Tíminn - 05.08.1987, Qupperneq 15
Miðvikudagur 5. ágúst 1987
Tíminn 15
llllllllllllllilllllll MINNING ^ : ' : ■
Hermann Gestsson
Fæddur 7. september 1965
Dáinn 28. júlí 1987
Þegar hugsað er um tilveru lífsins
hér á jörðu er okkur mönnunum lítt
skiljanlegt, í mörgum tilfellum, til-
gangur þess og þýðing. Þeirn, sem
fæðast í þennan heim, eru gefnir
misjafnlega langir lífdagar. Hvort
það er ákveðið þá af almættinu, hve
lengi vistin verður hér á jarðríki
vitum við ekki, en eitt er víst, að
tímalengdin er mislöng. Það eru því
margir ungir að árum sem eru burt
kvaddir héðan. í dag kveðjum við
hinstu kveðju ungan, glæsilegan og
góðan dreng eftir erfiðan og þjáning-
arfullan sjúkdóm. Guð hefur tekið
hann til sín, bundið enda á hans i
jarðneska líf, og búið honum stað í
eilífðjnni.
Við vitum það að þar fór saklaus
og yndislegur drengur yfir landa-
mærin. Það er sárt að sjá á eftir
honum svo ungum í blóma lífsins, en
erum fullviss þess að honum muni
nú líða vel.
Hermann Gestsson var fæddur í
Reykjavík 7. sept. 1965, hann var
því á 22. aldursári þegar hann lést
28. júlí sl. á St. Jósepsspítala í
Hafnarfirði.
Foreldrar hans eru Auður Her-
mannsdóttir og Gestur Valgeir
Gestsson, var hann eitt af þremur
börnum þeirra hjóna.
Fyrir tæpum tveimur árum gerði
alvarlegur sjúkdómur vart við sig,
sem mannlegur máttur réði ekki við.
Um tíma gerði hann sér vonir um
bata, en svo tók sjúkdómurinn sig
upp á ný, og þá var ekki spurt um
endalokin. Almættisdómi verður
ekki áfrýjað.
Hermann stundaði hið hefð-
bundna barnaskólanám í Öldutúns-
skóla í Hafnarfirði, og lauk þaðan
prófi á tilsettum tíma með mjög
góðum vitnisburði, bæði fyrir hegð-
un og námsárangur, og var honunt
veitt verðlaun í tilefni þess. Síðan lá
leiðin í Menntaskólann í Reykjavík,
og síðast í Flensborgarskólann í
Hafnarfirði. Herntann var vel
greindur og farsæll námsmaður.
Eftir að veikindin ágerðust, varð
skólagangan ekki eins samfelld en
áhuginn fyrir náminu mikill, ogskól-
inn sóttur nteðan kraftar lcyfðu.
Stutt var því í stúdentsprófið, sem
var markmið hans.
Hermann var sérstaklega góður í
allri umgengni, mikill reglumaður
og einstakt prúðmenni, þægilegur
og gætinn í samræðum, í einu orði
sagt, góðmenni. Kátur og skemmti-
legur í hópi góðra vina, þar sem nutu
sín góðir vitsmunir, og minni á liðna
atburði. Aldrei heyrðum við hann
hallmæla nokkrum manni heldur
reyndi hann ætíð að gera gott úr öllu
með sínu jafnaðargeði og góðum
gáfum. Það var æfinlega ánægjulegt
að vera í návist þessa elskulega
sólargeisla okkar, sem var tíður
gestur á heimili okkar frá því hann
var á fyrsta ári, þá dvaldi hann hjá
okkur um eins árs skcið.
Hermann var góður handverks-
maður, bráðlaginn við öll verk. Á
sumrum vann hann við útvarpsvið-
gerðir hjá föður sínum og víðar, þar
fór saman góður skilningur og fag-
legt handbragð, þar unnu vel saman
hugur og hönd. Það blasti því við
honum björt framtíð, þessa unga
manns, áður en veikindin gerðu vart
við sig. Það vaknar því oft sú
spurning ekki síst þegar hugsað er til
nútímans, hvers vegna er ungur
efnilegur maður tekinn svo snemma
burtu, þarsem friður, réttlætiskennd
og vammleysi voru í fyrirrúmi, boð-
skapur sá er Kristur kenndi. En það
er huggun harmi gegn, að fullvíst er
að vel hefur verið tekið á móti jafn
saklausri sálu hinu megin móðunnar
miklu, og honum ætlað annað
hlutverk, og erum við viss um að
honum líður nú vel.
Hermann eignaðist marga trausta
og góða vini, og kom það best fram
í veikindum hans. Margir þessara
vina hans heimsóttu hann, sumir
daglega í margar vikur, bæði á
heimili hans og á sjúkrahúsið í
Hafnarfirði, þar sem hann dvaldi
síðasta mánuðinn. Það sýndi að
hann valdi sér vini sem báru mikla
virðingu og traust til hans, og
gagnkvæmt. Við sendum þessu unga
fólki bestu kveðjur og þakkir fyrir
það hugarþel og vinsemd sem það
sýndi honum, þó gat hann ekki mælt
síðustu vikurnar. Við vitum að það
er í anda þess sem kvaddur er.
í fyrravor dvaldi Hermann með
föður sínur í þrjár vikur á írlandi,
þar eignaðist hann marga aðdáend-
ur, sem-héldu mikið uppá hann, og
í fyrrasumar komu nokkrir þeirra
hingað upp og dvöldu á heimili
okkar, og þar var Hermann í góðum
vinahóp, og hrókur alls fagnaðar,
enda talaði hann ágæta ensku. Við
höfum verið beðin að koma á fram-
færi þökkum og saknaðarkveðjum
frá þessum írsku vinum okkar. For-
eldrar og systkini sakna elskulegs
sonar og bróður, sem var þeim
umhyggjusamur, og bar mikla virð-
ingu fyrir þeim. Fjölskyldan hefur
orðið fyrir miklum missi, skarð sem
aldrei verður bætt. Systkinin Gestur
Guðmundur 19 ára nemi í Flens-
borgarskóla og Ragnheiður Kristín
10 ára, hafa misst hugljúfan bróður,
sem var þeim mikill styrkur og félagi
alla tíð, en leiðir liggja saman í
fyllingu tímans. Guð styrki þau öll á
erfiðri kveðjustund og æfinlega, og
aðra ástvini hans.
Við söknum barnabarns okkar,
sólargeislinn, sem alltaf var svo Ijúf-
ur og elskulegur, sem aldrei bar
neinn skugga á, hann hafði marga þá
eiginleika sent prýðir ungan ntann
best. Við þökkunt þér elsku vinur
okkar fyrir allar þær ánægjulegu og
skemmtilegu samverustundir sem
við áttum saman, og þær ylja okkur
um hjartaræturnar ókomin ár.
Guðsblessun fylgi þér á hinu nýja
tilverustigi. Við hittumst bráðunt
aftur vinur, og þá verða aftur fagnað-
arfundir.
Kristín, amma
og Gestur afi,
í Kópavogi
Magnús Ingi Sigurðsson
Til minningar um félaga minn,
Magnús Inga Sigurðsson, fæddan 5.
september 1961, dáinn 23. júlí 1987.
Mér bárust þau hörmulegu tíðindi
sl. föstudag að vinur minn Magnús
Ingi Sigurðsson hafði látist í flugslysi
daginn áður. Þar sem ég hef ekki tök
á að vera við útför hans, langar mig
að minnast hans með nokkrum
orðum.
Ég kynntist Magnúsi fyrst í 4.
flokki knattspyrnufélagsins Fram
sumarið 1973. Maggi var þá nýfluttur
til Reykjavíkur frá Vestmannaeyj-
um. Hann vann sér fljótt sæti í liðinu
og var traustur leikmaður að leika
með. í knattspyrnu ver það liðsheild-
in og samheldnin s.em skiptir máli
eigi góður árangur að nást. Það var
einmitt að þessu leyti sem það var
gott að fá Magga í hópinn. Hann var
óvenjumikill baráttumaður og spil-
aði fyrir liðið.
Leiðir okkar lágu aftur saman í
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti.
Þar endurnýjuðum við kunnings-
skap okkar og ásaint fleirum stofn-
uðum til órjúfanlegrar vináttu. Þetta
voru skemmtileg ár, margt var brall-
að og mörg prakkarastrikin framin.
Á seinni árum í FB sá ég að Maggi
varlíkaafburðanámsmaður. Reikn-
ingshald var hans besta fag en á því
sviði hafði hann einstaka hæfileika.
Maggi tók sér frí frá nárni í eitt ár að
loknu stúdentsprófi. Hann hóf síðan
nám við Viðskiptafræðideild Há-
skóla íslands haustið 1982 þaðan
sem hann lauk prófi af endurskoðun-
arsviði vorið 1986. Að námiloknu
hóf Maggi störf á Endurskoðunar-
skrifstofu Björns og Ara og stefndi
á að taka löggildipgu. Ég vissi að
Magga líkaði vel í hinu nýja starfi. í
bréfi sem hann skrifaði mér í vetur
sagðist hann vera ánægður og vera á
réttri hilluí lífinu. Því miður entist
honum ekki aldur til að njóta þess.
Magnús var ákaflega traustur vin-
ur sem gott var að eiga að. Hann var
rólegur og yfirvegaður en á góðri
stundu var hann glaðvær og
skemmtilegur. Hann hafði ákveðnar
skoðanir og var rökfastur. Fráfall
Magnúsar er mér mikið áfall. Ég hef
alltaf talið það gæfu mína að vera
þátttakandi í fjölmcnnum og traust-
um vinahóp. Eftir tæplega ársdvöl
erlendis hef ég sannfærst í þessari
trú. Stórt skarð hefur nú verið
höggvið í þennan hóp. Þetta skarð
verður ekki fyllt, það verður tómlegt
að koma heim í haust og hafa ekki
tækifæri til að hitta Magnús. Þegar
ég kveð Magnús er mér efst í huga
þakklæti fyrjr allar þær góðu stundir
sem við áttum saman. Ég og félagar
mínir höfum misst góðan vin sem við
munum sakna mikið.
Ég sendi mínar innilegustu sam-
úðarkveðjur til Árnýjar móður hans,
bræðra hans og fjölskyldna þeirra,
ömmu hans og afa á Akranesi svo og
til annarra ættingja og vina.
Minningin um góðan dreng lifir.
Rochester, USA
29. júlí 1987,
Gunnar Baldvinsson
1 lÚMiæðisslofntin ríkisins
TÆKNIDEILD
Simi 696900
Útboð
Blönduóshreppur
Stjórn verkamannabústaða Blönduóshrepps, ósk-
ar eftir tilboðum í byggingu tveggja íbúða í
parhúsi, byggðu úr steinsteypu. Verk nr. U 20.05
úr teikingasafni tækideildar Húsnæðisstsofnunar
ríkisins.
Brúttófiatarmál húss 194 m2.
Brúttórúmmál húss 695 m3.
Húsið verður byggt við götuna Mýrarbraut 26-28,
Blönduósi og skal skilafullfrágengnu, sbr. útboðs-
gögn.
Afhending útboðsgagna er á sveitastjórnarskrif-
stofu Blönduóshrepps Hnjúkabyggð 33, 540 Blö-
duósi, og hjá tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkis-
ins frá fimmtudeginum 6. ágúst 1987 gegn kr.
5.000.- skilatryggigu.
Tilboðum skal skila á sömu staði eigi síðar en
föstudaginn 21. ágúst 1987 kl. 11.00 og verða þau
opnuð að viðstöddum bjóðendum.
F.h. stjórnar verkamannabústaða
tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins.
| lúMiæÖisstofnun ríkisins
m Aðalskipulag
||| Reykjavíkur
1984-2004
Skipulagssýning Borgarskipulags í Byggingaþjón-
ustunni á Hailveigarstíg 1 framlengisttil 19. ágúst.
Sýningin er opin alla virka daga frá kl. 10.00 til
18.00. Á þriðjudögum milli kl. 16.00 og 18.00
verður starfsfólk Borgarskipulags á staðnum og
svarar fyrirspurnum um sýninguna. Einnig eru
veittar upplýsingar um aðalskipulagið á Borgar-
skipulagi Reykjavíkur, Borgartúni 3 (3ju hæð), frá
kl. 9.00 til 16.00 virka daga.
Athugasemdum eða ábendingum skal skila skrif-
lega til Borgarskipulags eigi síðar en kl. 16.00,19.
ágúst nk.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við aðalskipulag-
ið innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni.
Reykjavík 5. ágúst 1987.
Borgarskipulag Reykjavíkur.
Búnaðarsambar
Borgarfjarðar
óskar að ráða héraðsráðunaut frá 1. j r 1988.
Launakjör samkvæmt samningum Fél héraðs-
ráðunauta við Búnaðarsamböndin.
Umsóknir sendist Búnaðarsambandi L garfjarð-
ar, Borgarbraut 21, 310 Borgarnes, fys 1. sept-
ember n.k. Upplýsingar veita: Bjarni Arason,
Borgarnesi, sími 93-71215 og Bjarni Guðráðsson,
Nesi, sími 93-51142.
Bókavörður
Bókasafn Hafnarfjarðar óskar að ráða bókavörð í
fullt starf. Umsóknir ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf skulu berast til bókasafnsins
fyrir 19. ágúst.
Upplýsingar um starfið gefur formaður bókasafns-
stjórnar Bryndís Skúladóttir í síma 503 2.
Yfirbókavörður