Tíminn - 02.04.1987, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 2. apríl 1987
Tíminn 3
Aðalfundur SPRON:
Heildarinnlán
jukust um 42%
- rekstrarhagnaður 6,2 milljónir
Heildarinnlán Sparisjóðs Reykja-
víkur og nágrennis jukust úr 953.237
jiúsund krónum í 1.355.910 krónur
á árinu 1986 sem er veruleg aukning
umfram hækkun lánskjaravísitölu á
árinu og mcðaltalsaukningu innlána
í bankakerfinu. Heildarútlán spari-
sjóðsins voru 958.841 þúsund krónur
í árslok 1986 og höfðu þá aukist um
308 milljónir króna á árinu.
Þetta kom fram í skýrslu formanns
stjórnar sparisjóðsins, Jóns G. Tóm-
assonar, en SPRON hélt aðalfund
sinn, þann 55. í röðinni, 27. mars s.l.
Sparisjóðurinn opnaði fyrstu af-
greiðslu sína 28. apríl 1932 að Hverf-
isgötu 21 og heldur því upp á 55 ára
afmæli sitt á næstunni.
Hlutur sparisjóðsins í heildarinn-
lánum allra innlánsstofnana á land-
inu jókst á árinu úr 2,5% í 2,7% og
í heildarinnlánum sparisjóða úr
16.7% í 17.7%. Við árslok 1986 var
sparisjóðurinn orðin stærsti spari-
sjóðurinn á landinu miðað við
innlán. Lausafjárstaða sparisjóðsins
var mjög góð mest allt árið og gat
hann látið allnokkuð fjármagn á
millibankamarkað verulegan hluta
ársins. Hagnaður fyrir eignarskatt
varð 6.176 þúsund krónur en eignar-
skattur er áætlaður 1.225 þúsund
krónur, þannig að nettóhagnaður
varð um 4.950 þúsund krónur.
I lok ársins voru stöðugildi við
sparisjóðinn 66 og fjölgaði um 3 á
árinu. Þessi fjölgun átti sér stað í
útibúum sparisjóðsins en af-
greiðsluálag þar jókst vcrulega á
árinu. - SÓL
Nóbelsverðlaunahafínn Isaac Bas-
hevis Singer sem vænfanlegur er til
landsins á vegum Veraldar.
Óperusöngkonan Renata Scotto
sem um árabil hcfur verið í fremstu
röð sóprana í heiminum. Hún hefur
m.a. sungið með Pavarotti, Careras
og Placido Domingo.
Bókaklúbburinn Veröld:
Isaac B. Singer
til íslands?
Veröld býður upp á myndlist, tónlist og tónleika
„Bókaklúbburinn Veröld hóf
rekstur 1983 í mikilli verðbólgu og
það var mikið átak að komast af
stað. En við tókum sífellt á og nú
skilar fyrirtækið hagnaði í hverjum
mánuði. En við erum sífellt í mótun
og reynum að vera hreyfanleg. Við
teljum að við höfum náð tilgangi
okkar, að vera með sífelldar nýjung-
ar. Meginmarkmið okkar er að út-
vega félagsmönnum okkar ýmislegt
á góðu verði. Menningar- og þjón-
ustustarfsemi, að ógleymdum úrvals
bókum á lágu verði,“ sagði Ólafur
Ragnarsson, formaður stjórnar Ver-
aldar. Ólafurog Kristín Björnsdóttir
framkvæmdastjóri héldu blaða-
mannafund á miðvikudaginn að
Hótel Holti í tilefni af ýmsum nýj-
ungum sem fyrirtækið stendur nú
fyrir. Má þar t.d. nefna heimsókn
nóbelsverðlaunaskáldsins Isaac Bas-
hevis Singer sem væntanlegur er
með haustinu. Auk þess kernur hin
heimskunna óperusöngkona Renata
Scotto sérstaklega hingað til lands til
að syngja á vegum Veraldar í Há-
skólabíói 11. apríl.
Nýjungarnar eru fleiri. Meðal
annars hafa verið gefin út sérstök
félagaskírteini, sem veita afslátt á
vörum og þjónustu hjá rúmlega 300
fyrirtækjum um allt land. Skírtein-
inu fylgir ókeypis handbók með skrá
yfir öll fyrirtækin og hversu mikinn
afslátt um er að ræða.
Veröld er núna þessa dagana að
endurútgefa Miðilshendur. bókina
um Einar frá Einarsstöðum. Einnig
eru fjöldamörg tilboð í gangi, m.a.
6- 8 bækur fyrir 300 krónur og á
næstunni verður auglýst ferð til
London fyrir 7.000 krónur.
Veröld er aðeins fjögurra ára
gamalt fyrirtæki og hefur skipað sér
varanlegan sess í bókmenntaheimi
íslendinga. Á síðastu 4 árum hefur
klúbburinn selt 300.000 bækur og
veltan árlega er margar milljónir.
Sem dæmi var innkoman í desember
mánuði einum rúmlega 6 milljónir.
Hjá fyrirtækinu starfa 8 menn og
fjöldi manna starfar óbeint hjá því.
í síðustu viku bættust 2.000 nýir
félagar við og er tala virkra félaga
um 20.000 manns.
Aðsetur bókaklúbbsins Veraldar
er að Bræðraborgarstíg 7 og síminn
er 29055. " - SÓL
Hallormsstaða-
skóli á 20 ára
starfsafmæli
Hallormsstaðaskóli á 20 ára starfs-
afmæli á þessu ári. Haldið verður
upp á þessi tímamót laugardaginn
11. apríl nk. kl. 14.00.
Allir fyrrverandi nemendur,
starfsfólk og velunnarar skólans eru
velkomnir.
Nemendur verða með árshátíðar-
dagskrá og kaffiveitingar verða í
boði. f tilefni afmælisins er fyrirhug-
að að gefa út afmælisrit. í því verða
greinar, sem snerta sögu skólans,
nemendatal og fleira. f þetta rit
vantar myndir úr skólanum og eru
þeir, sem eiga myndir beðnir um að
hafasambandísíma 1776 eða 1767.
Þj
Frá aðalfundi Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis í heiniili Fóstbræðra.
Hagstofa íslands:
Húsaleiga
hækkar 1. apríl
Hagstofan hcfur sent frá sér til-
kynningu þar sem grcint er rá hækk-
un á húsaleigu á atvinnu- og íbúðar-
húsnæði. Hækkun þessi er sam-
kvæmt ákvæðum laga nr. 62/1984.
Leiga hækkar um 3% á því húsnæði
sem lögin taka til frá og með 1. apríl
og reiknast hækkunin ofan á leigu
eins og hún var í mars. Aprílleigan
helst síðan óbreitt næstu tvo mánuði.
þ.e. maí og júní.
Myndun stjórnar í Háskólanum:
BANNAÐ AÐ ÁLYKTA
UM HAGSMUNAMÁL?
- ósamkomulag Vöku og vinstri manna
„Málin standa þannig núna að
viðræðunefndin er búin að koma
okkur niður á ákveöna hugmynd
að vinnureglum, eða samskipta-
reglum og þær verða kynntar á
félagsfundum nú í vikunni reikna
ég með," sagði Kristján Sigtryggs-
son, formaður félags Umbótasinna
í samtali við Tímann. Samninga-
viðræður ntilli fylkinganna 3 hafa
nú staðið yfir í þó nokkurn tíma og
cnn stranda viðræðurnar á hægri-
vinstri skiptingunni. Umbótasinn-
ar hafa verið að reyna að finna
málamiðlunarflöt sem Vaka og
vinstri menn geta sætt sig við og
eru ágætur líkur á lausn í sjónmáli.
Aðal vandamálið er að Vaka
setur það sem skilyrði fyrir 3 fylk-
inga stjórn, að engar tillögur eða
ályktanir veröi samþykktar sem
skilja má sem pólitík. Ekki má
álykta um kjaramál kcnnara, hins
almenna launþcga eða jafnvel stú-
denta. Þetta gcta vinstri menn ekki
sætt sig við. Enn hafa ckki fariö
fram málefnasamningar, eða rætt
um skiptingar í stjórn. Gert er þó
ráð fyrir að sú skipting vcrði jöfn.
- SÓL
Auglýsing frá
Orlofssjóði VR
ORLOFSHÚS VR
Dvalarleyfi
Auglýst er eftir umsóknum um dvalarleyfi í orlofshúsum VR sumarið 1987. Umsóknir á þar til gerðum
eyðublöðum þurfa að berast skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar 8. hæð í síðasta lagi 28. apríl 1987.
Oriofshúsin eru á eftirtöldum stöðum:
að Ölfusborgum
að Húsafelli í Borgarfirði
að Svignaskarði í Borgarfirði
að lllugastöðum í Fnjóskadal
að Laugarvatni
í Vatnsfirði, Barðaströnd
að Einarsstöðum, Suður-Múlasýslu
íbúðir á Akureyri
Aðeins fullgildir félagar hafa rétt til dvalarleyfis. Þeir sem ekki hafa dvalið sl. 5 ár í orlofshúsum á
tímabilinu 30. maítil 15. september sitja fyrirdvalarleyfumtil 15. maí n.k. Hafi ekki veriðgengið
rrá leigusamningi fyrir 29. maí n.k. fellur úthlutun úr gildi. Dregið verður milli umsækjenda ef fleiri
umsóknir berast en hægt er að verða við. Verður það gert á skrifstofu félagsins laugardaginn 16.
maí n.k. kl. 14 og hafa umsækjendur rétt til að vera viðstaddir.
Sérstök athygli er vakin á því að umsóknir verða að berast skrifstofu VR
í sfðasta lagi þriðjudaginn 28. apríl n.k.
Umsóknareyðublöð eru afhent á skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar 8. hæð. Ekki verður tekið á
móti umsóknum símleiðis.