Tíminn - 03.01.1987, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Laugardagur 3. janúar 1987
Horsamskreiðin:
35 ÞUSUND PAKKAR
ÓSELDIR í GÁMUM
- eigendum skreiðarinnar gerð grein fyrir stöðunni
Forsvarsmenn íslensku umboðs-
sölunnar/Sameinaðra framleiðenda,
þeir Bjarni V Magnússon og Jakob
Sigurðsson.sem stóðu fyrir útflutn-
ingi á um 60.000 pökkum af skreið
að verðmæti um 380 milljónir króna
með skreiðarskipinu Horsam sem
fór frá íslandi í sumar eru nú staddir
hér á landi eftir langa Nígeríudvöl
og hafa verið að gera rúmlega 40
aðilum sem eiga skreiðina í skipinu
grein fyrir stöðunni í sölumálum.
Eigendur skreiðarinnar hafa lýst yfir
áhyggjum sínum vegna skreiðar-
farmsins og margir dregið í efa að
þeir muni nokkurn tíma fá skreiðina
greidda, og eru engan veginn eins
bjartsýnir á árangur og þeir Bjarni
og Jakob virðast vera. Boðað hafði
verið til fundar með eigendunum í
dag, laugardag en óvíst var þó í
gærkvöld hvort af þeim fundi yrði.
Jakob Sigurðsson stjórnarformað-
ur Sameinaðra framleiðenda sagði í
samtali við Tímann í gær að útlitið
væri nú tiltölulega gott með sölu á
skreiðarfarminum. Pegar er búið að
skipa upp og selja 25 þúsund pakka
ákveðnum aðila, en kaupin gerast
með þeim hætti að vegna þess að
kaupandinn gat ekki lagt fram
bankatryggingu fær hann skreiðina í
ákveðið pakkhús og síðan koma
aðrir kaupendur og kaupa skreiðina
af honum og borga í banka þar sem
þeir fá þar til gerða nótu sem þeir
framvísa í pakkhúsinu og fá skreið
út á. Að sögn Jakobs gengur þetta
ekki hraðar en svo fyrir sig að það
gæti tekið um tvo mánuði að selja
skreiðina og síðan á eftir að fá
gjaldeyrisyfirfærslu fyrir þessu fjár-
magni.
Restin af farminum, 35 þúsund
pakkar, var um borð í skipinu þar til
28. desember þegar henni var skipað
upp og bíður sú skreið nú í gámum
í höfninni óseld. Jakob sagði að
verið væri að vinna að því að selja
þessa skreið og að hún yrði þá
væntanlega seld í einu lagi og þannig
að fyrir kæmi bankatryggð greiðsla.
Taldi hann ekki ólíklegt að takast
mætti að selja þessa skreið á næstu
vikum.
Gjaldeyrisyfirfærslur í Nígeríu
fara fram með þeim hætti að Seðla-
bankinn þar heimilar kaup á ákveð-
inni upphæð af gjaldeyri í hverri
viku og er þeirri upphæð síðan skipt
milli allra þeirra sem á gjaldeyri
þurfa að halda í landinu.
„Við erum á þeirri skoðun að
þetta muni takast og að hægt verði
að skila þeim gjaldeyri til íslands
sem upphaflega var gert ráð fyrir,
þrátt fyrir að kominn sé á þetta
mikill frakt-og geymslukostnaður,“
sagði Jakob að lokum. -BG
Eins og myndin ber með sér var áreksturinn fima harður og báðir bflarnir
Ónýtir að telja má. Tímamynd Sverrir
Glerharður árekstur
Þrennt var flutt á slysadeild
Mjög harður árekstur varð í Neðri
Hveradalabrekkunni við Skíðaskál-
Félag framsóknarkvenna í Reykjavík
Fundur aö
Nóatúni 21
þriðjudaginn 6. janúar kl. 20.30
Haraldur Ólafsson alþingismaöur og Áslaug Brynjólfs-
dóttir fræöslustjóri sjáum dagskrá í tilefni þrettándans.
Mætiö vel - Fögnum nýju ári.
Stjórnin.
ann í Hveradölum um miðjan dag í
gær. „Þetta var glerharður árekst-
ur,“ sagði lögregluþjónn frá Selfossi
í samtali við Tímann, þegar hann
var nýkominn af slysstað.
Jeppabifreið sem ekið var í austur-
átt, upp brekkuna, rann til á hálum
veginum og missti ökumaður stjórn
á bílnum. Saab bifreið sem ekið var
niður brekkuna, til Reykjavíkur
lenti framan á jeppanum. Reyndi
ökumaður fólksbifreiðarinnar að
sveigja bíl sínum út af veginum en
náði því ekki. Þrennt var í Saab
bílnum og var allt flutt á slysadeild.
Ekki var ljóst í gær hversu alvarleg
meiðsli er um að ræða. Ökumaður
jeppans var hinsvegar ómeiddur.
Námsmenn um
Lánasjóðinn:
Vilja
reyna að
ná sam-
komulagi
- funda með Finni
Ingólfssyni í dag
„Á morgun verður haldinn
fundur námsmanna með Finni
Ingólfssyni sem SÍNE hefur
skipulagt og þar mun Finnur gera
grein fyrir sinní afstöðu. Ég geri
jafnframt ráð fyrír að menntá-
málaráðherra megi eiga von á
einhverju svari við þessarí send-
ingu frá námsmönnum. Síðan
geri ég ráð fyrir að við munum
hitta samráðsnefndina áfrant, því
samráðið er í raun og veru í
miðju kafi og áfram verði leitað
leiða ti! að ná upphaflegum ntark-
miðunt ncfndarinnar. Þessi mark-
mið voru að ýta drögunum frá því
í haust til hliðar og byrja á
núll-punkti við að reyna að
styrkja Lánasjóðinn og starfsemi
hans með breytingum sent gætu
orðið til þcss að hækka endur-
greiðsluhlutfallið og bæði sjórn-
málamenn og almenningur yrðu
sáttari við sjóðinn," sagði Eyjólf-
ur Sveinsson formaður Stúdenta-
ráðs við Tímann í gær.
Ekki náðist í Sverri Hermanns-
son í gær en í viðtali á út varpstöð-
inni Bylgjunni sagði ráðherrann
að það hafí verið misskilningur
að hann hafi kynnt þessi drög á
blaðamannafundi sent endanlega
lausn á málinu, og að samráðið
við námsntenn ltafi á engan hátt
verið úr sögunni.
Eyjólfur Svcinsson sagði í gær
að hann fagnaði þvf að' Sverrir
Hermannsson hefði opinberlega
drcgið úr fyrri yfirlýsingunt
sínum, einkum ef ráðherrann
teldi þetta ekki vera cndanlega
niðurstöðu í málinu. Hann sagði
að málin myndu skýrast nokkuð
eftir að Finnur Ingólfsson hcfði
fundað með námsmönnum í dag
og miðað við þær hugmyndir sem
hann hefði viðrað í Tímanum á
gamlársdag virtist sér sem hug-
myndir hans og væntanlega þá
Framsóknarflokksins gætu vel
samrýmst hugmyndum náms^-
manna. -BG
Frá Fjölbrauta-
___________skólanum í
HlllB®HomUIIH Breiðholti
Skólastarf Fjölbrautaskólans í Breiöholti á vorönn
1987 hefst meö almennum kennarafundi mánu-
daginn 5. janúar kl. 9.00-12.00.
Sama dag verður sviösstjórafundur kl. 13.00-
15.00 og deildarstjórafundur á sama tíma.
Miðvikudaginn 7. janúar veröur nýnemakynning í
dagskólanum kl. 9.00-16.00.
Fimmtudaginn 8. janúar verður nemendum Dag-
skóla F.B. afhentar stundatöflur kl. 13.00-15.00.
Bóksala skólans verður opin kl. 10.00-16.00.
Innritun í Öldungadeild F.B. svo og val náms-
áfanga fer fram 5. 7. og 8. janúar frá kl. 18.00-
21.00.
Námskynning í öldungadeild verður 12. janúar kl.
18.00.
Kennsla hefst í Dagskóla F.B. mánudaginn 12.
janúar samkvæmt stundaskrá.
Kennsla hefst í Öldungadeild F.B. þriðjudaginn
13. janúar samkvæmt stundaskrá.
Skólameistari.
Fálkaorðan:
Átján manns
heiðraðir
Átján íslendingar voru sæmdir
heiðursmerki hinnar íslensku fálka-
orðu, um áramótin. Forseti íslands,
Vigdís Finnbogadótttir afhenti orð-
urnar að fenginni tillögu orðunefnd-
ar. Eftirtaldir aðilar voru sæmdir
fálkaorðunni: Freyja Bjarnadóttir
fv. talsímavörður, Borgarnesi, ridd-
arakrossi fyrir störf að félagsmálum.
Garðar Óskar Pétursson fv. verk-
stjóri, Reykjavík, riddarakrossi fyrir
störf í þágu skátahreyfingarinnar.
Geir Borg fv. framkvæmdastjóri,'
Reykjavík, riddarakrossi fyrir við-
skipta- og menningarmál. Gísli Sig-
urbjörnsson forstjóri, Reykjavík,
stjörnu stórriddara fyrir störf í þágu
aldraðra. Guðríður Guðmundsdótt-
ir oddviti, Skeggjastöðum, Bakka-
firði, riddarakrossi fyrir fræðslu og
félagsmálastörf. Haraldur Hannes-
son hagfræðingur, Reykjavík, ridd-
arakrossi fyrir varðveislu menning-
arverðmæta. Dr. Haraldur Matthí-
asson fv. menntaskólakennari,
Laugarvatni, riddarakrossi fyrir
fræðistörf. Dr. Jakob Jónsson fv.
sóknarprestur, Reykjavík, stórridd-
arakrossi fyrir störf að kirkjumálum
og fræðistörf. Jón Bjarnason verk-
stjóri, Vogum, Vatnsleysuströnd,
riddarakrossi fyrir störf að barna-
verndunarmálum. Magnús Kristins-
son forstjóri, Reykjavík, riddara-
krossi fyrir störf í þágu þroskaheftra.
Sr. Ólafur Skúlason vígslubiskup,
Reykjavík, stórriddarakrossi fyrir
störf að kirkjumálum. Óskar
Jónsson, Hjálpræðishernum,
Reykjavík. riddarakrossi fyrir fé-
lags- og líknarstörf. Pétur Sigurðs-
son fv. framkvæmdastjóri, Breið-
dalsvík, riddarakrossi fyrir störf að
atvinnumálum. Sigurður Jónsson fv.
framkvæmdastjóri, Reykjavík, ridd-
arakrossi fyrir störf að atvinnumál-
um. Snjáfríður Jónsdóttir fv. mat-
ráðskona, Reykjavík, riddarakrossi
fyrir störf í þágu sjúkra. Soffanías
Cecilsson útgerðarmaður, Grundar-
firði. riddarakrossi fyrir störf að
sjávarútvegsmálum. Sverrir Ragnars
stórkaupmaður á Akureyri, riddara-
krossi fyrir störf að atvinnu- og
félagsmálum. Þórhallur Tryggvason
fv. bankastjóri, Reykjavík, riddara-
krossi fyrir embættisstörf.
FRETTAYFIRLIT
PEKÍNG — Háskólastúdent-
ar í Pekíng, sem farið hafa í
tvser ólöglegar mótmælagöng-
ur á undanförnum dögum,
sögðu í gær að mótmæli þeirra
væru ekki búin. Þeir tóku þó
einnig fram að stúdentar
styddu fullkomnlega þá endur-
skoðun og þær breytingar sem
nú eiga sér stað í kínversku
þjóðfélagi undir forystu Deng
Xiaopings. Nokkur ólögleg
veggspjöld voru sett upp vio
háskólann.
N‘DJAMENA — Herir
stjórnarinnar í Chad gerðu
árás á stöðvar sem Líbýumenn
héldu og samkvæmt heimild-
um þurftu líbýskir hermenn að
hörfa. Heimildarmennirnir
sögðu þó bardaga vera harða
og barist væri í návígi i bænum
Fada.
LUNDUNIR — Dollarinn var
í byrjun þessa árs lægri á
evrópskum gjaldeyrismörkuð-
um en nokkurn tímann síðustu
sex árin og sögðu gjaldeyris-
kaupmenn að gengi hans
myndi halda áfram að vera
fallvalt næstu daga. Ástæðurn-
ar eru fyrst og fremst áhyggjur
vegna bandarísks efnahags-
lífs svo og hneykslismálið
vegnavopnasölunnartil (rans.
BEIRUT — Slæmt veður dró
heldur úr skothríð í tveimur
flóttamannabúðum Palestínu-
manna í Líbanon. Ekki virtist
þó svo vera að Palestínumenn
oa múslimar úr hópi shíta ætl-
uou sér að virða áköll um
vopnahlé á nýja árinu.
JÓHANNESARBORG
— Nýja árið í Suður-Afriku
hófst eins og það síðasta end-
aði; með ofbeldi. ( Soweto
voru þríreinstaklingar brenndir
til bana i átökum milli hópa
svertingja og á baðströnd lést
einn og ellefu aðrir særðust er
blökkummenn gengu þar ber-
serksgang.
BANGKOK — Herflugvél
frá Thailandi hrapaði eftir að
hafa verið skotin niður af
kambódískum loftvarnarbyss-
um. Flugmaður vélarinnar lést
og annar áhafnarmeðlimur
slasaðist alvarlega.
LUNDÚNIR — Hin opinbera
fréttastofa í íran skýrði svo frá
að írakskar herþotur fljúgi
reglulega yfir lofthelgi Kuwait
til að ráðast á skip í Persa-
flóanum. Fréttastofan hafði
þetta eftir írökskum fluqmanni
sem nú er í haldi í fran og
skýrði hin opinbera fréttastofa
Irna frá þessu