Tíminn - 01.02.1986, Blaðsíða 1

Tíminn - 01.02.1986, Blaðsíða 1
4. tbl. 2. árg. 1986 Hálsmenið hennar Hönnu Pabbi hennar Hönnu ferðaö- ist mikið vegna vinnu sinnar. Hvorki mömmu né Hönnu lík- aði það vel en í hvert skipti sem pabbi kom heim aftur færði hann Hönnu litla gjöf frá land- inu sem hann hafði heimsótt. Hann kom með litlar hand- málaðar trébrúður frá Rúss- landi. Brúðurnar var hægt að skrúfa í sundur í miðju og kom þá önnur brúða í Ijós inn í þeirri stærri. Þær voru alls 6 og sú síðasta var lang minnst. Frá Frakklandi kom hann með dúkku sem var klædd í þjóðbúning. Og þegar hann kom frá Svíþjóð færði hann Hönnu lítinn málaðan tréhest. Hann var útskorinn og rauð- litaður með blóm á baki. Dag nokkurn sagði pabbi við mömmu og Hönnu að hann þurfi að fara alla leið til Kína. „Hamingjan sæla!“ sagði Hanna. „Það er svo langt í burtu!“ „Já,“ sagði pabbi, „Kína er langt í burtu frá okkur.“ Pabbi náði í landabréfabók og sýndi Hönnu hvarKínavará kortinu. „Hvað ætlarðu að gefa mér frá Kína?“ spurði Hanna. „Ég veit það nú ekki ennþá, en það kemur í ljós.“ Pabbi var í burtu í nokkrar vikur, en að þeim tíma liðnum fékk mamma símskeyti og í því stóð að hann kæmi heim eftir þrjá daga. En hvað þessir þrír dagar voru lengi að líða. Loksins rann upp sú stund að tími var til kominn að fara út á flugvöll og sækja pabba. Hanna spurði pabba ekki um gjöfina út á velli en þegar heim kom tók pabbi Hönnu í fangið og kyssti hana á kinnina. „Þú hefurveriðgóð og dugleg stúlka á meðan ég var í burtu og hér eru smá verðlaun fyrir það!“ Pabbi tók lítinn pakka upp úr vasa sínum. Þegar Hanna tók lokið af kassanum var bara baðmullarhnoðri undir. En þar undir kom í Ijós eitthvað lítið og Ijóst. Það var agnar smár fíll með örsmáum hring á bakinu. í gegnum þennan hring var dregin skínandi gullkeðja. „Hvernig líkar þér gjöfin?“ spurði pabbi. „Mér fannst þú vera orðin það stór stúlka að þú hefðir gaman af fallegum skartgripum. Þessi litli fíll er úr fílabeini." „Mér finnst hann dásamlega fallegur," sagði Hanna. Hún bar oft fallega gullháls- menið með fílnum smáa. Og hann minnti hana alltaf á það þegar pabbi kom aftur heim frá Kína.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.