Tíminn - 09.01.1986, Blaðsíða 9

Tíminn - 09.01.1986, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 9. janúar 1986 lllillllllllllllllll bækur lllllll!l!ll!llllllllll!ll!llllllllllllllllllllll! Fyrsta íslandssagan Arnj’ríinur Jónsson: Cryniogæa. Þættir úr sögu íslands. Safn Sögufélags. Þýdd rit síðari alda 11111 ísland og ís- lcndinga. 2. bindi. Sögufclag Í985. 305 bls. ■ Crymogæa, íslendingasaga Arn- gríms Jónssonar lærða, kom fyrst út árið 1609, á latínu, cn hefur ekki birst á prenti áíslenskri tungufyrr en nú að Sögufélag gefur liana út í þýð- ingu dr. Jakobs Benediktssonar. Má það kallast vonum seinna. Enginn efi getur leikið á því, Cry- mogæa er eitt af höfuöritum ís- lenskra sagnfræðibókmennta, og gildir þá einu þótt hún uppfylli ekki þær kröfur, sent nú eru almennt gerðar til trúverðuglcika fræðirita. Allt um það er Crvmogæa fyrsta til- raun íslendings til þess að rita nokk- uð santfellda sögu þjóðarinnar frá elstu tíð og fram á sína daga. Mestu rúini ver Arngrímur þó til að fjalla um þjóðveldistímann, enda var til- gangur hans með sögurituninni ekki síst sá að sýna erlendum mönnum fram á, að íslendingar væru hlut- gengir Evrópumenn og að hér á landi hefði búið siðaö fólk um aldir. Crymogæa er ákaflega fróðlegt rit og veitir lesandanunt glögga innsýn í hugarheim lærðra manna á 17. öld. Hún stenst vitaskuld ekki þær kröl'ur, sem nú á dögum eru gerðar til sagnfræðirita, Arngrímur Jónsson var húmanisti að sinnar tíðar hætti, hann varekki gagnrýninn á heimild- ir, og í riti hanserað finnaýmis Itind- urvitni, sem engum manni myndi koma til hugar að setja á blað nú á dögum. Engu að síður geyntir ritið einnig ýmsan fróðleik, sent áhuga- vert gæti verið að kanna nánar, til að ■ Arngrímur Jónsson lærði. rnynda þótti undirrituðum fróðleg sú staðhæfing Arngríms að Papar þeir írskir, sem hér hefðu verið fyrir land- nám norrænna manna, hcfðu verið fiskimenn. Engum getur blandast hugur um að mikill fengur er að þessari útgáfu á Crymogæu. Eins og áður sagði hefur dr. Jakob Benediktsson þýtt ritið úr latínu, en Helgi Þorláksson sagn- fræðingur annaðist útgáfuna. Þeir hafa báðir unnið gott starf, og er all- ur frágangur ritsins með mestu ágæt- um. Að lokum vcröur sú von látin í Ijós, að hér sé aðeins um að ræða upphaf annars ntcira. Eins og mörg- um er kunnugt eigum við ísendingar mikinn fjársjóð rita frá 17. og 18. öld, sem samin voru á erlendunt tungum og hafa enn ekki verið útgef- in á íslensku. Þar ber trúlega hæst hina ntiklu kirkjusögu Finns biskups Jónssonar, sent rituð var á latínu. Það væri vissulega verðugt verkefni fyrir Sögutelag að stuðla að þýðingu hennar og útgáfu. Jón. Þ. Þór. Ljóð Einars Braga á ensku ■ Nýlega cr kornin út hjá bókafor- laginu Advent Books í Southampton ljóðabókin ..Night eyes and other poems" eftir Einar Braga. Louis A. Muinzer háskólakennari í Belfast hefur séð um útgáfuna, þýtt sunt ljóðanna og ritað formála um höf- undinn og Ijóðagerð hans. Aðrir þýðendur eru Patricia Aylett og Sig- uröur A Magnússon. I bókinni eru 30 Ijóö. Aöur hafa komiö út ljóðabækur eftir Einar Braga á frönsku (Étangs Clairs. þýðandi Régis Boyer), sænsku (Pilar af ljus. þýðandi Inge Knutsson) og norsku (Regn í mai, þýðandi Knut Ödegárd), en alls hafa Ijóð huns verið þýdd á 13 tungumál. Tíminn 9 Klæðaburður karla á öldum áður ■ Komið er út á vegum Ritsafns Sagnfræðistofnunar bókin Klæða- burður íslenskra karla á 16., 17. og 18. öld eftir Æsu Sigurðardóttur. í riti þessu er yfirlit yl'ir klæðaburð íslenskra karla í þrjár aldir. íslensk yfirstctt lylgdist með þeim breyting- um, sem urðu á klæðatísku evrópskrar hástéttar, og tileinkaði sér þær í mcginatriðum. Einkunt voru það embættismenn og synir þeirra sem fluttu evrópska tísku til Islands, en lágstéttirnar reyndu eftir getu að líkja eftir sniði og búnaði sem hrngað barst. Þjóðfélagslcga gegndi tískan því hlutverki að leggja áherslu á þann mannamun sem samfélagsgerðin byggðist á. í ritinu eru 20 ntyndir, þar af nokkrar litmyndir. 1986 verður spennandi ár hjá þeim sem spila í happdrætti SÍBS. Það hefur heldur betur færst fjör í leikinn. Vinningshlutfallið hefur verið aukið og aukavinningarnir fleiri og meiri en áður. Eitt hundrað og tíu milljónir króna verða í pottinum • - allt upp í 2 milljónir króna á einn miða. 'I Þess utan verður dregið um 3 aukavinninga -3 bifre.iðar: ÍSEPTEMBER ÍJÚNÍ ÍFEBRÚAR

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.