Tíminn - 05.08.1987, Page 4
4 Tíminn
Miðvikudagur 5. ágúst 1987
Stóra „þjóðarlottóið":
Litlu íbúðirnar
hækka lang minnst
Verð á 2ja herbergja íbúðum
hefur hækkað miklu minna en á
öðrum stærðum fjölbýlishúsaíbúða í
Reykjavík, hvort sem miðað er við
síðari hluta árs í fyrra eða síðustu
2-3 árin, samkvæmt upplýsingum frá
Fasteignamati ríkisins. Frát.d. tíma-
bilinu júlí-september í fyrra til jan.-
mars í ár hefur meðalverð á fermetra
2ja herbergja íbúða aðeins hækkað
um 11% á meðan 18-19% hækkun
Itcfur orðið á 3ja og 4ra herbergja
íbúðum og rúmlega 23% hækkun á
stærstu fjölbýlishúsaíbúðunum.
Munurinn samsvarar því að sölu-
verð 2ja herbergja íbúða á fyrstu
mánuðum þessa árs hefði verið um
200-250 þús. krónum hærra en það
var í raun hefði verð þeirra hækkað
í takt við stærstu íbúðirnar, eða verð
stærstu íbúðanna um 400 þús. krón-
um lægra hefðu þær hækkað í takt
við þær minnstu.
Munurinn á verðþróun 2ja her-
bergja íbúðanna og stærri fjölbýlis-
húsaíbúða verður ennþá meiri ef
miðað er við önnur tímabil. T.d. var
meðalverð á fermetra í þeim 13-20%
hærra en í 4ra herbergja íbúðum á
árinu 1984 og frá 12% og allt upp í
29% hærra á árinu 1985. Á fyrsta
fjórðungi þessa árs var sá munur
kominn niður í 5%.
Síðasta fjórðung ársins 1984 var
fasteignaverð hið hæsta sem það
hefur verið síðustu 4 árin (hafði þó
verið enn hærra árið 1982). Meðal
fermetraverð 2ja herbergja íbúða
var þá um 24.200 krónur, eða um 1,3
millj. kr. fyrir 55 fermetra íbúð. Á
fyrsta ársfjórðungi 1987 var fer-
metraverðið unt 34.100 kr., eða um
1.850 þús. fyrir 55 fermetra íbúð.
Verðhækkunin var því tæplega 41%
á rúmlega 2 árum (en um 51-55% á
stærri íbúðum).
Frá nóvember 1984 til febrúar í ár
varð hins vegar um 70% hækkun á
lánskjaravísitölunni. Vantar því um
350 þús. kr. á að verð 2ja herbergja
íbúðarinnar hafi hækkað í takt við
lánskjaravísitöluna á þessu tímabili.
Munurinn er sem fyrr greinir mun
minni á stærri íbúðum, en raunvirði
þeirra er þó enn í mars s.l. töluvert
lægra en mestan part ársins 1984.
Vakin skal athygli á að hér er um
„misvægi" lánskjaravísitölu og fast-
eignaverðs að ræða, en ekki hið
margumrædda misvægi milli vísitölu
og launa. Á þessu sama tímabili.
- en þær stærstu mest
SÖLUVERD FJDLBÝLISHÚSA 1 REYKJAVÍK OKT-DES 198A
rjöidi herb. F jöldi íbúöa Meðal- stærö Otborgun Söluverö Söluv./ Ferm Otb.- hlutfall
1 - 2 121 55,0 m2 909 þús 1292 þús 24.181 kr 70,4Só
3 91 73,5 " 1142 " 1585 " 21.961 " 72.1K
4 91 95,0 " 1405 " 1951 " 20.802 " 72,0?ó
F lein 55 132,2 " 1900 " 2765 " 21.232 " 68,75
Samtals 398 81,7 m2 1247 þús 1760 þús 22.305 kr 70,95
SdLUVERÐ ÍBÚDA í EJtlLBÝLISHÚSUM f REYKJAVÍK JÚLI-ÍGUST 1986
F jöldi Fjöldi Meöal- Ot- Söluv.-/ Otb,-
herb. búöa atcrö borgun Söluverö ferm. hlutf.
1 - 2 141 56,3 m2 1194 þúa 1682 þús 30.704 kr 70,15
3 165 76,1 " 1572 " 2098 " 28.151 " 74,9!í
4 138 05,2 " 1902 " 2554 " 27.097 » 74,55
Fleiri 91 139,5 " 2657 " J612 " 26.106 " 73,65
Samtala 535 86.6 " 1742 » 2363 » 28.204 " 73,75
SÖLUVERC l ÍBÚ0A f FJÖLBÝLISHÚSUM f REYKJAVÍK JAN - MARS 1987
Fjö ldi F jö ldi Meðal Út- Sölu- Söluv./ Útb. -
herb. í búöa stærð borgun verö f erm. hlut f.
1 - 2 108 58,6 m2 1532 þús 1968 þúa 34.062 kr 77,85
3 122 7 6,8 " 2011 " 2S1H ‘ " 33.204 " 80,0"
4 111 99,3 " 2456 " 3IR " 32.357 " 77,2"
Fleiri 78 129,2 » 313 3 " 4086 " 32,137 " 76,7"
Samt aIa 419 8 7,9 " 2214 " 2843 " 33.002 " 7 7,9"
Tafla:
Frá 3. ársfjórðungi í fyrra til 1.
ársfjórðungs í ár (hálfu ári) hefur
fermetraverð stærstu íbúðanna
hækkað í kringum 6 þús. kr., 4ra og
3ja herbergja íbúðanna um rúmlega
5 þús. kr., en l-2ja herb. íbúðanna
aðeins um rúmlega 3 þús. kr., eins
og sjá má á þessum töflum úr
Markaðsfréttum Fasteignamatsins.
Hlutfallslega er hækkunin frá 11% á
minnstu íbúðunum og upp í 23% á
þeim stærstu á þessum tíma. Þá er
athyglisvert að sjá að fermetraverðið
hækkaði aðeins frá 23-30% milli
1984 og 1986 á sama tíma og láns-
kjaravísitalan hækkaði í kringum
57%. Varðandi mismun á söluverði
og útborgun skal vakin athygli á
mismunandi meðalstærð seldra
íbúða í fermetrum rnílli tímabila.
Samgönguráðherra:
Tillögur um
hvernig auka
megi öryggi
í einkaflugi
Matthfas Á. Mathiesen. sam-
gönguráðherra hefur skipað
fimm manna nefnd til að skoða
sérstaklega orsakir tíðra slysa í.
einkaflugi á fslandi og gera tillög-
ur um hvernig auka megi öryggi
í því. Skal úttekt nefndarinnar
m.a. ná til menntunarog þjálfun-
ar einkaflugmanna, fyrirkomu-
lags einkakennslu þ.m.t. þjálfun-
ar flugkennara, og reglna um flug
einkaflugvéla. f nefndinni eru
eftirtaldir menn: Karl Eiríksson
forstjóri, en hann er formaður
Rannsóknarnefndar flugslysa.
Karl er jafnframt fofmaður
nefndarinnar: Pétur Einarsson
flugmálastjóri, Jóhannes Snorra-
son, fyrrverandi yfírflugstjóri,
Leifur Árnason flugmaður en
hann er tilnefndur af Félagi ís-
lcnskra atvinnuflugmanna, og
Skúli Jón Sigurðsson deildarstjóri
í Loftferðaeftirlitinu, en hann
verður ritari nefndarinnar. Sam-
gönguráðherra hefur óskað eftir
því við nefndarmenn að þeir Ijúki
störfum fvrir n.k. áramót.
Línurit:
Fasteignaverð í Reykjavík fyrstu
þrjá mánuði þessa árs var, þrátt fyrir
miklar verðhækkanir, enn töluvcrt
lægra en á sama tímabili 1984 eins
og glöggt má sjá á þessu línuriti.
Milli þeirra tímapunkta er fyrst stór
hæð og síðan djúp lægð. Árið 1982
komst verðið þó mun hærra en hæsti
punkturinn á þessu línuriti, en fara
verður til 1978 til að finna lægra verð
en á lægsta punktinum í apríl 1986.
Samkvæmt upplýsingum Fasteigna-
matsins er verð á fasteignamarkaðin-
um ennþá undir byggingarkostnaði.
þ.e. nóv. 1984 til febrúur 1987 hækk-
aði launavísitalan um tæplega 94%.
Verð 2ja herbergja íbúðarinnar
hefði því verið komið í um 2.500
þús. í febr. í ár hefði það hækkað í
takt við launin á tímabilinu, í stað
þess að vera um 1.850 þús., sem fyrr
segir.
Eins og sjá má á meðfylgjandi
línuriti, sem skeytt er saman úr
línuritum frá Fasteignamatinu fyrir
skemmri tímabil, hafa verið gífur-
legar hæðir og lægðir á raunverði
fasteigna í Reykjavík frá ársbyrjun
1984. Hækki t.d. raunverð 3ja millj-
ón króna íbúðar um 10% (eins og
gerðist frá upphafi til loka ársins
1984) samsvarar það 300 þús. króna
hagnaði, en lækki það um 13% (eins
og gerðist frá 2. ársfjórðungi 1985-
1986) þýðir það 390 þús. kr. tap.
H vort menn kaupa og selj a fasteignir
í hæðum eða lægðum á markaðnum
getur því skipt mörg hundruð þús-
undum króna í tap eða hagnað.
jafnvcl yfir milljónina ef um stórar
eignir er að ræða.
-HEI
Þjónustustjórarnir við vinkonur sínar, sem sjá þeim fyrir atvinnu: Þórir til vinstri og Röggi til hægri
Þórir og Röggi, þjónustustjórar í Lundinum:
Strákarnir sem fresta
verslunarmannahelginni
„Við tökum ekkert verslunarfrí
fyrr en í haust. Þá bregðum við
okkur á ball og höfum okkar eigin
verslunarmannahelgi," sagði Þórir
Jóhannsson, þjónustustjóri á bens-
ínstöðinni við Þrastarlund við Sog,
en hann er einn þeirra sem varð að
láta hendur standa fram úr ermum,
þegar aðrir brugðu undir sig betri
fætinum um verslunarmannahelgi.
Rögnvaldur Sigurðsson, sem er
annar þjónustustjórinn á svæðinu,
var ekki síður hress, þrátt fyrir
erilsama helgi og að þeir félagar
höfðu staðið upp á endann í þrjá
sólarhringa.
Þjónustustjórarnir í Lundinum
eru 15 og 17 ára gamlir, en stjórna
rekstrinum sem herforingjar. „Það
var brjálað að gera!“
„Hér er öll sumarbústaðaþjón-
usta, gas, olíur, kol, bensín og
veiðivörur,“ sagði Þórir. Og bætti
við hæversklega: „Og aðsjálfsögðu
góð og kurteis sölumennska."
Þórir og Rögnvaldur reka versl-
un sína frá klukkan 9:00 til 23:00,
en eftir það verður að þrífa planið,
safna öllu glerdrasli og sjá um
nauðsynlegt viðhald. „Það er erfið-
ast að vakna á morgnana," sögðu
þjónustustjórarnir, en virtust
hvergi bangnir að takast á við
verkefni sitt á bak við bensíndæl-
urnar. Enda mesta mæðan að baki
og aðalraun sumarsins staðin yfir.
þj