Tíminn - 02.04.1987, Qupperneq 15
Fimmtudagur 2. apríl 1987
Tíminn 15
ARNAÐ HEILLA
illllllllli
l!!!!ll!!!!!ll!l!ll!!!!!l!l!!!!l!l!!l!!!!!!!!l!!l!!l!!j!!!!!!illl
90 ára
Guðbjarni Sigmundsson
Akranesi
Guðbjarni Sigmundsson frá ívars-
húsum á Akranesi er 90 ára í dag.
Af því tilefni vil ég senda honum
innilegustu árnaðaróskir og þakka
honum kynnin í þriðjung aldar.
Það var á vordögum 1954 að leiðir
okkar lágu fyrst saman. Bæjarstjórn
Akraness hafði samþykkt 1950 að
gefa væntanlegri sementsverksmiðju
lóðir undir byggingar og aðra starf-
semi, yrði verksmiðjan byggð á
Akranesi. Verksmiðjunni var valinn
staður í landi ívarshúsa, sem var
eignajörð Guðbjarna. Dregist hafði
að ganga frá kaupunt á landinu og
greiðslum, en bygging verksmiðj-
unnar var að hefjast. Guðbjarni var
því að vonum orðinn órólegur út af
málum sínum. Það féll í hlut nýs
bæjarstjóra að taka upp viðræður
við Guðbjarna um kaup á umræddu
landi og greiðsluskilmála. Margirog
strangir fundir voru haldnir fram á
haustið 1954, en þá náðist fullt
samkomulag, svo ekki þurfti að fara
í eignarnám né annan málarekstur.
Guðbjarni hafði að vísu lögfræðing
á bak við sig, en sýndi hann aldrei.
Hann sótti málið sjálfur. Var fundvís
á rök og ódeigur í baráttunni fyrir
málstað sínum. Enginn lögfræðingur
hefði staðið sig betur en hann og oft
sagði ég honum það. Við höfðum
þarna gagnstæðra hagsmuna að gæta
og því varð ekki hjá deilum komist.
Það sem mér er svo kannski minnis-
stæðast frá þessum fyrstu samskiptum
okkar, er hversu þessi harðsnúni samn-
ingamaður var ætíð drengilegur og
heilsteyptur. Þegar upp var staðið
og samningar höfðu tekist um þessi
lóðakaup bæjarins átti Guðbjarni
fulla virðingu mína og tókst með
okkur vinátta, sem aldrei hefur fallið
skuggi á. Fyrir þetta hef ég ævinlega
verið mjög þakklátur, því svona mál
eru ekki líkleg til að tengja vináttu-
bönd.
Ég varð þess fljótlega var að
Guðbjarni er skarpgreindur, fróður
og minnugur. Ég átti þess kost að
skrifa niður nokkrar endurminning-
ar hans frá fyrstu árum verkalýðs-
hreyfingarinnar á Akranesi fyrir
blaðið Magna hér í bæ. Ennfremur
ferðasögu hans til Detroit í Banda-
ríkjunum og þaðan á heimssýning-
una í Montreal í Kanada, en þá ferð
fór Guðbjarni fyrir um 20 árum. Þá
kynntist ég betur en áður nákvæmri
frásögn og góðri athyglisgáfu. Slíkur
maður hefði átt margra kosta völ,
hefði hann í æsku notið þeirrar
menntunar, sem nú stendur öllum til
boða. Slíkur maður verður líka svo
mörgum minnisstæður. þótt árin
líði.
Guðbjarni var einnig líkamlega
vel á sig kominn. Hann var hið
mesta hraustmenni frant eftir ævi.
Dugnaðarforkur að hverju sem hann
gekk og sívinnandi. Auk búskapar-
ins stundaði hann sjómennsku, fiski-
mat og verkamannavinnu. Á þessu
fjölmenna heimili var efnahagurinn
betri, en almennt gerðist á þeirri tíð.
Mér er sagt að kreppan hafi nánast
farið fram hjá ívarshúsum. Hann lét
sig ekki muna um það í byrjun
kreppunnar eða 1930 að byggja stórt
og vandað steinhús, sem þá var
meðal hinna veglegustu á Akranesi.
Þannig sá hann alltaf fjölskyldu sinni
farborða af miklum myndarskap,
þótt stór væri. Félagsmálastörfum
sinnti hann talsvert og var þar vel
liðtækur, bæði í verkalýðshreyfing-
unni og samvinnufélögum.
Guðbjarni er fæddur í Arnþórs-
holti í Lundarreykjardal 2. apríl
1897. Foreldrar hans voru hjónin
Vigdís Jónsdóttir og Sigmundur
Guðbjarnarson, sem um þær mundir
bjuggu í Lundarreykjardalnum, en
fluttu árið 1900 að ívarshúsum á
Akranesi. Þar er Guðbjarni því
alinn upp og varð snemma fyrirvinna
móður sinnar, því faðir hans andað-
ist 1914, mjög fyrir aldur fram.
Jónsmessudagurinn 1922 var mik-
ill hamingjudagur í lífi Guðbjarna.
Þá kvæntist hann Guðnýju Magnús-
dóttur frá Iðunnarstöðum í Lundar-
reykjardal. Þau eignuðust 11 börn.
Tvö dóu í bernsku, en 9 eru á lífi -
4 synir og 5 dætur - sem öll hafa
'■H
stofnað heimili. Börnum sínum
komu þau vel til manns og gegna þau
hinum margvíslegustu störfum í
þjóðfélaginu. Afkomendahópur
þeirra hjóna er orðinn stór og hið
mannvænlegasta fólk. Hér er um að
ræða mikilsvert framlag til þjóðfé-
lagsins.
Guðný var myndarleg húsmóðir,
fróðleiksfús og félagslynd, auk þess
að vera mikil móðir barna sinna.
Hún andaðist 18. nóv. 1984 eftir
nokkra vanheilsu og þá hafði farsælt
hjónaband þeirra staðið í meir en 62
ár. Um Jónsmessuleytið 1982 héldu
þau hjónin veglegan fagnað í tilefni
af 60 ára hjúskaparafmæli sínu.
Guðbjarni var þá nýlega orðinn 85
áræ.og stutt í 80 ára afmæli Guðnýj-
ar. Þetta var fagur hamingjudagur
fyrir þau og afkomendur þeirra, sem
ýmsir aðrir nutu.
Guðbjarni hefur hin síðustu ár
búið á Dvalarheimilinu Höfða á
Akranesi. Úr íbúð hans er útsýni
gott yfir höfnina og hina gömlu jörð
hans - ívarshús - þar sem æskuheim-
ili hans stóð, þar sem lífsbaráttan
var háð og margir sigrar unnir á
löngu æviskeiði. Hann nýturútsýnis-
ins vel, því þrátt fyrir háan aldur,
heldur hann óskertri sjón. Á hillu í
stofu hans eru myndir af börnunum
9. Þau eru stolt hans og lífshamingja,
sem hann yljar sér við á ævikvöldinu,
• ásamt endurminningum um lífsföru-
nautinn góða. Megi hann njóta þess
sem lengst. Hjartanlegar hamingju-
óskir.
Dan. Ágústínusson.
Prentarinn
- Málgagn Félags
bókagerðarmanna
Forustugrein þessa blaðs nefnist Styrk-
ur okkar felst í kunnáttunni. Á forsíðu er
mynd eftir Sigurð Þóri: „Að bera hönd
fyrir höfuð sér“. Þá er grein um hækkun
kauptaxta, og hverju sú hækkun breyti.
Þóra Elfa Björnsson skrifar: Um veginn
og daginn í prentiðnaðinum. Þá eru
frásagnir af ýmsum athugunum á vegum
Vinnuverndar. Ritstjóri segir frá fjórða
þingi Grafiska Fackförbundet í Svíþjóð:
Réttur verkafólks sé tryggður gagnvart
tækninýjungum. Tveir danskir prentarar
segja frá prentvinnu í Nicaragua. Kynnt
er nýtt trúnaðarmannaráð og síðan eru
ýmsar fréttir.
Samúéí
111. blað Samúels er nýkomið út. Þar
er m.a. sagt frá dönsku stúlkunum Hanne
og Pia sem fundu hamingjuna á íslandi.
Frásögn með myndum er af skíðanámi
blaðamanns Samúels í Austurríki. Þá er
grein um Hvað gerist ef óþekkt flugvél
nálgast ísland? Margar myndir eru frá
skemmtikvöldinu í Hollywood: Leitin að
týndu kynslóðinni. Sagt er frá útvarpi
framhaldsskólanema „Utrás". Myndir af
fáklæddu eða nöktu kvenfólki er á sínum
vanalcga stað í ritinu og á forsíðu skartar
hún Mel, - sem lá heima í Englandi í
flensu þegar hún átti að vera að syngja á
íslandi.
Utgefandi er Sam-útgáfan og ritstjóri
Þórarinn Jón Magnússon.
Freyr Búnaðaiblað
í þessu blaði, 5. tbl. ’87, er sagt frá
ráðunautafundi 1987. ViðtalerviðHákon
Björnsson, framkvæmdastjóra Áburðar-
verksmiðjunnar: Áburðarverksmiðjan er
að endurskipuleggja starfsemi sína. Þá er
birt erindi, eftir Hákon Sigurgrímsson,
framkvæmdastjóri Stéttarsambands
bænda, sem hann flutti á Ráðunautafundi
’87, Fjölþættari atvinnumöguleikar í
sveitum.
Greinar eru um útbreiðslu vöðvasulls
eftir Sigurð H. Richtero.fi. þýdd grein úr
Dansk Pelsdyrblad um Áhrif skinneigin-
leika á verð.Pétur Sigtryggsson, svín-
aræktarráðunautur B.I. skrifar grein:
Fóðrun svína. Þá er grein frá Rala eftir
Ólaf Guðmundsson fóðurfræðing. Þegar
bændur voru mátaðir nefnir Björn S.
Stefánsson búnaðarhagfræðingur grein
sína.
Margt fleira er í blaðinu. Útgefendur þess
eru Búnaðarfélag íslands og Séttarsam-
band bænda.
ABC
Barna- og tómstundablað
í nýju blaði af ABC eru sögur og viðtöl,
svo sem við Kristján Eldjárn og Gígju
Birgisdóttur fegurðardrottningu og sög-
urnar Sigga, Töfrahringurinn o.fl. Mjög
mikið er af föndri og þrautum í blaðinu,
einnig ýmislegt um íþróttir og popp,
gæludýr og fleira. Þá er sagt frá Söngvak-
eppni sjónvarpsins, og myndir eru í opnu
af Kínaförunum, þ.e. hljómsveitinni
Strax.
Ritstjóri er Margrét Thorlacius.
liffflf auglýsir
samkeppni
RÍKISÚTVARPIÐ Evrópusjón-
varpsstöðva um
sjónvarpshandrit
Sjónvarpsstöðvar og menningarmálastofnanir í
Evrópu hafa ákveðið að standa sameiginlega að
verðlaunasamkeppni í því skyni að hvetja unga
höfunda til að skrifa handrit að sjónvarpsleikritum
eða leiknum sjónvarpsþáttum.
Um er að ræða samkeppni um starfsverðlaun er
veitt verða síðari hluta þessa árs. Starfsverðlauna-
hafar koma síðan til greina er aðalverðlaun og
sérstök Evrópuverðlaun verða veitt ári síðar.
Umsækjendur skulu ekki vera eldri en fertugir á
árinu sem samkeppnin til starfsverðlaunaferfram.
Þeir skulu skila fimm síðna tillögu að sjónvarps-
leikriti eða leikinni sjónvarpsþáttaröð til Ríkisút-
varpsins.
Ríkisútvarpið hefur heimild til að tilnefna allt að
þrjá umsækjendur til samkeppninnar.
Starfsverðlaun að upphæð 25.000 svissneskir
frankar verða veitt í nóvember 1987. Jafnframt er
verðlaunahöfum gefinn kostur á námskeiði, að
jafnaði í dagskrárdeild sjónvarpsstöðvar sem
tilnefndi verðlaunahafa. Heimilt er að veita allt að
tíu starfsverðlaun í hvert skipti.
Umsóknarfrestur um starfsverðlaun þessa árs er
til 1. júlí 1987.
Umsóknum ásamt tillögu að sjónvarpshandriti
skal skilað til skrifstofu útvarpsstjóra, Ríkisútvarp-
inu, Efstaleiti 1, 103 Reykjavík, þar sem reglur
samkeppninnar liggja ennfremur frammi.
BÍLALEIGA
Útibú í kringum landið
REYKJAVIK:.. 91-31815/686915
AKUREYRI:.... 96-21715/23515
BORGARNES: ......... 93-7618
BLÓNDUÓS:...... 95-4350/4568
SAUÐARKROKUR: . 95-5913/5969
SIGLUFJÖRÐUR: ..... 96-71489
HUSAVIK: ... 96-41940/41594
EGILSSTAÐIR: ....... 97-1550
VOPNAFJÖRÐUR: . 97-3145/3121
FASKRÚÐSFJÖRÐUR: .97-5366/5166
HÖFN HORNAFIRÐI: ... 97-8303
ínterRent
Laust starf
Auglýsingadeild Tímans óskar að ráða starfsmann
til auglýsingaöflunar og annarra starfa.
Æskilegt að viðkomandi hafi einhverja þekkingu á
auglýsingagerð, gott vald á íslensku máli og
nokkra vélritunarkunnáttu.
Umsóknir er greini frá menntun og fyrri störfum
sendist auglýsingadeild blaðsins fyrir 10. apríl n.k.
Tíminn, Síðumúla 15, Reykjavík
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
eiginmanns míns, föður, tengdaföður og tengdasonar,
Jóhannesar Guðmundssonar
bónda
Jörfa Kolbeinsstaðahreppi
Hanna Jónasdóttir
Anna Jóhannesdóttir
GuðmundurJóhannesson
Guöbjörg Jóhannesdóttir
Jónas Jóhannesson
Kristín Jóhannesdóttir Sigurður Kr. Sigurðsson
Guðbjörg Hannesdóttir
WWUSmHF
Járnhálsi 2 Sími 83266 110 Rvk.
F*ósthólf 10180