Tíminn - 28.02.1986, Qupperneq 8
8 Tíminn
Föstudagur 28. febrúar 1986
VETTVANGUR
llllll!
llllllllll!
■II
Ásgeir Bjarnason á Búnaðarþingi:
Fjármálaráðherrar hafa
brotið lög á bændum
lJegíir ég líl til baku til þess tíma,
sem lagaheimildir l'engust til að
skipuleggja og draga úr búvöru-
framleiðslu, þá finnst mér ekki
allt hafa tekist sem skyldi. Skipu-
lagningin fór vcl af stað og fjöldinn
allur af bændum gcrði sitt besta í
því að aðlaga framleiðslu sína
breyttum aðstæðum. En ýmislegt
hefur orðið þcss valdundi að
bændastéttin stendur nú frammi
fyrir óvenjulcga vandasömum mál-
um sem ekki verður komist hjá að
leysa. Þar er ekki viö neinn einn að
sakast og ullra síst núverandi land-
búnaðarráðherra, því að hann tók
við uppsöfnuöum vandamálum,
sem lagasetningin 1979 dugði ekki
til að leysa.
Um lcið og draga skyldi úr fram-
leiðslu hefðbundinna búgrcina, átti
jafnframt að byggja upp nýjar bú-
grcinar, sem áttu að koma í
staðinn.
Alþingi hél fjármagni í þessa
uppbyggingu með breytingu á jarð-
ræktarlögum en viö þaö hefur ekki
verið staðið. Fjármálaráðherrarnir
sem stjórna fjármagni þjóðarinnar
hal'a á þessu tímabili brotið lög á
bænduni, þeir hafa alnumið mót-
framlag ríkis til Stofnlánadeildar
landbúnaðarins, framlag ríkis til
Bjargráðasjóðs ogaldrei staöiðskil
á öllu því fjármagni sem Fram-
lciðnisjóður átti að fá til að cflu nýj-
ar búgreinar. Síðan kórónuðu þeir
þetta verk við fjárlagaafgreiðslu í
vetur meö því að afnema framlag
ríkis vcgna foríallaþjónustu í land-
búnaði.
Þegar litiö er á þennan þátt
málsins, þá er ekki að undra þótt
uppbygging á nýjum búgreinum
hafi miðað hægar en efni stóðu til í
upphafi. Þeir eru færri en ella, sem
hafa breytt um í búskap, vegna
þcss að lánastoínanir þær sem áttu
að þjóna þessum brcytingum höfðu
hvorki nægjanlegt né ódýrt fjár-
magn til staðar.
Mér finnst þaö vera skylda ríkis-
ins að taka þátt í að leysa vandamál
bændastcttarinnar með því að skila
vangoldnum ríkis-framlögum.
Þrátt fyrir fjárhagsleg vandamál
hefur verið unnið markvisst að
framgangi þessara mála. Nýju
framleiðslulögin eru við það miðuð
að þau styrki í auknum mæli nýbú-
greinar og efli lciðbeiningar og ráð-
gjöf í sambandi við búháttabreyt-
ingar. Vonandi tckst að koma nýj-
um stoöum undir landbúnaðinn.
Þótt í bili veröi að takmarka hefð-
bundnar búgreinar, þá þýðir það
ekki að svo verði um alla framtíð.
Við framleiðum talsvert af dýr-
mætum landbúnaðarvörum. Hag-
stofa íslands telur verömæti þcirra
vera rúmir sex milljarðar króna
verðlagsárið ■ 1984-85. Mestur
hlutinn fer til innanlandsneysiu og
sparar því mikinn gjaldeyri. IJt
fluttar vörur frá landbúnaði námu
rúmlega tveimur miiljörðum
króna. Þar af eru útfluttar búvörur
á kr. 527,6 milljónir og iðnaðarvör-
ur fyrir rúmlcga einn og hálfan
milljarð króna.
Mesta aukningin varð í útflutt-
um refa- og minkaskinnum. Unn-
um ullarvörum og dún.
BÚVARA
UTFLUTNINGUR
1985
Kr. í þús.
1. Mjólkurafurðir. ostar, kascin . . . . 98.431,-
2. Kindakjöt og innmatur . 158.986,-
3.UII . 59.730,-
4. Gærur og húöir . 31.834,-
5. Hross, lifandi . II.131,-
h. Lax . 17.620,-
7. Dúnn . 3.3.788,-
8. Refa- ogminkaskinn . 71.504,-
9. Ýmislegt frá landbúnaði . 44.582,-
527.606,-
IÐNAÐARVÖRUR FRÁ LANDBÚNAÐI
1. Loðsútuð skinn og húðir . 320.506,-
2. Vörur úr loðskinnum . 47.257,-
3. Vörur úr ull-lopi og band . 168.935,-
4. Ullarteppi . 38.383,-
5. Prjónavörur úr ull . 892.113,-
6. Efni ofin úr ull . 36.572,-
7. Þang-ogþaramjöl . 28.973,-
1.532.739,-
Landbúnaðarafurðir kr. . Iðnaðarvörur frá ' . 527.606 -
landbúnaði 1.532.739,-
Allskr. 2.060.345,-
Á þessu scst að landbúnaðurinn
gegnir mikilvægu hlutverki fyrir
þjóð sem berst í bökkum gjaldeyr-
islega og fjarhagslega. Það kemur
sér að sjálfsögðu illa að geta ekki
selt meira úr landi. En á meðan að
ástandið í heiminum ereins og Nils
Valla forscti Bændasamtaka
Norðurlanda lýsti því á sl. sumri. Þá
er þess ckki að vænta á næstunni að
útflutningur geti orðið mikill.
SEINNI HLUTI
Hann sagði: „Það er hörmulegt og
ómennskt ástand að í auðugum
iðnaðarlöndum skuli menn þurfa
að draga saman matvælafram-
leiðslu, meðan milljónir manná í
þróunarríkjum þjást af næringar-
skorti og börn deyja úr hungri. Það
er alveg óskiljanlegt að ekki skuli
takast að finna leið út úr þessum
hrikalega vanda. Þó við framleið-
um matvöru megum við ekki láta
það hindra okkur í að segja skoðun
okkar á því ófremdarástandi sem
er í miðlun matvæla í heiminum."
Offramleiðsla matvæla annars
vcgar og hungursneyðin hins vegar
eru stórt vandamál í heiminum.
Viðskiptahættir þjóða á milli eru of
skammt á veg komnir til að leysa
vandamál sem þessi og frjáls sam-
keppni leysir ekki allan vanda.
Vaxtarmöguleikar í landbúnaði
eru miklir á ýmsum sviðum. Á það
má bcnda að loðdýraræktin gengur
vel og nam verðmæti hennar 152
milljónum króna á s.l. ári.
Fiskeldi eykst líka með hverju
ári og nýting hlunninda batnarstór-
um með ári hverju. Talið er að
nytjuð hlunnindi séu a.nr.k. 300
millj. króna virði.
Ferðamannaþjónusta á vegum
bænda fer vaxandi með ári hverju.
Þeim bændum fjölgar sem vilja
stunda þjónustu þessa. Tilvalið cr
fyrir þá bændur, sem eiga veiði-
hlunnindi, að stunda ferða-
mannaþjónustu. Sama máli gegnir
um þá, sem ætla að lifa af skógrækt.
í góðæri vex hér korn og var því sáð
í 450 ha. sl. sumar og rcyndist upp-
skeran vera með besta móti og
komst hún á Sámsstöðum í Fljóts-
hlíð upp í 3 lestir af ha. Grasfræ-
rækt var líka meiri en áður og nam
hún rúmum 4 lestum. Gras-
kögglaframlciðslan dróst aftur á
móti saman enda ekki allar verk-
smiðjur starfræktar.
Bændaskólarnir og Búvísinda-
dcildin á Hvanneyri miðar kennslu
sína nú meir en áður var við nýbú-
greinar, enda er mikil þörf á því þar
sem það vantar menn með þekk-
ingu í loðdýraeldi, fiskirækt og
hlunnindum. Það er nauðsynlegt
fyrir alla sem ætla sér að stunda bú-
skap að fara á bændaskóla. Bú-
skapur er það fjölþættur að útilok-
að er að starfa við hann án undir-
stöðuþekkingar í landbúnaði.
Garðyrkjuskóli rtkisins er braut-
ryðjandi í gróðurhúsarækt og al-
mennri garðyrkju. Hveraorkuna
má vafalaust nota miklu meira cn
nú er við ræktun jurta til manneldis
og til niargs annars.
Það hefur mikið verið rætt um fé-
lagskerfi landbúnaðarins á sl. ári og
mörg sérhagsmunafélög stofnuð til
að vinna að framgangi vissra mála.
Allt er þetta gott og blessað, ef
menn tapa ekki hcildaryfirsýn yfir
málin. Staða landbúnaðarins er
þannig í dag að okkur bændum
mun ekki veita af að standa saman
um málefni okkar og styrkja á þann
hátt það félagskerfi sem við höfum
okkur til framdráttar. Þeir eru
nógu margir utan stéttarinnar, sem
rcyna að kljúfa félagasamtökin í
smáeiningar, þar sem hver potar
fyrir sig svo smám saman tapast sá
kraftur sem heildin héfur í hendi
sér. Þaðeruekkiþeirþröskuldartil
í félagskerfi landbúnaðarins sem
standa í vcgi fyrir nauðsynlegum
breytingum. Ég minni á það að
Búnaðarfélag Islands er víðtækt og
hafði í upphafi alla þræði atvinnu-
vegarins í hendi sér, bæði til lands
og sjávar. En með sérhæfingu at-
vinnuveganna hefur orðið á þessu
brcyting. Félagskerfið er byggt
neðan frá af bændastéttinni og það
er það víðtækt að þar rúmast öll
þau verkefni, sem landbúnaði til-
heyra. (Mér t'innst það alltaf vera
að sannast betur og betur, að ýmsir
þættir landbúnaðar, sem áður
heyrðu undir Búnaðarfélagið en
eru nú sérstæðir hafa ekki heldur
náð því marki að verða nú stoð og
stytta íslcnskum landbúnaði sem
til var ætlast og þyrfti að vera). Við
skulum minnast þess, að „samein-
aðir stöndum vér cn sundraðir föll-
um vér."
Góðir þingfulltrúar.
Það eru mörg stór mál sem bíða
úrlausnar þessa þings. Þar ber
hæst brcytingar á þeirri grundvall-
arlöggjöf sem íslenskur landbún-
aður hefur byggst á til þessa. Jarð-
ræktarlög og búfjárræktarlög. Þau
hafa verið í endurskoðun og reynt
er að aðlaga þau breyttum aðstæð-
um í landbúnaði. Þá iiggur fyrir
þessu þingi að ræða og gera ályktun
um fyrirkomulag rannsókna og til-
rauna í landbúnaði. Frumvarp um
starfsréttindi í landbúnaöi ereitt af
málum þingsins, en það er nauð-
synlegra nú en áður að þeir sem
landbúnað stunda hafi þekkingu á
landbúnaði og þá ekki síst þeim
nýju búgreinum sem við þurfum að
efla meir en verið hefur. Mörg önn-
ur mál liggja fyrir þinginu m.a.
framhald á umræðum um félags-
kerfi landbúnaðarins, en þau mál
hafa verið í milliþinganefnd og
voru aðalmál á fundi formanna
búnaðarsambanda og fleiri hér í
Bændahöll í gær.
„Margs þarf búið með.“ Það
þekkja allir. Ef vel á að vera þá
vantar stórauknar leiðbeiningar í
landbúnaði, ekki síst á meðan að
miklar breytingar eiga sér stað,
eins og nú er fyrirhugað. Þótt tölv-
an komi að góðum notum þá vantar
búfróða mcnn með hagfræði þekk-
ingu til að leiðbeina bændum. Við
skulum vona að vel rætist úr með
vandamál landbúnaðarins og gera
okkar besta til að svo megi verða.
Góðir gestir.
Ég þakka ykkur komuna. Það er
mér og okkur öllum sem heyrum til
Búnaðarþingi og Búnaðarfélagi ís-
lands fagnaðarefni hve margir
heiðra Búnaðarþing með komu
sinni. Það sýnir að þeir eru margir
sem eiga sterkar rætur í sveitum
landsins.
Ég þakka sérstaklega forseta
íslands, frú Vigdísi Finnbogadótt-
ur fyrir komuna og þann heiður og
þá velvild sem forsetinn hefur jafn-
an sýnt Búnaðarþingi og bænda-
stéttinni. Innilegar þakkir.
Að endingu þakka ég meðstjórn-
endum mínum, búnaðarmála-
stjóra, ráðunautum og öðru starfs-
fólki Búnaðarfélags Islands gott
samstarf og vel unnin störf.
68. Búnaðarþing er sett.
llllllilllllllllll LESENDUR SKRIFA .illll lllllllllllllllllllHlllllll
„Hver veit hvað
Vilmundur getur?“
Þegar ég les bækur Vilmundar
landlæknis rifjast upp ýmsar
minningar og ummæli frá bernsku og
æskuárum í sambandi við hann. því
að orð fór af honum.
Vilmundur Jónsson varð héraðs-
læknir á ísafirði haustið 1917 að
loknu nokkru framhaldsnámi í Nor-
egi. Strax fór af honum frægðarorð
sem frábærum skurðlækni og þóttust
mcnn vera heppnir með lækni. „Það
grefur ekki í skurðunum hans Vil-
mundar," heyrði ég sagt í sambandi
við sjúkrasögu að sunnan. Því var
lagt að honum þegar hann fór utan í
framhaldsnám að áliðnu sumri 1918
að sleppa ekki héraðinu en koma aft-
ur til Isafjarðar. Tók hann því vel ef
bærinn kæmi upp nýju sjúkrahúsi og
munu hafa fallið góð orð um það. En
meðan hann var ytra mun hann hafa
fengið þær fréttir að dráttur yrði á
l'ramkvæmdum. Það lætur hann þó
fyrir engu standa en skrifar Guð-
brandi Magnússyni frænda sínum:
„Þegar ég er kominn vestur. bý ég
fyrst til nýja bæjarstjórn og síðan
nýjan spítala."
Þetta gerði hann og af því er mikil
saga.
Sumir minningaþættir Vilmundar
tengjast þcirri baráttu auk nokkurra
greina sem voru framlag í viðureign-
inni.
Ég var aldrei á stjórnmálafundi
þar sem Vilmundur Jónsson flutti
ræðu. En margt heyrði ég af því sagt.
Því trúi ég því að naumast eða alls
ekki hafi fundist jafnoki hans að ná
áhrifum á fjöldafundi. Og vel þykist
ég skilja í hverja gildru Sigurjón
Jónsson var leiddur á framboðsfund-
unt þegar Vilmundur hafði talað
langt á aðra klukkustund og hann
átti að tala jafn lengi. Vilmundurvar
bæði skemmtilegur og rökfastur og
gat verið hárbeittur. Mönnum þótti
gaman að hlusta á hann.
Stjórnmálabaráttan á ísafirði var
með fádæmum liörð og hafði svo ver-
ið allt frá dögum Skúla Thoroddsen.
Góðir læknar hafa löngum unnið sér
vinsældir og verið sterkir frambjóð-
endur. Framboð Vilmundar í bæjar-
stjórn hefur eflaust átt góðan þátt í
sigri Alþýðutlokksins. Andstæðing-
ar sögðu að Vilmundur gæfi fólki
læknishjálp til að fá atkvæði. 1 því
sambandi minnist ég orða Halldórs
Jónssonar í Tungu en hann var ör-
uggur Sjálfstæðismaður:
„Ekki þarf hann að gefa okkur í
Firðinum þess vegna."
„Þeir ætla sér að lifa á nýjum
bryggjum og nýjum spítölum," sagði
einn um ráðamenn Isafjarðarbæjar
1925. En sá meirihluti vissi að meira
þurfti til, enda þótt hafskipabryggja
og sjúkrahús væru lífsnauðsyn. Sam-
vinnufélag ísfirðinga var stofnað og
varð glæsilegt fyrirtæki undir stjórn
Finns Jónssonar.
Það er engin ástæða til aðgera lítið
úr mönnum eins og Haraldi Guð-
mundssyni og Finni Jónssyni. En sá
sem alþýðan treysti og trúði á öðrum
fremur var Vilmundur læknir. Guð-
mundur Jónsson, sem póstur var
árum saman milli ísafjarðar og
Hrafnseyrar, gisti stundum á Kirkju-
bóli. Einhverntíma þegar flestum
sýndist uggvænlegar blikur á lofti og
skuggalegar horfur kom í ljós örugg
bjartsýni hans í sambandi við
bæjarmál ísfirðinga. Víst voru erfið-
leikar framundan en þó var cngu að
kvíða. Öruggur sagði hann:
„Hver veit hvað Vilmundur
getur?"
Ég hef aldrei orðið vitni að slíkri
Vihmmdur Jónsson,
landlæknir.
trú á forustumann. En alltaf fannst
mér að Guðmundur póstur mælti þar
fyrir margra munn.
Það kennir margra grasa í safni
Vilmundar. Útgáfunnar hefur verið
myndarlega getið hér í blaðinu og
um það ætla ég mér ekki að bæta þó
ég telji rétt að minningar áhoríanda
úr nokkurri fjarlægð komi fram.
Vilmundur var ekki lengi á þingi
en hann átti verulegan hlut í heil-
brigðislöggjöfinni á fjórða tug aldar-
innar en þar voru merkileg nýmæli.
Hæst finnst mér að beri í þingsögu
hans að hann gekk af ölfrumvarpinu
1932 dauðu. Ræða hans um áhrif
öldrykkju á aðra áfengisneyslu er
birt í safninu eins og sjálfsagt var.
Það var Alþingi mikill sómi að það
lét sanfærast af rökum hans, en auð-
vitað hefði það ekki orðið nema
vegna þess að málið var skörulega
flutt og rökin óhrekjandi. En í fram-
haldi af þessari ræðu er það að við
höfum verið laus við áfengan bjór á
frjálsum markaöi síðan - meira en
hálfa öld. Það er vert að muna, - og
þakka.
H.Kr.