Tíminn - 02.04.1987, Blaðsíða 2
'2 Tímijnn
Fimmtudagur 2. apríl 1987
Mjólkurbú Flóamanna:
Tæplega10%minna
af mjólk lagt inn
Á síðasta almanaksári voru lagðir
inn 38.698.482 lítrar af mjólk til
Mjólkurbús Flóamanna. Pað er rúm-
um 4 milljónum lítra minna en árið
1985 eða 9,6% minnkun. Samdrátt-,
urinn varð einkum frá og með mars-!
mánuði til ársloka.
Á öllu landinu voru vegnar inn
109,9 milljónir lítra af mjólk, þannig
að hlutdcild Flóamanna er um
35,2% á landsvísu. Hlutfallið af
heildarmagni innveginnar mjólkur
er álíka árið 1985 og árið þar á
undan.
„Afkoma fyrirtækisins er allgóð,
en lausafjárstaðan er lakari en verið
hefur. Hagnaður fyrir skatta er 7
milljónir króna cn hcildarvclta er
upp á rúmlega einn komma þrjá
milljarða króna, svo að hagnaðurinn
er ekki mikill miðað við veltuna.
Afkoman er mjög þokkaleg hjá
fyrirtækinu burtséð frá því að lausa-
fjárstaðan er erfiðari en verið hefur.
Pað kemur einkum til af því að ný
búvörulög gera mjólkurbúunum
skylt að greiða bændunum fullt verð
fyrir mjólkina 10. dag næsta mánað-
‘ ar fftir innlögn og að mjólkin hefur
minnkað verulega. Þess vegna er
rekstrarkostnaður á hverja einingu
meiri. En sala mjólkurafurða hefur
aukist á svæðinu,“ sagði Birgir
Guðmundsson aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Mjólkurbús Flóa-
manna.
Þess má geta að á síðasta ári var
unnið að vöruþróun þriggja tcgunda
mjólkurafurða sem hafa verið að
koma á markað nú að undanförnu,
þ.e. kaffirjóma í smápakkningum,
létt og laggott og AB-mjólk. Að
sögn Birgis er unnið að flciri nýjung-
um en ekki fékkst uppgefið hverjar
þær væru.
Á aðalfundi Mjólkurbús Flóa-
manna sem haldinn var sl. þriðjudag
var þeim framleiðendum afhent
verðlaun sem lögðu inn hágæða-
mjólk að staðaldri, án undantekn-
inga síðastliðið ár. Að þessu sinni
fékk 71 framleiðandi viðurkenningu
en í fyrra voru þeir 45. Verðlaunin
voru lítill mjólkurbrúsi sem letrað er
á „verðlaun fyrir úrvalsmjólk". Einn
framleiðandi, Viðar Steinarsson á
Kaldbak í Rangárvallahreppi, fékk
verðlaun annað árið í röð og fram-
leiðir áberandi bestu mjólkina. Við-
ar leggur inn í kringum 40 þúsund
lítra af mjólk á hverju ári.
Alls eru 704 framleiðendur sem
leggja inn til Mjólkurbús Flóamanna
og hefur fækkað um 14 frá síðasta
ári.
ABS
Ný reglugerð sjávarútvegsráðuneytisins:
Nýtt skip ekki meira
en 33% stærra en eldra
Sjávarútvegsráðuneytið hefur gef-
ið út nýja reglugerð um veitingu
veiðileyfa til nýrra skipa. Samkvæmt
henni er nú tekið mið af svokallaðri
rúmtölu, sem er margfeldi lóðlínu-
lengdar, mótaðrar breiddar skips og
mótaðrar dýptar að neðra þilfari. Af
þessum málum að dæma er hcimilt
að nýtt skip sé 33% stærra en það
gamla.
Ný veiðileyfi verða aðeins veitt sé
þessum skilyrðum fullnægt og að
eldra skip hafi verið tekið út af
skipaskrá eftir 1. janúar 1985 og hafi
verið þinglýst eign þeirra sem nýja
skipið kaupa, síðustu 12 mánuðina
fyrir skipakaupin. Veiðiréttindi
verða þau sömu og eldra skipið
Nefnd menntamálaráðherra um samfélagsgreinar skilar áliti:
Átak verði gert í útgáfu
námsgagna í samfélagsfræði
Nefnd sem Ragnhildur Helgadótt-
ir, fyrrverandi menntamálaráðherra
skipaði á stjórnartíma sínum til að
fjalla um „nám og kennslu í samfé-
lagsfræði í grunnskóla" hefur nú
skilað áliti sínu. í nefndinni voru 10
aðilar, 4 skipaðir samkvæmt tilnefn-
ingu og 6 skipaðir af menntamála-
ráðherra. í skipunarbréfi nefndar-
innar var tekið fram að henni sé
ætlað „að leggja mat á árangur, sem
náðst hefur með samþættingu náms-
greinanna, sögu, landafræði, félags-
fræði o.fl. undir heitinu samfélags-
fræði. Hópnum er ennfremur ætlað
að gera tillögur um námskrá í um-
ræddum námsgreinum".
Nefnd þessi komst að eftirfarandi
niðurstöðum. „Pegar nefndin tók til
starfa hafði verið unnið að endur-
skoðun námskrárinnar frá 1977 á
vegum menntamálaráðuneytisins. f
upphafi nefndarstarfsins lágu fyrir
drög að námskrá í samfélagsfræði
þar sem skipan námsins var mun
ítarlegar útfærð en í gildandi
námskrá. Nefndin féllst á þessi drög
í öllum meginatriðum en gerði at-
hugasemdir og tillögur við einstaka
kafla og atriði. Ákvað nefndin að
nota drögin sem grunn og byggja
tillögur sínar á þeim. Nefndin skilar
því niðurstöðum sínum með því að
leggja fram endurskoðuð drög að
námskrá. í tillögum nefndarinnar
um röðun námsefnis á námsár er
tekið mið af þessari niðurstöðu og
jafnframt lögð áhersla á að sögu og
landafræði Islands séu gerð skil í
kennslunni, hvort sem samþætting
- ástandið óviðunandi
er viðhöfð eða ekki.“
Lagði nefndin að lokum til að
skólaþróunardeild mennta-
málaráðuneytisins verði falið að full-
vinna námskrárdrög nefndarinnar
og ný gefin út. Átak verði gert í
útgáfu fjölbreyttra námsgagna í sam-
félagsfræði fyrir grunnskóla. Vill
nefndin lýsa áhyggjum sínum af
óviðunandi ástandi sem ríkir vegna
skorts á námsgögnum við hæfi, eink- <
um í efri bekkjum grunnskóla.
Ennfremur leggur nefndin til að
menntamálaráðuneytið hafi for-
göngu um það að afla sérstakrar
fjárveitingar til ofangreindra verk-
efna.
- SÓL
Mikill fjöldi flugfreyja hjá Flugleiðum:
Jafn margar og
íbúar Hríseyjar
Um 200 umsóknir um flugfreyju-
störf bárust Flugleiðum í ár án þess
að auglýst væri eftir þeim. í febrúar
réðu Flugleiðir 36 nýjar flugfreyjur
og flugþjóna til starfa enda fyrir-
sjáanleg mikil verkefni í sumar,
segir í fréttablaðinu Flugtíðindum.
Petta er viðbót við þau 165 stöðu-
gildi sem nú eru fyrir og í sumar
verða um 280 flugfreyjur í starfi
hjá Flugleiðum.
Flugfreyjur félagsins verða því
tæplega helmingur allra starfs-
manna flugrekstrarsviðs Flugleiða,
eða ni.ö.o. jafnmargar íbúum
Hríseyjar eða Hofsóss, svo dæmi
sé tekið.
Haft er eftir Sæmundi Guðvins-
syni, forstöðumanni kynningar-
deildar Flugleiða, að félagið hefði
ekki auglýst eftir flugfreyjum í ár,
þar sem um 200 umsóknir hefðu
borist án þess.
„Þetta var erfitt val því hátt á
annað hundrað manns uppfyllti
lágmarkskröfur þær sem settar
voru,“ sagði Sæmundur.
Námskeið flugfélagsins fyrir hin-
ar nýj u flugfreyjur eru þegar hafin.
Þj
Risapáskaeggi hefur nú verið komið fyrir í stórmarkaðinum Miklagarði
en þetta eru þriðju páskarnir sem þetta er gert, og minnir páskaeggið
óneitanlega á að nú styttist í hátíðarnar. Eggið er að hluta til það sama
og undan farin ár, þ.e. grindin í því sem gerð er af tré, en
súkkulaðihúðin utan á því eru hins vegar glæný úr verksmiðjum Nóa
og Sírfus. Verður þetta í sfðasta skipti sem eggið verður notað, en alls
hefur það verið húðað nýrri súkkulaðihúð þrjú ár í röð.
Tímamynd Pjetur
Samvinnusjóöur:
hafði.
Óheimilt verður, án sérstaks leyfis
ráðuneytisins að breyta nýjum og
nýkeyptum skipum, sem veiðileyfi
fengu fyrst eftir 1. janúar, 1986, á
þann hátt að þau rúmi meira. Reglur
þessar gilda ekki fyrir skip sem eru
undir 10 brúttólestum.
Þj
Þorsteinn Ölafs
son ráðinn f ram-
kvæmdastjóri
Þorsteinn Ólafsson, framkvæmda-
stjóri þróunardeildar Sambands ís-
lenskra samvinnufélaga hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri Sam-
vinnusjóðs íslands hf. frá og með 1.
júlí n.k. Jafnframt lætur Þorsteinn
Ólafsson af stjórnarformennsku í
Samvinnusjóðnum.
Á þessu ári eru 5 ár liðin frá
stofnun Samvinnusjóðs íslands.
Hinn 1. júlí n.k. er síðasti gjalddagi
hlutafjárloforða til sjóðsins sem
numið hafa 1 %o (1 pró mill) af
veltu sjóðsfélaga s.l. 5 ár.
Á þessum tímamótum er eigið fé
sjóðsins nú orðið rúmlega 200 mill-
jónir króna af heildar eign að upp-
hæð 270 milljónir króna. Tilgangur
Samvinnusjóðsins er að efla íslenskt
atvinnulíf með því að beita sér fyrir
aukinni þátttöku samvinnuhreyfing-
arinnar í atvinnulífi landsmanna,
einkum í nýjum greinum. Hlutverk
sjóðsins er m.a. að stofna eða taka
þátt í stofnun nýrra fyrirtækja, að
kaupa hlut í starfandi fyrirtækjum,
að útvega og veita fjárfestingarlán,
beita sér fyrir nýjungum í atvinnu-
lífi, að eiga viðskipti með verðbréf
og veita lán og styrki til hagræðingar,
rannsókna og þróunarstarfsemi.
Þorsteinn Ólafsson mun samhliða
starfi sínu sem framkvæmdastjóri
sjóðsins gegna áfram stjórnarfor-
mennsku í nokkrum dóttur- og sam-
starfsfyrirtækjum Sambandsins og
samvinnuhreyfingarinnar líkt og
verið hefur auk þess að vera formað-
ur Vinnumálasambands samvinnu-
félaganna (VMS).
Samvinnusjóður íslands hf. hefur
fest kaup á nýju húsnæði að Ingólfs-
stræti 3, Reykjavík ogmun starfsemi
sjóðsins flytjast þangað frá og með
1. júlí n.k.
Frá og með sama tíma verður
starfsemi þróunardeildar Sambands-
ins lögð niður samkvæmt ákvörðun
Sambandsstjórnar á s.l. ári.
Þórður Ingvi Guðmundsson sem
verið hefur framkvæmdastjóri Sam-
vinnusjóðsins lætur nú af því starfi
og tekur að fullu við starfi fram-
kvæmdastjóra fjármögnunarfyrir-
tækisins LINDAR hf. sem er í eigu
Samvinnubanka íslands hf., Sam-
vinnusjóðs íslands hf. og franska
bankans Banque Indosuez.
Athyglisverðasta
auglýsing ársins
íslenski markaðsklúbburinn
samráði við Samband íslenskra
auglýsingastofa efnir til samkeppni
um athyglisverðustu auglýsingu árs-
ins 1986. Samkeppnin er opin öllum
fyrirtækjum sem hafa gerð og dreif-
ingu auglýsinga að atvinnu, jafnt
auglýsingastofum sem öðrum
auglýsingagerðarmönnum.
Skilyrði fyrir þátttöku er að aug-
lýsingin sé gerð af íslenskum aðila
og hafi birst fyrst á árinu 1986.
Tilgangur samkeppninnar er að
vekja almenna athygli á vel gerðum
auglýsingum og auglýsingaefni og
veita aðstandendum þeirra verð-
skuldaða viðurkenningu.
Veitt verða verðlaun fyrir bestu
auglýsinguna í eftirtöldum flokkum:
Kvikmyndaðar auglýsingar.
Útvarpsauglýsingar
Dagblaðaauglýsingar
Tímaritaauglýsingar
Veggspjöld
Dreifirit
Óvenjulegasta auglýsingin
Skilafrestur rennur út á hádegi 12.
maí.
Verðlaun verða afhent í lokahófi
þann 20. maí. - SÓL