Tíminn - 02.10.1986, Síða 1

Tíminn - 02.10.1986, Síða 1
SFJALDHAGI allar upplýsingar á einum stao SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF. ISTUTTU MALI... FORSÆTISRÁÐHERRA hefur frestaö ferö sinni til Svíþjóðar sem hefjast átti 7. október vegna leiðtogafundarins í Reykjavík síöar í vikunni. Ingvar Carlsson forsætisráð- herra Svíþjóðar hefur orðið við þeirri beiðni Steingríms Hermannssonar að opinberri heimsókn verði frestað um óákveðinn tíma. BISKUP hefur sent prestum landsins tilmæli um að þeir biðji fyrir því í kirkjubæn við guðsþjónustur á sunnudaginn að viðræður leiðtoga stórveldanna leiði til friðar í heiminum. Ennfremur hefur biskup ákveðið að kalla saman Kirkjuþing 11. nóvember og verður það haldið i Bústaðakirkju. NEYTENDASAMTÖKIN og Félag íslenskra iðnrekenda hafa orðið sammála um að gera hlutlausa úttekt á innihaldsmerkingum á innlend- um og erlendum matvælum og efna- vörum. M.a. verður kannað hvort hér séu á boðstólum matvæli og efni sem uppfylla ekki kröfur heilbrigðisyfirvalda um innihald og ítarleg úttekt gerð á innihaldsmerkingum vara og faglegur samanburður gerður á gæðum vara sem neytendum er boðið upp á. ARNARFLUG hefur ráðið Kristin Sigtryagsson framkvæmda- stjóra frá og með 1. janúar n.k. en fram ao þeim tíma gegnir \ Agnar Friðriksson áfram starfinu. Krist- innerlöggilturendur- skoðandi frá 1970 en hafði frá árinu 1963 starfað hjá Endur- skoðendum N. Manscher og hefur frá 1970 verið með- eigandi og fram- kvæmdastjóri fyrir- tækisins. HLAÐVARPINN hefur hafiö sölu á 2. flokki happdrættis sem kallað er Lukkupottur Hlaövarpans. I pottin- um eru 1000 miðar og kostar hver miði 1000 krónur. Vinningurinn er síðan bifreið á krónur 450 þúsund. SVALA THORLACIUS var kosin maður mánaðarins á Rás 2 i gær og af því tilefni verður hún í viðtali hjá Rás 2 fyrir hádegi. Þetta er í fyrsta sinn sem kona er valin maður mánaðarins á Rás 2. Hingað til hafa það verið stjórnmálamenn eða íþrótta- hetjur, hvorutveggja karlkyns, sem valdir hafa verið, en Svala hefur verið mikið í sviðsljósinu að undanförnu sem lögfræðingur foreldra í Reykjavík, vegna nauðgunar sonar þeirra. GEORG ADAMS tenórsaxó- fónleikari og Don Pullen píanóleikari koma hingað til lands, í boði Jassvakn- ingar, með kvartett sinn. Þeir leika á tónleikum í Gamla biói þann 16. október. Aðrir meðlimir kvartettsins eru Dannie Richmond og Lonnie Plax- ico. Kvartettinn hefur áður komið til íslands. Það var árið 1979 en þá léku þeirfélagar í Austurbæjarbíói. TILFÆRSLUR í utanríkisþjónust- unni hafa verið ákveðnar. Einar Ben- ediktsson tekur við embætti sendi- herra í Brussel þann fyrsta nóvember. Þá mun Ólafur Egilsson, skrifstofustjóri utanríkisráðuneytisins, taka við em- bætti sendiherra í London þann fyrsta nóvember. KRUMMI ...ætli það vilji ekki einhverjir nú flensa í Daniloff... ■HHHMHMHnraHMMMMHBHHBHi Ný spá Seölabankans: Hitnar við rauða strikið - Verðbólgan 2-2,5% meiri en áöur var spáð „Rauða strikið" á enn eftir að gefa sig þann 1. des. nk. og valda þá einhverri launahækkun umfram kjarasamninga, að því er fram kemur í forsendum nýrrar spár Seðlabankans um þróun helstu verðlagsvísitalnanna þriggja. í spánni reiknar Seðlabankinn með að vísitölurnar hækki um eða rúm- lega 2% meira frá ársbyrjun til ársloka en gert var ráð fyrir í spá þeirri sem gerð var eftir kjarasamn- ingana í febrúar sl. Þannig er nú reiknað með að framfærsluvísitalan muni hækka um 9,9% í stað 8% (jan-jan.), byggingarvísitalan um 14,3% ístað 11,9% og lánskjaravísitalan um 13,2% í stað 10,9% í spánni í vor. Ástæður þessa eru einkum sagð- ar tvær. f fyrsta lagi sé nú gert ráð fyrir að kauptaxtar hækki um 25% í stað 20,5% í fyrri spá. Munurinn sé annars vegar vegna sérstakra hækkana vegna rauðu strikanna og hins vegar vegna sérkjarasamning- anna að undanförnu. í öðru lagi hafi gengissig orðið meira en reikn- að var með. Þannig hafi verð erlendra gjaldmiðla hækkað um rúm 3% að meðaltali frá maílokum til miðs september. Á móti korni meiri lækkun innflutningsverðs í erlendri mynt, en reiknað var með í spánni í vor. Helstu forsendur þessarar nýju spár - auk kjarasamninga og rauðra strika - eru að gengið verði óbreytt til áramóta og að einhver umframhækkun verði á launum 1. desember vegna rauða striksins, sem fyrr greinir. - HEI Boltinn í„röngu“ marki! Juventus sigraði Val með 4 mörkum gegn engu í síðari leik liðanna í Evrópukeppni meist- araliða á Laugardalsvelli í gærkvöld. Sigur Juventus var óþarflega stór miðað við gang leiksins en það voru leikmenn Juventus sem nýttu sín færi, Vals- menn ekki. Á mynd Péturs sést þriðja mark Juventus sem Laudrup skoraði í fyrri hálfleik. Hann snýr baki að markinu, hef- ur þegar hlaupið af stað til að fagna. Iimamv n(t-rt‘(iir Líkur benda nú til að bandaríski blaðamaðurinn Nicholas Daniloff, sem var í haldi í Sovétríkjunum ákærður fyrir njósnir, muni koma til Reykjavíkur til þess að fylgjast með fundi þeirra Gorbatsjovs og Reagans. Þegar Daniloff mætti til starfa á ný á ritstjórn tímaritsins síns „US News and World Report" í gær, var honum fagnað sem hetju af starfsbræðrum sínum. Við það tækifæri sagði Daniloff, að hann vildi gera það að sínu fyrsta verk- efni að fara til Reykjavíkur og fylgjast með leiðtogafundinum fyr- ir tímaritið. Tíminn hafði samband við ritstjórn tímaritsins í Washing- ton í gær og sagði fulltrúi Davids Gergens fréttaritstjóra, að stefnt væri að því að senda Daniloff til íslands. „Við vonum að Nick geti farið, en við erunt enn að vinna í því að útvega nauðsynleg leyfi fyrir hann og það er ekki í okkar valdi að ganga frá þeirn. Hins vegar má reikna með að við vitum um þetta í vikulokin," sagði fulltrúinn. Tíminn reyndi árangurslaust að ná tali af Daniloff í gærkvöld. en hann gerði aðeins stuttan stans á rit- stjórn tímaritsins áður en hann fór í móttöku í Hvíta húsinu. Fréttamaður Tímans í London fékk hins vegar þau svör í Lund- únaskrifstofu „US News“ að sá maður sem væri í aðstöðu til að vita um þetta þar, segði að Daniloff myndi fara til íslands. Almennt telja fréttaskýrendur að Reagan Bandaríkjaforseti og Gorbatsjov leiðtogi sovéska kommúnistaflokksins hafi valið ís- land sem fundarstað a.m.k. að hluta til vegna þess, að talið er ólíklegt að hér muni koma til and-sovéskra mótmæla sem gætu komið Gorbatsjov t' óþægilega að- stöðu, en slíkt gæti hafa komið upp t.d. í London eða Bandaríkjunum. Hins vegar er Ijóst að ef Daniloff kemur til Reykjavíkur gæti það skapað mjög óþægilega stöðu fyrir Gorbatsjov, sem hefur lýst því yfir að Daniloff-málið hafi verið notað af bandarískum stjórnvöldum til þess eins að spilla fyrir samskiptum Bandaríkjanna og Sovétríkjanna. Gorbatsjov sagði m.a. í lok síðasta mánaðar að „Bandaríkin tækju málstað njósnara sem gripinn hafi Blaðamaðurínn umdeildi Nicholas DanilofT. verið glóðvolgur við njósnastarf- semi.“ Þá getur nærvera Daniloffs ekki síður valdið Reagan Bandaríkja- forscta vandræðum, því miklu tnáli getur skipt hvernig Reagan brcgst við ef blaðamaðurinn Daniloff ger- ir tilraun til að taka viðtal við Reagan eða einfaldlega að spyrja hann nokkurra spurninga. í við- kvæmum viðræöum leiðtoganna gæti of „hlýlegt" viðmót Rcagans gagnvart Daniloff augljóslega kælt viðmót Gorbatsjovs í þcssum við- ræðum. Því má ljóst vcra að Dani- loff málið er ckki úr sögunni, heldur hcfur það nú tekið nýja stefnu. _ BG/D. Keys Verður óvæntur gestur viöstaddur toppfundinn í Reykjavík? Daniloff kemur sem blaðamaður - fái hann tilskilin leyfi. -Vonum aö hann geti farið, segir US News and World Report

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.