Tíminn - 05.08.1987, Side 12
12 Tíminn
Miðvikudagur 5. ágúst 1987
FRÉTTAYFIRLIT
BAGHDAD — Sjónvarpiö í
Baghdad, höfuðborg íraks,
sagði íraka hafa prófað nýja
eldflaug sem skotið erfrá landi
með góðum árangri og væri
hægt að skjóta henni á höfuð-
borg írans, Teheran, frá aust-
urhluta Iraks.
LUNDÚNIR — Ástandið við
Persaflóann varð til þess að
dollarinn hækkaði í verði gagn-
vart öðrum helstu gjaldmiðlum
heims. Dollarinn hefur ekki ver-
ið hærra skráður í Evrópu
síðusta sex og hálfan mánuð-
inn. Verð á gulli hækkaði einnig
verulega eoa um þrjá dollara
hver únsa í gær.
COLÓMBÓ — Einir fjögur
þúsund indverskir hermenn
eru nú á Sri Lanka til að hafa
umsjón með því þegar skæru-
liðar tamíla láta af hendi vopn
sín.
GENF — Sendimenn Japan-
stjórnar kröfðust þess að
Bandaríkjastjórn aflétti banni á
innflutningi vissra rafmagns-
vara frá Japan. Ekki fengu
þessar kröfur þó jákvæðar
undirtektir hjá fulltrúum stjórn-
arinnar í Washington.
BONN — Stjórnvöld í Vestur-
og Austur-Þýskalandi skrifuðu
undir samkomulag um að
skiptast á upplýsingum um
geislamagn í lofti og friðsam-
lega notkun á kjarnorku.
JÓHANNESARBORG
— Þrettán manns hafa verið
drepnir í átökum hópa innan
Zúlúættbálksins í Natalhéraði
í Suður-Afríku.
MANILA — Lögfræðingar
ríkisstjórnarinnar á Filippseyj-
um undirbúa nú lögsókn á
hendur Ferdinand Marcos fyrr-
um forseta vegna auðæfa
þeirra sem hann safnaði að
sérásínum valdatíma. Marcos
verður meðal annars sakaður
um glæpsamlegt athæfi.
AÞENA — Rúmlega 400
flugumferðarstjórar í Grikk-
landi hótuðu að leggja niður
vinnu í þrjá daga, frá og með
föstudeginum, ef ekki yrði
komið til móts við kröfur þeirra
um hærri laun og betri vinnuað-
stæður.
TÚNIS - Fjöldi breskra
ferðalanga flaug heim fráTúnis
í gær á undan áætlun. Brottför
þeirra fylgdi í kjölfar spreng-
inga á fjórum hótelum þar í
landi en þrettán manns slösuð-
ust í þeim.Taliðerað bókstafs-
trúarmenn úr hópi múslima,
studdir af íranstjórn, hafi staðið
fyrir sprengingunum.
lllllllllllllllllllllllll ÚTLÖND
Persaflóinn:
- Hin blóöugu átök í Mekka hafa enn aukið á spennuna - Hótanir ganga á milli
Kcuter -
Hin blóðugu átök í borginni
Mekka í Saudi Arabíu, helgustu
borg múhameðstrúarmanna, hafa
dregið verulega úr möguleikum á
friði í Persaflóastríðinu og raunar
aukið mjög hættuna á að stríð írana
og íraka breiðist út til fleiri landa á
þessu svæði. Þetta var álit bandar-
ískra stjórnmálafræðinga sem sögðu
harðlínumenn nú hafa töglin og
hagldirnar í fran.
„Stjórnmálasamskipti eru ekki
talin mikilvæg um þessar mundir",
sagði einn sérfræðinganna um innan-
landsástandið í íran.
Sendiherra írans hjá Sameinuðu
Þjóðunum og sendiherra Saudi Ara-
bíu í Bandaríkjunum komu fram í
bandarísku sjónvarpi í fyrrakvöld
og sökuðu þar stjórnir hvors annars
um að hafa staðið að baki átökunum
í Mekka á föstudaginn.
Bandar Bin Sultan prins sagði
íranska byltingarverði hafa átt upp-
tökin að hinum blóðugu átökum þar
sem að minnsta kosti 400 manns létu
lífið. Sultan sagði að margir hinna
látnu hefðu troðist undir er írönsku
pílagrímarnir hörfuðu undan lög-
reglunni.
Rajaie Khorassani sendiherra ír-
ans hjá SÞ sagði hins vegar að
lögreglan í Mekka hefði skotið á
íranska pílagríma að yfirlögðu ráði
og bætti við að Sultan og aðrir saudi
arabískir embættismenn væru lygar-
ar. Sultan hafði áður sakað Khorass-
ani um lygi.
Stjórnvöld í Saudi Arabíu segja
402 menn hafa látið lífið í óeirðunum
og þar af hafi 275 verið íranar. Að
sögn stjórnarinnar hófust átökin
þegar íranskir pílagrímar, sem stað-
ið höfðu að mótmælum, réðust á
aðra pílagrtma frá Saudi Arabíu og
öðrum löndum og öryggislögregla
þurfti að grípa inn í.
íranir segja að 600 landsmenn
sínir hafi verið myrtir eða sé saknað
og 4.500 hafi slasast. Þcir saka
Bandaríkjastjórn um að hafa staðið
á bak við það sem þau kalla skipu-
lega útrýmingu.
Flest Arabaríkin lýstu yfir stuðn-
ingi við Saudi Arabíu og mátti lesa í
dagblöðum t.d. í Jórdan harðagagn-
rýni á íranstjórn. Yasser Arafat
leiðtogi Palestínumanna var einnig
gagnrýninn í garð írana og sagðist
ekki skilja hótanir þeirra um að
koma konungsfjölskyldunni í Saudi
Arabíu frá völdum.
Sum lönd tóku þó varlega í árinni
vegna nálægðar sinnar við íran t.d.
Sameinuðu arabísku furstadæmin en
stjórnvöld þar hörmuðu blóðbaðið í
Mekka og hvöttu alla múslimi til að
sameinast.
Á stöðum þar sem múslimar úr
hópi sjíta ráða ríkjum mátti þó lesa
stuðningsyfirlýsingar við trúbræður
þeirra í fran. Slíkir borðar voru t.d.
hengdir upp við moskur sjíta í
suðurhverfum Beirútborgar í Líban-
on þar sem Saudi Arabar voru
fordæmdir og samúðarkveður send-
ar Ayatollah Khomeini trúarleið-
toga í fran.
Frá íran: Ekki skortir vopnin í Persaílóastríðinu.
Persaflóastríðið:
Vopnasalan blómstrar
Bonn - Rcutcr
Fleiri lönd selja nú vopn til stríðs-
aðila í Persaflóastríðinu en nokkru
sinni áður og hefur fjöldinn aukist
mjög á síðustu þremur árum. Önnur
athyglisverð breyting er sú að fleiri
og fleiri lönd selja írönum vopn en
stuðningur við fraka hefur minnkað.
Það var sérfræðingur á sviði alþjóð-
legra vopnaviðskipta sem skýrði frá
þessu í gær.
Walter Stútzle, framkvæmdastjóri
hjá alþjóðlegu friðarrannsóknar-
stofnuninni í Stokkhólmi, sagði að
hin aukna vopnasala drægi mjög úr
möguleikum á að hugsanlegt bann
Sameinuðu Þjóðanna á sölu vopna
til íran og írak gæti bundið enda á
bardagana.
„Vopnaútflutningurinn blómstrar
um þessar mundir... athyglisverðar
breytingar hafa í raun átt sér stað
síðan árið 1984. Þá seldu aðeins 40
lönd vopn til stríðsaðilanna, í dag
eru þau 53", sagði Stútzle í samtali
við vestur-þýska útvarpsstöð. Hann
bætti við að írakar hefðu átt sér 19
stuðningsaðila árið 1984 en nú væru
þeir aðeins 9, íranar gætu hins vegar
sótt vopn til 16 ríkja nú en fyrir
þremur árum studdu þá aðeins 11
ríki.
Alsír, Argentína, Kanada, Ken-
ýa, Danmörk, Finnland, fsrael, Suð-
ur-Kórea, Líbýa, Mexíkó, Singapúr.
Sýrland og Tyrkland eru meðal
þeirra ríkja sem aðeins selja vopn til
írana.
Stútzle sagði að Kínverjar væru
um þessar mundir í efsta sæti yfir þá
sem selja bæði þjóðunum vopn.
Kínversk vopn fara um Egyptaland
til íraks og Norður-Kóreu til írans.
Samkvæmt tölum sem birtar hafa
verið í Bandaríkjunum hafa íranar
flutt inn vopn fyrir fimm milljarða
dollara síðan stríðið hófst. Stútzle
sagði að fran hefði enn nægilegt
fjármagn til að kaupa vopnin þrátt
fyrir að olíuauður þeirra hefði
minnkað verulega vegna átakanna.
Frakkar hafa verið þjóða dugleg-
astir við að selja írökum vopn síðan
árið 1980, talið er að kaup fraka á
frönskum vopnum á þessum tíma
nemi fimm til níu milljörðum doll-
ara.
Svæði á suðupunkti
McDonalds til Moskvu
Paraguay:
Alræði treyst
á flokksþingi
Asuncion - Rcutcr
Cóloradó flokkurinn í Paraguay
hélt ráðstefnu um helgina þar sem
hinir eldri ráðamenn misstu völd sín
hver af öðrum en við tóku yngri
rnenn með harðari afstöðu. Stjórnar-
erindrekar sögðu úrslitin á þinginu
benda til að alræði Cóloradó
flokksins, flokks Alfredo Strössners
forseta, myndi styrkjast enn frekar í
sessi á næstu árum.
Stjórnarandstæðingar, 21 að tölu,
voru þó leystir úr fangelsi um helg-
ina, fjórum dögum eftir að þeir tóku
þátt í mótmælaaðgerðum gegn ríkis-
stjórn Strössners. Meðal þeirra var
Domingo Laino, leiðtogi helstu
stjórnarandstöðusamtakanna. Þau
hafa hótað að sniðganga fyrirhugað-
ar forsetakosningar á næsta ári komi
ekki til aukið fjölmiðlafrelsi og póli-
tískt frjálsræði.
Lögreglumenn með hjálma og
kylfur handtóku stjórnarandstæð-
ingana á mótmælafundi sent haldinn
var í höfuðborg landsins Asuncion á
fimmtudag.
Umsjón:
Heimir Bergsson.
Chicago - Rcutcr
McDonalds fyrirtækið stendur
nú í samningaviðræðum við Sovét-
rncnn utn að opna þrjá hamborgar-
astaði í Moskvu og er búist við að
samkomulag náist fyrir lok þessa
árs. Það var yfirmaður útbreiðslu-
sviðs Evrópudeildar fyrirtækisins
sem skýrði frá þcssu í gær.
George Cohon sagöi að bráða-
birfiðasamkomulag hefði verið
Rangpur, Bangladcsh - Rcutcr
Rúmlega tvö hundruð manns hafa
farist í miklum flóðum í Bangladesh
að undanförnu. flóðum sem em-
bættismenn segja vera þau vcrstu
sem runnið hafa í norðurhluta
landsins.
Milljónir manna hafa misst heimili
sín í flóðunum á sfðustu vikum og
undirritað viö yfirvöld í Moskvu í
maímánuði eftir samningaviðræð-
ur sem staðið hefðu í hart nær
áratug.
„Við vonumst til að ljúka samn-
ingum fyrir lok þcssa árs“, sagði
Cohon. Fari svo verður McDon-
alds fyrsta erlenda veitingahúsa-
keðjan til að starfa í Sovétríkjun-
um.
um 250 þúsund hektarar af hrís-
grjónaökrum hafa eyðilagst, nokkuð
sem líklega neyðir stjórnvöld til að
auka innflutning sinn á þessari mikil-
vægu fæðutegund.
Þyrlur frá hernum hafa dreift
matvælum á svæðið á síðustu dögum
og ráðherrar stjórnarinnar hafa farið
um það til að skipuleggja dreifingu.
Bangladesh:
Dauði í flóðum