Tíminn - 17.07.1986, Qupperneq 4
4 Tíminn
Barrv McGuigan er mikið
átrúnaðarKuð ianda sinna og
hans „heiniavöllur“ er í
Belfast.
Boxarastjarnan Barry McGuigan
er eftirsóttur í ýmis viröingaremb-
ætti. M.a. var hann í dómnefndinni
sem komst að þeirri niöurstöðu aö
Hólmfríöur okkar Karlsdóttir væri
fcgursta stúlka heims 1985.
Barry er rnikill fjölskyldumaöur. Hér er hann með konu sinni og börnum og er alsæll í þeim félagsskap.
Löggaá
stolnu hjóli
á hnefaleikum og fljótlega gerði
hann sér grein fyrir því að hnefa-
leikar eru það sem hann vildi
leggja fyrir sig. Fjölskyldan studdi
hann með ráöum og dáð, en móðir
hans var samt ekkert æst í að
hvetja liann til að gera scr þessa
íþrótt að atvinnu. Þar til hann varð
fyrir því mikla óláni 1982 að slá í
rot nígeríska hnefaleikarann
Alima Mustapha, sem stðar dó af
völdum þeirra áverka. Þá missti
Barry kjarkinn, en fjölskyldan var
þá samtaka um að telja kjarkinn í
Barry á ný, nú væri kontiö að því
að sýna hvað í honum býr, bæði í
blíðu og stríöu.
Það má líka til sanns vegar færa
að fjárhagsávinningurinn af því að
hafa hnefaleika að atvinnu sé tals-
verður. Lágmarksþóknun í heims-
meistarakeppninni var t.d. 400.000
ensk sterlingspund og talsvert
meira mun hafa komið í hlut
sigurvegarans.
Hjá lögreglunni í Memphis í
Tennessee eru ýmsar sparnaðarað-
gerðir í gangi, eins og víða annars
staðar. M.a. eru lögregluþjónun-
um fengin til afnota í starfi hjól
sem fundist hafa á förnum vegi og
lent í vörslu lögreglunnar.
Þetta hefur yfirleitt gefist bara
vel og ekki þarf að láta sér annað
detta í hug en að þetta hafi sparað
stórar fjárhæðir í rekstri lögregl-
unnar. Þó varð einn lögregluþjónn-
inn fyrir því óhappi ekki alls fyrir
löngu að lenda beint í flasið á
hjóleiganda, sem hafði tilkynnt að
hjólinu sínu hefði verið stolið. Og
viti menn, sér hann ekki þarna
hjólið sitt undir rassinum á lög-
regluþjóni í embættiserindum!
Að sjálfsögðu hringdi hjól-
eigandinn í lögregluna og tilkynnti
að ekki væri nóg með að hjólinu
hans hefði verið stolið, það væri
sjálf lögreglan sem þar hefði verið
að verki!
Boxarinn
Barry
McGuigan
Katie McGuigan hefur mikla trú á
syni sínuin. „Enginn gctur slegiö
Barry minn út, vegna þess aö hlóö
mitt rcnnur í æöuin hans,“ scgir hún
stolt.
Mánudaginn 23. júní fór fram í
Las Vegas í Bandaríkjunum
hcimsmeistarakeppni í hnefaleik-
um og þar féll það í hlut írska
hncfaleikakappans Barry MeGuig-
an aö verja hcimsmcistaratitil sinn
í fjaðurvikt. Síðustu fregnirherma
að liann hafi orðið að lúta í lægra
haldi í þetta sinn.
En Barry McGuigan gegnir í
rauninni stærra og meira hlutverki
í tiugum landa sinna en svo ;iö citt
tap boði heimscndi. Hann er ckki
nema 25 ára gamall en hefur á
undanförnum árum afrekað það
hvað eftir annað að sameina hina
sundruðu landa sína, þ.e.a.s. á
mcðan hann er að undirbúa sig
undir keppni og hún stendur yfir.
Þá ríkir nokkurs konar vopnahlé
með írskum óeirðaseggjum, sem
að vísu er úr sögunni jafnskjótt og
keppni er lokið!
Barry er fæddur og uppalinn í
Cloncs, þorpi í Monaghansýslu,
rétt á landamærum Norður-írlands
og (rska lýðveldisins. Hann á að
stóra og samhenta kaþólska fjöl-
skyldu, en þegar hann á unga aldri
kynntist mótmælendatrúar stúlk-
unni Söndru, sem haldin var sama
ódrcpandi áhuganum á hnefaleik-
um og hann (að vísu lætur hún sér
nægja að horfa á), var enginn að
velta fyrir sér mismunandi trúar-
brögðum fjölskyldnanna. Reyndar
eru fjölskyldur þeirra beggja ger-
samlega lausar við þaö trúar-
ofstæki. sem gerir íra mest áber-
andi í fréttum. Þau ciga saman
tveggja ára son og dóttur á fyrsta
ári.
Móðir Barrys segir að það sé
langt síðan hann fór að sýna áhuga
Fimmtudagur 17. júlí 1986
ÚTLÖND
FRÉTTAYFIRUT
pAR|S — Franska hægri-
stjórnin tilkynnti að hún ætlaði
sér að koma áætlunum um
sölu 65 ríkisfyrirtækja til einka-
aðila i gegnum þingið. Tilkynn-
ing þessi fylgdi í kjölfar yfirlýs-
ingar Francois Mitterrand for-
seta um að hann myndi ekki
skrifa undir tilskipunina um
sölu ríkisfyrirtækja sem stjórn-
in hafði í hyggju að leggja fyrir
hann.
STOKKHÓLMUR - Full-
trúar Varsjárbandalagsríkj-
anna á afvopnunarráðstefnu
Evróþu, sem haldin er í Stokk-
hólmi, tilkynntu um mikilvægar
tilslakanir af þeirra hálfu. Vest-
rænir stjórnarerindrekar sögðu
tilslakanir þessar auka veru-
lega líkurnar á því að viðræð-
urnar yrðu árangursríkar.
BONN — Fulltrúi austur-
þýska sendiráðsins í Bonn
sagði mikilsmetinn austur-
þýskan vísindamann dveljast í
sendiráðinu. Austur-þýsk
stjórnvöld saka vestur-þýsku
leyniþjónustuna um að hafa
rænt manninum sem síðan á
að hafa tekist að flýja í sendi-
ráðið. Stjórnvöld í Vestur-
Þýskalandi hafa neitað þess-
um ásökunum og segja mann-
inn vera austur-þýskan njósn-
ara sem beðist hafði hælis í
V-Þýskalandi en líklega snúist
hugur.
MOSKVA — Sovésku geim-
fararnir Leonid Kizim og Vla-
dimir Solovyov sneru aftur til
jarðar eftir 125 daga veru í
geimnum.
LUNDÚNIR — Samkvæmt
heimildum innan stjórnmála-
heimsins reyndu háttsettir ráð-
herrar í ríkisstjórn Margrétar
Thatchers að fá hana til að
gefa eftir í afstöðu sinni til
málefna Suður-Afríku til að
forðast ósætti milli hennar og
Elísabetar drottningar.
BEIRUT — Vopnaðir menn
rændu manni frá Saudi Arabíu
í Vestur-Beirút í gær og var
strax hafin mikil leit að hálfu
líbanskra og sýrlenskra her-
sveita sem reynt hafa að halda
friðinn í þessum múslimahluta
borgarinnar.
NÝJA DELHI - Lögregla
skaut táragasi til að sundra
mannfjölda er hugðist kveikja í
verslunum í borginni Ahmeda-
bad. Að minnsta kosti 54
manns hafa látið lífið í átökum
múslima og hindúa í héraðinu
Gujarat og hafa átökin veriö
illvígust í Ahmedabad.
GENF — Sovésk stjórnvöld
hafa í hyggju að halda áfram
að láta reisa samskonar
kjarnaofna og þann sem brann
i kjarnorkuverinu i Tsjernóbíl.
Þetta var haft eftir sovéskum
sérfræðingi.
TOKYO — Dollarinn var
skráður á 158 yen í Tokyo,
lægsta gengi hans gagnvart
jaþanska yeninu til þessa að
sögn höndlara.