Tíminn - 09.01.1986, Síða 1
„Svona reiður get
ég ekki sættmigvið
\U
HUGSANLEGUR FLUTNINGUR
Byggðastofnunar norður á Akureyri var tilefni fundar
forráðamanna stofnunarinnar og bæjarstjórnarinnar.
fyrirnorðan ígær. Fundurinn varsagðurjákvæðuren
engin ákveðin niðurstaða fékkst. Gera má ráð fyrir að
ákvörðun verði tekin í febrúar er könnun Hagvangs á
hagkvæmni flutninganna liggur fyrir.
MARGEIR PÉTURSSON er enn í
efsta sæti á alþjóðlega skákmótinu í Hastings. í gær
tefldi hann við Bandaríkjamanninn Petrovich og lauk
þeirri skák með jafntefli. Jóhann Hjartarson tefldi við
Júgóslavann Rungavina og lauk viðureign þeirra
einnig meðjafntefli.
GUÐMUNDUR G. ÞÓRARINSSON
hefur ákveðið að stefna Þjóðviljanum „fyrir róg, lygar
og ærumeiðingar" eins og segir í yfirlýsingu frá Guð-
mundi. Ástæða þessaerfrétt sem birtist í Þjóðviljanum
um meint skattsvik Þýsk-íslenska þar sem aðallega er
fjallað um að Guðmundur hafi verið stjórnarformaður
og annar framkvæmdastjóri félagsins og einn af
stærstu hluthöfum. Guðmundur segir að hann hafi selt
sinn hlut í félaginu um áramótin 1978-9 og hafi síðan
unnið í nokkra mánuði árið 1983 sem framkvæmda-
stjóri félagsins. Þetta hafi Þjóðviljinn vitað en meginmál
blaðsins virðist vera að koma höggi á pólitískan and -
stæðing.
HJA borgarfógetaembættinu fjölgaði lögræðis-
sviptingarmálum um tæpan helming á nýliðnu ári.
Alls voru 27 einstaklingar sviptir lögræði. Árið 1984
voru þeirfimmtán.
BORGARLEG hjónavígsla var ekki vinsæl
á árinu 1985. Verulega dró úr þeim vígslum sem
borgardómaraembættið í Reykjavík framkvæmdi.
Hjá embættinu fengust þær upplýsingar að tvennt
kæmi til. í fyrsta lagi færi það mikið eftir því hvað í
tísku væri hverju sinni, og einnig var gjaldið hækkað
um fimmtíu prósent í fyrra.
SOVESK dagblöð hafa að undanförnu birt
nokkur lesendabréf þar sem kvartað er yfir litlum upp-
lýsingum í fréttum fjölmiðla. Blöð reyni t.d. að halda
upplýsingum um náttúruhamfarir og stórslys leynd-
um fyrir almenningi sem varla geti talist merki um að
þau treysti fólki eins og sovésk blöð státa sig stund-
um af.
■ Tæplega 100 félagar í SÍNE tóku þátt ■ mótmælasetu í menntamálaráðuneytinu í gær og lögðu þar fram áskorun til Sverris Her-
mannssonar menntamálaráðherra um að hann falli frá fyrirhuguðum áformum sínum um skerðingu námslána. Námsmennirnir lýstu
ennfremur furðu sinni á reglugerð ráðherra frá 3. jan. um frystingu námslána gagnvart gengi íslcnsku krónunnar, minnugir orða hans
þegar hann gaf fyrirheit um að koma ekki aftan að námsmönnum í miðju námi, og harma þetta frumhlaup hans sein muni koma afar illa
við námsmcnn erlendis. Sjá ineira um lánasjóðsmálið í blaðinu. Tiniamynd: Ární Bjarna
Framleiðsluráöslögin reynast illa:
Framkvæmdin í
höndum óvaninga
- segir Gunnar Guðbjartsson framkvæmdastjóri
■ „Það er náttúrlega aldrei
hægt að fella dóm fyrr en
reynsla er fengin, en ég hef allt-
af verið vantrúaður á að nýju
Framleiðsluráðslögin muni
breyta miklu til bóta. Sérstak-
lega með tilliti til þess að fram-
kvæmdin er sett í hendur
manna sem ekki þekkja til. Það
er það sem ég hef gagnrýnt og
tel að hafi verið misráðið,"
sagði Gunnar Guðbjartsson
framkvæmdastjóri Fram-
leiðsluráðs landbúnaðarins í
samtali við Tímann í gær.
Talsverðrar gagnrýni hefur
orðið vart, meðal bændastétt-
arinnar, í garð nýju Fram-
leiðsluráðslaganna, sem tóku
gildi síðastliðiðsumar. Einung-
is lítill hluti laganna er kominn
til framkvæmda. Gagnrýnin
beinist fyrst og fremst að verð-
lagsákvörðunum sem nú eru í
höndum þriggja eða fjögurra
aðila í stað eins áður. Þá er
ntikil óvissa sem bændur búa
við, þar sem eru samningar um
skiptingu á því framleiðslu-
magni sem samið var um í
haust. Bráðabirgðasamkomu-
lag var gert, sem gildir til 28. fe-
brúar, en fyrir þann tíma verð-
ur nýtt samkomulag að liggja
fyrir.
Gunnar Guðbjartsson hefur
gagnrýnt hvernig verðlagning-
arvaldið hefur verið fært til
fjögurra aðila. Þá telur hann
óviðunandi það óvissuástand
sem bændur búa við, þar sem
bráðabirgðasamkomulagið er.
Verðlagningarvaldið er í
höndum Verðlagsnefndar bú-
vöru, sem ákveður verðið til
bænda. Fimm manna nefnd
undir forsæti verðlagsstjóra
ákveður heildsöluálagningu.
Verðlagsráð ákveður smásölu-
álagningu, og í fjórða lagi
■ Undanfarna daga hafa ver-
ið þó nokkrar vangaveltur í
fjölmiðlum um þreytu í stjórn-
arsamstarfinu og hugsanleg
stjórnarslit. Hefurþaraðallega
verið nefnt til að ágreiningsmál
stjórnarflokkanna verði sífellt
fleiri og alvarlegri, svo og að
kosningar til borgar- og sveitar-
stjórna í vor kunni einnig að
hafa áhrif á gang mála.
Vart hefur orðið við mikinn
óróa meðal félaga f Framsókn-
arflokknum vegna þess hvaða
aðferðir Sverrir Hermannsson
ákveður Landbúnaðarráðu-
neytið verðjöfnunargjöld sem
verða hluti af heildsöluverði.
„Þess hefur gætt í ákvarðana-
tökum í haust að samstarf er
ekki á milli þessara aðila, og
þeir þekkja ákaflega mismun-
andi til þeirra hluta sem þeir
fjalla um. Það hafa komið upp
árekstrar og ágreiningur milli
þessara aðila, um frantkvæmd-
menntamálaráðherra kaus að
viðhafa í sambandi við uppgjör
á Lánasjóði íslenskra náms-
manna. Þar við bætast eldri mál
þar sem framsóknarmenn telja
sig hafa orðið að lúta í lægra
haldi fyrir samstarfsaðilanum
t.d. varðandi vaxta- og hús-
næðismál. Ógerlegt er að full-
yrða hversu almenn og sterk
umrædd óánægja er innan
flokksins, en mörgum mun
finnast nóg komið.
Þá hermir heimild Tímans að
margir innan Sjálfstæðisflokks-
ina á lögunum," sagði Gunnar.
Sem dæmi um ágreining nefndi
Gunnar, að ákveðið var í haust
að fella niður heildsöluskrán-
ingu á hrossakjöti og kartöfl-
um. „Þessu hefur Framleiðslu-
ráð mótmælt harðlega, þarsent
ákvörðunin var að okkar dónti
ekki nægilega rökstudd."
- ES
ins geti vel hugsað sér til hrcyf-
ings að loknum borgar- og
sveitarstjórnarkosningum.
Þeir sem þar eiga hlut að máli
telji líklegt að Sjálfstæðisflokk-
urinn komi vel út úr kosningun-
um í Reykjavík og standi það-
an af sterkt í kosningunum til
Alþingis. Stór sigur Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík á
komandi vori sé því forsenda
og hugsanlega aflvaki brott-
hlaups úr stjórninni.
-SS
Sjálfstæðismenn bíða
kosningasigurs í vor