Tíminn - 02.04.1987, Qupperneq 20
Vidski ptaf ul Itrúar í sendiráðin
Útflutningíirád íslands og utanríkisráðuneytið undirrituðu i gær
samning um samstarf á sviði útflutnings- og markaðsmála.
Með samningi þessum er m.a. ætlunin að skipa viðskiptafulltrúa í
þeim sendiráðum sem Útflutningsráð telur nauðsynlcgt og mun
utanríkisráðuneyti leggja til aðstöðu ■ sendiráðunum en Útflutnings-
ráð greiðir laun fulltrúanna og allan kostnað af markaðsleit.
Viðskiptafulltrúar þcssir eiga að vera sendiherrum til ráðgjafar í
útflutnings- og markaðsmálum.
Þá efnir Útflutningsráð ríkisins um þessar mundir til hugmyndasam-
keppni uni merki og vígorð sem nota á fyrir sameiginlegar markaðs-
og kynningaraðgerðir íslenskra aðila erlendis. Samkeppnin er öllum
opin.
Samkeppni þcssi er í tveimur liðuin. Annars vegar er merki
Útflutningsráðs íslands sem verður í senn tákn ráðsins og allshcrjar-
merki fyrir sameiginlegar markaðs- og kynningaraðgerðir erlendis
Hins vegar er vígorð seni á að vera setning á íslensku og ensku sem
aðilar ■ útflutningi vöru, þjónustu og í ferðamálum geta sameinast um.
Æskilcgt er að bæði merkiö og vígorðið beri íslensk séreinkenni.
17. MARS
Titnirm
Stangaveiðitímabiliö hafið:
Góð veiði
þrátt fyrir
vetrarríki
Stangaveiðitímabilið hófst opin-
berlega í gær. Veiði hófst í Varmá í
Ölfusi eða Þorleifslæk eins og margir
kalla ána. Veiði var með ágætum,
þrátt fyrir afleitt veður. Aðallega
veiddist sjóbirtingur, á bilinu hálft
til fjögur pund, en inn á milli eins-
taka regnbogasilungur. Veiðiskil-
yrði voru heldur slæm sökum veðurs
og áin frekar vatnslítil.
Þegar Tímamenn bar að garði
ofarlega á veiðisvæðinu var bjart yfir
þeim veiðifélögum Rósari Eggerts-
syni varaformanni Landssambands
stangaveiðifélaga, Sigurði Rósars-
syni og Rúnari Sigurðssyni. Höfðu
þeir félagar fengið eina sex spegil-
fagra sjóbirtinga og einn regnboga-
silung. Allt veitt á maðk. Aðrir sem
við veiðar voru í gær voru Paul
O'Keeffe í Veiðimanninum, en hann
fékk sjö sjóbirtinga, alla á spún, og
feðgarnir Haukur Haraldsson og
Ólafur Hauksson. Ekki tókst að afla
upplýsinga um þeirra veiði en þó
hafði sést til þeirra feðga draga fisk
og annan um morguninn.
„Við höfunt oft veitt í verra veðri
en þetta. Ég man eftir allt að fjórtán
stiga gaddi eitt árið,“ sagði Rósar
Eggertsson í samtali við Tímann í
gær á bökkum Varmár. Hann hefur
veitt við ána á fjórða áratug, alltaf
þann fyrsta apríl. Nánar verður
greint frá fyrsta veiðideginum í helg-
arblaði Tímahs. - ES
Rúnar Sigurðsson heldur hér á sjó-
birtingi sem var tekinn á niaðk
ofarlega í Varmá. Fleiri myndir
verða birtar í helgarblaði Tímans.
Tímamynd Pjetur
Kennarasamband íslands:
Grunnskólakennarar fá
sama samning og HIK
- búist viö undirskrift samninga í dag, segir Valgeir Gestsson form. K.í.
Reiknað er með að í dag veröi
skrifað undir samhljóða samninga
og gerðir voru við kennara í HÍK
'fyrir alla grunnskólakennara í
Kcnnarasambandi íslands, að því er
fram kom í viðtali við Valgeir
Gestsson, formann Kennarasam-
bandsins í gær. f Kcnnarasamband-
inu sagði hann um 3.200 kennara,
eða nær þrefalt lleiri en í HlK. Hinir
nýju kennarasamningar ná því til
töluvert á 5. þúsund kennara, sem
eru jafnframt um fjórðungur allra
ríkisstarfsmanna.
, Aðspurður hvort grunnskóla-
kennarar hafi hægt og rólega fcngið
sömu kauphækkanir og framhalds-
skólakcnnarar án nokkurra vcrk-
falla, sagði Valgeir Gestsson:
- „Ekki hægt og rólega, því við
erum búniraðvera ísama samninga-
slagnum. En þetta eru tvö félög
bæði með sjálfstæöan samningsrétt.
Annað félagið ákvað að fara í verk-
fall núna en ekki hitt. Við fórum í
verkfall 1984 en ckki hinir. En við
höfum verið alveg samhliða HÍK í
viðræðunum gegn um alla samninga-
gerðina, erum nú að Ijúka pappírs-
vinnunni og rciknum með að skrifa
undir sams konar samninga og HÍK
á morgun." Eina muninn á samning-
um þessara tveggja félaga sagði
hann þann, að innan Kennarasam-
bandsins væru einstaka hópar sem
ekki væru í hinu télaginu, svo sem
verkmenntakcnnarar á framhalds-
skólastigi og kennarar án nokkurra
kennaraprófa, sem sérstök ákvæði
hafi verið fyrir í samningum Kenn-
arasambandsins.
Hvað þessi nýi samningur kemur
til með að kosta hinn galtóma kassa
okkar allra - ríkiskassann virðist
enginn hafa viljað leggja mat á
ennþá. En ætla má að hver 10% sem
laun hækka í grunn- og menntaskól-
um umfram áætlun fjárlaga 1987
þýði um 310 milljóna króna útgjalda-
auka fyrir ríkissjóð.
Samkvæmt atvinnuvegaskýrslum
Þjóðhagsstofnunar fyrir 1985 voru
laun í grunn- og menntaskólum um
23% af heildarlaunagreiðslum ríkis-
ins það ár. í fjárlögum 1987 er
reiknað með að heildarlaunagreiðsl-
ur nemi í kringum 13.600 milljónum
króna, þannig að launakostnað í
framangreindum skólum má því
áætla um 3.130 milljónir í fjárlögum
1987, og hverja 10% hækkun á þeirri
upphæð því um 313 milljónir króna
sem fyrr segir. - HEI
Aprílgabb
Tímans
Þeir voru margir sem hlupu
aprfl vegna aprílgabbs Tímans í
gær. Flestir töldu sjálfgefið að
fréttin um gullhnefa Alberts hefði
verið í tilefni dagsins, en hringdu
hins vegar í ofboði út af niður-
stöðum skoðanakönnunar
Tímans, sem spáði Albert Guð-
mundssyni 51,3% atkvæða í kom-
andi kosningum.
Einn lesandi sagðist sleginn
yfir þessum niðurstöðum og ann-
ar varð illur við þegar honum var
sagt að tvær fréttir væru til að fá
menn til að hlaupa apríl. Sagðist
hann mundu kæra þetta fyrir
siðanefnd Blaðamannafélagsins!
- phh
Tíminn
Frá og með 1. apríl hækkar
blaðið í lausasölu í kr. 55 virka
daga, og í 65 kr. um helgar.
Áskriftargjald verður kr. 550 á
mánuði.
Sjúkraliöar:
Lofað 34 þúsund í lágmarkslaun
- og gáfu því þriggja daga frest tii að ganga frá þeim samningum
„Við ákváðum að fara í biðstöðu
í þrjá daga vegna þess að við
töldum að viðræður væru komnar
það langt. Við ákváðum þetta eftir
að búið var að gefa okkur mjög
jákvæð loforð um ýmis réttindamál
sem við höfum viljað fá viðurkennd
til margra ára, en Ijóst var að ekki
var hægt að ganga frá samningi
aðfaranótt miðvikudags. Okkur
var einnig lofað 34 þúsund króna
lágmarkslaunum," sagði Sigríður
Kristinsdóttir sjúkraliði, en hún á
sæti í rammasamninganefnd SFR.
Hingað til hafa laun sjúkraliða
verið 34.000 kr. á mánuði eftir 18
ára starfsaldur.
Sigríður nefndi forgang að dag-
heimilaplássi fyrir börn sem dæmi
um réttindamál sjúkraliða enda
væri þetta inni í samningi hjá
hjúkrunarfræðingum og einnig
breytt vaktafyrirkomulag og
þriggja mánaða starfsleyfi á hverj-
um fimm árum. Auk þess væru
ýmsar breytingar á starfsréttind-
um, lögum og reglugerðum sem
löggjafarvaldið tæki endanlega
ákvörðun um sem ræddar hefðu
verið.
Sigríður sagði að ef þau loforð
sem gefin hefðu verið væru ekki
annað en orðin tóm, þá myndu
sjúkraliðar labba út að nýju að
loknum þessum fresti.
Rammanefnd SFR fór á fund í
Karphúsið kl. 14:00 í gær.
ABS