Tíminn - 22.10.1986, Qupperneq 10
10 Tíminn
llllllllllllilllllllllllllll ÍÞRÓTTÍR
Miövikudagur 22. október 1986
Úrvalsdeildin í körfuknattleik:
KR vann Keflavík
- mikil spenna í seinni hálfleik
Allan síðari hálflcik lá mikil
spenna í loftinu í leik KR og ÍBK
í Hagaskóla í gærkvöld, KR-ingar
voru yfir í hálfleik 36-27 en en
alltaf virtist sem Keflvíkingar væru
að ná yfirhöndinni. Ekki fór það
svo, í hvert skipti sem Keflvíkingar
nálguðust stigatölu KR-inga tókst
KR-ingum að ná knettinum eða
Keflvíkingar skutu mishéppnuðu
skoti og bilið breikkaði aftur.
Minnstur varð munurinn þrjú stig
tvisvar í síðari hálfleik, fyrst 48-45
þegar um 11 mínútur voru eftir og
aftur 62-59 rúmum þremur mínút-
um fyrir leikslok.
í fyrri hálfleik var hittni Keflvík-
inga fremur slök og einnig áttu
KR-ingar mun fleiri fráköst. Þá var
vörn KR góð.
I síðari hálfleik var vörn Keflvík-
inga sterk, þeim tókst hvað eftir
annað að ná knettinum af KR-ing-
um eftir góða pressu. En það virtist
ekki duga til, KR-ingar brutu þá
niður jafn harðan, t.d. þegar stað-
an var 48-45 voru Keflvíkingar í
sókn, Ólafur Gottskálksson komst
í færi undir körfunni en fékk
dæmdan á sig ruðning og KR-ing-
ar brunuðu í sókn. Ástþór Ingason
svaraði strax með þriggja stiga
körfu og eftir að næsta sókn Kefl-
víkinga rann cinnig út í sandinn
skoruðu KR-ingar aftur. Keflvík-
ingum tókst að minnka muninn um
tvö stig en Ólafur Guðmundsson
sá fyrir því, skoraði strax þriggja
stiga körfu.
I liði KR-inga voru Guðni
Guðnason og Garðar Jóhannsson
sterkir en aðrir leikmenn stóðu sig
einnig vel, t.d. Ástþór og Þor-
steinn.
Hjá Keflvíkingum var Guðjón
Skúlason atkvæðamikill og Gylfi
Þorkelsson stóð sig einnig vel.
Athygli vakti að Jón Kr. Gíslason
skoraði ekki eitt einasta stig í fyrri
hálfleik þrátt fyrir nokkrar tilraun-
ir.
Stig KR-inga skoruöu: Guðni Guðnason
21, Garðar Jóhannsson 14, Astþór Inga-
son 9, Matthias Einarsson 8, Ólafur Guð-
mundsson 6, Guðmundur Jóhannsson 4,
Þorsteinn Gunnarsson og Skúli Thorar-
ensen 2 hvor.
Fyrir Keflvikinga skoraði Guðjón Skúla-
son mest, 17 stig, Gylfi Þorkelsson skor-
aöi 14, Sigurður Ingimundarson 8, Jón Kr.
Gíslason 7, Ólafur Gottskálksson og Hre-
inn Þorkelsson 6 hvor og Falur Harðarson
og Matti Ó. Stefánsson 2 hvor.
Dómarar voru Kristinn Albertsson og
Jóhann Dagur Björnsson og dæmdu þeir
þokkalega.
Hreinn Þorkelsson stekkur upp og nær frákasti. Guðni Guðnason gerir sitt besta til að komast í tæri við knöttinn.
Tímamynd Sverrir
Getraunir:
Sextíu með tólf rétta:
Það er ýmist í ökla eða eyra hjá Getraunum, lengi vel tókst engum að
fá tólf rétta en í 9. leikviku voru alls 60 raðir með 12 réttum. Vinningur
fyrir hverja röð er kr. 17.190.- Með 11 rétta voru 1.083 raðir og er
vinningur þar 408 krónur.
Samtals seldust 614.007 raðir og hcildarvinningsupphæð var kr.
1.473.616,-
Bylgjan stökk á toppinn í fjölmiðlagetrauninni, var með 10 rétta eða
samtals 28 eftir 4 vikur. Morgunblaðið og DV eru með 26 rétta, Dagur
og Ríkisútvarpið 25, Tíminn 19 og Þjóðviljinn 18.
Spáin þessa vikuna lítur svona út. c LEIKVIKA10 E Leikir 25. október 1986 M.bl. > Q > *o o £L Dagur > o Bylgjan
1. Arsenal-Chelsea 1 1 1 1 X 1 1
2. Aston Villa-Newcastle X 1 1 1 1 1 X
3. Everton-Watford 1 1 1 1 1 1 1
4. Leicester-Southampton 1 X 1 1 2 X 1
5. Luton-Liverpool 2 2 2 X 2 2 2
6. Man. City-Man. United X X 2 2 X X 2
7. Oxford-Nott’m Forest 2 2 2 2 2 2 1
8. Q.P.R.-Tottenham 2 X X 2 2 1 2
9. Sheffield Wed.-Coventry 1 1 1 1 1 1 1
10. West Ham-Charlton 1 1 1 1 1 1 1
11. Wimbledon-Norwich 2 2 2 2 X 2 2
12. Sunderland-Birmingham 1 1 1 1 2 1 1
Evrópukeppnin í knattspyrnu:
Stórleikur í Madrid
Heil umferð verður leikin í
Evrópukeppnum félagsliða í knatt-
Michel Platini.
Staðan í
úrvalsdeildinni
Eftir leikinn í gærkvöld er staðan
þannig í úrvalsdeildinni að Vals-
menn eru enn efstir með 4 stig,
Njarðvíkingar koma næstir og þá
Haukar en bæði þessi lið hafa einnig
fjögur stig.
Keflvíkingar eru í fjórða sæti með
tvö stig sem fyrr en KR-ingar hafa
einnig tvö stig í fimmta sæti. Framar-
ar reka síðan lestina með ekkert stig.
Eina breytingin eftir lcikinn í
gærkvöld er sú að KR-ingar færast
uppfyrir Framara.
Handknattleikur:
Heil umferð í kvöld
í kvöld verður heil umferð í
handboltanum, 1. deild karla. KA
og KR keppa á Akureyri, Stjarnan
og FH í Digranesi, Haukar og
Breiðablik í Hafnarfirði og Víking-
ur og Ármann í Laugardalshöll.
Allir þcssir leikir hefjast kl. 20. Þá
keppa Fram og Valur í Laugardais-
höll og hefst sá leikur kl. 21.15.
Víkingar hafa forystu í l.deild,
hafa sigrað í báðum sínum leikjum
og eru með 4 stig. Stjarnan, Fram
og Breiðablik eru með 2 stig eftir
einn leik og Valur, KA og Haukar
með 2 stig eftir 2 leiki. KR, FH og
Ármann hafa enn ekki hlotið stig,
KR eftir einn leik en FH og
Ármann eftir 2.
Kvennalandsliðið til Spánar
Islenska kvennalandsliðið í hand-
knattleik leikur í C Heimsmeistara-
keppninni á Spáni dagana 31. okt-
óber til 9. nóvember. íslenska liðið
er í riðli með Dönum, Portúgölum,
Finnum og Austurríkismönnum.
Hilmar Björnsson landsliðsþjálf-
ari sagði í spjalli við Tímann að lítið
væri vitað um portúgalska og finnska
liðið en Danir og Finnar væru hins-
vegar með sterk lið. Væri því rennt
nokkuð blint í sjóinn en hann sagðist
samt vonast til að liðinu tækist að
sigra í tveimur leikjum.
Tvö efstu liðin úr riðlinum keppa
við þau tvö lið sem verða efst í
hinurn riðlinum en síðan fara tvö
þeirra áfram í B keppnina. Þau lið
sem eftir verða leika um sæti í C
keppninni.
Áður en C keppnin hefst verða
leiknir tveir landsleikir gegn Spán-
verjum, 28. og 29. okt.
Landsliðshópurinn er þannig
skipaður:
Markverðir:
Kolbrún Jóhannsdóttir
Gyöa Úlfarsdóttir FH
Fjóla Þórisdóttir
Aðrir leikmenn:
Guðrídur Gudjónsdóttir
Arna Steinsen
Ingunn Bernódusdóttir
Erna Lúdvíksdóttir
Katrín Fridriksen
Guðrún Kristjánsdóttir
Eiríka Ásmundsdóttir
Svava Baldvinsdóttir
Erla Rafnsdóttir
Guðný Gunnsteinsdóttir . . . .
Björg Gilsdóttir
spyrnu í kvöld, 2. umferð fyrri
leikur.
Stórleikur umferðarinnar er milli
Real Madrid og Ju.ventus og skyggir
sú viðureign á alla aðra leiki.
Undir venjulegum kringumstæð-
um hefði leikur Anderlecht og Stcua
Búkarest þótt mcrkisatburður, svo
og leikur Celtic og Dynamo Kiev.
Real Madrid hefur 6 sinnuni orðið
Evrópumeistari og 21 sinni spænskur
ineistari en Juventus hefur krækt í 2
Evrópumeistaratitla og 22 ítalska.
Búist er við að leikurinn í kvöld
verði verulega skemmtilegur á að
horfa, enda varla von á öðru þar sem
stjörnur heimsmeistarakeppninnar
eru annars vegar, Daninn Michael
Laudrup, Frakkinn Michel Platini.
Argentínumaðurinn Jorge Valdano
og Spánverjinn Emilio Butragueno
verða allir samankomnir á vellinum
tilbúnir að leika listir sínar.
Það eina sem áhangendur liðanna
eru ekki ánægðir með er að leikurinn
skuli aðeins verá í annarri umferð,
þeim hefði fundist nær lagi að þetta
yrði úrslitaleikur keppninnar.
Bæði lið eiga í nokkrum vandræð-
um vegna meiðsla leikmanna, í vörn
Juventusliðsins eru Antonio Cabrini
og Gaetano Scirea meiddir og nokk-
ur vafi leikur á því hvort Manfredon-
ia, Laudrup og Serena geti verið
með. Allir þessir 5 leikmenn eru þó í
19 manna hópnum á Spáni og verður
látið ráðast í dag hvort þeir leika
með.
í lið Real Madrid vantar Antonio
Maceda og Manuel Sanchis og nokk-
ur vafi leikur einnig á því hvort
Santilliana verður með.
Leo Beenhakker þjálfari Real
Madrid telur lið sitt þurfa að sigra
2-0 til að komast áfram í 3. umferð
en mikilvægast segir hann að láta
Juventus ekki skora.
Emilio
Butragu-
eno.
Ráðherrafundur um íþróttir
Á vegum Evrópuráðsins var efnt
til fundar með ráðherrum aðildar-
ríkjanna sem fara með íþróttamál
30. sept. til 2. okt í Dublln á írlandi.
Meðal helstu málefna fundarins
voru:
íþróttir fyrir fatlaða; íþróttir og
fjármál; íþróttir og umhverfisvernd;
íþróttaslys; baráttan gegn misnotk-
un lyfja við íþróttakeppni og aðgerð-
ir gegn kynþáttamisrétti við íþrótta-
samskipti.
Þá var fjallað um réttarstöðu at-
vinnumanna í íþróttum, nánarasam-
starf stærstu íþróttasamtakanna um
niðurröðun stórviðbujða á íþrótta-
sviðinu og að lokum um ýmis
íþróttapólitísk mál.
Mesta athygli vöktu ályktanir um
að alþjóðlegu íþróttasamtökin ættu
að herða viðurlög við misnotkun
lyfja og jafnvel dæma brotlega
íþróttamenn ævilangt frá keppni.
Þá var einnig samþykkt að beita
harðari aðgerðum gegn kynþátta-
misrétti og styðja íþróttasamtökin í
því að meina Suður-Afríku þátttöku
í alþjóðiegri íþróttakeppni.
Við lok fundarins urðu umræður
um undirbúning að næsta fundi ráð-
herranna og var samþykkt að hann
verði haldinn á fslandi haustið 1989.
Fyrir hönd íslands mættu á fundin-
um í Dublin Knútur Hallsson ráðu-
neytisstjóri, Reynir G. Karlsson
íþróttafulltrúi og Alfreð Þorsteins-
son fulltrúi fsf.