Tíminn - 05.08.1987, Side 3
Miðvikudagur 5. ágúst 1987
Tíminn 3
Samkvæmt heimildum sem Tím-
inn telur mjög áreiðanlegar, er
reksturinn á Hótel Örk í Hvera-
gerði að sigla strand. Er talið að
þess sé skammt að bíða að farið
verði fram á greiðslustöðvun fyrir
Örkina vegna verulegra greiðslu-
erfiðleika.
„Það er ekki komið á það stig að
við séum farnir að biðja um
greiöslustöðvun," sagði lögmaður
Helga Þórs Jónssonar eiganda
Hótels Arkar í Hveragerði. Lög-
maður hans Pétur Þór Sigurðsson,
sagði jafnframt að það gæti verið
úrræði skuldara sem væru það vel
staddir að þeir sæju fram úr sínum
vandræðum. „Helgi Þór hefur allar
þær forsendur sem þarf til að fá
slíkt úrræði samþykkt og því gæti
hann gripið til þess. Það er klárt
mál að það hafa verið erfiðleikar
þarna síðustu mánuði."
„Það er ljóst að reksturinn hefur
ekki tekist sem skildi,“ sagði Pétur
Þór ennfremur, „en hann er ekki
að rúlla á hausinn þar sem ég tel
eignir vera langt umfram skuldir.
Fjárfestingin er upp á nálægt 400
milljónir, en um leið og einhverjir
erfiðleikar verða þá veltur það á
einhverjum tugum milljóna. Eins
og er á hann á annað hundrað
milljónir í eignum umfram skuldir.
Það eru núna á annað hundrað
milljónir í skuldum."
Lögmaðurinn sagði að stærsti
hluti þessara skulda væri vegna
fjárfestingalána, en skuldir vegna
rekstrarerfiðleika væru aðeins lítill
hluti af vandanum. Þetta væru
aðallega lán í gegnum fram-
kvæmdasjóð og erlend lán í gegn-
um Landsbankann.
„Hann hefur ekki tekið nein
bein rekstrarlán því að erfið-
leikarnir eru þeir að komast út úr
kostnaði við bygginguna." Sagði
lögmaðurinn að lokum.
Illgirni og sögur
„Þetta er rammíslensk öfundsýki
Erflðleikar í rekstrínum, en Helgi neitar því sem heimildir Tímans segja, að greiðslustöðvun sé yfirvofandi.
og ég er nú hissa á því að heyra
þetta núna,“ sagði eigandinn Helgi
Þór Jónsson þegar Tíminn bar
þetta undir hann. „Það voru miklir
erfiðleikar í vetur en núna er
fullbókað fram í nóvember og um
helgina var hér þrísetinn bekkur-
inn í matsalnum. Það hefur oft
verið erfitt, en ég er núna á bull-
andi skrans og með fullt hótel
gesta. Ef ég væri að gefast upp
núna þá hefði ég átt að gefast upp
í vetur þegar hótelið var tómt. Það
er sex mánuðum of seint að tala um
að illa gangi að borga út launin.
Undanfarna mánuði hafa launin
verið greidd á réttum tíma. Það er
ekkert útistandandi nema ef vera
skyldu einhver launatengd gjöld
og orlof sem starfsmenn geta feng-
ið greitt þegar þeim hentar.“
Hann sagði að ekki væri um að
ræða neinar innistæðulausar ávís-
anir frá sinni hendi hvað varðar
launagreiðslur. Hann bar þess
vagna af sér allar hrakspár og
sögusagnir og sagði að lokum að
allir væru velkomnir til hótelsins
og í vetur yrði aftur reynt að bjóða
landanum upp á gistingu á góðu
verði. Þær heilsuvikur sem í gangi
hafi verið hafa að hans sögn gengið
afar vel og honum hafi ekki borist
annað en þakkir fyrir frá gestum.
„Ef fellur úr dagur hér með
greiðslur á allt að drepa, en ekki er
minnst orði á fiskverkunarfyrirtæki
sem skulda stórfé í launum og öðru
til margra mánaða nema þá til að
bjarga þeim.“ Sagði Helgi Þór að
lokum. „Eigum við ekki að leyfa
tímanum að skera úr um það hvort
illa fari. Eigum við ekki að leyfa
greiðslustöðvun að líta dagsins Ijós
áður en farið er að höggva í mig.“
- KB
Bændur:
Hafa ekki viljað
fá umframkjötið
Saksóknara
enn leitað
Ekki er vitað til þess að bændur
hafi farið fram á að fá kjöt sitt sem
umfram var fullvirðisrétt síðasta ha-
ust afhent, þrátt fyrir héraðsdóm í
máli Jóns bónda á Skarfhóli í V-
Húnavatnssýslu, að sögn Hákons
Sigurgrímssonar framkvæmdastjóra
Stéttarsambands bænda.
„Það er lítið annað að gera fyrir
Stéttarsambandið í þessu efni en að
höfða til stéttarvitundar manna,
enda eru þeir að
Spurður um það hvort Stéttarsam-
bandið hefði fengið spurnir af sölu á
kjöti af heimaslátruðu sagði Hákon
að það væri ekki enda væri slíkt með
öllu ólöglegt auk þess sem enginn
maður nennti heldur til lengdar að
standa í því að slátra sauðfé eða
öðrum búpeningi heima á blóðvelli
með lélegum tækjakosti til þess að
selja framhjá. Það væri líka ljóti
tvískinnungurinn hjá þeim neytend-
um sem kærðu sig um óheilbrigðis-
skoðað kjöt á sama tíma og menn
vildu fá helst hvern kjötbita gegnum-
lýstan.
„Okkur finnst eðlilegt að bændur
geti tekið út sem nemur meðalneyslu
á kjöti á hvern landsmann þanig að
bændur geti tekið út um 40 kg á
hvern heimilismann. Allt sem er
umfram það hlýtur að vera tekið út
í einhverjum öðrum tilgangi.
En það er einnig mjög mikilvægt
að menn átti sig á að þetta er
magnsamningur og menn þurfa því
að kappkosta að leggja verðmætustu
vöruna inn á fullvirðisréttinn, lendi
eitthvað af kjötinu umfram hann.
T.d. er ekki skynsamlegt að leggja
inn hrútakjöt og gamalærkjöt inn á
fullvirðisréttinn, heldur farga þeim
kindum á sem ódýrastan hátt og
koma því í loðdýrafóður , því þetta
er kjöt sem lítið fæst fyrir og fáir
vilja kaupa. Hins vegar hafa ekki
allir hugsað út í þetta“, sagði Hákon.
ABS
„Saksóknari er enn ekki fundinn,
en það er ekki því að kenna að ekki
hafi verið leitað að honum," sagði
Jón Sigurðsson, dómsmálaráðherra,
Akureyri:
Eldsvoði í sjúkrahúsi
Eldur kom upp á efstu hæð
Fjórðungssjúkrahússins á Akur-
eyri laust eftir klukkan 17:00 í gær.
Var í fyrstu talið að um mikinn
eldsvoða væri að ræða og allt
tiltækt slökkvilið og lögregla kvödd
á vettvang.
Fljótlega var ljóst að þótt mikinn
reyk lagði frá sjúkrahúsinu var
eldur ekki mikill og tókst snarlega
að ráða niðurlögum hans. Tals-
verðar skemmdir urðu þó af völd-
um sóts og reyks.
Lögreglan á Akureyri sagði að
engum hefði staðið hætta af eldin-
um, en til vonar og vara voru tveir
sjúklingar færðir til.
þj
spurður um skipan saksóknara í
Hafskipsmálinu svokallaða, eftir að
Hæstiréttur hefur staðfest vanhæfis-
dóm Sakadóms yfir ríkissaksóknara.
Rætt hefur verið um að settir verði
tveir saksóknarar, annar til að fara
með Útvegsbankaþátt málsins og
hinn til að fjalla um þátt skipafé-
lagsmanna, en Jón Sigurðsson ræddi
um saksóknara í eintölu. „Ég segi
„hann“ að svo stöddu, en hef ekki
útilokað hinn möguleikann."
Ekki er enn ljóst hvenær af setn-
ingu saksóknara verði. Ráðherrann
sagði skipan hans hafa dregist af
þeim ástæðum að illa gengi að ná
sambandi við menn á þessum ár-
stíma og eins væri vandfundinn mað-
ur sem gæti tekið þetta mál að sér
efni þess vegna. „Þetta tvennt gerir
það að verkum að maðurinn er ekki
fundinn, enda vil ég vanda þetta
val,“ sagði Jón. þj