Tíminn - 11.04.1987, Qupperneq 5

Tíminn - 11.04.1987, Qupperneq 5
Laugardagur 11. apríl 1987 Tíminn 5 Bankaráð og bankastjórar Útvegsbankans komu saman til fundar kl. 10 í gærmorgun og var þar tekin afstaða til lausnarbeiðnar bankastjóranna, sem kom í kjölfar ákæru ríkissaksóknara. Bankaráðið lýsti fullu trausti á störf bankastjóranna og féllst ekki á lausnarbeiðni þeirra. Þeir munu því sitja áfram út mánuðinn, en hafa ekki gefið kost á sér til starfa sem bankastjórar Útvegsbankans hf. (Tímamynd: Brein) Bankaráð Útvegsbankans féllst ekki á lausnarbeiðnina : Bankastjórarnir sitja út apríl - en gefa ekki kost á sér sem bankastjórar fyrir Útvegsbankann hf. Bankastjórar Útvegsbankans hf. verða aðeins tveir og óvíst hvort ráðnir verða aðstoðarbankastjórar Á fundi bankastjórnarog bankar- áðs Útvegsbanka Islands var tekin fyrir beiðni núverandi bankastjóra Utvegsbanka um að þeir verði þegar leystir frá störfum, í kjölfar ákæru ríkissaksóknara. Bankaráð Útvegs- bankans féllst ekki á lausnarbeiðn- ina og hefur bankastjórnin lýst yfir að hún muni halda áfram störfum. Eftirfarandi yfirlýsing var sam- þykkt einróma af bankaráðinu: „Bankaráðið ber fullt traust til bankastjórnarinnar, þrátt fyrir fram- komna ákæru, enda er það mat bankaráðsins að núverandi banka- stjórn hafi gert sitt ítrasta til að tryggja hag Útvegsbanka íslands. Bankaráðið er því sammála um að fallast ekki á lausnarbeiðnina.“ Um hádegi var síðan haldinn fundur hins nýkjörna bankaráðs Út- vegsbankans hf. Á þeim fundi var verkum skipt í bankaráðinu og var Gísli Ólafson, forstjóri kjörinn for- maður bankaráðsins, Kristján Ragn- arsson, frkvst. varaformaður og Baldur Guðlaugsson, ritari. Aðrir í bankaráðinu eru Jón Dýrfjörð og Björgvin Jónsson. í samtali við Tímann sagði Gísli Ólafson að bankaráðið hefði ákveð- ið að bankastjórar Útvegsbankans yrðu aðeins tveir í stað þriggja nú og yrði væntanlega ákveðið hverjir það yrðu nú um helgina. Núverandi bankastjórar Útvegsbankans hefðu hins vegar ekki gefið kost á sér sem bankastjórar í Útvegsbankanum hf. Þar sem Útvegsbankinn hf. tekur formlega til starfa þann 1. maí er ljóst að núverandi bankastjórar sitja aðeins til mánaðarmóta. Sagði Gísli að bankaráðið hefði ekki enn ákveðið hvort ráðnir yrðu nokkrir aðstoðarbankastjórar og óvíst hvort svo verði. -phh Náttúrufræðingar semja: Þolanlegur samningur - lágmarkslaun þó aðeins um 40 þúsund krónur, segir Ólafur Karvel Pálsson, formaður samninga- nefndar „Lágmarklaun eru samkvæmt þessum samningi aðeins um 40 þús- und krónur. Sennilega þýðir þetta um 20% launahækkun á samnings- tímanum sem er til tveggja ára, en þessi samningur er frábrugðinn öðr- um sem gerðir hafa verið núna að því leyti að í honum eru endur- skoðunar- og uppsagnarákvæði. Það má taka samninginn til endur- skoðunar og uppsagnar ef kaupmátt- ur rýrnar meira en 6,5% á næsta ári, miðað við kaupmáttinn eins og hann verður á þessu ári,“ sagði Ólafur Karvel Pálsson, formaður samninga- nefndar Félags náttúrufræðinga í samtali við Tímann í gær. Samningar náðust í gærmorgun og lauk þar með verkfalli 260 félaga úr Félagi náttúrufræðinga og Félagi matvælafræðinga en þessi tvö félög höfðu samflot í samningagerðinni. „Aðalávinningur þessa samnings þegar upp er staðið, liggur kannski í því að við nýttum okkar samnings- rétt í fyrsta skipti og höfum sýnt að við getum farið í verkfall sem gagn er að. Við höfum fótað okkur þarna sem alvöru stéttarfélag," sagði Ólaf- ur Karvel. Þó þessir samningar séu í höfn, er enn ekki útséð um hvort náttúru- fræðingar í Blóðbankanum hefji aft- ur störf, þar sem þeir höfðu allir nematveir.sagtuppstörfum. -phh Akureyri: Rætt um áfengismál Norræna bindindisþingið verður haldið á Akureyri með hækkandi sól, eða í júnímánuði. Fyrir þing- inu stendur Norrænda bindindis- ráðið, NNR og er það haldið til skiptis á Norðurlöndunum. Samvinnunefnd bindindis- manna, sem að standa níu íslensk bindindissamtök, stofnanir og fyrirtæki, hefur með höndum fram- kvæmd þingsins að þessu sinni. Norræna bindindisþingið er vett- vandur upplýsinga og skoðana- skipta um það sem er á döfinni í áfengismálum og bindindisstarfi hverju sinni. Á þinginu nú verða m.a. kynntar niðurstöður rann- sókna hér á landi og annars staðar á Norðurlöndunum og fjallað um áfengismálastefnu. Einnig verður kynnt átak Sovétmanna gegn áfengisneyslu í ríki sínu. Meðal fyrirlesara má nefna dr. Tómas Helgason, Guðrúnu Agn- arsdóttur, Gabriel Romanus, for- stjóra Áfengisverslunar sænska ríkisins og Aase Olesen þingmaður frá Danmörku. Þingið verður haldið dagana 22.- 26. júní í sumar. -SÓL Tímaritamarkaðurinn: Frjálst framtak kaupir Fjölni - gefur nú út 16 tímarit Útgáfufyrirtækið Frjálst framtak festi í gær kaup á útgáfufyrirtækinu Fjölni sem m.a. hcfur gefið út tíma- ritin Mannlíf og Bóndann. Segir í fréttatilkynningu frá Frjálsu fram- taki að fyrirtækið hyggist með þessu styrkja enn stöðu sína á íslenskum tímaritamarkaði og er það að vonum. Eftir þessi kaup hyggst Frjálst framtak nú gefa út 16 tímarit, þeirra á meðal Mannlíf og Nýtt líf. -phh Steingrímsfundur í Hafnarfirði: »Við stóðum við okkar!“ „Það var einmitt hér á þessum sama stað sem ég stóð þegar ég tilkynnti um þá erfiðustu ákvörðun sem ég nokkum tímann hef tekið," hóf Steingrímur Hermannsson,for- sætisráðherra, mál sitt á fundi Fram- sóknarflokksins í Hafnarfirði. Fullt var út úr dyrum og héldu aðrir frambjóðendur stuttar tölur, svo sem Níels Árni Lund og Gylfi Guð- jónsson. „Hér tilkynnti ég að ég myndi gefa kost á mér til framboðs í Reykjanes- kjördæmi," sagði Steingrímur. „En hvað sem skoðanakönnunum líður kvíði ég ekki framboði hér. Hvar- vetna hefur mér verið vel tekið, þar sem ég hef komið til að kynnast atvinnuháttum nánar. Þótt þeir séu hér fjölbreyttari og fleiri en í því kjördæmi sem ég var í áður, er grundvöllurinn sá sami. Þess vegna hef ég hlotið góðar undirtektir og ég trúi að kjósendur í Reykjaneskjör- dæmi dæmi okkur framsóknarmenn af verkum okkar. Þá þurfum við engu að kvíða." „Mér hefur verið legið á hálsi fyrir að gera ekki deilumál við samstarfs- flokkinn opinber á líðandi kjörtíma- bili. En ég hef frekar kosið að halda stjórninni saman og þannig ná þeim markmiðum sem við settum okkur í upphafi. Það hefur tekist og við höfum sýnt, að framsóknarmenn eru drengskaparmenn." Það var fullt útúr dyrum á Framsóknarfundi í Hafnarfirði, þegar Steingrímur flutti ræðu sína. (Tímamynd: BREIN) „Sumir halda því fram, að ekki sé þörf á flokki í miðju nú. Það er reginfirra. Það hefur e.t.v. aldrei verið meiri þörf fyrir flokk, sem getur nýtt hið besta frá vinstri og hægri og komið á sáttum og miðlað málum. Það hefur aldrei verið meiri þörf fyrir flokk sem ratar hinn gullna meðalveg." Steingrímur ræddi einnig um þá skemmtilegu röksemd sumra fyrir því að kjósa Sjálfstæðisflokkinn, að hann hefði komið á frjálsu útvarpi. „Sumir ætla að kjósa Sjálfstæðis- flokkinn vegna þess að án hans hefði aldrei orðið nein Bylgja eða Stöð 2. Hér sannast best hve nauðsynlegt er að hafa öfgalaust afl í ríkisstjórn. Sjálfstæðisflokkurinn hefur reynt að koma frjálsu útvarpi á í 10 ár. Það hefur ekki gengið fyrr en nú, að Ingvar Gíslason, sem sat á þingi fyrir Framsóknarflokkinn, samdi frum- varp um frjálst útvarp, sem allirgátu sætt sig við. Við framsóknarmenn getium borið höfuðið hátt þegar við göngum til kosninga. Við stóðum við loforð okkar. Við skulum láta verkin tala.“ Þj Smábátabann Allar fiskveiðar á bátujn undir tíu brúttólestum eru bannaðar frá klukkan 20 í kvöld og fram til klukkan 10 árdegis þann 21. apríl. Sjávarútvegsráðuneytið sendir út fréttatilkynningu þessa efnis.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.