,6 millj.
króna og fjórða var Sölusamband ísl.
fiskframleiðenda með 2.202,8 milljóna
króna útfiutning. Útflutningur SÍF
jókst aðeins um tæp 40% milli ára í
krónum talið, þótt meðalkaupgengi
erlcndra gjaldmiðla Itafi hækkað um
96,2% milli áru. þannigaöhlutfallslcga
var unt mikla minnkun að ræða.
Járnhlendiverksmiöjan á Grundar-
tanga varð í 5. sæti útfiytjenda í fyrra
með 616,1 millj. króna. Tólf fyrirtæki
í viðbót fiuttu út vörur fyrir meira en
100 milljónir króna. íslenska umboðs-
salan 509 ntillj., Síldarúfvegsnefnd
457.9 millj., Santlag skreiðarfrantleið-
enda 384,4 ntillj., Sölustofnun lagmetis
349,7 ntillj., SÍS iðnaðardeild á Akur-
cyri 343,7 millj., Hvalur hf. 259,6
millj., Álafosshf. 256,8millj., íslenska
útfiutningsniiöstöðin 237 ntillj.. Hilda
Itf. 153.3 millj., Kísilverksmiðjan
136.9 millj.. Sigurður Ágústsson í
Stykkishólnti 133 ntillj. og Bernhard
Petersen hf. í Reykjavík með 131
milljóna króna útflutningá síðasta ári.
-HEI
Tilboösverö
|D Q 11
Q a 5j
Q Q QJ
0 0 0
Svalahuröir úr oregonpine meó
lœsingu, húnum og þéttilistum.
Verö írá kr. 5.654,-
Útihuröir úr oregonpine.
Veró írá kr. 6.390,-
Bílskúrshuróir,
gluggar og gluggaíög.
Gildir til 1.05.84.
TRÉSMIÐJAN MOSFELL H.F-
HAMRATÚN 1 MOSFELLSSVEIT SÍMI 6 66 06