Tíminn - 08.06.1986, Side 14
14 Tíminn Laugardagur 7. maí 1986
listatíminn-listatíminn-listatínd
TENINGUNUM
ER KASTAÐ
Niðurlag umfjöllunar Haraldar Jóhannssonar um
Pablo Picasso og verk hans
73. Pablo Picasso 1908, Ijós-
mynd (stækka). Rubin, bls.
87.
„Villingarnir" höfðu svipaðan
áhuga á litlum afríkönskum
skurðmyndum sem Picasso á
fornum íberskum, en í stíl þeirra
hafði hann málað andlitsmynd
sína vorið 1907, fast á undan
„Ungfrúnum í Avignon."
(Mynd 58)
André Derain hafði áskotnast
lítil negrastytta 1904, og þess
var minnst, að litlu síðar hafði
Vlaminck vinur hans séð tvær
slíkar styttur á bar og keypt þær.
Pað mun þó hafa verið fyrir orð
Henri Matisse, að vorið 1907 fór
Picasso á Trocadero-safnið og
sá þar allmargar negrastyttur
undir gleri í sýningarborði.
Lengi voru honum í minni þær
hugrenningar, sem þær vöktu
hjá honum, þótt hálfa leið til
móts við þær hcfði hann gengið
í dálæti sínu á hinum íbersku.
Gagnstætt „villingunum" gekk
hann á vit þessarar frumstæðu
listar. Andlit tveggja „Ung-
frúnna í Avignon," yst til hægri,
mun hann hafa endurmálað með
afrikönsku svipmóti, (þótt
þrjátíu árum síðar kvæðist hann
ekki muna til þess). Og svo
hallar urðu my.ndir hans undir
frumstæða afríkanska list, að
næsta hálfa annað árið hefur
verið nefnt negraskeið hans,
(þótt Alfred H. Barr, jr. kalli
myndir hans 1908 for-kúbiskar).
Með honum máttu önnur áhrif
sín þó meira.
„Cezanne er faðir okkar
allra,“ sagði Matisse, og sýning
á 56 myndum hans í Salon
d’Automne í október 1907 var
Picasso og „villingunum“ mikill
viðburður. „Hyggja þarf að sí-
valningum, hringsviðum og keil-
um í náttúrunni," hafði Cezanne
skrifað Emile Bernard. Og á
hinum tíðu fundum þeirra um
veturinn mun Picasso hafa rætt
annað eins mikið við Braque og
Derain sem hugmyndir Cezanne
um grunnform náttúrunnar,
samspil forms og lita og of mikla
deyfingu lita í fjarvíddarskyni.
Vorið 1908 hélt Braque suður
til Miðjarðarhafsstrandar, til
L’Estaque, skammt undan Mar-
seille, þar sem Cezanne hafði
löngum málað. Picasso sat um
kyrrt í París fram í ágúst, að þau
Fernande fóru til La Rue de
■s.
68. „Kona (Fernande) og perur“, sumarið 1909, Rubin,
bls. 133.
Bois, lítils þorps, rétt við ána
Oise, um 60 km norðan Parísar.
í fyrsta sinn málaði hann þá
franskt landslag. Á þeim mynd-
um „er svo grunnt á baksviðinu,
að fletir þess og forsviðs
snertast, en tré, stígar og hús
verða hlutkennd." (Penrose,
72. Wilhelm Uhde, Ijósmynd,
Rubin, bls. 121.
Picasso, bls. 142).
Um eina þeirra hefur verið
sagt: „í „Landslagi með
mannverum", eins og mörgum
mynda hans 1908, er náttúruleg-
um formum umbreytt í horn-
hvassar blakkir. Formbundin
samhverfa í uppbyggingu, af-
staða mannvera til landslags,
eru sýnilega af klassiskum toga,
- ef til vill Poussins, saman-
dregnum í meginþætti að til-
sögn Cezanne.“ (Alfred H. Barr
jr. Picasso, bls. 62-63) (Mynd
59).
Haustið 1908 bauð Braque 6
landslagsmyndir frá l’Estaque
á haustsýninguna í Salon d’AUt-
omne. Komu þær dómnefndinni
á óvart, og hafnaði hún 2 þeirra.
Dró Braque þá hinar til baka.
Skærir litir „villinganna" voru á
brott úr þessum myndum hans,
og þær skiptust upp í reglulega
fleti. Matisse, sem sæti átti í
dómnefndinni, kallaði þá „litla
teninga“ („les petits cubes“). í
vetrarbyrjun hélt Kahnweiler
sýningu á landslagsmyndum
Braque frá sumrinu í söluskála
sínum. Gagnrýnandi, Louis
Vauxcelles, sem heyrt hafði orð
Matisse, sagði þær mótaðar af
„kúbisma.“ Var það heiti upp
tekið. Og er þessi sýning Braque
kölluð fyrsta kúbiska sýingin.
í París lauk Picasso við
„Landslag með brú“ og fleiri
myndir frá La Rue des Bois.
(Mynd 60). Og í nóvember, um
það leyti er hann hélt Henri
Rosseau samsæti, sneri hann sér
að „Þremur konum“ og lauk við
hana í janúar (Mynd 61). Meðal
mynda hans síðar um veturinn
voru „Ávextir í vasa“, (Mynd
62) . Um vorið málaði hann
„Konu með blævæng“ (Mynd
63) og andlitsmynd af Clovis
Sagotlistaverkasala. (Mynd64).
I maí 1909 fóru Picasso og
Fernande til Barcelona á fund
foreldra hans. Meðan þau
dvöldust þar, málaði hann and-
litsmynd af Manuel Pallare’s,
gamla skólafélaga sínum.
(Mynd 65). Um sumarið voru
j^au í Horta de San Juan, „þorpi
Pallares“, en þar hafði Picasso
mánuðum saman dvalist í boði
hans 1898. Gekk hann nú lengra
á þeirri braut, sem hann hafði
59. „Landslag meö mannver-
um“, sumariö 1908. Barr, bls.
62.
65. „Manuel Pallarés", sumar- 69. „Ambroise Vollard", voriö 1910, Rubin, bls. 138.
ið 1909, Rubin, bls. 129.