Tíminn - 02.04.1987, Page 4
4 Tíminn
Fimmtudagur 2. apríl 1987
1. apríl 1987:
Hálfrar aldar afmæli
Námsgagnastofnunar
- býr enn við fjárskort, þó þörfin hafi kannski aldrei verið meiri
Námsgagnastofnun, sem sumir
þekkja kannski betur undir nafninu
Ríkisútgáfa námsbóka, er orðin 50
ára gömul. Þaðvarhinn 1. apríl 1937
sem fyrsta stjórn Ríkisútgáfu náms-
bóka kom saman til fundar. Þá var
gefin út fyrsta bók stofnunarinnar,
Skólaljóð eftir Jón Magnússon.
Stuttu síðar voru gefnar út bækurnar
Grasafræði, eftir Geir Gígju og
Biblíusögur eftir Þorstein Kristjáns-
son. í dag, 50árum síðareru titlarnir
aðrir. Orka og orkunotkun, Stelpur-
strákar, jafngildir einstaklingar, Ég
og atvinnulífið, Anna er ástfanginn
og fleira þess háttar. Samt hefur
stofnuninn alltaf staðið fyrir sínu,
þrátt fyrir gífurlegan fjárskort.
Á yfirstandandi ári er gert ráð
fyrir að stofnunin fái 99 milljónir
króna í allt, til að borga laun, allan
kostnað við bækurnar, dreifingu
o.s.frv. Stofnunin á að þjóna 40.000
einstaklingum, eða 1/6 hluta þjóðar-
innar. Þetta gerir 2.600 krónur á
hvern einstakling. Þessi einstakling-
ur þarf 15-17 titla, og fær þá, aðeins
fyrir 2.600 krónur. Þetta er aðeins
hægt með mikilli fórnfýsi og af
hugsjón. Fyrir 4 árum var gerð
úttekt á hve mikið fé stofnunin þyrfti
að fá til að getað skilað sínu hlut-
verki af fullum sóma, framreiknað í
dag eru það 120- 140 milljónir. Það
er því ljóst að átaks er þörf. Margt
þarf að gera, láta nýjar hugmyndir
rætast, endurnýja með réttum
hraða, prenta nýjar bækur o. fl. Það
er tæplega hægt með þeim fjármun-
um sem nú eru fyrir hendi. Hvernig
væri að stofnunin fengi lausn mála
sinna á hálfrar aldar afmæli sínu?
Stofnunin er mikilvægur hlekkur í
þeirri keðju sem varðveitir íslenska
tungu. Hún má aldrei rofna.
-SÓL
Stéttarsamband bænda:
Fréttnæmt fréttabréf
- þar sem reynt er að leiðrétta ýmsan misskilning um stöðu landbúnaðarins
Út er komið fréttabréf Stéttar-
sambands bænda með upplýsingum
um framleiðslu og markaðsmál land-
búnaðarins. Er fréttabréfið hið efn-
ismesta og ekki að efa að það kemur
til með að nýtast vel þeim sem um
landbúnaðarmál fjalla sem og öðrum
áhugamönnum um málefni landbún-
aðarins. Verður fréttabréfið sent
öllum bændum í landinu.
f bréfinu er byrjað á því að lýsa
aðdraganda þeirrar stöðu sem nú er
í málefnum hins hefðbundna land-
búnaðar. Lýst er áhrifum markaðs-
þróunar erlendis á kornvörum og
þeim áhrifum sem hún liefur á
kjötverð. Er skemmst frá því að
segja að mikið af því korni sem er á
markaðnum er niðurgreidd umfram-
framleiðsla sem hefur þau áhrif að
kjötverð er mjög lágt.
Fram kemur í fréttabréfinu að
einungis 21,4% einkaneyslunnar í
landinu fara til matvörukaupa. Af
þessum 21,4% er einungis helmingur
innlend matvara. Til samanburðar
má geta þess að í eldri viðmiðun var
hlutfall matvara tæp 33% og þar af
65% innlend matvæli. Þetta hefur
m.a. haft þær afleiðingar að áhugi
stjórnvalda á að halda niðri verði
búvara með niðurgreiðslum hefur
minnkað.
Þá er í fréttabréfinu gerð grein
fyrir stefnumótun Alþingis og setn-
ingu búvörulaganna 1985 og þeirri
framleiðslustýringu sem kom f kjöl-
far þeirra.
Gerð er grein fyrir skiptingu full-
virðisréttar í mjólk og sauðfjárafurð-
ir og hlutdeild einstakra landssvæða
í þeirri skiptingu. Þrátt fyrir fullyrð-
ingar um stórbændastefnu og annað
í þeim dúr kemur það skýrt fram í
fréttabréfinu að hlutfallslega hcfur
framleiðsla stærstu búanna verið
skert mest.
-RR
Landhelgisgæslan:
Nýjar reglur
fyrir varðskip
- í kjölfar flugslyssins í ísafjarðardjúpi
í kjölfar flugslyssins í ísafjarðar-
djúpi við Arnarnes í vetur, þegar
TF-ORN fórst með einum manni
innanborðs, hafa verið teknar upp
nýjar vinnureglur um borð í varð-
skipum Landhelgisgæslunnar. Skips-
tjórnarmönnum þeirra er nú gert að
fara eftir ákveðnum reglum í hvert
sinn sem greinist sending frá neyðar-
sendi. Áður var það mat skipstjórn-
armanna hvernig bregðast skyldi við
hverju sinni.
í slíkum tilfellum á einatt að láta
Vestfirska fréttablaðið segir frá
tíðum skemmdarverkum og þjófn-
uðum í Grunnskóla ísafjarðar að
undanförnu. Svo rammt hefur kveð-
ið að þessu, að skólayfirvöld hafa
séð sig knúin til að skipa nemendur
á sérstaka vakt í fatahengi skólans til
að hafa auga með fötum nemenda
og skóm.
Talið er að allt að 60 hundraðs-
hlutar nemenda hafi orðið fyrir ein-
hverjum skakkaföllum af hendi
næstu strandstöð Landsíma íslands
og stjórnstöð Landhelgisgæslunnar
vita um slíkar sendingar.
Þessar nýju reglur eiga að tryggja
að hvert tilfelli sé rannsakað til
hlítar þannig að enginn vafi leiki á
um hver uppruni þess sé.
Landhelgisgæslan sætti nokkurri
gagnrýni vegna viðbragða hennar í
umræddu tilviki og eru reglurnar
settar til að koma í veg fyrir það í
framtíðinni. þj
skemmdarvarga í vetur. í fæstum
tilfellum hefur tekist að hafa hendur
í hári sökudólganna.
Mikill fjöldi nemenda bauð sjálf-
viljugur fram þjónustu sína, þegar
skólayfirvöld leituðu eftir því, og
vegna þess ætti hver vaktmaður ekki
að missa neitt af ráði úr skóla, þótt
sé staðin vakt frá klukkan 8.00 um
morguninn og þar til skóla lýkur.
-Þj
Sandgerði:
Börn
ráðast
gegn full-
orðinni
konu
Fullorðin kona í Sandgerði seg-
ist vera í miklum vanda stödd
vegna stöðugra árása barna á
heimili hennar. Víkurfréttir
skýra frá því, að hún megi ekki
skilja eftir opnar dyr eða glugga,
þá sé einhverju hent inn. Húsið
væri grýtt að utan og barið hátt
og lágt. Krakkarnir dreifðu rusli
úr ruslagrindinni um nágrennið
og köstuðu grjóti upp á þakið.
Konan skýrir einnig frá því, að
hún megi ekki ganga um götur,
án þess að óþverraorðum sé
hreytt í hana. Hún erhjartasjúkl-
ingur og á erfitt með að þola
aðkastið. Hún hefur því leitað á
náðir núverandi sveitarstjóra,
sem hefur a.m.k. tvisvar haft
samband við lögregluna vegna
þessa máls. Það hefur lítt stoðað.
Konunni segist svo frá, að
formaður barnaverndarnefndar
hafi eytt málinu, þegarhún leitaði
til hans um aðstoð. Nú skorar
hún á foreldra barnanna að taka
til hendinni, „annað gangi ekki".
Að öðrum kosti fái hún engan
frið á heimili sínu. þj
Grunnskóli ísafjarðar:
Nemendur gegn
skemmdarvörgum
Myndin sýnir Þórð Þorsteinsson í gervi prímadonnu í leikritinu
Bjartsýni eftir Brosa, sem sýnt er í Þinghamri um þessar mundir.
Tímamynd: MM.
Leikstarf í Borgarfirði
Frá MaBnusi Magnússyni frénar. Tímans er 10 ára um þessar mundir og í því
Borgarfírdi.
Nú í vetur hefur leikstarf verið
með miklum blóma hér í Borgar-
firði.
Má þar fyrst nefna að Ung-
mennafélagið íslendingur færði
upp leikritið „Týndu teskeiðina", í
Brún, í desember s.l. En þá átti
félagið 75 ára afmæli.
Nú standa yfir sýningar hjá leik-
deild Umf. Stafholtstungna á
kabarettnum „Bjartsýni" eftir
BROSA, en Brosi þessi er búinn til úr
upphafsstöfum höfunda, þ.e. B =
Bjartmar Hannesson, R = Ragn-
hildur Einarsdóttir, 0 = Orða-
belgir úr leikdeildinni, S=Snorri
Þorsteinsson og A=Andrea Da-
víðsdóttir. Leikstjóri verksins er
G. Margrét Óskarsdóttir. Bjart-
sýni var frumflutt 21. mars og eru
sýningar áætlaðar 9, sú síðasta
verður laugardaginn 4. apríl kl.
21.00. Sýningarstaður er félagshei-
milið Þinghamar.
Leikdeild Umf. Stafholtstungna
. túefm gaf hún út veglegt afmælis-
blað, einnig færði leikdeildin fé-
lagsheimilinu Þinghamri veglcga
gjöf, þ.e. blómaskreytingar í for-
stofu og matsal hússins. Setja
blómaker þessi mikinn og fallegan
svip á húsið.
Ungmennafélag Reykdæla cr nú
í þann veginn að Ijúka æfingum á
pörtum úr 5 leikritum, sem öll hafa
verið færð upp í Logalandi á s.l.
árum. Nefnist uppfærslan „Gleði-
glætur". Leikstjóri er Bjarni
Ingvarsson. Gleðiglætur hefur að
geyma parta úr: Manni og konu,
Pilti og stúlku, Blómarósum,
Saumastofunni og Skjaldhömrum.
Alls eru um 20 manns, sem taka
þátt í sýningunni. Frumsýning á
Gleðiglætunr verðurn.k. föstudag,
3. apríl kl. 21.00, í Logalandi,
seinni sýningin verður þriðjud. 7.
apríl á sarna tíma. Aðeins verður
um þessar tvær sýningar að ræða.
Miðapantanir á Gleðiglætur eru í
símum 5169 og 5214.
Myndin sýnir frá vinstri Sigríði
ur og Gróu Rögnvaldsdóttur í hlutverkum sínum í Bjartsýni eftir
Brosa. Tímamynd: MM
Hnífsdalur:
Isafjörður:
Fimm bíla
árekstur
Um klukkan 14 á laugardag lentu
fimm bílar saman í árekstri á vegin-
um rétt ofan við Hraðfrystihúsið í
Hnífsdal.
Afar slæmt veður var þegar
óhappið varð og skyggni sama og
ekkert. Þrír bílanna eru óökufærir
eftir áreksturinn, en engin slys urðu
á mönnum.
Lögreglan segir umferðaróhöpp-
um hafa fjölgað verulega síðan veð-
ur versnaði á þessum slóðum. Væru
nú þegar orðin jafnmörg umferðar-
óhöpp eins og hefðu orðið á tíman-
um frá janúar til júní á síðasta ári.
þj
Banaslys í
höfninni
A ðfararnótt laugardagsins
síðastliðins drukknaði maður í
ísafjarðarhöfn. Hann var skip-
verji af togaranum Hersi GK frá
Hafnarfirði. Talið er að slysið
hafi viljað til er hann hugðist
ganga í land og hafi hrasað milli
skips og bryggju.
Leit hófst Ójótlega og fannst
maðurinn látinn um klukkan 11 á
laugardagsntorguninn. Hinn látni
hét Sölvi Ingólfsson. Hann var
einhleypur. þj