Tíminn - 28.02.1986, Side 3

Tíminn - 28.02.1986, Side 3
Föstudagur 28. febrúar 1986 Tíminn 3 Sauöárkrókur Hjúkrunarheim- ili fyrir aldraða í næsta mánuði verður tekinn í notkun hluti af hjúkrunar og elli- heimili við sjúkrahús Skagfirð- inga á Sauðárkróki, sem verið hefur í byggingu nú um nokkur ár. Hjúkrunardeildin með28 vist- rúmum er nú að verða fullbúin og er fyrirhugað að hún taki til starfa í byrjun ntars. Það er Sauðár- króksbær og Skagafjarðarsýsla sem standa að byggingunni. Þörfin er brýn fyrir slíka stofn- un og mikil eftirspurn er hjá öldr- uðu fólki að fá pláss á dvalar- heimilinu. Og frá einstaklingum og félögum Itefur komið nokkurt fc svo að flýta mætti að Inisin risu sem fyrst. En stofnurlin þarf mik- 'inn húsbúnað og stærsti hluti hans er sérhönnuð 25 sjúkrarúm sem samtals kosta kr. 2.020.705,00. Nú hefur Lionklúbbur Sauðár- króks tekið að sér aðgangast fyrir söfnun í því skvni að fjármagna rúmakaupin. í samráði við Búnaðarbankann ;í Sauðárkróki er boðið upp þrjá valkosti. 1. Skuldabréf til eins árs kr. 10- 25-50-100 þúsund. 2. Víxlar tveggja mánaða kr. 5-20 þusund. 5. Bein fjárlramlög. Klára eyfirskir bænd- ur kvótann í júlí? Tekjutap bænda á mjólkursam- lagssvæði KEA, sem nær yfir Eyja- fjarðarsýslu og 3 vestustu hrcppana í S-Þingeyjarsýslu nemur ríflega 23 milljónum króna á þessu ári. 20% búmarksskerðing á þessu svæði gcrir það að vcrkum, að margir bændur verða jafnvel búnir að fylla kvóta sinn í júlí. Hjá sláturhúsi KEA feng- ust þær upplýsingar að kúaslátrun væri þrefalt meiri það sem af er þessu ári cn á sama tíma í fyrra. og ekkert lát virtist á. Stóraukið framboð á kýrkjöti er því fyrirsjáanlegt, auk þess sem talsverðar birgðir eru til af ungnautakjöti. Guðmundur Steindórsson ráðu- nautur hjá Búnaðarsambandi Eyja- fjarðar sagði, að bændur væru að meta stöðuna. Það er crfitt að gera sparnaðarráðstafanir varðandi rekstur fyrir yfirstandandi ár. þar sem verðlagsárið er ríflega hálfnað. Búmarksskerðinguna. eða öllu heldur reglugerðina varðandi hana hefði þurft að liggja fyrir strax í sumar. svo bændur hefðu getað hagað heyskap og skepnuásetningi eftir henni. Fyrir komandi verðlagsár verða hins vegar eitthvað skýrari línur þ.a. bændur geta metið stöðuna og hagað seglum cftir vindi. Það liggur þó Ijóst fyrir, að miðað við þessa búmarksskcrð- ingu. og ef hún verður aukin enn frekar sem allt virðist stefna í. þá ber samlagssvæðið ekki alla þá fram- leiðendur sem nú cru fyrir hendi. Viðbrögð bænda við þessari bú- marksskerðingu verða sjálfsagt ein- staklingsbundin. Einhverjir munu eflaust skipta alfarið yfir í aðrar bú- greinar, og einstaka bóndi hyggst al- veg bregða búi. Það má náttúrlega benda á að fyrir nokkrum árum hvöttu mjólkursam- lögin og vfirvöld í landinu mjög til aukinnar mjólkurframleiðslu. Hins vegar hefur neysla á mjólk og rnjólk- urvörum dregist . stórlega saman undanfarin ár, í kjölfar minnkandi niðurgreiðslna. Auðvitað hefði þurft að gera ráðstafanir fyrr, en það cr alltaf hægt að vcra vitur eftirá, og crfitt að kenna cinum eða neinum al- gerlega um, sagði Guðmundur Steindórsson. Brúttóveltutap Mjólkursamlags KEA vegna skerðingarinnar er á bil- inu 30-35 milljónir króna, og af því runnu 70% eða 23.5 milljónir króna til bænda. Þórarinn Sveinsson mjólkurbús- stjóri sagði í samtali við Tímann að sér hcfði alltaf fundist vera byrjað á öfugunt enda í þeim efnum. Þ.e.a.s. að í stað þess að greiða niður full- unna vöru. ætti frekar að rcyna að draga úr framleiðslukostnaðinum. Sem dæmi mætti nefna að sam- kcppnisiðnaður við innlenda drykkj- arvörur greiðir mun lægri tolla og aðflutningsgjöld en mjólkursamlög- in afsamskonar vélum. Túnáburður, búvélar og aðrar rekstrarvörur sent bændur nota við framleiðslu sína eru einnig óheyrilcga dýrar. Þetta veltir auðvitað ntiklu á bak við tjöldin, en hækkar jafnframt framlciðslukostn- aðinn og um leið mjólkurverðið. Það hefur aldrei verið reynt til þrautar hvað gerðist ef framleiðslukostnaður yrði lækkaður, t.d. með tollalækkun- um og lægri aðflutningsgjöldum." Hins vegar hefur þetta vcrið reynt í öðrum EBE ríkjunt þar sem of- framboð er á landbúnaðarafurðum, og gefist vel. „Þegar nienn eru að tala um að gefa frjálsan innflutning á niður- grciddunt landbúnaðarafurðum ann- arra þjóða, held ég að þeir ættu að hyggja aðeins að vöruskiptajöfnuði, og því hvort þeir vilja fremur efla eigin atvinnuvegi eða annarra," sagði Þórarinn Sveinsson. Áhrif frjálsu álagningarinnar koma í Ijós: B0NDINN 2.187 KR.0G KAUPMAÐURINN 1.123 KR - fyrir hvert 14 kílóa lamb VIÐ BYGGJUMÁ REYNSLUNNI BYGGINGAVORUR SUOURLANDSBRAUT 32 S. 82033 Verð til bænda fyrir hvcrn I4 kílóa lambsskrokk hefur lækkað um 370 krónur (úr 2.557 í2.187 kr.) fráárinu 1982 til 1985 reiknað á föstu vcrðlagi í sept. sl. Hlutur kjötkaupmannanna fyrir að selja sama skrokk (smá- söluálagningin) hefur á sama tíma hækkað úr 512 kr. í 1.123. eða um 611 krónur, samkvæmt tölunt sem birtar voru á Alþingi í vikunni. unt verðþróun á kjöti þessi ár. Keniur þar glöggt í Ijós að smásöluálagningá kjöti hefur hækkað stórlega síðan verðlagning þess var gefin frjáls vor- ið 1984. þvcrt á það sem þá var Itald- ið fram. Hlutur kaupmannsins ntun þó í raun oft mun hærri en hércr reiknað með. þarsem þessi viðmiðun byggist á að lærin (um 5 kg ) séu seld heik hryggurinn (2 kg ) sömulciðis og allt hitt á súpukjötsverði. Neytendur vita að framhryggur er jafnvel seldur á hærra verði en læri og lærissneiðar og kótelettur á hærra verði en hcil læri og hryggir. Allar verðviðmiðanir hér að lram- an eru framreiknaðar samkvæmt vísitölu framfærslukostnaðar frá 1982 til verðlags í september 1985. Vcrðlækkun til bænda skýrist m.a. af því að þeir hafa á þessu límabili orð- ið að sæta kjararýrnun eins og aðrir launþega.r í landinu, m.a. afgreiðslu- fólk í kjötbúðum. Stórhækkuð smásöluálagning í raunkrónum get- ur því varla skrifast á hækkaðan launakostnað verslananna. Hámarksálagning er cnn við lýði á kjöti seldu í heilum og hálfum skrokkum. Smásöluálagning á þeint hefur aðeins hækkað um 9% á sama tíma og frjálsa smásöluálagningin hefur hækkað frá 37% og upp í 58% eins og sjá má á meðfylgjandi töflu. Þannig hefur hámarksálagning á heilum 14 kg skrokk aðeins hækkað úr 254 í 277 kr. á meðan frjálsa álagningin hefur hækkað úr 512 í 1.123 kr. sefn fyrr scgir. - HEI SMIÐIR- HÚSBYGGJENDUR Breytingar á verði 1. fl. dilkakjöts á föstu verðlagi, sept. 1985 Gr.v.t. bænda Heild- söluv. 'A og 'h skr. (álagn.) Súpu- kjöt (álagn.) Hrygg- ir (álagn.) Heil læri (álagn.) Sept. 82 182,67 157,71 175,77 (18,12) 160,83 ( 3,43) 227,40 ( 69,75) 227,40 ( 69,75) Sept. 83 155,59 168,57 185,85 (17,30) 171,87 ( 3,28) 235,25 ( 66,66) 235,25 ( 66,66) Sept. 84 154,84 181,85 199,07 (17,22) 191,34 ( 9,50) 257,41 ( 75,57) 287,51 (105,67) Sept. 85 156,21 197,70 217,50 (19,80) 221,35 (23,65) 310,43 (112,73) 344,12 (146,42) Br.kr. -t- 26,46 39,99 + 41,73 + (1,68) + 60,52 + (20,22) + 83,03 + (42,98) + 116,72 + (76,67) Br.% 4 14% 25% + 24% + 9% +38% + 589% + 37% + 62 + 51% + 110% Sinásöluálagning á hvert kíló aflæri hefnr liækkað úrtæpum 70 kr. upp í rúinar 146 kr. eins og hériná sjá íaftasta dálkn- um og er þar með orðin nær jafn há og það sem hóndinn fær fyrir kílóið, sbr. fremsta dálkinn. Ilækkun á heildsöluverði (25%) þrátt fyrir verðlækkun til bænda, er aðallega vegna lækkunar niðurgreiðslna um nær 60 kr. á kíló. Kjötkaupnicnn hafa ekki látið sér nægja að fá hlutfallslcga hækkun smásöluálagningar vegna þeirrar hækkunar, heldur liækkað sína ;álagningu allt upp í 110%. Er t.d. athyglisvert að sjá , að um og yfir lielmingiir þeirrar hækkunar sem orðið liefur á hryggjum (42,98 af 83,03 kr.) og læruni (76,67 al' 115,72 kr.) er vegna hækkunarásniásöluálagningu. Allar tölurcru hér á föstu verðlagi eins og það var í sept. 1985, og hækkanir því allar í raunkrónum.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.