Tíminn - 05.08.1987, Síða 7
Miðvikudagur 5. ágúst 1987
Tíminn 7
Útivistarsvæðin í Bláfjöllum:
Akureyrin meö
íslandsmet:
Unnið í skíðabrekkum,
skálum og bílastæðum
Ein og hálf
milljón
ádagí
þrjár vikur
Þó skíði og skíðamennska sé ekki
efst í hugum fólks nú um hásumarið
þá situr Bláfjallanefnd ekki auðum
höndum. Nú eru í gangi fram-
kvæmdir við skíðasvæðin í Bláfjöll-
um og miðast þær við að bæta
aðstöðu skíðafólks þar.
Að sögn Kolbeins Pálssonar for-
manns Bláfjallanefndar þá
verður þrengsti hluti skíðabrekkun-
ar í Kóngsgili lagfærður nú í sumar.
Hóll sem þar hefur verið til trafala
verður sléttaður út svo brekkan
verður beinni og betri og jarðvegs-
efni þaðan nýtt til lagfæringar á
bílastæðum við Borgarskálann.
Unnið verður að viðgerðum á Borg-
arskálanum auk þess sem til stendur
að gamli Borgarskálinn verði gerður
upp sem þjónustumiðstöð fyrir ann-
ars konar aðstöðu en fæst í nýja
skálanum. Kolbeinn sagði ekki geta
sagt hver sú þjónusta yrði, en þar
gæti farið fram sala á lyftunum,
skíðaáburði, vettlingum og öðru sem
nauðsyn er á fyrir skíðafólk.
Pá eru nú í undirbúningi tillögur
um margvíslegar framkvæmdir við
útivistarsvæðið í Bláfjöllum. Kol-
beinn sagði nefndina stefna að því
að hafa tilbúin drög að fimm ára
framkvæmdaáætlun til eflingar og
stækkunar á svæðinu fyrir næstu
fjárhagsáætlunargerð, sveitarfélag-
anna.
1 tengslum við þessa fram-
kvæmdaáætlun fékk Bláfjallanefnd
til liðs við sig sérfræðinga í skipu-
lagningu skíðasvæða, frá norska
skíðasambandinu og vildi nefndin
leita eftir ráðleggingum og tillögum
um áframhaldandi uppbyggingu á
útivistarsvæðinu sjálfu og þjónustu-
þættinum í kring um það. Kolbeinn
sagði skýrslu sérfræðinganna vænt-
anlega nú næstu daga og myndi
nefndin taka ráðleggingar hans til
umfjöllunar um leið og þær bærust.
Fyrir Bláfjallanefnd liggja nú
beiðnir um byggingu á nokkrum
gistiskálum á Bláfjallasvæðinu. f
ljósi þess að mikill skortur er á
gistirými fyrir skólahópa og íþrótta-
hópa hefur nefndin því látið gera
athugun á hentugri staðsetningu átta
til tíu gistiskála í sem minnstri fjar-
Iægð frá þjónustúmiðstöðinni. Kol-
beinn sagði að ef til kæmi þá yrði
þetta einn liður í því að fjölnýta það
prýðis skíðasvæði sem nú er fyrir í
Bláfjöllum og jafnvel gefa mögu-
leika á nýtingu svæðisins í annan
tíma en vetrartímann, t.d. til funda
og ráðstefnuhalds. hefjast viðræður við íþróttafélögin á skýrsla norska sérfræðingsins verða
í því skyni að auka samnýtingu Bláfjallasvæðinu um fyrirkomulag á lögð til grundvallar í þeim viðræð-
skíðalyfta á svæðinu þá eru nú að allsherjarrekstri á svæðinu og mun um. - HM
Akureyrin EA 10, sem Sam-
herji hf. á Akureyri á, setti í
fyrradag enn eitt verðmætamet í
afla, er hún skilaði inn rúmum 38
milljónum króna eftir 24 daga
veiðiferð. Það gerir rúmlega eina
og hálfa milljón króna aflaverð-
mæti á dag í þær rúmu þrjár vikur
sem skipið var úti.
Aflinn var aðallega þorskur og
er hásetahlutur um 400 þúsund
krónur. Akureyrin hefur ætíð
verið happafley og er slegist um
laus pláss á skipinu, eins og
útgerðarmaður á Norðurlandi,
orðaði það í samtali við Tímann.
Hið nýja íslandsmet sló út
tæplega mánaðargamalt met, sem
Margrét AE setti, en Margrét er
einmitt í cigu sama fyrirtækis og
Akureyrin. Gamla metið var 35
milljónir á 27 dögum. Peir afla
vel fyrir norðan. - SÓL
Skíðasvæðið í Bláfjöllum.
Mjólkurbú Flóamanna:
Birgir
Guðmundsson
nýr mjólkur-
bústjóri
Birgir Guðmundsson hefur verið
ráðinn mjólkurbústjóri hjá Mjólkur-
búi Flóamanna, og tekur hann við
því starfi af Grétari Símonarsyni
sem gegnt hefur starfinu við góðan
orðstýr frá 1953. Birgir lauk mjólk-
urfræðinámi í Danmörku árið 1970
og framhaldsnámi ári síðar. Eftir
nám vann Birgir sem mjólkur-
fræöingur hjá Mjólkurbúi Flóa-
manna en rak síðan um árabil leið-
beiningarþjónustu fyrir mjólkur-
framleiðendur á vegum mólkurbús-
ins. Hann gerðist því næst verkstjóri
yfir G- vöru framleiðslunni og fram-
leiðslustjóri hjá Mjólkurbúi Flóa-
manna var hann frá 1981- 1986.
Síðan 1986 hcfur Birgir verið aðstoð-
armjólkurbústjóri.
Birgir er kvæntur Ragnheiði Haf-
steinsdóttur handavinnukennara.
Vw. "
Ingólfur Margeirsson ritstjóri Alþýðublaðsins:
Athugasemd við ummæli
Karvels Pálmasonar
Ingólfur Margeirsson ritstjóri Al-
þýðublaðsins hefur sent Tímanum
svohljóðandi athugasemd við frétt
blaðsins sl. laugardag.
„Tíminn birti frétt á bls. 2 sl.
laugardag þar sem fram kemur að
Karvel Pálmason þingmaður Al-
þýðuflokksins í Vestfjarðarkjör-
dæmi beri ekki ábyrgð á kosningu í
stjórn þingflokks Alþýðuflokksins
sem fram fór í júlílok. Reyndar
hefur þessi sama athugasemd frá
Karvel Pálmasyni verið birt í flestöll-
um dagblöðum þar á meðal Alþýðu-
blaðinu.
Hins vegar hafði Tíminn stutt
spjal! við Karvel Pálmason vegna
athugasemdarinnar og segir þing-
maðurinn meðal annars að „honum
fannst frétt Alþýðublaðsins sett
þannig upp að menn væru að auglýsa
ákvarðanirnar á ákveðinn hátt“.
Pað er að sjálfsögðu mál Karvels
Pálmasonar ef hann kýs að mæta
ekki á þingflokksfundi en í þess stað
senda frá sér fréttatilkynningar í
fjölmiðla með séráliti á samþykktir
þingflokksins. Hins vegar vil ég taka
það fram að þessu gefna tilefni að
það var ákvörðun Alþýðublaðsins
eins að birta umrædda frétt um nýja
stjórn þingflokks Alþýðuflokksins.
Sú frétt hefur raunar birst í öðrum
dagblöðum einnig. Fréttin birtist í
Alþýðublaðinu þann 29. júlí sl. og
var samkvæmt vægi sínu stutt, ein-
dálka frétt. Það er því með öllu röng
staðhæfing hjá Karvel Pálmasyni
þingmanni að fréttin hafi verið sett
upp á þann veg að þar hafi ákvarðan-
ir manna verið auglýstar á einhvern
hátt. Fréttin var skrifuð og birt sem
frétt; það er allt og surnt."
Guðmundur Magnús-
son aðstoðar Birgi
Guðmundur Magnússon, aðstoð-
armaður Menntamálaráðherra.
Guðmundur Magnússon blaða-
maður hefur verið ráðinn aðstoðar-
maður Birgis ísleifs Gunnarssonar
menntamálaráðherra. Hann hóf
störf í menntamálaráðuneytinu í
gær.
Guðmundur er 31 árs að aldri.
Hann lauk B.A., prófi í sagnfræði
og heimspeki frá Háskóla íslands
árið 1980 og M.Sc. prófi í rökfræði
og vísindalegri aðferðafræði frá
London School of Economics árið
1982. Hann hefur verið stunda-
kennari við Háskóla Islands, kennt
við grunnskóla og var blaðamaður
við Tímann 1982-83. Hann réðst
að Morgunblaðinu í ársbyrjun 1984
og hefur starfað þar síðan. Guð-
mundur er kvæntur Vöku Hjaltalín
og eiga þau tvö börn.