Tíminn - 08.06.1986, Blaðsíða 17
Sunnudagur 8. júní 1986
Tíminn 17
þyki einfaldlega of ungur fyrir
hlutverkið,“ segir hann. Meiri
möguleika ætti þá John James
frá Denver. Hann er þrítugur og
sonur plötusnúðs í New York og
þýskrar kvikmyndaklippinga-
konu. Hann þykir flest það
prýða sem James Bond þarfnast.
Einkum er hann kvennagull með
fádæmum: „Ég veit ekki hvers
vegna þær þyrpast svona um
mig,“ segir hann. „En auðvitað
hef ég ekki á móti því.“
En hinn dökkhærði John Jam-
es á sér keppinaut. Sá þykir hafa
til að bera hörku Steve McQu-
een og töfra Clark Gable. Mel
Gibson nefnist maðurinn. Hann
býr í Ástralíu og er þrítugur að
aldri og hefur getið sér frægð
sem söguhetjan í „Mad Max“
myndunum.
Ameríska tímaritið „People"
kaus hann kyntöfrafyllsta karl-
mann síðasta árs. En kannske
verður einmitt þessi frægð hans
til þess að hræða framleiðand-
ann frá honum. Pað eru and-
stæður í milli hins óttalega refsi-
engils sem Mad Max er og hins
fágaða og kæna njósnara Bond.
JOHN JAMES. Vinsæll hjá
kvenþjóöinni.
SEAN CONNERY.
„Allir geta
leikið þetta,“
segir hann.
MACCORKINDALE. Hann
lék moröingja í myndinni
„Dauðinn á Nil,“ sem gerð
var eftir sögu Agötu Christ-
ie.
JASON CONNERY, sonur
gaml^ Bond. Er hann of
ungur?
LEWIS COLLINS, hetja úr
sjónvarpsþáttaröðinni „The
Profis."
PIERCE BROSNAN. Kona
hans lék í Bond-kvikmynd-
inni „Deadly Mission."
MEL GIBSON, - stjarnan úr BRYAN BROWN. Kona
„Mad Max.“ hans, Rachel Ward lék í
„Þyrnifuglunum."
Pví er hér kannske komið hið
mikla tækifæri fyrir tvo lítt
þekkta leikara. Annar er Pierce
Brosnan, 32ja ára, en hinn er
Simon McCorkindale, 34 ára.
Báðir hafa þeir kynnst sjón-
varpsleik, þótt ekki hafi þeir
getið sér frægð á þeim vett-
vangi. Sama má segja um Bryan
Brown, 38 ára. Prátt fyrir það að
hann hefur leikið í all mörgum
myndum er hann einkum frægur
af afrekunr konu sinnar, Rachel
Ward, sem lék íÞyrnifuglunum.
Svo er sá möguleiki eftir að
Broccoli velji Englending í hlut-
verkið. Þá kæmi í stað þeirra
Sean Connery og Moore, Liver-
pool-leikarinn Lewis Collins, 39
ára, sem væri vel hæfur til að
berja á óvinum Hennar liátign-
ar, - auðvitað án þess að fá
sprungna vör, - en í því hefur
hann reynslu eftir leik í sjón-
varpsseríunni „The Profis“.
En meðan Broccoli athugar
málið lætur gamla Bond-
kempan, Sean Connery, sér fátt
um finnast:
„Hvcr sem getur gengið og
talað og sofið hjá kvenmanni,
ræður við þetta hlutverk,“ segir
hann. Oghannættiaðvitaþað.
GULUBETRI
Umsjón: Þórmundur Bergsson, Heimir Bergsson:
Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu:
Uruguaymenn stefna hátt
- Knattspyrnusérfræðingar telja Suður-Ameríkumeistarana til
alls líklega í Mexíkó - Enzo Francescoli er þeirra helsta stjarna
Nú er heimsmeistarakeppnin
í knattspyrnu hafin af krafti í
Mexíkó og óvenjuleg úrslit þeg-
ar farin að líta dagsins ljós.
Erfitt er að spá um hvaða lið
muni koma til með að heyja
úrslitaviðureignina sjálfa á Azt-
ecaleikvanginum í Mexíkóborg
þann 29. júni næstkomandi.
Stórveldi knattspyrnunnar,'
lið á borð við Brasilíu, Ítalíu og
Vestur-Þýskaland þykja líkleg
til þess ásamt einum sex til átta
öðrum knattspyrnuliðum sem
sýnt hafa klærnar í alþjóðlegum
keppnum og virðast vera í góðu
formi.
Eitt þessara liða er Uruguay
sem nú er Suður-Ameríkumeist-
ari í knattspyrnu og hefur bæði
yfir góðum leikmönnum að ráða
og snjöllum þjálfara.
Árangur Uruguaymanna í
upphitunarleikjum fyrir keppn-
ina var nokkuð góður tölulega
séð og ennþá betri hvað varðar
leikstíl og breytingu á honum. í
sigurleik gegn Pólverjum sýndi
liðið t.d. afar líkamlega sterkan
leik í fyrri hálfleik en skipti svo
algjörlega um aðferð í síðari
hálfleik þar sem aðaláherslan
var lögð á tækni.
Omar Borras landsliðsþjálfari
Uruguay segist vera ánægður
með leikstílsbreytingar liðsins.
Lið Uruguay. Efri röð f.v. Rodrigues, Guiterrez, Santin, Bossio,
Diogo, Pereyra. Neðri röð f.v. Ramos, Barrios, Francescoli,
Batista, Cabrera.
„I lokakeppninni þurfum við að
beita tveimur ólíkum leikað-
ferðum, knattspyrnuleikni gegn
þjóðum frá Evrópu en styrk
gegn öðrum þjóðum Suður-Am-
eríku,“ sagði hinn reyndi Borras
við fréttamenn nú fyrir skömmu.
Raunar hafa Uruguaymenn,
sem tvívegis hafa orðið heims-
meistarar, ekki ávallt byggt upp
á fallegum leik og eru þekktari
fyrir stranga mannvöldun og
harðar „tæklingar". Slíkan leik
munu þeir sem fylgjast með
keppninni sjálfsagt fá að sjá frá
Uruguaymönnum.
Hinsvegar ber því ekki að
neita að Uruguaymenn hafa nú
í liði sínu afburðaleikmenn sem
gætu átt eftir að gera stóra hluti
í keppninni í Mexíkó.
Enzo Francescoli, kallaður
„Prinsinn" af aðdáendum arg-
entíska liðsins River Plate sem
hann leikur með, er fremstur í
flokki margra ágætra knatt-
spyrnumanna Uruguayliðsins.
Raunar er Francescoli meira en
ágætur knattspyrnumaður.
Flestir knattspyrnuskýrendur í
Suður-Ameríku setja hann í
sama flokk og Argentínumann-
inn Diego Maradona, Frakkann
Michel Platini og Brasilíumann-
inn Zico. Slík er virðingin sem
borin er fyrir þessum 24 ára
gamla framherja sem kunnugir
segja hafa upp á eigin spýtur
fært River Plate argentíska
meistaratitilinn á síðasta ári.
Víst þykir að Francescoli
muni njóta góðrar aðstoðar fé-
laga síns í framlínunni Jorge Da
Enzo Francescoli gæti átt eftir að hreppa margan varnarmann-
inn í Mexíkó.
Silva sem leikur með spánska
liðinu Atletico Madrid. Hann
var markahæsti leikmaðurinn á
Spáni árið 1984 og þykir fljótur
að hugsa og framkvæma í víta-
teig andstæðinganna.
Borras þjálfari hefur einnig
valið menn í hóp sinn sem geta
leikið hinn hefðbundna fótbolta
þeirra Uruguaymanna af snilld.
Þar eru fremstir miðjumennirnir
Miguel Bossio sem leikur með
Penarol og sá reyndi Ruben Paz
sem leikur með brasilíska liðinu
Porto Alegre. Þeir tveir eru báðir
góðir í að vinna boltann og leika
honum auk þess sem þeir valda
vel á miðjunni.
Uruguaymenn hafa hingað til
ekki verið vanir að fá mörg
mörk á sig. Þeir halda boltanum
vel og breyta svo skyndilega um
hraða er nálgast vítateig and-
stæðinganna. Slík leikaðferð gæti
borið árangur í Mexíkó og það
er því ekki skrýtið að knatt-
spyrnuskýrendur telji Uruguay-
menn með eitt sigurstrangleg-
asta lið keppninnar.
Uruguay á þó við ramman
reip að draga í undanriðli úrslit-
anna þar sem liðið mætir V-
Þjóðverjum, Dönum og
Skotum. Islenskir knattspyrnu-
aðdáendur geta líklega dæmt
styrkleika liðsins af þessum
leikjum. Spurningin er að sjálf-
sögðu: Eru Uruguaymenn líkleg-
ir til að vinna heimsmeistaratitil-
inn þriðja skiptið í röð?